Dagur - 23.09.1970, Page 8
!S$$$$S$$$5$$$$$$5S$$$$$$$$$$$$$$$$$$$5$$$$$$$$$$$$$$$S
SMÁTT & STÓRT
Samgöngubót á hálendinu
‘4rnstastöðum, 12. sept. Það fer
;kki hjá því að hent hafi þá
■ikagfirðinga, sem leið hafa átt
: fcílum sunnan yfir Sprengisand
■ið harma það, að ekki skuli
hafa verið unnt að komast
;'\fram vestur til Skagafjarðar
ið fcaki byggða, heldur þurfa
ínnað tveggja ofan í Bárðardal
iöa Eyjafjörð og þaðan heim.
Svo varð þó að vera því á leið-
nnj vestur var ein megin tor-
' æra Jökulsá eystri.
Það er a. m. k. víst, að fyrir
bessn fann Ingólfur Nikódemus
:or , húsasmiður á Sauðárkróki,
mikiill útivistarmaður og ferða-
^ai pur, og ásetti sér að bæta úr.
’Náði hann samningum við yfir-
’öld vegamála um að hirða í
því skyni járngrindarbi'ú suður
i Sólheimasandi. Hér var að
•vísu ekki í næsta kaupstað að
: ara til aðdrátta, en ekki lét Ing
• ilfur vegalengdina og fyrirsjá-
ndega, margháttaða erfiðleika
. iö búferlaflutninga brúarinnar
iftra sér, en gerði, í ihitteðfyrra-
íaust, út leiðangur suður á Sól-
: íeimasand og sótti mannvirkið.
'?imj vannst ekki til annars þá
jm haustið en að koma brúnni
áíangastað við Jökulsá. í fyrra
.iumar var svo hafizt handa við
nð koma 'brúnni á ána og hafði
fngólfur yfirumsjón með því
verki. Vegna únfellis, sem mjög
'pillti ófullkomnum vegi inn að
i n únni, reyndust efnisflutningar
il brúargerðarinnar tafsamir og
torveldir, svo að verkinu varð
ekki lokið í fyrrasumar. í sum-
ar var svo verkinu fram haldið
og í sept.byrjun var brúin kom-
in á sinn stað. Fór vígsla hennar
fram laugardaginn 5. sept. s.l.
að viðstöddum rúml. 100 manns.
Fluttu þar ræður Ingólfur Nikó
demusson, Snæbjörn Jónasson,
yfirverkfræðingur, sr. Gunnar í
Glaumbæ og Haukur bóndi í
Vík. Síðan var haldin vegleg
veizla austur í Laugarfellsskála.
Með brúarsmíðinni á Jökulsá,
norðaustur af Laugarfelli, hafa
vegir opnazt „til allra átta“.
Hægt er nú að fara milli Kjalar
og Sprengisands norðan jökla
og velja um leiðir norður af:
niður í Bárðardal, Eyjafjörð,
Vesturdal, Blöndudal.
Ég er ekki viss um að allir
með þessari
mikið afrek
geri sér ljóst, að
brúarsmíði hefur
verið unnið, rniðað við allar að-
stæður. Vegamálastjórnin mun
hafa veitt til verksins kr. 400
þús. Það var góður stuðningur
en engan veginn allt, sem þurfti.
Varð því ekki hjá komizt, að
treysta mjög á þegnskap margra
manna um ókeypis aðstoð, og
hann brást ekki. Varð Ingólfi
gott til liðs því honum reyndist
auðvelt að vekja áhuga á verk-
efninu. Fyrir fáeinum dögum
lét hann þau orð falla, að hann
hafi vitað, að áhugi væri víða
fyrir hendi, aðeins þyrfti að
leiða þær sitrur saman í einn
farveg, þá væri björninn unn-
inn. — Þannig tala hugsjóna-
menn. Brúin er vottur þess
hvernig þeir vinna. —mgh
Hafnarframkvæmdum miðar veS
Hrísey, 21. sept. Ógæftir hafa
hamlað sjósókn að undanförnu
og hefur því lítill afli borizt á
land. En nú er sérstaklega gott
veður í dag.
