Dagur - 16.12.1970, Blaðsíða 7

Dagur - 16.12.1970, Blaðsíða 7
7 NOKKURRA ÞINGMALA GETIÐ 1 Eysteinn Jónsson flytur þings ályktunartillögu um að láta gera fimm ára áætlun um haf- og fiskirannsóknir við ísland. Ennfremur um fiskileit, veiði- tilraunir og aðra slíka þjónustu við fiskveiðiflotann. Ásgeir Bjarnason, Helgi Bergs og Bjarni Guðbjörnsson flytja frumvarp um breytingu á vegalögum, um að hækka nokk uð tekjur sýsluvegasjóða og að setningin „sýsluvegur skal aldrei ná nær býli en 200 metra, ef hann endar þar“, falli niður. Á þessu ári urðu margir þjóð- vegaspottar að sýsluvegum, og eru sýsluvegir í landinu nú sam tals nær 2800 km., en þjóðvegir allir rúmir 8700 km. Páll Þorsteinsson og Ásgeir Bjarnason leggja til, að lána megi úr Orkusjóði út á vatns- aflstöðvar til heimilisnota 75% kostnaðar og veita 15% að auki, sem óafturkræft framlag. Jón Skaftason, Ingvar Gísla- son og Bjarni Guðbjörnsson flytja ti’llögu til þingsályktunar um heildarendurskoðun á stjórnkerfi sjávarútvegsins. Þórarinn Þórarinsson og Ingvar Gíslason flytja laga- breytingu þess efnis, að iðn- nemar tilnefni þrjá menn í iðn- fræðsluráð í stað eins nú. Einar Ágústsson, Páll Þor- steinsson og Olafur Jóhannes- son flytja frumvarp til laga um leiklistarskóla ríkisins. Jón Skaftason, Björn Pálsson og Einar Ágústsson flytja til- lögu til þingsályktunar um at- hugun á hagkvæmni innkaupa landsmanna. Bjarni Guðbjörnsson og Olaf ur Jóhannesson flytja frUmVarp um breytingu á lögum um Fisk veiðisjóð íslands þess efnis, að lán út á ný fiskiskip megi vera allt að 85% stofnkostnaðar í stað 75% nú og 60% til endur- bóta eða endurbyggingar eldri skipa og að hækka megi veitt lán til fiskiskipa, smíðaðra er- lendis, ef á þeim hvíla erlend lán síðan gengi var annað en nú er. Jón Kjartansson iog Ólafur Jóhannesson flytja tillögu til þingsályktunar um sjóvinnu- skóla eða sjóvinnunámskeið á Siglufirði. □ t I I I § I- Ég pakka innilega börnum mírnnn, tengdabörn- um, barnabörnum, vinum og kunningjum, sem f glöddu mig á sjötugs ajmrcli minu, 9. p. m., með ® ? @ höfðinglegum gjöfitm, blómum og skeytum. SIGURLAUG JÓNSDÓTTIR, Brautarhóli. t <•> Bróðir minn, BJÖRN MARKÚSSON, Sauðhaga, Völlum, sem andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri 11. ju m., verður jarðsunginn frá Akureyrar- kirkju fimmtudaginn 17. desember kl. 13.30. Gunnlaugur Markússon, Munlcaþverárstræti 12, Akureyri. Innilegar jrakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömrnu og langömmu, ÖNNU JÓNSDÓTTUR. Jón Stefánsson Vopni, dætur og tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar jrakkir færum við öllum jreim, er auð- sýndu sarnúð og vinarhug við andlát og útför HREINS SIGFÚ SSONAR, Syðra-Laugalandi. Sérstaklega þökkutn við læknum og starfsliði lyf- Íækningadeildar Fjórðungssjúkráhússins á Akur- eyri. Brynja Björnsdóttir og börn. Sigfús Hallgrímsson, systkini og aðrir vandamenn. Þökkum innilega auðsýnda hjálp og samúð við andlát og jarðarför mannsins míns, föður okkar, sonar, stjúpsonar, tengdasonar og bróður, EINARS TVEITEN, Gránufélagsgötu 29. Sérstakar Jiakkir færurn við forstjóra og starfs- mönnum Malar- og steypustöðvarinnar og starfs- fólki Garnastöðvar KEA fyrir Jieirra stuðning. Mary Hörgdal, Brynjar Einarsson, Kristinn Valgeir Einarsson, Dagbjört Emilsdóttir, Brynjar Valdimarsson, Ragna Aðalsteinsdóttir, systkin og aðrir vandamenn. X HULD 597012167 IV/V. — 2. □ RÚN 597012207 — Jólaf.: MESSAÐ verður í Akureyrar- kirkju n. k. sunnudag kl. 5 e. h. (Ath. breyttan messu- tíma). Sálmar: 74 — 313 — 353 — 96 — 97. — B. S. GUÐSÞJÓNUSTUR um jólin og áramótin í Möðruvalfa- klaustursprestakalli. Aðfanga dagur: Elliheimilið í Skjaldar vík kl. 18. Jóladagur: Glæsi- bæjarkirlvja kl. 11. Möðru- vallakirkja kl. 14. Annar jóla dagur: Bakkakirkja kl. 14. Gamlársdagur: Möðruvalla- kirkja kl. 16. Nýársdagur: Bægisárkirkja kl. 14. — Sókn arprestur. GJOF. Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri hefir borizt minn- ingargjöf um Guðmund heit- inn Karl Pétursson vfirlækni frá Sumarrósu Sigurbjörns- dóttur kr. 20.000.00. Stjórnin færir gefandanum, sem er elzta starfsstúlka sjúkrahúss- ins, beztu þakkir fyrir ræktar semi og myndarskap og óskar henni góðr.a og gleðilegra jóla. — T. G. ÁHEIT á Munkaþverárkirkju: V. G. kr. 200, börn á ferð kr. 100, G. J. kr. 200. — Beztu þakkir. — Sóknarnefndin. MIN J ASAFNIÐ er opið á sunnudögum kl. 14.00—16.00. Sími safnsins er 1-11-62 og safnvarðar 1-12-72. .ijj, HJÁLPRÆÐISHERINN #4?% Sunnudag kl. 14 sunnu- í / dagaskóli. Kl. 20.30 al- menn samkoma. Allir velkomnir. JÓLAMERKIMIÐAR. — Um næstu helgi munu skátar bjóða til kaups nýja og skemmtilega gerð af jóla- merkimiðum. Merkimiðar þessir eru sjalflímandi og ný- stárlegir í útliti. Þeir sem kaupa miða þessa styrkja um leið starfsemi skátafélaganna og stuðla þannig að auknu og íjölbreyttara æskulýðsstarfi á þeirra vegum. SUNNUDAGASKÓLI Akureyr arkirkju verður á sunnudag- inn kl. 10.30 árd. í kirkju og kapellu. Æskulýðsblaðið kem ur út og safnaðarbréf borið út til heimilana. — Sóknar- prestar. NATTÚRUGRIPASAFNIÐ verður lokað til 9. janúar n.k. ir 1 .... FRÁ SJÓNARHÆÐ. Samkoma n. k. sunnudag kl. 17. Drengja fundur mánudag kl. 17.30. Telpnafundur laugardag kl. 14.30. LIONSKLÚBBUEINN HUGINN. Fundur að Hótel KEA fimmtudag- inn 17. þ. m. kl. 19.00 Jólafundur. ÁHEIT á Lögmannshlíðarkirkju kr. 500 frá N. N. og 10% af happdrættisvinningi kr. 200 frá N. N. — Gjöf til Akur- eyrarkirkju, gamalt skulda- bréfalán kr. 500 frá Stefáni Jónassyni. — Beztu þakkir. — Birgir Snæbjörnsson. I.O.G.T. stúkan Akurliljan nr. 275. Fundur fimmtudaginn 17. des. kl. 20.30 í Kaupvangs stræti 4. Fundarefni: Inntaka, jóladagskrá. — Æ.T. SAMKOMUR votta Jehóva að Þingvallastræti 14, II hæð: Hinn guðveldislegi skóli, föstudaginn 18. des. kl. 20.30. Opinber fyrirlestur: Ríki Guðs stjórnar — jörðin para- dís innan skamms. Sunnudag inn 20. des. kl. 10.00 f. h. Allir velkomnir. Má ég vera meó? Tek að mér BÓKHALD fyrir fyrirtæki og ein- staklinga. Bókhaldið verður fært í samráði við löggiltan endurskoðanda og gert upp af honum. Þorsteinn Friðriksson, sími 2-16-42. Nýju bilarnir frá Reykjalundi draga stelpurnar að bilaleiknum líka. SEX NÝJAR GERÐIR fást nú i öllum leikfangabúðum. Stigabíll, kælibíll, sándbill, flutningabíll, grindabíll og tankbíll — allir í samræmdri stærð — og svo stærri MALARBÍLL. Harðplast — margir litir. VINNUHEIMILIÐ AÐ REYKJALUNDI AÐALSKRIFSTOFA REYKJALUNOI, Mosfellssvelt — Simi 91 66200 SKRIFSTOFA I REYKJAViK Bræðraborgarstig 9 — Simi 22150 --------------------------------------------------------------------------------- Nýtt, mikið vörnval! Verzlun BERHH. LÁXÐAL KJÓLAR — í öllum tízkusíddum — mjög liagstætt verð ULLAR- og KRUMPLAKK- IvÁPUR — með og án hettu — stærð frá no. 34 * ★ -K * * LOÐHÚFUR, HATTAR SLÆÐUR, TREFLAR LANGSJÖL HANZKAR og REGNHLÍFAR Tilvaldar jólagjafir handa konum á ölium aldri

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.