Dagur - 06.05.1970, Síða 5
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
OKKAR PLÁGA
ST J ÓRN ARBLÖÐIN óttast það
meira en allt annað í undirbúningi
bæjarstjórnarkosninganna, að fólk
sé minnt á hina hraklegu sögu stjóm
arflokkanna á liðnum árum, enda
hefur sjálfur forsætisráðhenra óskað
þess, að þeim málum væri ekki
blandað saman! En fram hjá því er
ekki unnt að ganga í pólitískum
kosningum, að landsmál séu tekin á
dagskrá.
íslendingar fylgjast allvel með
því, er gerist meðal nálægra þjóða,
og það vekur undrun allra þeirra,
sem um stjórnmál hugsa, að á sama
tíma og vestrænar þjóðir búa við ört
batnandi lífskjör og stórstígar fram-
farir á flestum sviðum, skuli ein
þjóð dragast aftur úr. Hvaða þjóð
er það? Það eru íslendingar. Hvers
vegna fylgjast þeir ekki með? Er það
vegna aflabrests, verðhruns á erlend-
um mörkuðum, eða er það vegna
eldgosa eða herkostnaðar? Nei, við
liöfum á síðustu 10 árum búið við
aflagóðæri, já metafla fleiri ár, líka
markaðsgóðæri, eldgos hafa ekki
eitrað gróðurinn né ísinn lokað leið-
um til langframa. En við höfum haft
þá ríkisstjóm, sem er plága, ríkis-
stjórn, sem setið hefur rúman ára-
tug við völd, svikið flest sin loforð
og fyrirheit og leitt þjóðina svo af-
vega, að slíks eru engin dæmi. Eftir
ísalds- og kratastjóm í rúman ára-
tug, er íslenzka þjóðin að verða að
viðundri meðal Norðurlandaþjóð-
anna, og skulu þess nefnd örfá dæmi.
Stjórnin lofaði að efla atvinnuveg-
ina og skapa öllum landsins bömum
örugga atvinnu. Fólkið uppskai'
mesta atvinnuleysi sem orðið hefur
í áratugi og fjölmargir flúðu land.
Heitið var bættum lífskjömm. Efnd-
irnar em þær, að á síðustu ámm
hefur kaupmáttur venjulegra launa,
t. d. verkafólks, minnkað að mun,
eða 20—25% á síðustu tveim árum.
Heitið var, að standa vörð um ís-
lenzku krónuna. Fjórar gengisfell-
ingar, m. a. tvær gengisfellingar á
einu ári, em efndir þess fyrirheits.
Verðstöðvunarstefna var eitt af kjör-
orðum íhalds og krata. Allir vita
hvemig hún tókst. Ýsan hefur hækk-
að um 814%, kartöflur um 1293%,
kaffi um 432%, hveiti um 378% og
svo frv. Og það tekur lengri tíma að
vinna fyrir flestum nauðsynjum en
áður. í stað verðstöðvunar ríkir óða-
verðbólga í landinu. Það er naum-
ast von að forsætisráðlierra slíkrar
stjómar vilji blanda landsmálum í
bæjarstjómarkosningarnar! Þess er
vænst af kjósendum, að þeir skilji,
að blind flokksti'yggð er engin
dyggð, og í bæjarstjórnarkosningum
er unnt að veita lélegri ríkisstjórn
nokkra aðvörun. □
Islendingar virða rétt einstaklingsins — en
leggja þó álierzlu á sainfélagsskyldurnar
segir Bjarni Einarsson bæjarstjóri á Akureyri
BJARNI EINARSSON bæiar-
stjóri á Akureyri er ungur mað
ur, sonur séra Einars Guðn’a-
sonar prófasts í Reykholti og
Onnu Bjarnadóttur konu hans.
Hann fæddist í Reykholti og
ól-st þar upp en árið 1950 fór
hann að heiman til frekara
náms, varð stúdent við Mennta-
skólann í Reykjavík og nam sið
an viðskiptafræði, lauk háskóla
prófi 1958 en sigldi síðan utan
til framhaldsnáms í hagfræði og
skipulagsfraeðum. Vann eftir
heimkomuna við hagi’annsókn-
ir og hagskýrslugerð hjá Fram-
kvæmdabanka fslands og síðan
hjá Efnahagsstofnuninni.
Kona hans er Gíslina Guðrún
Friðbjörnsdóttir úr Reykjavík
og eiga þau tvö böi*n.
Bjarni Einarsson bæjarstjóri
er frjálslyndur hugsjónamaður,
vel máli farinn, vel kunnugur
völundarhúsum valds og fjár-
magns, atorkumaður með mikla
yfirsýn í embætti sínu og áhuga
samur um vöxt og viðgang Norð
urlands, sem hann telur nauð-
synlegt mótvægi við hlutfalls-
lega stóra höfuðborg. Hann
hefur verið bæjarstjóri á Akur-
eyri í þrjú ár.
