Dagur - 03.02.1971, Blaðsíða 1

Dagur - 03.02.1971, Blaðsíða 1
LÁGFREYÐANDI Dagur LIV. árg.— Akureyri, miðvikudaginn 3. febrúar 1971 — 5. tölubh FILMU HÚSIÐ Hafnarstræti 104 Akureyri Sfmi 12771 • P.O. Box 397 SÉRVERZLUN: LJÓSMYNDAVÖRUR FRAMKÖLLUN - KOPiERING Loðnan er á leiðinni SAMKVÆIMT umsögn Hjálm- ars Vilhjálmssonar fiskifræð- ings og leitarstjóra á Árna Friðrikssyni, var loðnan komin suður á móts við Glettinganes í vikulokin. Loðnan stendur mjög djúpt, er víðsvegar á 65— 75 mílna löngu svæði við land- grunnsbrúnina. Er loðnan dreifðari en síðustu tvo árin á göngu sinni suður með Austur- landinu, en gengur nær landi. í þessari fyrstu loðnugöngu ái-s ins er eingöngu fullvaxin loðna og kvenfiskar hrognafullir. Búið er að selja 5—6000 tonn af loðnulýsi úr væntanlegum afla fyrir 97 sterlingspund tonn- ið en heimsmarkaðsverð hefur hækkað síðan. Og um 2000 tonn mun búið að selja Japönum af frystri loðnu. □ Skjálfandaíljót feppir samgönpr Stórutungu 23. jan. Tíðarfar hefur verið rysjótt síðan um ára mót, þó er fremur snjólétt. Viku af janúar gerði blota svo snjór rann í svell og storku og er nú jarðlaust nema aðeins á fremstu bæjunum í Bárðardal. Mjólkurflutningum hefur ver ið haldið uppi þrautalítið, þó hefur þurft að flytja mjólk stöku sinnum á léttari farar- tækjum, þar sem ófært hefir orðið fyrir bíl, vegna þess að „vegurinn“ er hjólför neðar en umhverfið og skafið hefur á APOLLO 14 APALLO 14 var skotið á loft frá Kennedyhöfða á sunnudagskvöldið, 40 mínút- um síðar en áætlað hafði verið, vegna óhagstæðs veð- urs. Ætlunin er að lenda á tunglinu á föstudaginn, á tunglferju, eins og í þeirri frækilegu för, er menn fyrst stigu niður fótum þar. Tungl fararnir heita Stuert A. Roosa, Alan B. Shepard, sem er fararstjóri og Edgar D. Mitchell. Talið er, að tunglferð þessi standi níu daga, ef áætlun er unnt að halda. □ veginn, þar sem hann er lágur, eða nánast jafn umhverfinu. Þó var úr þessu bætt með heflum, en það endist skammt ef snjóar. Nú síðustu viku hefur Skjálf- andafljót hálf stíflazt af ísreki og krapi sem sezt hefur að við lagís sem er á fljótinu norðar í dalnum. Tvívegis með stuttu millibili hefur gert frosthörkur svo að frost varð allt að 30 stig í Svartárkoti en nokkru minna neðar í dalnum. Svona mikið frost orsakar mikla krapmynd- un í opnum vötnum. Nú þegar er vegurinn alveg lokaður aust- an fljóts, norðan og sunnan Hrappsstaða. Enn er óséð hvern ig þetta fer, en getur orðið alvar (Framhald á blaðsíðu 4) Enn reyndar sættir í Laxárdeilunni í JANÚARMÁNUÐI voru enn reyndar sættir í Laxárdeilunni, formaðar af hinni gömlu sátta- nefnd. | Þar var bréflega rætt um hugsanlega framvindu mála og Hegranes sk 2 kom á laiprdag Sauðárkróki 1. febrúar. Hingað kom á laugardaginn Hegranes SK 2, keypt í Frakklandi, þriggja ára fiskiskip og tæp 400 tonn að stærð. Safnaðist margt fólk við höfnina er skipið kom og Hákon Torfason bæjarstjóri og stjórnarformaður útgerðar- stjórnar bauð farmenn vel- komna með hið nýkeypta skip. Skipstjóri er Guðmundur Árna son. Hegranes fer á togveiðar innan tíðar, þegar nauðsynlegar brej'tingar hafa farið fnam. Skipið reyndist vel á heim- sighngu. Eigandi er Útgerðar- félag Skagfirðinga h.f. Svolítið hefur verið unnið af skelfiski í Fiskiðjunni og var hann fluttur frá Skagaströnd. Þorrablót var í Miðgarði á laugardaginn. Undirbúnir eru sjónleikir vegna Sæluviku. S. G. stungið upp á nokkrum atriðum til