Dagur - 03.06.1970, Blaðsíða 7
7
STYÐJUM
HJARTAYERND
EINS og kunnugt er, rekur
Hjartavernd rannsóknarstöð að
Lágmúla 9 í Reykjavík og fer
þar fram:
í fyrsta lagi hóprannsóknir á
fólki — konum og körlum. Er
þá fyrst og fremst leitast við að
finna hjarta- og æðasjúkdóma
á ýmsum stigum, jafnframt aðra
sjúkdóma, er geta verið undan-
fari hjarta- og æðakvilla.
Eru þessar sérstöku rannsókn
ir kerfisbundnar og eru þær
framkvæmdar í flestum menn-
ingarlöndum heims og þá í sam
ráði við Alþjóðaheilbrigðismála
stofnunina, og stefna allar að
sama marki, að vinna sameigin-
■lega á móti þessum ört vaxandi
sjúkdómi, sem ágerist nú mjög
í öllum svonefndum velferðar-
löndum og einnig hér á landi.
1 öðru lagi tekur stöðin til
skoðunar alla þá er þess óska
og má segja að þá fari fram
mjög nákvæm skoðun á heilsu-
fari viðkomandi, en þó fyrst og
fremst á hjarta- og æðakerfi,
eða svipuð skoðun og í áður-
nefndri hóprannsókn.
Mjög ört vaxlandi tækni á
sviði læknavísinda krefst stöð-
ugt nýrra tækja, sem stuð'la að
bættri sjúkdómsgreiningu og
þótt stuttur tími sé liðinn síðan
stöðin tók til starfa að Lág-
Ritgerðasamkeppni
BARNABLAÐIÐ VORIÐ og
Flugfélag íslands efndu til rit-
gerðasamkeppni um efnið:
London, höfuðborg og sam-
göngumiðstöð. Verðlaunin voru
ókeypis ferð með Gullfaxa, þotu
Flugfélags íslands, til London í
sumar og skoða hina heims-
kunnu stórborg.
Alls bárust 15 ritgerðir í þess
ari samkeppni, en verðlaunin
hlaut Valhildur Jónasdóttir,
Hrafnagilsstræti 23, Akureyri.
En bókaverðlaun hlutu: Drop-
laug Sveinbjarnardóttir, Ara-
götu 1, Reykjavík, Garðar Rún-
ar Árnason, Bölmóðsstöðum,
Laugadal, Árnessýslu og Hulda
Hafdís Helgadóttir, Esjubraut 7,
Akranesi.
Um ritgerðirnar dæmdu Eirík
ur Sigurðssoon, ritstjóri Vors-
ins, Sveinn Sæmundsson, blaða
fulltrúi og Kristján skáld frá
Djúpalæk.
(Fréttatilkynning)
múla 9 og þá búin hinum nýj-
ustu og fullkomnustu tækjum
er nú þegar orðið bráðnauðsyn-
legt að auka þann tækjabúnað,
en til þess að það megi verða,
skortii- fé, en öll slík tæki eru
afar dýr.
Sl. ár var stofnað happdrætti
að tithlutan Hjartaverndar til
að styrkja þá sjúklinga, sem
leita þurfa sér lækninga erlend
is vegna hjartasjúkdóma, sem
ekki var 'hægt að gera neitt við
hér heima. Hafa nokkrir sjúkl-
ingar nú þegar notið mjög góðs
stuðnings af ágóða fyrrnefnds
happdrættis, en þar sem nú
mun ákveðið að Almannatrygg-
ingarnar taki að sér þetta hlut-
verk í fnamtíðinni, þá er eigi
lengur þörf á aðstoð Hjarta-
verndair í þessu augnamiði.
En önnur verkefni Hjarta-
verndar eru mörg og aðkall-
andi ig hefir nú framkvæmdar-
(Framhald af blaðsíðu 8).
ur Níl, barst ihnurinn á land
undan golunni og menn þustu
á eftir á árbakkanum til að
anda að sér hinni góðu lykt.
Flest ilmvötn eru unnin úr
jurtaríkinu og eru fleiri en nöfri
um tjáir að nefna. En ambra,
eitt frægasta ilmefnið, grátt og
vaxkennt, myndast í innyflum
búrhvala. Og moskus fæst úr
kynkirtlum hjartartegundar
einnar, frægt ilmefni. Sagt er,
að kona, sem vel þekkir ilm-
vötnin og smekk karlmanna,
eigi auðvelt með að vinna
lijörtu þeirra!
