Dagur - 02.12.1970, Qupperneq 2
Um meierS drykk]usjyklmga
LANDS’SAMBANDIÐ gegn
áfengisbólinu hélt 9. þing sitt
um miðjan nóvember og gerði
ýmsar ályktanir. M. a. sam-
þykkti þingið „að mæla ein-
dregið með frumvarpi til laga
um breytingu á lögum um með-
ferð ölvaðra manna og drykkju
sjúkia, sem fram er komið á
þingskjali nr. 17, 1970, þar sem
lagt er til, að hækkað verði
frömlag til gæzltívistársjóðs.
Væntir þing Landssambands-
- HEILBRIGÐISMÁL
(Pramhald af blaðsíðu 4).
ábótavant, eða ytri aðstáða?
Vantar ekki heildarstjórn
þessara mála? Hvað vill bæj-
arstjórn Akureyrar gera í
málinu, e£ breytinga er
þörf? Hver er þá hennar for-
ysta? Væntanlega verður
þögnin eiri ekki látin svara.
ins, að verði gæzluvistarsjóður
efldur eins og þar er lagt til,
verði lagt kapp á að fram-
kvæma í fyllra mæli en verið
hefur ákvæði nefndra laga, og
einkum að því er snertir
ákvæði 17. gr. laganna um að
reisa nauðsynlegar stofnanir.
Þingið telur mikla: nauðsyn, að
meðal þeirra stofnana verði
lokuð hæli fýrir áfengissjúkl-
inga, konur og karla, auk mót-
tökudeildar fyrir slíka sjúkl-
inga, sem þtirfa bráðrár aðgerð-
ar við.“
Fi-umvarp þéttá, sem um er
fjallað í ályktuninni, er flutt af
Einari Ágústssyni og Birni Fr.
Björnssyni.
Stjórn Landssambandsins
skipa nú til tveggja ára: Páll V.
Daníelsson, formaður, Eiríkur
Stefánsson, Pétur Björnsson,
Óskar Pétursson, Jóna Erlends-
dóttir, Dr. Jakob Jónsson, Jó-
hanna Steindórsdóttir. □
HúsnœSraskóli
HÚSMÆÐRASKÓLINN að
Hallormsstað var settur fyrsta
vetrardag. Athöfnin hófst með
ðuðsþjónustu, séra Einar Þór
Þorsteinsson predikaði. Frú
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Kolka, sem nú tekur við starfi
skólans flutti því næst setningar
ræðu.
Skólinn, sem hefur lengst af
verið tveggja vetra skóli, starf-
ar eftirleiðis í einni ársdeild, en
í vetur verður aðeins starfrækt
eldrideild fyrir þær stúlkur,
sem voru í yngrideild í fyrra,
og svo þrjú 5—6 vikna nám-
skeið í matreiðslu og vefnaði.
Fyrsta námskeiðið verður í nóv.
—des. og er enn tækifæri til að
sækja um það. Þá fá einnig
stúlkur úr elztu bekkjum barna
og unglingaskólans að Hallorms
stað tilsögn í matreiðslu í Hús-
mæðraskólanum.
Formaður skólanefndar, Vil-
hjálmur Hjálmarsson, flutti
ávarp og drap á nokkra þætti
HÚSMÆÐUR!
Vér bjóðum
yður eftir-
taldar vörur í
HVEITI - í 5, 10 og 50 lbs.
KARTÖFLUMJÖL
STRÁSYKUR - í lausu og pk.
PÚÐURSYKUR - ljós og tlökkur
FLÓRSYKUR
SÝRÓP - í 1 og 2 lbs.