Fólk hefur verið að taka upp
kartöflur sínar, sem eru heldur
lítið sprottnar að þessu sinni,
en kartöflugrasið var ekki alveg
fallið.
Stöðugt er unnið við höfnina
og ganga framkvæmdir, held ég,
eftir áætlun. Búið er að setja
járnþil á 25 m kafla og stendur
til að dæla í uppfyllingu innan
við. Þetta er allt á góðri leið,
og vonandi gefur guð góða tíð
í haust. S. F.
BÝÐUR NOKKUR BETUR?
SUNNLENZK laxveiðiá, sem
hér verður ekki nafngreind, var
í fyrra leigð fyrir 700 þús. kr.
til stangveiði. I ár voru boðnar
í hana 2,2 milljónir og um þá
upphæð samið. Nú er búið að
bjóða 4,4 millj. ísl. kr. í þessa
sömu laxveiðiá til veiða næsta
ár. En landeigendur bíða betra
boðs!
ÓTÆMANDI AUÐUR
Hin háa og ört hækkandi leigai1
er tímanna tákn og á eftir að
koma betur í ljós næstu árin.
Mengun vatna og veiðiáa aust-
an hafs og vestan og alger dauði
í sumum, eykur eftirspurnina
þar sem ár eru enn lítt eða ekki
mengaðar. Þess vegna keppa út
lendir veiðimenn eftir veiðileyf
um hér á landi, og mörgum
þeirra ofbýður ekki verð, sent
hér er talið hátt. fsland er ná->
lega eina landið í stórum heints
liluta, sem spillir ekki veiði í ánt
og vötnum og veitir börnunti
sínunt og þeim, sem hingað
koma, ferska náttúru — hreint
loft, tært vatn og veiðivon í
fjölda vatna og vatnsfalla. Þetta
er dýrmætara með hverju ári
sem líður. Enn eru fjalla- og
heiöavötn Iítt nytjuð að nýjunii
hætti, einkunt vegna vondra
vega að þeini. Og hvarvetna má
auka veiðina með því að aðstoða
náttúruna við fiskeldið. Hér er
um ótæmandi möguleika að
ræða.
FÓÐURKORN HÆKKAR
í VERÐI
Talið er, að fóðurkorn, sem ís-
lenzkir bændur eru orðnir mjög
liáðir í búskap sínum, muni
halda áfram að hækka í verði
á heimsmarkaðinum. Ástæðan
er ni. a. minnkandi framleiðsla
korns í mörgum ríkjum Banda-
ríkjana af völdum sveppateg-
undar, er rýrir uppskeruna til
mikilla muna. Um þetta hefur
verið skrifað í brezkum bún-
aðarblöðum og varað við að
treysta um of á framleiðslu
landbúnaðarafurða með erlend-
um korntegundum í eins rík-
um mæli og verið hefur, en jafn
framt livatt til aukinar ræktun-
ar þess fóðurs, sem unnt er að
framleiða heima. Hér á íandi
liefur hið erlenda korn verið ó-
dýrt, miðað við verð á innlendu
heyfóðri, og þess vegna, og
ennfremur vegna .lítillar upp-
skeru héys, hafa. bændur keypt
lúð erlenda fóðurknm í miög
vaxandi mæli hin síttustu ár,
stórfelld kaup ákvéðin. ná í
haust og vetur.
