Dagur - 25.11.1970, Blaðsíða 2
VÉLRITUN!
Tek að mér hvers konar
vélritun.
Sigríður Jónsdóttir,
sími 2-10-82.
STÚLKA!
Reglusöm stúlka óskast
á gott heimili í Bánda-
ríkjununi.
Allar uppl. gcfnni' í
síma 2-11-45.
Getur nokkur bíindi í
Eyjal jarðar- eða Þing-
eyjarsýslu selt í neyðar-
tilfelli 15—20 hesta af
TÖÐU, mætti vera
úthey.
Uppl.ísíma (96) 5-12-27.
- Endurnýjun togara
(Framhald af blaðsíðu 4)
forystuhlutverk, sem allir
landsmenn hljóta að telja
verkefni ríkisvaldsins, og
ætti að vera keppikefli þess
að leysa á farsælan hátt. Ráð-
herrar liafa gefið fyrirheit
um stuðning við skipasmíð-
arnar á Akureyri, við hátíð-
leg tækifæri. Nú mega þeir
ekki stinga höfðinu niður í
sandinn. □
Til sölu LAND
ROVER, árg. 1966.
Ekinn 60 þús. km.
Klæddur. Greiðsluskil-
málar.
Uppl. gefur Vilhelm
Agústsson, sími 1-19-00
og 1-15-15.
TAPAÐ
Tapazt hefur
KETTLIN GUR, svart-
ur með hvita bletti að
framan. Þeir, sem ‘vita
um kettlinginn, láti vita
í Vanab. 15, sími 1-22-95.
HERBERGI til leigu.
Uppl. í síma 2-15-43,
kl. 13-16.
ÍBÚÐ til sölu.
Til sölu neðsta hæð
liússins Hafnarstr. 29,
Ak. í búðin er 4 herbergi
og eldhús. Getur verið
laus nú þegar. Góðir
gr eiðsl usk i lm á 1 ar.
Til sölu VOLKS-
WAGEN, árg. 1967,
með útvarpi og snjóhjól-
börðum. Greiðsluskil-
málar.
Uppl. gefur Þórarinn B.
Jónsson, sími 1-10-80 og
2-13-50.
Til söki OPEL
KARAVAN Station,
árg. 1959.
Uppl. í síma 1-24-05,
eftir kl. 19.
PLYMOUTH Valiant
200, árg. 1967, 4 dyra,
útvarp.
Jón Loftsson h.f.,
sími 2-13-44.
Til sölu SKODA 100L,
árg. 1970. Skipti koma
ti! greina.
Uppl. í síma 2-15-37,
eftir kl. 20.
Til sölu WILLY’S, árg.
1962, á nýjum dekkurn,
negldum.
Tómas Eyþórsson, símar
1-28-40 og 2-13-70.
Til sölu
ÞVOTTAVÉL.
Uppl. í síma 1-21-64.
Góður ÍSSKÁPUR og
bónvél til sölu.
Upplýsingar á Staðarhóli
í Aðaldal.
Góður BARNAVAGN
til sölu. Verð kr. 5.000.-.
Uppl. í síma 1-11-78.
Til söl u á hagstæðu
verði AEG ELDA-
VÉLASAMSTÆÐA,
lítið notuð.
Uppl. í síma 2-12-61.
BARNAKOJUR
til sölu.
Uppl. í símum 1-14-19
og 1-28-17.
Til sölu er nýleg
BARNAKERRA,
Silver Cross, nýjasta
gerð.
Uppl. í síma 1-11-09.
Til sölu Fama
PRJÓNAVÉL, nr. 5.
Uppl. í síma 2-16-75.
Til sölu er vandaður
Stereo-PLÖTU-
SPILARI ásamt magn-
ara og hátölurum.
Uppl. í síma 1-12-49.
Til sölu BORÐSTOFU-
BORÐ og 6 stólar.
Uppl. í síma 1-19-08.
BARNAKERRA
til sölu.
Uppl. í síma 2-14-87.
Vel með farið HJÓNA-
RÚM ásamt lausum
náttborðum til sölu.
Uppl. í síma 1-18-08,
eftir kl. 19.30.
Ný uppgerð VÉL í
Moskvits, árgerð 1959,
ásamt varahlutum og
dekkum, til sölu.
Uppl. í Rauðumýri 15,
sími 1-23-20.
SSSSS55S5SS5S555S555SS5SS5S5S55555SS55555SSS5ÍSSSSS5SS5S5SS5SSSSSSS55S555S5555SS55S5SSSSSSS5SS55S5S55S5SS555
UNGA FÓLKIÐ
Happa glappa aðferðin
eða markviss uppbygging
SAMFARA fólksfjölgun, mennt
aðra þjóðfélagi og auknum þæg
indiskröfum, hlýtur að vera
bætt og vaxandi atvinnumenn-
ing. Það hlýtur að vera frum
skilyrði vaxtar og velferðar í
búskap þjóðarheildarinnar að
atvinnutækin séu skynsamlega
upp byggð, séu vel rekin, skili
þjóðarbúinu arði og veiti ein-
staklingnum þau verkefni er
hann hefur sitt lífsviðurværi af.