VANILLESYKUR
LYFTIDUFT
HJARTARSALT
NATRON
EGGJADUFT
KANELL — steyttur
NEGULL — steyttur
ENGIFER - steytt
MUSKAT - steytt
ALLRAHANDA
KARDIMOMMUR
BRÚNKÖKUKRYDD
KÚMEN
KAKÓ — fleiri tegundir
GRÁFÍKJUR
KÚRENNUR
VANILLEDROPAR
SÍTRÓNUDROPAR
KARDIMOMMUDROPAR
MÖNDLUDROPAR
SKRAUTSYKUR — margar tegundir
SÆTAR MÖNDLUR
SAXAÐAR MÖNDLUR
BÖKUNARHNETUR
SÚKKAT - dökkt
SÚKKULAÐISPÆNIR
VANILLESTENGUR
SMJÖRLÍKI — tvær tegundir
KÓKOSSMJÖR
FLÓRU-SULTA — margar tegundir
HJÚPSÚKKULAÐI
SUÐUSÚKKULAÐI — margar teg.
MARMELAÐI — margar tegundir.
KÓKOSMJÖL
RÚSÍNUR
SVESKJUR
DÖÐLUR
Atliugið þennan lista og pantið
sem fyrst í jólabaksturinn
MUNIÐ SMJÖRIÐ í jólabaksturinn
KJÖRBÚÐIR KEA
úr sögu skólans, en hann var
settur í fyrsta sinn 1. nóvember
1930.
í tilefni 40 ára afmæli skólans
komu nokkrir af eldri nemend-
um hans saman og lögðu drög
að stofnun nemendasambands.
Aðalmarkmið sambandsins
verður að hlynna að skólanum
og starfsemi hans og efla kynni
nemenda eldri og yngri. Ætlun-
in er, að við skólaslit í vor verði
haldinn formlegur stofnfundur
nemendasambandsins og von-
andi sjá sem flestar eldri og
yngri námsmeyjar sér fært að
heimsækja skólann á þessum
tímamótum og gerast stofn-
félagar.
í bráðabirgðastjórn, sem starf
ar til vors voru kjörnar: Arn-
þrúður Gunnlaugsdóttir, Hall-
ormsstað, Jónína Oladóttir, Sel-
ási 14, Egilsstöðum og Jenný
Sigurðardóttir, Lagarási 6, Egils
stöðum.
Af gefnu tilefni vill hin ný-
kjörna bráðablrgðastjórn taka
fram, að enn hefur ekki náðzt
til allra nemenda skólans og eru
allar þær, sem áhuga hafa á
þessari sambandsstofnun ein-
dregið hvattar til að hafa sam-
band við stjórnina til skrafs og
ráðagerða. Ennfremur skal á
það lögð áherzla, að allar náms-
meyjar, sem innritazt hafa í
skólann, eru velkomnar í hóp-
inn, en ekki eingöngu þær, sem
lokið hafa burtfararprófi.
Gamalt, ódýrt
ÚTVARPSTÆKI
óskast til kaups.
Upþl. í síma 2-11-81.
Frumútgáfan (comjr! ett)
af ÍSLENZKUM GÁT-
UM og SKEYÍMTUN-
UM eftir Olaf Davíðsson
er til sölu, handbundið
og gyllt.
Uppl. í Bókaverzl.
Jónasar. — Eigandi.
________________
MIÐSTÖÐVÁRKET-
ILL: Olíubrennari (Gil-
barco), miðstiiðvardæla,
baðdunkur til sölu,
selst ódýrt.
Uppl. gefur Reynir
Jónasson, sími 4-11-25,
Húsavík.
Lítið notaður og vel nreð
farinn2jamanna SVEFN
SÓFI til sölu í Áshlíð 13,
að austan. Uppl. eftir
kl. 15.30.
BARNAVAGN til sölu.
Uppl. í síma 1-23-14.
Til sölu Cervíse
ÞVOTTAVÉL, með
suðu, lítið notuð.
Uppl. gefnar í síma
2-14-25.
TIL SÖLU
Rafha eldavél og
Hoover þvottavél.
Uppl. í sími 2-16-49.