ÖDÝR HEYVERKUN
Allvíða hafa bændur nú í suinar
verkað hluta heyfóðursins sem
votliéy, svo sem þeirra er venja,
en einnig með nýjum hætti og á
ódýran hátt. Reynslan liefur
sýnt að það þarf hvorki lihnin-
liáa turna eða járnbent stein-
steypuhús fyrir vothey, þótt
hvorugt sé lastað. Bóndinn á
Kleif á Árskógströnd hefur ár-
um saman verkað vothey án
nokkurs húsakosts. Hann slær
grasið með sláttutætara, lætur
það í haug á þurrum stað, press
ar það, ef með þarf, nfeð drátt-
arvélinni og lætur síðan jarðveg
yfir. Þetta hey hefur haldist ó-
skemínt í mörg ár. Aðrir slá
upp éinskonar stíu inni í hlöðu
eða utan við hlöðuvegg fyrir
votheýið og reynist vel, einku-m
ef maurasýra er látin í heyið. Á
þennán hátt verður efnatap lít-
ið, og unnt að bjarga heyfóðri
frá skemmdum af völdum ó-
þurrka.
MEÐ LEPP FYRIR AUGA
í íslendingi-fsafold, sem borin
var út um bæinn í gær, er rit-
stjóri Dags yíttur fyrir að gera
kröfur um sættir í deilunni
miklu um Laxá. Ðagur er þakk-
látur fyrir það, að á þetta er
minnt og viðurkennt og þykir
ekki vansæmd að. En um leið
og þetta er þakkað, vill Dagur
benda ritstjóra íslendings-ísa-
foldar á, að nú þurfa sem allra
flestir að taka lepp frá auga sér
og leggja sáttum lið.
ningar kæra Laxárvi
i nauonngaruppboSi
GÆR VAR Húsgagnaverk-
.miðjan Vaíbjörk, Glerárgötu
18, boðin upp og seld, sam-
!cvæmt áður auglýstu nauðung
u-uppboði. En á ýmsu hefur
.^engið í rekstri fyrirtækisins
>g þar urðu fyrir skömmu eig-
mdaskipti að nokkru. Það sem
,,elt var, voru verzlunarhús og
verksmiðja, ásamt vélum. Hæst
ijóðandi var Reinhold Krist-
jánsson, f. h. Atvinnujöfnunnar
sjóðs sem bauð 15,5 millj. kr.
Fyrirtækið Valbjörk, hefur
skapað sér góða aðstöðu við
Glerárgötu 28, framleitt margt
góðra muna, og veitt verulega
atvinnu. Væntanlega heldur
húsgagnaframleiðslan, eða ann-
ar umtalsverður iðnaður áfram,
þótt enn hafi orðið eigenda-
skipti. □
Háttúruvemdarsamtök stoínuð
: 'íÁTTURUVERNDARSAM-
TOK Austurlands voru form-
ega stofnuð á fundi á Egilsstöð-
im sunnudaginn 13. september
al. Sóttu stofnfundinn um 50
inanns, en á annað hundrað ein
•staklingar höfðu þá skráð sig í
uamtökin.
A fundinum var gengið frá lög-
um samtakanna, en í þeim er
kveðið á um stefnumið þeirra og
starfshætti. Hyggjast samtökin
vinna alhliða að náttúruvernd á
félagssvæðinu í samræmi við
lög um náttúruvernd og í sam-
vinnu yið alla þá aðila, sem láta
sig n'áttú’rtivernd varða. Er sér-
staklega fram tekið, að samtök-
in muni leitast við að hafa vin-
samleg samskipti við þá aðila,
er kunna að. hafa hagsmuna að
gæta, sem andstæðir eru nátt-
úruverndarsj ónarmiðum.