Á ÞORRABLÓTI
Það bar til á þorrablóti einu í
Eyjafjarðarsýslu, ekki alls fyrir
löngu, að boð voru gerð fyrir
bónda einn, sem þar var, að
eftir honum væri beðið. Var
þar kominn bílstjóri og sveit-
ungi hans til að sækja hann og
konu hans, eftir umtali. Bjuggu
hjónin sig nú til heimferðar,
glöð í bragði af góðum fagnaði.
En á meðan bílstjórinn beið,
brá hann á það ráð, að gera sér
nokkurt gaman. Gekk hann til
bónda eins er út kom, og sagði
honum að lögreglan væri á
næstu grösum. Innan stundar
höfðu allir heyrt söguna, og
stjórn Hjartaverndar ákveðið
■að halda happdrættinu áfram
með líku sniði, en þó breyttu
nafni og heitir happdrættið nú:
HAPPDRÆTTI HJARTA-
VERNDAR og ágóða þess varið
til m. a. tækjakaupa og annarra
nauðsynlegra hluta, sem allt
miðar að því að gera starfsem-
ina fjölbreyttari öllum landslýð
til heilla.
Hjartavernd væntir þess að
þór hjálpið til við sölu happ-
drættismiðanna og vonar að
happdrættið njóti jafn góðrar
fyrirgreiðslu og sl. ár.
Nú leitar Hjartavemd stuðn-
ings allra þeirra, sem berjast
vilja á móti skæðasta sjúkdómi
þjóðarinnar í dag og væntir
þess að nú sem fyrr, þegar gott
og göfugt málefni er á ferðinni,
láti Norðlendingar efcki sitt eft-
ir liggja og veiti þessu nauð-
synjamáli verðugt brautargengi.
tóku þann kostinn, flestir, að
ganga heim en skilja bíla sína
eftir á samkomustað. Enginn
varð lögreglumanna var, en
furðu margir sáust gangandi á
ferð þá nótt.
SENN VORAR
Austur í Hallormsstaðaskógi
vaxa 34 tegundir barrtrjáa og
dafna margar vel og una ís-
lenzkum staðháttum. Og marg-
ar þessar tegundir voru í haust
þaktar þroskuðum könglum,
eftir hagstætt skógræktarsum-
ar. Skógræktarmenn söfnuðu
þar könglum margra tegunda,
jafnframt því að fá þá úr öðr-
um áttum og margar um lang-
an veg, ásamt fræjum lauf-
trjánna. Nú vorar, veður
hlýna og jörð fer að anga, fræj-
um verður sáð í mold, frjóangar
teygja sig móti birtunni og
brumknappar opnast. Hve marg
ir vilja þá ekki hjálpa vorinu
til að klæða landið skógi?
Orðsending til
ðlmennings
KRÍAN fer langan veg til ís-
lands, til þess að njóta í íslenzk-
um kjörlendum sínum sumars
Og ástalífs.
Margir sækja í kríuvörp eftir
eggjum, þó slíkt sé lögbannað,
því .að fuglinn nýtur alfriðunar.
Víða á landinu horfir til út-
rýmingar á kríu, vegna mikillar
eggjatínslu á undanförnum ár-
um. Þá h.afa votviðrasöm og ill-
viðrasöm sumur stuðlað að mikl
um ungadauða.
Eru ekki allir íslendingar sam
mála um að útrýming þessa víð-
förula, líflega og ljúfa sumar-
gests yrði mikið áfall?
Lofum kríum að eiga egg sín
í friði.
Stjórn Sambands
Dýi-averndunarfélags íslands.
Þorsteinn Einarsson.
Vegagerð ríkisins vantar
ungan VÉLAMANN
með búsetu á Húsavík.
Uppl. gefa Vegagerð rík-
isins á Akureyri og Jón
Sigurðsson, verkstjóri,
Húsavík.
Móðir okkar,
ELÍN EINARSDÓTTIR,
andaðist á Fjórðungssjúkra'húsinu á Akureyri
laugardaginn 30. maí. — Jarðarförin fer frarn frá
Akureyrarkirkju, laugardaginn 6. júní, kl. 13.30.
Guðríður Tryggvadóttir,
Kristjana Tryggvadóttir.
Þökkum af alhug auðsýnda sarnúð og vináttu við
andlát og jarðarför föður okkar, fósturföður,
'tengdaföður, afa og langafa,
FRIÐBJARNAR JÓNASSONAR
frá Þrastarstöðum.
Sérstakar þakkir færum við læknuin og hjúkrun-
arfólki Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.