N otuð
PRECISA REIKNIVÉL
til sýnis og sölu
hjá Jóni Bjarnasyni,
úrsmið.
Enn
a margnr
ER heimsstyrjöldin fyrrj geis-
aði, birtist grein í tímariti ís-
lenzku. Hún hét: „Nú á margur
bágt.“ Lýsti hún lítið eitt þeim
hörmungum, sem margir áttu
að búa við þá. Sama má segja
enn í dag. Styrjaldir eru háðar,
uppþot og skæruhernaður eru
í fullum gangi. Fólk týnir lífi
vegna slysa eða slasast, svo að
örkuml hljótast af. X mörgum
húsum geisar ófriður milli
þeirra, sem heitið hafa hvort
öðru tryggðum. Vínið er þar
skaðvaldur og ótryggðin stund-
um líka. Þau veita hvort öðru
sár, sem hefðu átt að standa
saman og bera í einingu byrðir
lífsins. Svo bila taugar, lækna
er leitað, sálfræðinga og sálna-
hirða. Jafnvel til mín hefir fólk
leitað í vandræðum sínum. Það,
sem við mennirnir getum miðl-
að, er svo smátt, sé það borið
saman við þörfina. Þess vegna
vil ég benda á þann, sem mest
getur látið af mörkum.
Áður en lyki þjónustu spá-
mannsins Jesaja, gaf Andi Guðs
honum þennan boðskap: „Andi
drottins Jahve er yfir mér, af
því að Jahve hefir smurt mig til
að flytja nauðstöddum gleðileg-
an boðskap, og sent mig til að
græða þá, sem hafa sundurmar-
ið hjarta, til að borða hertekn-
um frelsi og fjötruðum lausn. ..
til að hugga alla hrellsa.“ (Jes.
60. 1.).
í samkomuhúsinu í Nazaret
staðhæfði Jesús Kristur, að spá
dómur þessi hefði rætzt á sér.
Hann væri kominn til að gegna
þessu hlutverki. Línur þessar
eiga að benda fólki, sem á í
erfiðleikum, á hann. Hann vill
græða og getur grætt þá, sem
hafa sundurmarið hjarta. Hann
kemur með hugarfrið handa
þeim, er sjúkir eru á taugum.
Hann boðar þeim lausn, sem
áfengið hefir hertekið, ef þeir
leita hans af öllu hjarta. Ég hefi
séð þetta gerast. Drottinn Jesús
bregzt engum þeim, sem leitar
hans af heilum huga. Hann hef-
ir sagt: „Komið til mín, lalir
þér, sem erfiðið og þunga eruð
hlaðnir, og ég mun veita yður
hvíld.“ (Matt. 11. 28.). Ég hefi
séð hann taka byrðir á brott,
sem lagðar voru á hann ReyniS
þessa leið. Þetta er leiðin til
sannrar hamingju hér í þessu
lífi og í komandi tilveru líka. /
Sæmundur G. Jóhannesson.
E. s. Vilja ekki ritstjórar ein-
hverra annarra blaða láta blöð
sín einnig flytja þessa stuttu
gréin? Það gæti gert einhverj-
um gott. — S. G. S.
Frá Bridgefélagi Ak.
ÚRSLIT í þriðju umferð í meist
araflokki hjá Bridgefélagi Akur
eyrar urðu þessi: sveit stig
Páls P. — Ólafs Ág. 18—2
Guðm. G. — Halldórs H. 15—15
Gunnars B. — Sveinb. S. 11—9
Mikaels — Harðar 10—10
Eftir þrjár umferðir er röð
sveitanna þessi: stig
1. Harðar Steinbergs 50
2. Páls Pálssonar 48
3. Guðmundar Guðl. 45
4. Mikaels Jónssonar 43
5. Gunnars Berg 17
6. Halldórs Helgas. 15
7. Sveinbjörns Sig. 7
8. Ólafs Ágústssonar 3