Þótt miklar framfarir og upp-
bygging hafi átt sér hér stað,
sem stafað hefur af hinni hröðu
og byltingarsömu tækniöldu,
sem lagt hefur hluta heimsins
undir sig á síðari tímum, hefur
sú þróun er hér hefur orðið á
undangengnum árum sýnt og
sannað að uppbygging og at-
hafnalíf þjóðarinnar hefur villzt
af leið. Mun svo reyndar ætíð
verða þegar þeir er ferðinni
ráða, hætta að hugsa fyrir stefn
unni og hvernig greiðfærast sé,
heldur ana áfram yfir holt og
hóla. Hafa sumir atvinnuvegir
þjóðarinnar legið við að grotna
niður, nýting verðmæta verið
mun minni en þyrfti að vera,
atvinnuleysi herjað almenning
og að forystuaðilar þjóðfélags-
ins hafa misst þá tiltrú á ís-
lenzkum atvinnuvegum, sem
nauðsynleg er til að tryggja
framgang þeirra og grundvallar
undirstöðu í afkomu 'þjóðarinn-
ar.
Þótt land vort sé eigi auðugt
verðmætra efna, eru þó ein
verðmæti íbúanna innan handa,
Eru þau í hafinu er umhverfis
hólmann liggur. Þótt nokkuð
hafi á ýmsa fiskistofna gengið
undanfarið, vegna gengdarlausr
ar veiði og ónógrar rannsóknar
á ýmsum eiginleikum þeirra, er
fjarri því að auðlind þessi sé
upp ausin. íslendingum ber að
vinna að nýtingu þessara auð-
æfa, bæði með rannsóknum, til
fyrirbyggingar skaðlegum að-
gerðum á veiðisviðinu, svo og
stóraukinnar nýtingar þess afla
er á land berst hverju sinni og
auka þannig framleiðsluna til
muna. Þau fiskitæki er undan-
farandi hafa verið látin að
miklu leyti grotna niður og tog-
arar nefnast, sigla oftsinnis
beint, með fiskinn eins og hann
kemur fyrir úr sjónum til er-
lendra kaupenda, sem síðan
taka hann til úrvinnslu og fæðu
sköpunar á sama tíma og ís-
lenzkur almenningur gengur
um með hendur í vösum, at-
vinnulaus. Er þetta furðulegt í
landi sem um aldur hefur að
svo miklu leyti byggt afkomu
sína á sjávarafla og ísland. Ann
að dæmið um sinnuleysi stjórn-
valda til verðmætaaukningar
sjávarafurða, er niðursuðuiðn-
aðurinn. Dýrar og fullkomnar
verksmiðjur, er möguleika hafa
á því að skapa fjölda fólks at-
vinnu og viðurværi að ótöldum
verðmætum afurða er starfsemi
þeirra leiðir af sér, standa tím-
um saman lokaðar vegna þess
að hráefnisþörf þeirra er á eng-
an hátt sinnt. Hefur þróun ís-
lenzks niðursuðuiðnaðar af sum
um verig nefndúr áratuga sorg-
arsaga.
Jafnframt áherzlulagningu á
að efla sjávarjtveg og iðnað
þeirra afurða er hann gefur af
sér, verður að veita því fólki er
að slíkum störfum vinnur þekk
ing er eykur hæfni þess í starfi.
Eftir því sem úrvinnsla afla
verður aukin og farið inná nýj-
ar og íleiri brautir í framleiðsl-
unni, verður krafist aukinnar
þekkingar á viðfangsefninu. Er
því stofnun skóla, er hefur það
markmið að veita því fólki, er
hafnað hefur í atvinnulífinu við
fiskveiðar og fiskvinnslu,
fræðslu á því er það hefur milli
hánda.
En íslendingar geta eigi
byggt upp velferðarþj óðf élag
sitt með sjávarútvegi einum
saman sem atvinnugrein. Vel-
ferðin hlýtur að byggjast á þró-
un sem flestra atvinnugreina er
við verður komið. Sú atvinnu-
grein er frá fornu fari hefur
verið önnur aðal atvinnugrein
þjóðarinnar, er landbúnaður.
Eins og annað hefur hann eflzt
mikið á síðari tímum, þótt þeim
sem gera hann að ævistarfi sínu
hafi farið sífækkandi. Valdur
þeirrar þróunar er aukin tækni
og hagræðing í ýmsum verkum
bóndans. Einingarnar verða
stærri, hendurnar færri. Eins
og stendur er mestur vandinn
er að landbúnaði steðjar ekki
einvörðungu sá vandi er óhag-
stæð fjárhagsafkoma hefur skap
að, þótt þar hafi erfiðleikar sótt
heim og bóndinn sé nú og hafi
um langt skeið verið tekju-
lægsti stofn þjóðarheildarinnar.
Heldur er vandinn félagslegs
eðlis að miklu leyti. Það þjóð-
félag og þeir hættir sem bónd-
inn verður í flestum tilfellum
að gangast undir, ættu með
réttu að heyra liðinni tíð til.
