Dagur - 07.10.1970, Page 2
2
rFKeppnis!Éð bæjarsíarfsmanna" vann méfs
FIRMAKEPPNI í knattspyrnu
árið 1970 er lokið. „Keppnislið
bæjarstarfsmanna,1 hlaut sigur-
verðlaunin að þessu sinni.
Fyrir röskum 15 árum síðan
gaf Slippstöðin h.f. Knattspyrnu
ráði lagurlega smíðað stýj.is-
•hjól, sem nota skyldi sem verð-
laun í firmakeppni í knalt-
spyrtiu á Akureyri. Með gjöf
sinni hugðust gefendur vekja
almennari áhuga fýrir knatt-
spyrnunni í bænum og jafn-
framt styrkja Knattspyrnuráðið
í framkvæmdum þess. Eigi
fylgdi nein reglugerð með stýris
hjólinu, og var því fyrstu árin
svo, að sérhvert fyrirtæki innan
vébanda Akureyrarkaupstaðar,
sem greiddi tilskilið þátttöku-
gjald, fékk að láta starfslið sitt
taka þátt í keppninni.
Árið 1955 var í fyrsta sinni
keppt um stýrishjólið og sigur-
KARFAN AÐ BYRJA
NÚ ER vertíð körfuknattleiks-
manna senn að hefjast, en
vegna lagfæringa á íþrótta-
skemmunni geta inniæfingar
ekki hafizt strax. Hafa Þórsarar
því ákveðið að byrja með þrek-
og úthaldsæfingar úti fýrir
meistara- og 2. flokk karla
Verður æft fyrst um sinn á
mánudags- og fimmtudags-
kvöldum kl. 8.15.
Æfingarnar fara fram á
íþróttavellinum, en þjálfari
verður Guttormur Ólafsson. —
Eru nýir félagar sérstaklega vel
'komnir á fyrstu æfinguna, sem
verður fimmtudagskvöldið 8.
október. □
- Brúarvinnuflokkur
(Framhald af blaðsíðu 8).
enda nærri legið á stundum og
tilviljun ein orðið til bjargar.
Fyrir nokkrum árum var hafizt
handa um það að breyta vegin-
um þarna, í því augnamiði, að
draga úr slysahættu. Af ein-
hverjum ástæðum, sem ég hef
aldrei getað komizt að hverjar
eru, var því verki hætt í miðj-
um klíðum og sýnist þó ekki
þrautamikið að Ijúka því. —
Skyldi slys þurfa til þess að
þráðurinn veiði tekinn upp að
nýju? Yrði biðin þá ekki full
dýr orðin? — nihg
5»b!í$P j3jjp|Í
HERBERGI óskast
til leigu .
Uppl. í síma 1-19-24.
Fjögurra herbergja
ÍBÚÐ óskast til legiu.
Reglusemi.
Uppl. í síma 1-25-21.
HERBERGI óskast til
leigu. Helzt á Oddeyri.
Uppl. í síma 1-13-87.
vegarar það árið varð keppnis-
lið Óskars Gíslasonar, bygginga
meistara, og þótti vel farið að
þetta lið skyldi vinna stýris-
hjólið í fyrstu raun þess, þar
eð þeir feðgar Óskar og synir
hans höfðu verið í fremstu röð
styrktarmanna „fótboltans" á
Akureyri um árabil.
Keppt hefur verið um hjólið,
sem hér segir.
1955: Sigurvegarar keppnis-
lið Óskars Gíslasonar.
1956: Sigurvegarar keppnis-
lið K.E.A.
1957: Sigurvegarar keppnis-
lið S.Í.S.
1958: Sigurvegarar keppnis-
lið S.Í.S.
1980: Sigurvegarar keppnis-
lið K.E.A.
1968: Sigurvegarar keppnis-
lið Slippstöðvarinnar hf.
1969: Sigurvegarar keppnis-
lið Útgerðarfélags Akur
eyringa h.f.
1970: Sigurvegarar keppnis-
lið bæjarstarfsmanna.
Eins og hér sést þá féll keppn
in niður eftir 1960, en árið 1968
gekkst Hermann Sigtryggsson,
íþróttafulltrúi, og fleiri áhuga-
menn fyrir því að keppnin hófst
aftur.
Seinni árin munu þátttöku-
gjöldin hafa gengið til að
styrkja Knattspyrnudómarafé-
lag Akureyrar, og er það vel,
því engir leikir verða leiknir án
dómara og línuvarða, en þessi
grein íþróttamála okkar að
mestu verið unnin sem algjör
sjálfboðavinna og jafnvel með
verulegum peningaútlátum þess
ara manna.
Knattspyrnudómarafélagið sér
nú um framkvæmd keppninnar
og hefur því gefið út reglugerð
fyrir hana. Er hún í 5 greinum.