Dagur bað bæjarstjórann að
svara nokkrum spurningum
blaðsins og hittist svo á, að
þann sama dag hljóp af stokk-
unum skip það í Þýzkalandi,
sem hlotið hefur nafn afa hans,
það er hafrannsóknarskipið
Bjarni Sæmundsson.
. Verður þú bæjarstjóri hér
áfram?
Ég hef nú verið hér þrjú ár,
þrjú kreppuár. Nú er að lifna
yfir hlutunum á ný. Það hlýtur
að veVa skemmtilegra að vinna
við stjórn bæjarmála þegar vel
gengur, og víst langar mig til að
reyna hvernig það er. Auk þess
á ég ýmsu ólokið hér. Annars
langar mig til að gera nokkra
grein fyrir aðdraganda að för
minni hingað norður og því,
sem til grundvallar Já.
Þú vannst þá hjá Efnaliags-
stofnuninni?
Já, frá stofnun hennar. Síð-
ustu árin, eða frá 1964, starfaði
ég einkiun að ákveðnum mála-
flokki, sem ég varð mjög hug-
fanginn af. Þetta voru byggða-
áætlanirnar. Mér finnst þróun
byggða-r í landinu rneðal allra
þýðingarmestu þjóðmála og
þeim ekki nægur gaumur gef-
inn, hvorki á æðstu stöðum né
meðal almennings. Ég hef mik-
inn áhuga á, að starfsa að þess-
um málum á sem breiðustum
grundvelli, eða á þeim vett-
vangi, sem árangurs er helzt að
vænta hvei-ju sinni. Ég gat
thugsað mót' aS hverfa fi'á þess-
um störfum á vegum ríkisins og
fara hingað, því ég áleit Akur-
eyri gegna alveg sérstöku hlut-
verki í byggðaþróun landsins.
Ég hef reyrldar tekið svo djúpt
í árinni að halda því fram, að
þróun Akureyrar ráði úrslitum
um þróun landsbyggðarinnar
yfirleitt. Þó ég í staifi mínu í
Efnahagsstofnuninni hefði náið
samband við fólk og fyrirtæki
víða um landið, fannst mér ég
að sumu leyti vera áhorfandi
fremur en þátttakandi í baráttu
landsbyggðarinnar. Bæjarstjóra
starfið á Akureyri virtist bjóða
upp á einstakt tækifæri til þess
að kynnast raunveruleikanum
ef eigin reynd. Einnig bjóst ég
við að komast að niðurstöðu
um, hvort Akureyri gæti gegnt
því þýðingarmikla hlutverki í
framtíðai-uppbyggingu íslenzks
þjóðfélags, sem mér og ýmsum
öðrum virtist hún þurfa að
gegna. Nú, að síðustu flökraði
það >að mér, að ef til vill gæti ég
látið eitthvað gott af mér leiða,
ásamt því að öðlast sjálfur dýr-
mæta lífsreynslu.
Hefur þú orðið fyrir von-
brigðum?
Nei. Starfið er einstaklega
fjölþætt og hér hef ég kynnzt
flestum hliðum mannlegs lífs.
Ég hef einnig haft bein persónu
leg kynni af rekstri margvis-
legra fyrirtækja, auk reksturs
Bjarni Einarsson.
þessa mikla bæjarfélags sjálfs
og þeirra margvíslegu stjóm-
sýslustarfa, sem þar þarf að
vinna. Hér hef ég einnig haft
kynni af mörgum merkismöim-
um, og eru þau kynni lærdóms-
rík og verða mér ógleymanleg.
Og ég er enn sannfærðari en
áður um, að Akureyri getur
gert það, sem hún þarf að gera,
ef bænum verða sköpuð þau
skilyi'ði, sem nauðsynleg eru,
og ef Akureyringar vilja það.
Mér finnst starfi mínu ekki lok-
ið hér. Kreppan setti strik í
reikninginn hjá mér, eins og
svo mörgum öðrum. Hennar
vegna höfum við átt í varnar-
baráttu undanfarin þrjú ár. Nú
er ástandið að breytast, og ég
held að tími sé kominn til að
snúa vöm í sókn, og mig langar
til að vera nálægur, a. m. k. við
upphaf sóknaraðgerðanna.
Sumir tala um Akureyrar-
kenningima?
Nafngiftin „Akureyrarkenn-
ingin“ er villandi. Hún er til
komin vegna þess hve mikið
hefur verið lagt upp úr þýð-
ingu Akureyrar fyrir þá byggða
þróun, sem talin er nauðsynleg.
En villandi er nafngiftin vegna
þess, að það er ekki fyrst og
fremst vegna Akureyrar, sem
áherzla er lögð á vöxt hennar,
heldui- vegna þeirra áhrifa, sem
vöxtur Aikureyrar hefur á þró-
un byggðar á Norðurlandi, og
þar með á þróun byggðar í land
inu sem heild, Þessai- byggða-
þróunarkenningar ættu því
fremui- að nefnast „Norðurlands
kenning“.