Félagsleg aðstaða hans er þann
ig, að það fólk, er alizt hefur
upp við nútíma menningu þétt-
býlisins kann illa að sætta sig
við hana. Þar eru að miklu leyti
helztu orsa’kir fyrir því að ungt
fólk kýs fremur að hazla sér
völl við eitthvert annað verk-
efni en landbúnað. Á sviði ís-
lenzks landbúnað þarf að verð.a
mikil breyting og endurskipu-
lagning starfshátta, er breytir
aðstöðu viðvinnandans í þjóð-
félaginu. Þar þarf hann að njóta
sömu réttinda og aðrir, án þess
að starfsaðstaða hans meini hon
um það. Þótt starfsaðstaða þess
er við landbúnað vinnur þurfi
endurmats við, er það eigi nóg
til að rétta hlut landbúnaðar-
ins. Þau samtök, er leiða stétta-
baráttu hans verður að stórefla.
Allir þeir er landbúnað stunda
þurfa að standa saman um hlut
sinn og vinna í samstarfi við
aðra verkalýðsbaráttu, því þótt
munur sé á atvinnuvegum eru
verkamenn sú viðmiðun er far-
ið er eftir varðandi ákvarðanir
um kaup og kjör bóndans.
Undanfarin ár hefur verið
hafður í frammi magnaður áróð
ur fyrir þeirri kenningu, að ekk
ert sé íslendingum nauðsyn-
legra en að komast á það stig
efnahagsþróunarinnar, að við
þurfum eigi lengur að draga
fram lífið á því að draga fisk
úr sjó eða rækta gras og skepn-
ur. Enda þótt íslendingum sé
nauðsyn á fjölbreyttara athafna
og atvinnulífi, skapa þeir eigi
þá fjölbreytni með niðurníðslu
gamalgróinna og undirstöðu-
atvinnuvega þjóðarinnar. Held-
ur alhliða uppbyggingu þess
sem þeim er sjálfum handbært.
Aðeins þannig verður þeim fært
að hækka sig í stiga efnahags-
þróunar og almennrar velmeg-
unar. Á undanförnum árum og
áratugum hefur vaxið hér upp
í skjóli mannlegra framfara
ýmiskonar iðnaður. Að þeim
iðnaði verðum við að hlú og
efla hann eftir föngum, því við
getum framleitt í landinu margt
það, er að rekstri okkar lítur,
ef þessum atvinnuveg verður
eigi íþyngt um of með sam-
keppni er hann hefur ekki bol-
magn til að standast.
Það blóm er sumir telja að
bera megi mestan ávöxt alls
þess er snertir atvinnumenn-
ingu og efnahagsþróun, er svo-
nefnd stóriðja. Só hlutur muni
bjarga þjóð vorri frá því að
verða eigin eymd og getuleysi
að bráð. En þá er að hyggja.
Hvernig ætla hinir stóriðjutrú-
uðu að byggja átrúnaðargoð sitt
upp? Staðreyndin er sú, að land
ið er snautt þeirra efna, er unn-
in eru með þeim aðferðum, sem
undir slíkan iðnað heyra. Það
eina sem hér er til staðar, er
orka sú er kemur til með að
knýja stói-iðjuver. Vissulega er
þetta nokkuð stórt atriði, en
það segir eigi alla sögu. Til þess
að koma slíku hér á fót í ein-
hverju mæli, þarf meira fjár-
magn til en við getum sjálfir af
mörkum lagt. Við verðum, til
þess að geta ráðist í slíkar fram
kvæmdii’, að fá mikin hluta
þess fjármagns er slík uppbygg
ing kostar frá erlendum aðilum.
Vegna þeirra mannlegu sjónar-
miða, sem rikjandi eru, að eig-
endur slíks, sem fjármagn er,
vil gjarnan hafa einhverja hönd
í bagga með ráðstöfun eigna
sinna, þýddi það beina íhlutun
erlends auðvalds í þann rekstur
og um leið í íslenzkt þjóðfélag,
mannlíf. Erlend sjónarmið yrðu
hér að einhverju leyti ríkjandi
og ráð okkar yfir eigin málefn-
um takmörkuð. Frumskilyrði til
aukinnar fjárfestingar erlendra
atvinnurekenda og fram-
kvæmdaaðila eru fullkomin og
undanbragðalaus yfirráð íslend
inga sjálfra yfir nefndum fyrir-
tækjum. Annað getur aldrei
komið til greina nema með áður
nefndum afleiðingum og kynni
ekki að verða harla erfitt að ná
rétti sínum aftur er við værum
flæktir í viðjar hinna stóru auð
hringa. Flvað aukna atvinnu-
þörf landsmanna varðar, er
langt frá því, að stóriðja skapi
hlutfallslega miðað við fjárfest-
ingu, eins mörgum vinnuþurf-
andi einstaklingum atvinnu og
annar sá iðnaður er fyrir er í
landinu. Og meðan jafn mikið
er ógert og raun ber vitni um í
þágu íslenzkra atvinnuvega og
þess iðnaðar er þeir leiða af sér,
(Framhald á blaðsíðu 7)