Því miður hefur 3. grein reglu-
gerðarinnar, sem segir til um
hlutgengi í keppninni, nú þegar
valdið leiðindum og misskiln-
ingi, og væri æskilegt að Knatt
spyrnudómarafélagið lagfærði
hana fyrir næstu keppni.
Vildi ég gera að tillögu minni
að þeir létu 3. grein hljóða svo:
„Hlutgengir eru 15 ára og
eldri starfsmenn er unnið hafa
•hjá fyrirtækinu í lágmark síð-
ustu 4 vikur (152 dvt.) fyrir
fyrsta leikdag keppninnar. Sá
sem skiptir um vinnuveitanda
á keppnistímabilinu og hefur
leikið með fyrri vinnuveitanda
KONA óskast á heimili
lil barnagæzlu frá kl.
8.30 til 14.30 fimm daga
vikunnar.
Uppl. í síma 1-29-66.
Hver vill gæta 11 mán-
aða DRENGS frá kl.
1—6 á daginn.
Uppl. í síma 2-12-40.
sínum, skal keppa með fyrri
vinnuveitanda sínum út keppn-
ina.
Sérstakt leyfi framkvæmdar-
aðila þarf til að hafa yngri en
15 ára leikmenn. Eigi mega þeir
1. deildar menn K. A. og Þórs
(og Í.B.A.) taka þátt í víta-
spyrnukeppni, ef til kæmi.“
Ég tel ekki rétt að því sem
næst útiloka 1. deildar menn
frá þessari keppni eins og nú
er, það væri þá frekar að tak-
marka fjölda þeirra í hverjum
einstökum leik. Þessir menn
vilja gjarnan sýna vinnuveit-
anda sínum þakklæti sitt í að
reyna að ná stýrishjólinu hon-
um til handa í eitt ár. Enn-
fremur er fengur að því fyrir
aðra pilta bæjarins að fá að
reyna sig við „úrvölin“.
Við skulum svo vona að
„Stýris“-keppnin haldist um
mörg ókomin ár okkur öllum
til ánægjuauka, án þess að
nokkurt lið þurfi að kæra keppi
nauta sína, og óskum núver-
andi „Stýris“-höfum til ham-
ingju.
J e a
RÍKISÚTGÁFA NÁMSBÓKA
gefur árlega út margar nýjar
námsbækur fyrir barnafræðslu-
og unglingastigið. Allar þessar
bækur eru hinar vönduðustu að
allri gerð og mjög leitazt við að
samræma þær kröfum tímans.
Þá eru og eldri kennslubækur
endurútgefnar með nýtízkulegu
sniði og að ýmsu endurbættar.
Kennarastéttin virðist áhuga-
söm í þessum efnum, því að
höfundarnir eru næstum ein-
•göngu kennarar — og fer vel á
því. Starfrænt snið er áberandi,
— verkefnaform, sem ætti að
hvetja til sjálfsnáms og frjálsr-
ar heimavinnu. Myndskreyting
er mikil og miðuð við að vera
skýrandi og leiðbeinandi. Ekki
ætla ég mér að dæma þessi rit
svo neinu nemi, en getið verður
hér nokkurra hinna nýrri og
nýjustu.
Réttritun eftir Hörð Berg-
mann. Móðurmál eftir Ársæl
Sigurðsson. Ljóðalestur eftir
Finn Torfa Hjörleifsson og Hörð
Bergmann. Dönsk lesbók eftir
Guðrúnu Halldórsdóttur. Ensk
lesbók eftir Heimi Áskelsson.
MENNTASTOFNUN USA Á ÍSLANDI
ÍSLENZKIR aðilar — 24 alls —
hafa nú síðan 1962 tekið þátt í
Cleveland áætluninni fyrir
starfsmenn á sviði æskulýðs- og
barnaverndarmála (á ensku
The Counlil of International
Programs for Youth I.eaders
and Solial Workers), en þátt-
takendum frá ýmsum þjóðum
er árlega gefinn kostur á að
kynna sér slíka starfsemi vest-
TAPAÐ
Tapazt hefur blá og
bvít DRENGJAPEYSA
á lóð Oddeyrarskólans.
Finnandi vinsamlega
hringi í síma 2-16-08,
eftir kl. 4 e. h.
Tapazt .hef'Ur kven-
LEÐURHANZKI
í miðbænum. Finnandi
vinsamlega láti vita í
síma 1-16-52.
Kven-GULLÚR tapað-
ist um fyrri helgi, senni-
lega í Hafnarstræti.
Vinsamlegast skilist á
afgreiðslu blaðsins.
Þrjár ÁVÍSANIR í
umslagi töpuðust í bæn-
um s.l. laugardag.
Skilist á afgr. Dags.