Gagnrýni hefur komið fram
við þessa kenningu?
Ég hef oráið var þrennskonar
gagnrýni, frá Reykjavík, Norð-
lendingum, öðrum en Eyfirðing
um, og þekn, sem líta á sig sem
málsvara sveitanna sérstaklega.
Sá misskilningur virðist algeng
m- meðal Reykvíkinga, að efl-
ing byggðar á Norðm'landi, og
þar með vöxtur Akureyrar, sé
gagnstæð hagsmunum Reykja-
vikur. Þessu er öfugt fai'ið. Á
höfuðboi'gai'svæðinu býr nú
meira en helmingur þjóðarinn-
ar, og því mun rúmur helming-
ur fólksfjölgunar í landinu
koma þar fram, án aðflutninga.
Slík þróun væri höfuðborgar-
svæðinu mjög hagstæð, mun
hagstæðari en ofþensla, slík
sem þar var á árunum 1950—
1960. Það er hagsmunamál
Reykvíkiniga að landsbyggðin
eflist, svo auðlindir landsins
alls nýtist sem bezt, auk þess
sem mikið fé mun sparast, því
mun ódýrara er að stækka
ýmsu helztu þéttbýlisstaði úti á
landi en Reykjavík, Við skulum
líka minnast síðasta sumars, en
þá kom áþreifanlega í ljós, að
ísland getur ekki án Norður-
lands verið. Ör vöxtur Sauðár-
króks, Akureyrar og Húsavíkur
er eina leiðin til að tryggja efl-
ingu byggðar á Norðm-landi svo
um muni og þar með hagkvæma
byggðaþróun í landinu. Á þessu
þurfa íslendingar að átta sig,
og þá Norðlendingar ekki síður
en aði'ir. Það, sem stefna þarf
að í þessum landsliluta, er að
stöðva hina miklu fólksflutn-
inga frá Norðurlandi, suður.
Það tekst því aðeins að unnt sé
að bjóða samskonar atvinnu-
tækifæri hér nyrðra og bjóðast
syðra og að félagsleg aðstaða sé
svipuð. Fyrir Norðlendinga þarf
Akureyri þá að geta komið í
stað Reykjavíkm- og' héraðsmið
stöðvarnai' þurfa að eflast svo
að þær geti veitt mun fjölbreytt
ari þjónustu og atvinnutæki-
færi en nú er.
Sveitir og kaupstaðir eiga
sameiginleg hagsnmnamál?
Ég vil láta það koma skýrt
fram, að ég tel hættulegt að
gera eins mikinn greinarmun á
hagsmunum sveita annars veg-
ar og kaupstaða og kauptúna
hins vegar, eins og sumir gera
þegar rætt er um byggðaþróun.
Vitaskuld eiga þeir, sem stunda
hina ýmsu atvinnuvegi sérhags
muna að gæta. En þetta eru
hagsmunir á landsvísu og skipta
ekki höfuðmáli þegar fjallað er
um þróun ákveðinnar byggðar
eða landshluta. Þetta kemur
gleggst í Ijós þegar við lítum
næst okkur sjálfum. Hið auðuga
landbúnaðarhérað við Eyjafjörð
er einn höfuðstyi'kur Akureyr-
ar, og Akureyri er áreiðanlega
máttarstólpi héraðsins. Utgerð-
arstaðirnir út með firðinum
fjdla svo upp í myndina, og þá
kemur í ljós, að hér er um eina
stórkostlega, lífræna heild að
ræða. Einmitt hér við Eyjafjörð
hefur þróazt afar hagkvæm
verkaskipting á milli sveitar-
félaga, sem tvímælalaust á veru
legan þátt í því, að iífskjör hér
eru meðal þeiira beztu í land-
inu. Ef unnt væri að gera Norð-
urland allt að slíkri heild sem
Eyjafjörður er, væri vandinn
leystur. Fjóiðungsmiðstöðin,
höfuðstaður Norðurlands, hér-
aðsmiðstöðvar, útvgesbæir og
sveitir mynda þá eina samstarfs
heild.
Fjórðungssambandið er spor
í þá átt?
Já, endurskipulagning Fjórð-
ungssambands Norðlendinga,
sem gengið var frá sl. haust, er
mjög þýðingaxmikið skref í
þessa átt. Efling þessara sam-
taka er mjkið hagsmunamál
Akm'eyrai', sem og annarra
sveitarfélaga á Norðm'landi. Ég
vona, að fljótlega verði imnt að
stíga það skref til fulls, að gera
sambandið að samtökum alli'a
sveitarfélaga í fjórðungnum
þannig, að sveitahrepparnir fái
þar beina aðild en ekki sýsl-
urnar fyrir þeirra hönd eins og
nú er.
