Dagur - 07.10.1970, Blaðsíða 1
K
tölublað
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. BoX' 397
SÉRVERZLUN:
LJÓSMYNDAVÖRUR
FRAMKÓLLUN - KOPIERING
Þrymur hreif áheyrendur
Þórshöín 7. október. Karlakór-
inn Þrymur frá Húsavík hélt
söngskemmtun á Raufarhöfn í
gær og hér í félagsheimilinu á
Þórshöfn að kveldi sama dags,
undir stjórn tékkneska söng-
stjórans Jaroslava Lauda og við
undirleik frú Lauda. Þetta var
góð heimsókn, karlakórinn um-
skapaður í höndum síns nýja
söngstjóra og hreif áheyrendur.
Heyskap er nú eiginlega lok-
ið. Það síðasta af grænfóðrinu
er komið í hlöður. Eru það góð
heyskaparlok eftir atvikum,
enda tíð hin hagstæðasta um
hálfs mánaðarskeið. O. H.
Bjóðum ekki hætfunni heim
HIÐ hörmulega slys í Reykja-
vík, er tvö átta ára börn drukkn
uðu í gróf í Breiðholtshverfi, er
mikil aðvörun. Gröf þessi var
mjög djúp, full af vatni, af
mönnum gerð, en með öllu
óvarin og ómerkt.
Nýja Esja rennur út úr smíðahúsinu í sjó fram. (Ljósm.: E. D.)
Ný Esja sjósett á Akureyri
VIÐ FÖGNUÐ ÞÚSUNDA BÆJARBÚA
Geimfarar í heimsókn
GEIMFARARNIR Lowell,
Haise og Swigert, er heims-
þekktir urðu í för Apallos 13,
komu til Reykjavíkur með
bandarískri herþotu á fimmtu-
daginn. Þeir hafa komið fram
í útvarpi og sjónvarpi. Dvöl
þeirra lauk á sunnudag. í þess-
ari för munu þeir heimsækja
nokkur önnur lönd álfunnar,
sem sérlegir fulltrúar Nixons
forseta Bandaríkjanna. □
MENGUN
HINN 1. október birti Tíminn
eftirfarandi grein Ingólfs
Davíðssonar grasafræðings:
„Síðari hluta ágústs fór undir
ritaður nokkrar ferðir til Hafn-
arfjarðar að skoða garða. Trjá-
gróðurinn var óvenju vesæll að
sjá, einkum reyniviðartegundir,
en einnig birki, víðir, heggur,
hlynur og jafnvel ribsrunnar.
Laufið var víða með þornaða,
sérkennilega rauðbrúna jaðra.
Ungir hreggsprotar voru sums-
staðar vanskapaðir, dökkir og
kringvafðir í endann. Hlynblöð
hvítrákótt. Börkur á nokkrum
reynitrjám skorpinn og óvenju
Hve oft er ekki hættu af slík-
um framkvæmdum boðið heim,
t. d. hér á Akureyri? Blaðinu
er tjáð, að starfsmenn bæjarins
hafi fyrir helgina sett hættu-
merki á nokkra staði, þar sem
ræsa- og skurðagerð stendur
yfir, og ei’ það vel. En lögreglan
þarf að fylgjast með því, að hin
ir ýmsu framkvæmdaaðilar í
bænum virði öryggisreglur og
bjóði ekki þeirri hættu heim, er
svo válegum tíðindum olli syðra
dökkur. Toppar víða þurrir og
visnir, einkum á stórum reyni-
trjám og sömuleiðis greinar
ofantil á trjánum. Trén laufguð
ust seint í vor og sum felldu
laufið í byrjun júlí, þótt þau
virtust laufguð að eðlilegum
hætti í fyrstu.
Ég' skoðaði laufið og fann
ekki í því neinar skemmdir af
völdum sveppa og til frekari
fullvissu sendi ég nokkur sýnis
horn utan til Pannsóknar og
fundust þar heldur ekki sveppir
í laufinu, en allt benti til þess
að um einhverskonar sviðnun
væri að ræða, helzt loftborna.
Samkvæmt efnagreiningu,
GÍFURLEGUR mannfjöldi safn
aðist saman við Slippstöðina á
Akureyri á tólfta tímanum á
laugardaginn var, 3. október.
Tilefnið var það, að sjósetja átti
nýtt strandferðaskip Skipaút-
gerðar ríkisins, sem þar er í
smíðum, kallað systurskip m.s.
Heklu, er þar var einnig smíð-
uð og öllum er kunnugt.
Veður var stillt og svalt.
Athöfnin hófst með því, að
Gunnar Ragnars framkvæmda-
stjóri Slippstöðvarinnar flutti
ávarp, en síðan tók Ingólfur
Jónsson samgöngumálaráðherra
til máls. En Eva Jónsdóttir kona
ráðherrans gaf síðan skipinu
nafnið Esja. Eftir það voru fest-
ingar skipsins skornar sundur
og hið nýja skip seig hægt og
vii'ðulega út úr skipasmíðahús-
inu í sjó fram, við mikinn fögn
uð viðstaddra.
Síðar sama dag bauð Slipp-
stöðin h.f. 300 manns til kaffi-
samsætis í Sjálfstæðishúsinu.
Veizlustjóri var Skapti Áskels-
son stjórnarformaður Slipp-
stöðvarinnar. Auk hans tóku til
máls: Magnús Jónsson fjármála
ráðherra, Guðjón Teitsson for-
stjóri Skipaútgerðai' ríkisins,
Bjarni Einarsson bæjarstjóri og
Albert Sölvason stjórnarformað
ur Útgerðarfélags Akureyringa
-h.f.
