Dagur - 05.12.1970, Page 1
FILMU húsið
Hafnarstrætj 104 Akureyri
Sfmi 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJOSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
Sleðinn öslaði Kinnarfjallsbrúnir
Frumvarp um virkjanir í Þingeyjarsýslu
Ófeigsstöðum 4. des. Nei, ris-
mikilla frétta er vart að vænta
í þrjú hundruð manna sveitar-
félagi, útvarp dynur alla daga
og sjónvarp flesta og flytja frétt
ir ásamt öðru efni. Eitt má þó
fullyrða, og sjaldan eða aldrei
nefnt, að hjá okkur er ekkert
atvinnuleysi og hefur aldrei
verið. Þetta mætti nú kannski
nefna, ekki síður en stórslátrun
á bændum.
Heilsufar er yfirleitt gott hér
í sveit. Fólk hefur ekki tíma til
að vera lasið, og a. m. k. ekki
af iðjuleysi og ímynduðum veik
indum.
Verzlanir opnar
á laugardögum
VERZLANIR í bænum verða
opnar til kl. 4 e. h. laugardag-
inn 5. desember. Hjá KEA
verða þó útibú Nýlenduvöru-
deildar lokuð kl. 12 á hádegi,
ásamt Kjötbúð, nema útibúin
Brekkugötu 1, Byggðavegi 98
og Höfðahlíð 1, sem verða opin
til kl. 4 e. h.
Laugardaginn 12. desember
verða flestar verzlanir opnai' til
kl. 18, nema undantekningar
hjá KEA verða þær sömu og
laugardaginn 5. desember.
SPURÐUR frétta af Stóru-
tjarnarskóla og fl., sagði Valtýr
Kristjánsson kaupfélagsstjóri á
Svalbarðsströnd:
Vegur er jafnan fær um Dals
mynni, en aðeins jeppafæri á
Vaðlaheiðarvegi þegar bezt
lætur.
Stöðugt er unnið í Stóru-
tjarnarskóla. í þeirri álmu skól
ans, sem í smíðum er, verða
heimavistir, kennaraíbúðir,
skólastofur og mötuneyti. Kjall
ari er undir hluta hússins. Þetta
skólahús er að verða tilbúið
undir tréverk og verið er að
setja upp ofna, en heitt vatn
frá Stórutjörnum er notað til
upphitunar. Hitatap er hverf-
andi og sýnist upphitun verða
góð. Hæðarmismunur húss og
laugar er 30 metrar.
Stefnt er að því að kennsla
geti hafist næsta haust. Áfram
verður unnið í skólanum í vet-
ur, ef fjárskortur hamlar ekki.
Fjórir hreppar eru þátttakend-
ur þessarar nýju stofnunar. —
Formaður byggingarnefndar er
Erlingur Arnórsson, Þverá, en
yfirsmiður Stefán Stefánsson.
Akureyrartogararnir
KALDBAKUR er á veiðum,
landar á Akureyri í næstu
viku.
SVALBAKUR landaði 137
tonnum 27. nóv. og er á veið-
um.
HARÐBAKUR landaði 1.
des. 54 tonnum og mun hafa
haldið á miðin í gærmorgun.
SLÉTTBAKUR er á veiðum.
Jarðlaust er fyrir sauðfé, fjár
heimtur ekki fullkomnar og
vantar lömb af fjalli. Mikið er
búið að leita, með árangri en
misjöfnum þó. Á sunnudaginn
var leitað með aðstoð vélsleða
en ekkert fé fannst. Var þó
leitað í norðanverðum afréttum
og allt til Náttfaravíkna norður.
En þótt árangur yrði enginn,
var þetta einskonar sáttagerð
við samvizkuna, því að ekki
vilja menn vita sveltandi og
saklaus dýr á flækingi, þegar
um húsdýr er að ræða.
Sama dag og vélsleðinn öslaði
um hábrýndar Kinnarfjalls-
brúnir, tóku kvenfélagskonur
sveitarinnar á móti kvenfélags-
konum úr Reykjadal og Laxár-
dal, sem komu í heimsókn í
Ljósvetningabúð. Slík boð kven
félaga eru árleg og auka góð
kynni. Skemmtu konurnar sér
við kaffidrykkju, samtöl, upp-
lestur, söng, leikþátt og síðast
dans. Við karlmenn álítum, að
dansinn hafi verið daufur og
fjölhæf tilbrigði skort, en þar
eru konur einar til frásagnar.
Heyin eru góð en af skornum
skammti. Keypt var hátt á ann-
að hundrað tonn af heyi inn í
sveitina. Mest af því er gott
fóður og ágætt, en frá stöku
stað er heyið ögn myglað. En
búskapur, sem ekki byggir á
heimaræktuðu fóðri að mestu,
er heldur vonlítill. (Framh. á 2)
Heimtur voru ekki verulega
góðar í haust. Eru nú leitar-
ferðir ráðgerðar á Bleiksmýrar
dal og Timburvalladal, ef ske
kynni að eitthvað af fé væri
enn á flækingi á afréttum þess-
um.
Flestir bændúr beita fé sínu
eftir því sem staðhættir leyfa,
gefa lítið af heyi en nokkuð af
kjarnfóðri. Víðast er storka á
jörð og dregur það úr notagildi
beitijarðarinnar. □
Á AÐALFUNDI Tónlistarfélags
ins á Akureyri þann 18. okt. sl.
var kosin ný stjórn, en hún er
þannig skipuð: Formaður Jón
Hlöðver Áskelsson, gjaldkeri
Hörður Kristinsson, ritari
Soffía Guðmundsdóttii'. f vara-
stjórn eru: Varaformaður Jón
Sigurgeirsson, meðstjórnendur:
Ingimar Eydal og Birgir Helga-
son.