Hvað viltu segja um pólitík-
ina?
Ég hef ekki tekið beinan þátt
í stjórnmálastarfsemi í meira en
áratug. Á háskólaárunum átti
ég nokkra aðild að stjórnmála-
baráttunni í FUF í Reykjavík,
en fyrst og fremst í Félagi frjáls
lyndra stúdenta. Ég var í stjórn
þess félags, formaður eitt ár. Að
loknu námi fór ég að starfa við
hagdeild Framkvæmdabankans,
undir stjórn dr. Benjamíns
Eiríkssonar, þess gagnmerka og
mikilhæfa manns. En bankinn
var pólitískt hlutlaus stofnun.
Um þetta leyti hófst líka lífs-
baráttan og þá var lítill tími til
félagsstarfa, enda afvandist mað
ur pólitík, en tileinkaði sér við-
horf hlutlauss embættismanns,
og þannig hefur það verið síðan.
Ég held að embættismenn ríkis
og sveitai-félaga eigi að vera
óhlutdrægir í pólitík. Störf
þeirra verða að vera málefna-
leg. En sé mönnum flokkspóli-
tíkin mikilvæg, er erfitt að
halda henni aðgreindri frá störf
um embættisins. Og eins og
bæjarstjórn Akureyrar er skip-
uð og bæjarmálefnum háttað,
tel ég bezt fara á, að bæjarstjór
inn dragi ekki taum neins
ákveðins stjórnmálaflokks, en
leggi mál fyrir á eins málefna—
legan hátt og kostur er. Fram-
faramál Akureyrar mega held-
ur ekki verða neitt pólitískt bit-
bein á landsvísu. Vöxtur þessa
bæjar er þjóðfélagslegt nauð-
synjamál, sem þarf að vera haf-
ið yfir flokkadrætti. Ég finn
raunar ekki hjá mér neina þörf
til að aðhyllast neitt sérstakt
hugmyndakerfi eða dá neina
pólitíska hugsuði. Útlend hug-
myndakerfi hafa öll reynzt fá-
nýt, og ég vorkenni þeim íslend
ingum, sem enn eru bundnir
slíkum kreddum. íslenzk stjórn
mál eiga fyrst og fremst að
byggjast á íslenzkri söguhéfð og
mótast af þörfum þjóðfélagsins
á hverjum tíma. Okkar þjóð-
félgashefð er framúrskarandi
lýðræðisleg og byggist á félags-
lega ábyrgri einstaklingshyggju,
sem er sérstæð fyrir okkur. ís-
lendingar virða rétt einstakl-
ingsins, en leggja áliérzlu á sam
félagslegar skyldur gagnvart
samferðamönnum sínum. Og
það er einmitt þessi sérstæða
í slenzka einstaklingshygg j á,
sem gerir íslendinga að raun-
'hæfum samvinnumönnum. Aúð
vitað hefur íslenzkt þjóðfélag
vsína galla. Þeir hafa verið við-
loðandi síðan á Sturlungaöld.
Við verðum að reyna að bæta
úr þessum göllum eftir beztu
getu og nota til þeés innlénda
og erfenda þkelringu og heil-
brigða skynsemi. En ’kostir þjóð
félags okkar eru rhiklu þýngri
á -metunum. Við skultim því
ekki fyrirverða okkur fyrir það,
heldur vei'a stolt af því, og láta
það vera að apa hugsunarfaust
eftii- öðrum þjóðum.
Þú ert sæmilega ánægður
með þjóðfélagið?
Við erum komin vel á -veg
með að byggja upp fyrirmyndar
þjóðfélag. Og á sumum sviðum
lengra komin en þjóðir, sem þó
þykjast hafa af miklu að státa.
Það kemur í Ijós á næstu ái'um,
hvort okkur tekst þetta eða
elriri. Ég held jafnvel, að vinir
okkar á Norðurlöndum' geti
ýmislegt af okkur lært, ekki
síður en við af þeim.
En víkjum þá að bæjarmál-
umun?
Aðrir mu-nu ræða þau í.smá-
atriðum næstu vikurnar, en ég
vil heldur tala um þau á breið-
ari gi'undvelli. Við skulum hafa
sem umræðugrundvöll þá/iþrjá
höfuðþætti, sem ég held að nái
yfir flest það, sem við erum að
gera og skiptá mestu máli þégar
litið ér yfir -léngri tíma. Þéssir
höfuðþættir eru atvinnumál,
stjórnsýsla, bæjarins og skipu-
lgasmál.
Ef þú vildir þá ræða atvinnu-
málin fyrst?- 5
Þróun atvinnulífsins í bæn-
um er undirstaða alha annarra
þróunar. Á eflingu atvinnulífs-
ins byggist batnandi hagur bæj
arbúa- og vaxandi framkvæmdir
og þjónusta bæjarfélagsins.