Jóna Friðbjarnardóttir, Ragnar Emilsson,
Þórður Friðbjarnarson, Anna Sigurgeirsdóttir,
Baldvina Baldvinsdóttir, Ólöf Tómasdóttir,
Dana Ainar, Steingrímur Felixson,
Sólveig Stefánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
SMÁTT & STÓRT
R.M.R. — M.V.S.T. — 8 — 6 —
70 — 81/2 — BM — HV.
FRÁ AKUREYRARKIRKJU.
Kirkjan er opin til sýnis alla
virka daga kl. 10—12 f. h. og
2—4 e. h. Á sunnudögum kl.
2—4 e. h. — Kirkjuvörður.
SJÓMANNAMESSA verður í
Akureyrarkirkju n. k. sunnu-
dag kl. 10.30 f. h. Sálmar nr.
531 — 364 — 125 — 660 — 681.
— B. S.
LÖGMANNSHLÍÐARKIRKJA.
Messað kl. 2 á sunnudaginn.
Sálmar nr. 43 — 528 — 137 —
681 — 660. Bílferð úr Glerár-
hverfi kl. 1.30. — P. S.
FÍLADELFÍA, Lundargötu 12.
Samkoma hvern sunnudag kl.
8.30 e. h. Allir velkomnir. —
Fíladelfía.
FRÁ Sumarbúðunum, Vest-
mannsvatni! Enn geta nokkur
börn komist í sumarbúðirnar.
— Stjórnin.
TAPAÐ
Kulm KVENÚR tapað-
ist í bænum s.l. miðviku-
dag. — Finnandi hringi
í síma 1-28-05.
HJÓLKOPPUR, merkt-
ur „PONTIAC* tapað-
ist, sennilegast við Sjöfn.
Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 2-11-77. —
Fundarlaun.
í vetur tapaðist KARL-
MANN SARMBANDS-
ÚR á Svalbarðsströnd.
Skilist gegn fundariaun-
um til Árna Sigurjóns-
sonar, Leifshúsum.
Vil taka á leigu ÍBÚÐ.
Uppl. í síma 1-25-83.
Ung stúlka óskar að taka
á leigu HERBERGI
í sumar.
Uppl. í síma 1-12-90.
ÍBÚÐ!
Vil kaupa 3—4 herbergja
íbúð. — Tilboð merkt
„íbúð“ sendist blaðinu
fyrir 10. júní.
HERBERGI til leigu.
Uppl. í síma 1-11-13.
Tveggja eða þriggja
herbergja
ÍBÚÐ ÓSKAST
til leigu.
Einlwer fyrirfram-
greiðsla kemur til greina.
Uppl. í síma 1-23-65
eftir kl. 5 e. h.
GÓÐ AUGLÝSING -
GEFUR GÓÐAN ARÐ
I.O.G.T. stúkan Akurliljan nr.
275. Fundur n. k. fimmtudag
kl. 21.00 í Ráðhúsinu. Félagar
fjölmennið. — Æ.t.
SKOTFÉLAGAR. Æfing á
fimmtudaginn. Farið frá lög-
reglustöðinni kl. 8.
SUNDLAUGIN á Syðra-Lauga
landi verður opin almenningi
sem hér segir: Miðvikudaga
og föstudaga kl. 8.30 til 10.30
e. h. og sunnudaga kl. 2 til 4
e. h.
IIANDAVINNUSÝNING nem-
enda Húsmæðraskólans á
Laugalandi verður laugardag
inn 6. júní frá kl. 2—10 e. h.
Tlboð óskast í VOLKS-
WAGEN station, árgerð
1966.
Uppl. í Hólabraut 19,
næstu kvöld.
Til sölu HRAÐBÁT-
UR, 141/9 fet, ásamt
mótor og vagni. Aðeins
notað í 50 tíma.
Uppl. í síma 2-15-70.
POTTABLÓM til sölu
frá kl. 8—10 e. h. í
Langholti 17.
Til sölu hálfsjálfvirk
ÞVOTTAVÉL.
Uppl. í Hafnarstræti 41,
miðhæð.
Til sölu er
MOBYLETTE vélhjól,
lítið notað og vel með
farið. — Ódýrt!
Uppl. í síma 1-18-70.
Stór FATA- og TAU-
SKÁPUR til sölu.
Þorsteinn, Blómsturvöll-
um.
Til sölu, sem ný, 4 BÍL-
DEKK, 895x15, með fín-
gerðu mynztri. Henta
t. d. fyrir Bronco.
Uppl. .í síma 2-12-12.
nælon koma næstu daga.
Kápur
ullar og terrylene koma í
miklu úrvali þegar verkfall-
ið leyist.
MARKAÐURINN
SÍMI 1-12-61