Á blaðamannafundi kom
fram, að Stefán Ágúst Kristjáns
son yrði gerður heiðursfélagi en
hann hefur verið einn af for-
ustumönnum félagsins frá upp-
hafi. „Allii' tónlistarunnendur á
Akureyri standa í mikilli þakk-
arskuld við Stefán Ágúst Krist-
jánsson," en hann er nú fluttur
til Reykjavíkur. Philip Jenkins
hefur nú tekið sæti Stefáns í
félagsi'áði og skipar hann ásamt
Magnúsi Kristinssyni mennta-
skólakennara framkvæmda-
nefnd félagsins.
LAGT hefur verið fram á Al-
þingi frumvarp til laga um virkj
un fallvatna í Þingeyjarsýslum.
Flutningsmenn eru Gísli Guð-
mundsson, Ingvar Gíslason og
Stefán Valgeirsson. Þar segir:
1. gr.
Eftir gildistöku þessara laga
er óheimilt að gera stíflu í Laxá
hjá Brúum í Suður-Þingeyjar-
sýslu nema að fengnu samþykki
Náttúruvemdarráðs, enda hafi
áður farið fram ransókn sú, sem
gert er ráð fyrir í bréfi iðnaðar-
ráðherra, dags. 13. maí 1970, til
Laxárvirkjunar, sýslunefndar
Suður-Þingeyjarsýslu, Félags
landeigenda á Laxársvæðinu og
nokkurra hreppsnefnda í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu. Komi til
stíflugerðar, skal stífluhæðin
við það miðuð, að vatnsborðs-
hækkun árinnar vegna stíflunn
Skýrt var frá því að aðsókn
að tónleikum félagsins hefði
verið dræm sl. vetur og einnig
á þá tónleika, sem félagið hefur
gengizt fyrir á þessum vetri,
Jón Hlöðver Áskelsson.
ar verði ekki svo mikil, að land
við Birningsstaðaflóa fari undir
vatn af þeim ástæðum. Virkjun
skal þannig framkvæmd, að
hún hindri ekki laxrækt ofan
virkjunar.
2. gr.
Nú hefur Laxárvirkjun fyrir
1. des. 1970 látið gera mannvirki
eða aflað sér vélbúnaðar eða
efnis til virkjunar, sem ætla
má, að ekki komi að gagni án
hærri stíflu en gert er ráð fyrir
í 1. gr., og bætir ríkissjóður þá
eftir mati dómkvaddra manna
tjón það, er Laxárvirkjun kann
Grímsstöðum 3. des. Tíðarfar er
fremur stirt en engin veður-
en það voru söngtónleikar Sig-
í'íðar Magnúsdóttur með undir-
leik Jónasar Ingimundarsonar.
Sjóiivarpið hafði þá greinilega
dregið mjög úr áhuga almenn-
ings á tónleikahaldi, því bæjar
búar höfðu lagt háar upphæðir
í sjónvarpstæki og voru því
felld niður „óþarfa útgjöld,“
(Framhald á blaðsíðu 7)
Stórutungu 3. des. Sauðfénu
hefur enn mjög lítið verið gefið
og hefur veturinn að því leyti
verið okkur dýrmætur, ef við
berum hann saman við árin á
undan. Þó er hér á fremstu
bæjum klístur á jörð og tæplega
nógu gott til beitar.
Vegir, sem heitið geta því
nafni, eru allir flugfærir því
mjög er snjógrunnt.
að hafa orðið fyrir af þeim
ástæðum.
3. gr.
Ríkisstjórnin hlutast til um,
að veiðimálastjóri láti fara fram
og hraða rannsókn á möguleik-
um til að koma upp laxveiði í
efri hluta Laxár. Fall á þessum
hluta árinnar er óheimilt að
virkja.
4. gr.
Ríkisstjórnin lætur nú þegar
hefja endurskoðun fyrirliggj-
andi áætlunar um virkjun Jök-
ulsár á Fjöllum við Dettifoss og
(Framhald á blaðsíðu 7)
vonzka. Dálítill snjór er kom-
inn en þó er allgóð beit fyrir
sauðfé.
Fyrir nokkrum dögum fóru
síðustu bílarnir hér um veginn.
Það voru fjórir flutningabílar
af Héraði, sem fluttu ull til
Akureyrar og fóru austur um á
mánudaginn. Eftir það mun
færi hafa versnað eitthvað, en
það er þó ágizkun að mestu, þar
sem ekki hefur á það reynt.
Á morgun er póstferð til Mý-
vatnssveitar, og kemur þá í ljós
hve mikill snjór er á vegum.
Varla hefur sézt rjúpa í vet-
ur. K. S.
Mannheilt er í sveitinni og
nú erum við farin að spila og
skemmta okkur og ætlum að
halda því áfram. Þ. J.
Kynningartónleikar
TÓNLEIKAR P. Jenkins hefj-
ast kl. 5 í Borgarbíói í dag, laugl
ardag. Q
Enn unnið við Stórutjarnarskóla
Nýjungar í starfsemi Tónlistarfélags Akureyrar
Síðustu bílar austur
Spilum og skemmtum oss