Ýmis atriði hafa áhrif á atvinnu
þróunina, efnahagslegar aðstæð
ur í landinu, ýmis ytri skilyrði,
sem ríkisvaldið hefur á sínu
valdi, aðstaða til atvinnurekstr-
ar í bænum og svo framtakið
heima fyrir. Bæjarstjórn getur
liaft töluverð áhrif á atvinnu-
þróunina, bæði beint og óbeint.
En það er sígilt deilumál hvern
ig opinberir aðilar haga afskipt
um sínum af atvinnumálum.
Við skulum ekki fara náið út í
þá sálma-nú, það yrði of lapgt
mál. Þó vi-l-ég. leggja áherzlu á
það hlutverk sveitastjórna -að
hafa staðgóða þekkingu á at-
vinnu-lífi sínu. Þær eiga að sgm
eina yfirsýn og staðarþekkingu.
Annað - þýðingaimikið atriði,
sem ég v.il nefna sérstaklega,. er
að hafa þarfir atvinnulífsins í
huga í framkvæmdum sveitar-
félagsiris. Hér í bæ skipta bástt
hafnaraðstaða og ný vatnsvéita
mjög miklu máli fyrir atvinnu-
líf bæjarins. Hafnarframkvæmd
ir eru hafnar og vatnsveitufram
kvæmdir hefjast innan tíðar.
Ýmislegt ileira er hægt að gera
atvinnulífinu til styrktar. Bæj-
arstjórn Akureyrar hefur . um
langan aldur haft meiri eða
minni afskipti af atvinnurnál-
um. BSerinn hefur reynt að
veita fyrirtækjum þá bjónu$tu,
sem hann hefur getað og veittar
hafa verið miklai' bæjarábyi'gð
ir. Bæjarsjóður er aðaleigandi
Útgerðarfélags Akureyringa og
einkaeigandi að Krossanesverk
smiðju. Þá hefur bæjarstjórn
nýlega átt aðild að fjárhagslegri
éridurskipulagningu Sana h.f.
og meginþátt í endurskipulagn-
irigu Slippstöðvarinnar h.f. ■ Að
vísu hafa afskipti bæjarstjórnar
af-atvinnumálum oft verið held
-ur: tilviljanakennd, og eins og
hjá ríkinu, og reyndar öðrum
opinberum aðilum, hafa af-
skjptin venjulega miðazt við,
annai's Vegar að reyna að anna
eftirspurn eftir lóðum og ann-
arri þjónustu eftir því, sem hún
hefur komið fram, og hins veg-
•ar við að bjargast út úr ýmis-
konar neyðarástandi. Afskipti
af . atvinnumálum mættu gjarna
miðast við að sjá eftirspurnina
fyrir og jafnvél skapa hana. Og
þó við getum ekki ráðið við-hag
.svéiflur þjóðfélagsins, ættum
við að geta stuðlað að því að
hagkerfi bæjarins verði oliki
éiris næmt fyrir slíkum sveifl-
tug, um leið og við stuðlum að
'Sem örustum vexti þess. -
Hvað um störf atvinnumála-
jiefndar? -s i
•Atvinnumálanefndin vat'Sur
þrjggja ára í sumar. Ég vona að
starfsemi hennar -stuðli að því
að afskipti bæjarstjórnar af at-
'Vinnumálum komist i fastara
form; Þýðingarmikið skref í þá
átt var stigið á sl. vetri þegar
•samþykkt var ný reglugerð fyr-
jr Framkvæmdasjóð A-ku-rcyr-
aar, sem m. a. felur í sér vísi að
atvinnumálastefnu bæjarstjóm
ar. Sjóðurinn er að vísu afar
félítill enn sem komið er, en ég
vona að aðstæður verði til að
efla hann sem mest á næstu ár-
um. Það mun auka sjálfstæði
bæjarstjórnar og áhrifavald á
hag bæjarbúa að hafa yfir að
ráða eigin fjármagni til áhrifa
á atvinnuþróun bæjarins.
Atvinnuleysi hefur þurrkast
út?
Veturinn í fyrra var mörgum
þungur í skauti. Þá voru hér
hátt á fimmta hundrað á at-
vinnuleysisskrá. Látlaust var
spurst fyrir um atvinnu hjá
þeim starfsmönnum bæjarins,
sem mannaforráð hafa, og marg
ir komu til mín. Það var sárt
að geta ekkert gert fyrir það
fólk, sem til mín kom, fólk, sém
vildi vinna og gat unnið. Það
eina, sem við gátum gert, var
að vinna að útrýmingu atvinnu
leysisins með fjáröflun til fram
kvæmda og stuðningi við at-
vinnufyrirtæki. Ég vona að sú
starfsemi hafi átt einhvern þátt
í því, að nú er ekkert raunveru-
legt atvinnuleysi hér á Akur-
eyri. Atvinnuleysi er eitt mesta
böl sem hent getur bæjarfélag.