GLERAUGU týndust í
Hafnarstræti s.l. föstu-
dagskvöld. Finnandi
bringi í síma 1-14-32.
an hafs. Var kynningarstarf
þetta í upphafi einungis bundið
við borgina Cleveland í Ohio,
en síðan hafa fleiri stórborgir
gerzt aðilar að þessu merka
starfi.
Árið 1971 gefst tveimur fs-
lendingum kostur á að taka þátt
í námskeiðinu, sem mun standa
frá 18. apríl til 19. ágúst, 1971.
Koma þeir einir til greina sem
eru á aldrinum 23—40 ára. Urn-
sækjendur skulu hafa gott vald
á enskri tungu og hafa starfað
að æskulýðsmálum, leiðsögn og
leiðbeiningum fyrir Unglinga
eða barnaverndarmálum. Einn-
ig koma til greina kennarar van
gefinna eða fatlaðra barna.
Námskeiðinu verður hagað
þannig, að þátttakendur koma
allir saman í New York og
verða þar fyrst 2 daga til að
fræðast um einstök atriði nám-
skeiðisins og skoða borgina, en
síðan verður hópnum skipt
milli fimm borga: Cleveland,
Chicago, Minneapolis, St. Paul,
Philadelphia og San Francisco.
Þar munu þeir sækja háskóla-
námskeið, sem standa í sex vik
ur. Að því búnu mun hver þátt-
takandi verða um 10 vikna
skeið starfsmaður amerískrar
stofnunar, sem hefur æskulýðs-
og barnaverndarstörf á dagskrá
sinni, og munu menn þá kynn-
ast öllum hliðum þessara starfa
vestan hafs. Um 100 amerískar
stofnanir eru aðilar að þessum
þætti námsdvalarinnar.
Þeir, sem hafa hug á að sækja
um styrki þessa, eru beðnir að
hafa samband við Fulbright-
skrifstofuna, Kirkjutorgi 6, sem
er opin frá 1—6 e. h. alla daga
nema laugradaga, og biðja um
sérstök umsóknareyðublöð. Um
sóknirnar skulu hafa borizt
stofnuninni eigi síðar en 31.
október 1970. □
íslands saga í tveim heftum eft-
ir Þórleif Bjarnason náms-
stjóra. Það er ganian að lesa,
þrjú hefti eftir Jennu og Hreið-
ar Stefánsson. Sumar í borg
Pál Guðmundsson. Leikur að
stráuni eftir Gunnar Gunnars-
son, fyrsti hluti Fjallkirkjunn-
ar, fyrsta bók í sárútgáfu úrvals
bókmennta handa framhalds-
skólum. Skrifbók í sex heftum
eftir Marinó L. Stefánsson.
Ég get ekki stillt mig um að
minna kennara sérstaklega á
þessa skrifbók, því að hún er
afburða vel unnin, og miklu
meira en venjuleg forskrifta-
bók. í henni eru mjög góðar
leiðbeiningar, sem henta engu
síður kennurum en nemendum,
mjög glöggar og nothæfar.
J. Ó. Sæmundsson.
Til sölu MERCEDES
BENZ 322, vörubíll,
árgerð 1960.
Uppl. í síma 2-10-92,
eftir kl. 7 e. h.
Ford CORTINA, árg.
1970, 4 dyra, stærri
mótor.
Uppl. í símum 2-13-44
og 1-24-97.
Til sölm YOLKS-
WAGEN-bifreið, árg.
1962.
Uppl. gefur Matthías
Iljörnsson, Austurbyggð
14, sími 2-12-41.
Til söluSKODA 1000
MB. Lítið ekinn og vel
mcð farinn. Greiðslu-
skilmálar.
Uppl. í síma 1-28-69,
eftir kl. 7 e. h.
Til 'SÖl'U VOLKS-
WAGEN-bifreiðin
A-1618, árg. 1962, ekin
65 þús. km. Til sýnis kl.
5-7 e. h.
Björn Bessason, Gils-
bakkaveg 7, sími 1-17-30.
Til sölu
VOLKSWAGEN,
árg. ’63.
Uppl. í síma 2-10-09.
Til sölu SKODA S 110L
árg. 1970, ekinn 10 þús.
km.
Pálmi Stefánsson, sími
2-14-15 og 1-20-49.
Til sölu
VOLKSWAGEN ’64,
keyrður 66 þús. km.
Upjrl. í síma 1-19-12,
efdr kf. 7 á kvöldin. :
RÝMINGARSAL
hefst miðvikudaginn 7. okt. í Hafnarstræti 93. -
Aðeins í fáa daga. - Góðar vörur á hagstæðu verði.
ATH.: Lokað Id. 12,15-14,00.
VEFNAÐÁRVÖRUDEILD