Að markmiði sínu ætla sam-
tökin m. a. að vinna með
fræðslu um náttúruvernd meðal
almennings, heimildasöfnun og
rannsóknum, svo og með athug-
unm og upplýsingum varðandi
(Framhald á blaðsíðu 2)
HINN 15. september barst em-
bætti saksóknara ríkisins kæra
frá Félagi landeigenda á Laxár-
svæðinu vegna stíflugerðar Lax
árvirkjunar við Mývatn. Segir
í kærunni, að stíflurnar, sem
smíðarar voru 1960 og 1961, hafi
verið gerðar án leyfis réttra um
ráðamanna landsins. Kveða
bændur stíflurnar hafa alger-
lega rofið frjálsa för göngusil-
ugns milli Laxár og Mývatns,
en með því hafi verið valdið
stórkostlegu, óbætanlegu tjóni á
silungsstofninum, sem frá fornu
fari hafi verið til mikilla bú-
drýginda. Segja bændur aldrei
hafa verið rætt við alla þá fjöl-
mörgu veiðiréttareigendur, er
þar hafi hagsmuna að gæta.
Þá segir í kærunni, að stífl-
urnar hafi valdið því, að Mý-
vatn hafi frosið á vetrum alveg
að stíflunum, en áður hafi
straumvatnið út í kvíslar Laxár
haldið opinni vök, þar sem álft
og húsönd hafi náð í æti, þegar
vatnið var víðast annars staðar
ísi lagt. Hafi afleiðingin orðið
sú, að álft og húsönd hafi fallið
úr hor unnvörpum á vetrum,
síðan stíflurnar voru settar.
Þá segir í kærunni til sak-
sóknara, að ráðuneytisleyfið til
Stíflugerðarinnar hafi orðið til
með ólögmætum hætti, þar sem
það hafi verið gefið að þeim öll
um forspurðum, er hagsmuna
hafi að gæta.
Loks er í kærunni krafizt op-
inberrar rannsóknar á atferli
stjórnar Laxárvirkjunar öllu,
og að höfðað verði opinbert
sakamál á hendur stjórninni. Er
vitnað í kærunni til ákvæða al-
mennra hegningarlaga um brot
í opinberu starfi og til ákvæða
um refsingar fyrir skemmdar-
verk og eignasviptingu. Segja
kæruaðilar, að brot stjórnar
Laxárvirkjunar sé varanlegt
brot, sem staðið hafi yfir öll
síðustu 10 ár.
□
Huginn cg dvalarfólk Sólborgar
SUNNUDAGINN 20. septem-
ber fór Lionsklúbburinn Huginn
á Akureyri með vistfólk Sól-
borgar, heimili vangefinna, 40
manns, í skemmtiferð fram í
Eyjafjörð. Var komið í Þverár-
rétt og dvalið þar um stund, en
síðan ekinn hringurinn, um
Möðruvelli og Saurbæ, en
hressing veitt við Melgerðis-
mela á heimleið.
Veður var hið bezta og þessi
skemmtiferð veitti mörgum
þeim ánægju, sem oft gleym-
ast. □
Álffahjóniií
EIN ÁLFTAHJÓN verptu í
sumar í nágrenni Akureyrar, og
komu þau upp þremur ungum,
augnayhdi hverjum þeim, er
séð hafa. En fyrir helgina, á
föstudagskvöld, fóru þrír ungir
og drápfúsir Akureyringar, —
vopnaðir rifflum, og skutu á
þessa fallegu fjölskyldu út um
glugga bifreiðar- sinnar. — Til
þeirra sást og var hinn Ijóti
leikur stöðvaður. En tvær álftir
voru í sárum og þurfti að lóga
þeim. Lögi-eglan á Akureyri
greip sökudólgana og méðgengu
tveir þeirra fljótlega, og sá
þriðji með meiri tregðu. Hér
voru ekki svangir menn á ferð,
og eiga sér því fátt til afsökunar
í þeim sökum að fara með skot-
vopn án löglegra leyfa, skjóta
friðaða fugla og fremja þann
verknað í landi annars manns.
Hljóta allir góðir menn að víta
slíkan verknað.
Fyrir skömmu var auglýst
eftir þjófum. Þeir munu nú
komnir í leitirnar og höfðu stol-
ið rafgeymum úr dráttarvélum í
bæjarlandinu. Því máli er enn
ekki lokið, en að mestu upplýst.