Ég vona að bæjarstjórn Akur-
eyrar auðnist að stuðla að því,
að sú vofa sjáist hér ekki fram-
ar, og að hér verði á næstu
árum þróttmikil uppbygging á
sviði atvinnumála. Takist það,
fýlgir annað á eftir.
En hvað viltu segja um stjóm
sýsluna?
Sjálf stjórnsýslan er venju-
lega hálfgert olnbogabarn hér á
landi, bæði hjá ríki og bæjum.
En ef vel á að fara þarf hún
sitt. Við erum alltaf að taka
ákvarðanir um þetta og hitt, og
það er mikilsvert að teknar séu
réttai' ákvarðanir og að fram-
kvæmdir séu í réttri röð. Við-
bygging sjúkrahússins er ágætt
dæmi um veikleikana í stjórn-
sýslu ríkisins, en við höfum enn
ekki getað fengið neina endan-
lega skýrgreiningu af hálfu rík-
isvaldsins á hlutverki þessa
sjúkrahúss, hvort það eigi að
vera héraðssjúkrahús, fjórð-
ungssjúkrahús eða landsspítali.
Við eigum sjálfir erfitt með að
finna réttu lausnina á fyrir-
komulagi byggingarinnar. Það
má nefna fleiri dæmi um flókn-
ar ákvarðanir, sem byggja þarf
á ýmiskonar athugunum og það
þarf fólk til að gera þær, bæði
hjá bæ og ríki. Röng ákvörðun
er venjulega miklu dýrari en
kostnaður við undirbúnings-
athuganir. Annars væri þetta
ekki svo erfitt, ef unnt væri að
ráða til starfa alla þá sérfræð-
inga og aðstoðarmenn, sem
meðal fjölmennari þjóða er tal-
ið nauðsynlegt að hafa við hend
ina þegai- fjallað er um mikils-
háttar framkvæmdir eða stór-
feldan rekstur. En ef við gerð-
um það, yrði kannski ekki mik-
ið eftir til sjálfra framkvæmd-
anna, en þetta fólk er jafnvel
ekki til hér á landi. Því meiri
er okkar vandi, að byggja upp
öflugt stjórnkerfi með sem
minnstum kostnaði. Slíka stjórn
un þurfum við að bæta okkur
upp með fáu, menntuðu, dug-
legu og samvizkusömu fólki. Og
Akureyringar eru svo lánsamir
að hafa í sinni þjónustu slíkan
hóp. Stjórnsýsla bæjarins ein-
kennist af því, að hún hefur
verið miðuð við mun minna
bæjarfélag og minni umsýslu
en nú er. Kreppan tafði fyrir
okkur að skipuleggja þessi mál.
Nú er hins vegar mikil verkefni
framundan, sem gera meiri kröf
ur til stjórnsýslunnar.
Stjórnsýslustarfinu má skipta
í tvo þætti, þ. e. þann er snýr
að rekstri og hins vegar að
framkvæmdum. Báða þættina
þarf að auka eitthvað, en þó sér
staklega að skipuleggja þá. Slíkt
er í undirbúningi hjá okkur og
vona ég að árangur sé skammt
undan. Ýmsar nýjungar eru á
döfinni, þessu viðvíkjandi, svo
sem í bókhaldstækni. í því sam
bandi kemur til greina, að koma
upp bókhaldsmiðstöð hér á Ak-
ureyri, en til þess þui'fa margir
aðilar að koma sér saman um
það.
Þá má nefna áætlanagerð.
Undirbúningur framkvæmda-
áætlunar var hafinn hér á árinu
1966, en kreppan kippti reyndar
fótunum undan þeirri starfsemi,
því að tekjuáætlanh' gátu ekki
staðist. En nú er unnt að taka
þar þráðinn upp að nýju. Ég vil
hins vegar vara menn við því,
að taka áætlanir og áætlunar-
gerð of alvarlega, því áætlunar-
gerð er ekki form stjórnsýslu
heldur hjálpartæki, og sem slík
mjög gagnleg. Gagn áætlunar
felst fyrst og fremst í því að
með þeim gefst tækifæri til að
sjá framkvæmdir í víðara sam-
hengi og yfir lengri tíma. En
frumskilyrði þess, að fram-
kvæmdaáætlun komi að gagni
er, að hún sé endurskoðuð reglu
lega. Það þýðingarmesta og
gagnlegasta við áætlunargerð
er þó ef til vill sjálft starfið sem
fer í að gera áætlanir e'ða að
endurskoða þær. Það starf fel-
ur fyrst og fremst í sér, að
kanna vandamál bæjarfélagsins
á víðtækum grundvelli, sem
vitaskuld hvetur til skilnings og
framsýni samfara betri nýtingu
á fjármunum bæjarfélagsins.