Um 200 manns vinna nú hjá
Slippstöðinni h.f. á Akureyri.
reyndust sýnishorn trjálaufs úr
Hafnarfirði mengað af flúor.
Við sumarbústað, rétt hjá
Straumsvík, reyndist flúor-
mengunin miklu meiri, bæði í
laufi og grasi. Bendir það til
hvaðan hún er komin í hafn-
firzku garðana. Lítur ekki vel
út með trjárækt Hafnfirðinga
ef slíku fer fram til lengdar.
Flúormengun gæti og hæglega
borizt til Reykjavíkur frá
Straumsvík, þó mistur þaðan
leggi eðlilega oftar og meir yfir
Hafnarfjörð. Hreinsitæki í verk
smiðjunni virðist augljós nauð-
syn.
Iugólfur Davíðsson.“
Hér fara á eftir upplýsingar
Slippstöðvarinnar um gerð hins
nýja skips, byggingarstig og
upplýsingar um framsetningu.
Skipið er byggt sem einnar
skrúfu flutningaskip með íbúð-
um fyi'ir 12 farþega og 19
manna áhöfn. Mest lengd er
68.40 m., mesta dýpt 6.10 m. og
mesta breidd 11.50 m. Stærð
þess er um það bil 700 BRT
(brutto register tonn) og verð-
ur það systurskip m/s HEKLU.
Lestarrými er 61520 cb.ft. og
þar af frystirými 8400 cb.ft.
Skipið er byggt samkvæmt
„Lloyd’s Register of Shipping
í UPPHAFI sláturtíðar var
mjög um það óttast, að féð væri
rýrt að þessu sinni viða norðan
lands. En það reynist betur en
ætlað var.
Hér á Akureyri er vænleiki
mjög svipaður og í fyrra, lík-
lega um 14 kg., að sögn Hauks
Olafssonar sláturhússtjóra KEA
Á Ivópaskeri er meðalvigtin
allt að hálfu'öðru kg. minni en
í fyrra, en þá var féð með ein-
dæmum vænt, eða 16.05 kg. Á
Kópaskeri verður 26 þús. fjár
lógað, um 1200 á dag, sagði
Kristján Ármannsson kaup-
félagsstjóri.
Oli Gunnarsson sláturhús-
Grein þessi vakti mikla at-
hygli og leiðir væntanlega til
aukins eftirlits, og að tiltækum
ráðum verði beitt til að stöðva
mengunina, svo sem fyrirtæk-
inu er skylt, samkvæmt samn-
ingum. Það hefur vakið eftir-
tekt, að grein grasafræðingsins
hefur verið mætt af sumum
opinberum aðilum af nokkrum
hroka. En mál þetta er svo
alvarlegt, að almenningur syðra
mun hvorki sætta sig við slík
svör eða aðgerðarleysi af opin-
berri hálfu. Virðist hér ætla að
fara á sama veg og í Noregi,
þar sem mengun frá álverum er
tilfinnanleg. □
100 A 1,“ styrkt fyrir siglingar
í ís.
Skipið verður búið 1650 hest-
afla Deutz aðalvél og þrem ljósa
vélum af Paxman gerð samtals
671 KVA auk þess neyðarljósa-
vél af Deutz gerð, 57.5 KVA.
Aðalvél og skiptiskrúfa sem
er af Lips gerð er hægt að
stjórna bæði frá brú og vélar-
rúrni.
Skipið er einnig búið 200
hestafla bógskrúfu af Jestram
gerð og er henni stjórnað frá
brú.
Ganghraði skipsins er áætl-
aður 13 sjómílur.
Lestun og losun er framkv.
með tveim 3 tonna bómum stað
(Framhald á blaðsíðu 4)
stjóri á Þórshöfn sagði, að búið
væri að lóga nær fimm þús. fjár
og væri meðalvigt á 17. kg. Er
það gott þótt meðalvigtin sé
minni en sl. haust, og nokkur
bú hafa fengið hátt í 18 kg.
meðalvigt nú í haust, sagði Oli.
ÓK Á FULLRI FERÐ
í KÚAHÓPINN
ÞEGAR Indriði Ketilsson á
Fjalli í Aðaldal var að reka kýr
sínar heim, að kveldi 30. sept-
ember, og lítinn spöl eftir þjóð-
veginum ók bíll á fullri ferð í
kúahópinn. Tvær kýr drápust,
aðrar tvær þurfti að aflífa á
staðnum og fjórar eða fimm
slösuðust minna. Ökumaður-
inn, sem var frá Húsavík, taldi
hemla bifreiðarinnar hafa verið
óvirka þegar til átti að taka. Q
SÁTTAFUNDUR í
LAXÁRDEILUNNI
Á MÁNUDAGINN var á Húsa-
vik haldinn fyrsti sameiginleg-
ur sáttafundur í Laxárdeilunni.
En sáttasemjarar, þeir Ofeigur
Eiriksson og Jóhann Skaptason
sýslumenn, hafa áður haldið
marga fundi með deiluaðilum,
hvorum um sig. Næsti sam-
eiginlegur fundur verður innan
fárra daga. □
í bílaþrönginni við Slippstöðina á laugardaginn lagðist jeppinn sá
arna á hliðina. (Ljósm.: F. V.)
FRÁ ÁLVERKSMIÐJUNNI?
féð er vænna en Mzt var við