En skipulagsmálin?
Aðal skipulag Akureyrar er
frá 1927 og liggur í hlutarins
eðli, að það er orðið úrelt. í sam
bandi við 100 ára afmæli bæjar
ins fór fram samkeppni um
skipulag miðbæjarins og eru
þau gögn í höndum bæjarstjórn
ar. Skipulagsstörf eru tímafrek
og umfangsmikil, ef þau eru vel
unnin og það er mikilvægt að
þa-u takist vel, því með skipu-
lagi eru teknar ákvarðanir, sem
margar aðrar ákvarðanir byggj
ast á og hafa mikil áhrif á líf
bæjarbúa. Hér á landi eru mál
þessi öll í molum. Skipulags-
skrifstofa ríkisins er liðfá og
getur ekki sinnt öllum þeim
verkefnum, sem hún þarf að
sinna. Þegar Reykjavíkurboi'g
þurfti að gera sitt aðal skipulag
varð hún að leita út fyrir land-
steinana eftir sérfræðingum.
Fyrir bæjarfélag á stærð við
Akureyri er þetta verkefni
erfitt, enda eru skipulagsstörf
hópvinna og ef vel á að vera
þarf skipulagshópurinn að hafa
frið til að sinna þeim, ótruflað-
ur af öðrum störfum. Gerðar
hafa verið tillögur um það af
Fjórðungssambandi Norðlend-
inga, að komið verði á fót á
Akureyri skipulagsskrifstofu
fyrir Norðurland allt, og er það
að mínu viti mjög raunhæf
lausn þessara vandamála. Það
er enginn vafi á því, að við
þurfum að fá aðal skipulag fyr-
ir bæinn allan, og þá vaknar
spurningin um skipulag ná-
grannasveitarfélaganna. Ég held
að æskilegt væri að taka upp
samstarf við þau um skipulags-
mál, því skipulag og vöxtur Ak
ureyrar hlýtur að hafa áhrif á
þau, enda gert ráð fyrir sliku
samstarfi í skipulgaslögUnum.
Á Akureyrai'svæðinu fer fram
einhverskonar sameining' sveit-
arfélaga þegai' fram líða stundir
eða stækkun lögsagnarumdæm-
isins á annan hátt.
Þau skipulagsstörf, sem mest
liggur á, önnur en aðal skipu-
lagið, eru deiliskipulag fyrh'
hafnarsvæðið og miðbæinn.
Þegar hefur verið ákveðin stað-
setning og gerð hafnarmann-
virkja og um leið er ákveðinn
hluti af miðbæjarskipulaginu.
Nú er unnið að skipulagi gatna
kerfis bæjai'ins, sem er hður í
aðal skipulaginu sjálfu og und-
anfari þess. Þá er að Ijúka skipu
lagning byggðasvæðis ofan
Gerðahverfis og einnig er unn-
ið að skipulagi fyrir smábáta-
höfn i Sandgerðisbót.
Akureyri hefur ekki verið
mikið spillt með röngum skipu-
lagsaðgreðum, og hér er enn
hægt að skipuleggja fyrinnynd-
arbæ. Miðbæ Akureyrar má
gera alveg sérstaklega skemmti
legan, raunverulegan miðbæ,
sem getur haldið þ.ví hlutverki
um alla fyrirsjáanlega framtíð.
Þetta er mun betra ástand en
t. d. í Reykjavík, þar sem gamla
miðborgin hefur tapað sínu miS
bæjarhlutverki.
(Framhald á blaðsíðu 2)
- Enn um Gljúfurvei
(Framhald af blaðsíðu 1)
við una, verði unnt að heij.i
franikvæmdir við Laxá innan
skamms.
Þess má geta, að 18—20 n:,
vatnsborðshækkun virðist ver;,
í samræmi við ályktanir sysiu
nefndar og Búnaðarsamband: •
S.-Þing. í fyrra og nálægt þv
sem nefndur er annar áfangi i
Gljúfurversvirkjun, eins og hún
var hugsuð áður en viöræðu
hófust um málið.
Ekki er líklegt, að nokkuri
lausn dcilunnar um nýjar virk j
anir í Laxá muni farsælli. □
n
GuSrún Jóhannesdóttir
MINNING
ÞEGAR samferðamennirnir
hverfa snögglega yfir móðuna
miklu, þá finnst okkru- stundum
sem ský di'agi fyrir sólu, og
dapurleiki sæki að okkur við
þá nálægð dauðans. Við þurf-
um stund til að átta. okkur.
Þannig fór fyrir mér þegai' ég
frétti lát Guðrúnar í Sandvík,
þann 21. apríl sl.
Ég vissi að vísu, að hún gekk
ekki heil til skógar hin síðari
ár, en ég hélt ekki að dauðinn
væri svona nærri. En maðurinn
með ljáinn gerir ekki alltaf boð
á undan séf, og enginn ræður
sínulm næturstað.
Guðrún var fædd 23. apríl
1907, að Þverá í Fnjóskadal,
dóttir hjónanna Maríu Gunnars
dóttur og Jóhannesar Bjarna-
sonar, sem þá var kennari þar.
Sama vorið og Guðrún fædd-
ist fluttu foreldrar hennar til
Flateyjar á Skjálfanda, þar sem
faðir hennar gerðist kennari og
hreppstjóri. í Flatey er víðsýnt
til allra átta og vorfagurt er
sígur sól ýfir norðurslóð. Þar
ólst Guðrún upp í hópi glaðra
syskina. Hún vandist snemma
á öll störf, sem unnin eru til
sjávar og sveita, enda hygg ég
að fá hafi þau störf verið, sem
hún kunni ekki skil á.
Hún hlaut góða undirstöðu-
menntun hjá föður sínum, auk
þess sem hún dvaldi einn vetur
við nám á alþýðuskólanum að
Laugum.
Þann 12. nóvember 1933 gift-
ist hún eftirlifandi eiginmanni
sínum, Jósep Kristjánssyni í
Sandvík í Glerárþorpi, og þar
var heimili þeirra æ síðan.
Þar bjó hún manni sínum og
dætrum indælt heimili, þar sem
sarnan fór myndai'skapur hús-
freyjunnar og listfengi hús-
bóndans.
Þau eignuðust 3 dætur. Maríu
Svövu, gift Arngrími Pálssyni,
Svanhvít Aðalheiði, gift Svav-
ari Hjaltalín og Nönnu Krist-
ínu, gift Emi Herbertssyni.
Við andlát góðra samferða-
manna rifjast upp margar end •
unninningar frá liðnum árun .
Þannig fer fyrir mér nú, að me :
kemur í hug þegar ég í fyrstn.
sinn var við setningu Glerár -
skólans, þá nýráðinn kenna .
við hann. Þá veitti ég athygll
fríðri og glæsilegri konu, sem
mér var sagt að héti Guðrúr.
Jóhannesdóttir og væri handa-
vinnukennari við skólann. Mé ■
duldist ekki að þarna var engi: .
meðalmanneskja, heldur hlauii
hún að búa yfir miklum hæfi ■
leikum. Það átti ég svo eftir ai?
sannreyna. Við vorum sam •
verkamenn um langt skeic,
bæði sem samkennarar, og ekfc'.
síður eftir að hún var xosin ’
skólanefnd, en þvi starfi gegnc ',
hún í allmörg ár.
Sem kennari var hún afar V'
sæl af nemendum sínum o;;
lagði mikla alúð við kennslun;
í skólanefnd var hún tiUÖgugO':
og vildi vinna að heiil skólans.
Hún unni söng og hljoðfæra -
slætti og hafði mjög blæfagra
millirödd, enda söng hún í mör;;
ár í kirkjukór Lögmannshlíðai ■
sóknar, eða meðan heiisa r«: j
•kraftar Ieyfðu.
Þá er ótalið starf hennar fyi •.■
kvenfélagið Baldursbrá, þav
sem hún gegndi formannsstöri -
um um skeið. Þá er mér of-
kunnugt, að hún var í mæðra-
styrksnefnd, og hefur an eln
reynzt þar góður hðsmaður.
Ég geri mér ljóst, að þess:
fátæklegu orð mín eru engau
veginn tæmandi lýsing á æv.
og starfi Guðrúnar heitinnar
Þeim er fyrst og fremst ætlao
að vera persónuiegar þakkir
fyrh' ágæta viðkynningu oi:
margvíslega hjálp. Ég þakka
henni fyrir langt og gott sam-
starf í skólamálum, sem hun
leysti svo vel af hendi, eins og’
allt, sem hún vann. Þá þakk .
ég henni margra ára ánægju •
lega samvinnu í kirkjukór Lög-
mannshlíðarsóknar. Og' siðasi
en ekki sízt þakka ég aUar
ánægjustundirnar, sem ég átti
á heimili hennar og hennai'
ágæta manns, Jóseps Krfstjáng-
sonar, og dætra þeirra.
Hún kveður nú þennan heim
um það leyti, sem í hönd fer sá
timi, þegar ríkir nóttlaus vor-
aldar veröld hér á norðursióð-
um. Þannig mun birta og heið-
ríkja skína yfir minningunnl
um hina mætu konu í hugum
allra sem kynntust henni.
Ég votta manni hennar, dætr=.
um, tengdasonum og bamáböm
um, sem öll 'hafa misst svo mik-
ið, mína innilegustu samuö.
„Þar sem góðir menn íaivg
þar eru guðs vegir.“
Blessuð veri minning G .4«
rúnar Jóhannesdóttur.
Hjörtur L. Jét'.stna,