athugunar. Helztu atriðin eru: Að jarð- göng verði hönnuð að nýju, þau þrengd og stöðvarhús og inn- taksgrein verði aðeins fyrir eina 19 MW vél. Þá eiga dag- sveiflur í væntanlegu uppi- stöðulóni — miðað við um 20 metra stíflu — ekki að verða teljandi. Samanlagt útiloka þessi ati’iði framhaldsvirkjun og Gljúfurversvirkjun væri þá endanlega úr sögunni. Félag landeigenda telur þessi atriði ekki fela í sér sáttagrund völl, enda hafi kröfum þeirra um frestun framkvæmda verið hafnað. En sú krafa um frestun var byggð á því samkomulagi, er náðist um líffræðilega rann- sókn á vatnasvæði Laxár og Mývatns. Ekki skal um það sagt hvort svar Þingeyinganna er endan- legt, eða hvort unnt reynist að koma á viðræðum með deilu- aðilum um þessar nýju og óformlegu tillögur. □ Mikil aukning í millilandaflugi FÍ Málverkasýning Gríms frá Jökulsá NOKKRIR eldri og yngri vinir og kunningjar Gríms Sigurðs- sonar fyrrum bónda á Jökulsá á Flateyjardal, sem nú er bú- settur á Akureyri, hafa farið þess á leit við hann, að hann sýni nokkur málverk sín al- menningi. Og er þetta nú ákveðið. Grímur Sigui-ðsson er einn af síðustu bændum Flateyjardals, þar fæddur og upp alinn. Hann hefur máiað 25 niyndir af bæj- unum í Þönglabakka- og Flat- eyjarsóknum, eins og þeir voru í lok nítjándu aldar. Marga 'þeirra man hann og þekkti vel, en af öðrum hefur hann fengið nákvæmar lýsingar frá þeim, sem lengra mundu. Þessar myndir, sem munu vera nokkuð sérstæðar í sinni röð, eru ekki sölumyndir, en munu eiga að fylgjast að til fróðleiks fyi’ir eftirkomendurna og hina mörgu, sem rekja ættir sínar til þessara byggða. Auk þess vei’ða á sýningunni allt að 40 myndir aði'ax'. Allt eru þetta olíumálverk, nema 6 svart Framhald á bls. 2 Grímur Sigurðsson með málverkum síniun af gömlum bæjum og á! vegg er landslagsmynd frá Flateyjardal. (Ljósm.: E. D.) NÚ liggja fyrir tölur um far- þegaflutninga Flugfélags ís- lands árið 197d. Það einkennist af mikilh grósku í fai'þegafllutn ingum á áætlunarleiðum félags- ins milli Janda, þar sem aftur á móti rétt náðist að jafna metin við árið 1969 í innanlandsflug- inu. Ástæðan er verkfall, sem stöðvaði innanlandsflugið í fjór- ar vikur. Dágóð aukning varð í vöruflutningum svo og póst- flutningum milli landa. í leigu- flugi varð einnig umtalsverð aukning. Árið 1979 urðu faiþegar í áætlunai'flugi á leiðum Flug- félags Islands milli landa 67.563 á móti 51.597 árið áður. Aukn- ing er 31.%. Vöruflutningar milli landa námu 1050 lesturn og' jukust um 9.5%. Þá voru fluttar 242.1 lest af pósti milli landa og varð aukning þar 33%. Ferþegar á áætlunarleiðum Flugfélagsins innanlands árið 1970 urðu 108.328 á móti 107.032 árið áður. Aukning er 1.2%. Vöruflutningar námu 3.402 lest um og jukust um 3.6% og póst- ur innanlands varð 437.3 lestir og minnkaði um 3.9%. Nokkur aukning varð í leigu flugferðum árið 1970 miðað við árið áður. í leiguflugferðum flutti Flugfélagið 13.355 farþega á móti 11.054 árið áður og er það 20.8% «ukning. í leiguflug- ferðuta áoaaMuaiands voru fhittár 788 farþegar. Veruleg aukning varð í vöruflutningum í leigu- flugi og munar þar að sjálf- sögðu mest um hina miklu flutn inga á byggingarefni o. fl. til AngmagsaUk í Grænlandi á öndverðu ári 1970. Alls urðu farþegar Flugfélags íslands í áætlunarflugi og leigu flugferðum 190.034 og er það 11.5% aukning miðað við árið á undan. (Fréttatilkynning) bæjarins GESTUR Ólafsson arkitekt et’ byrjaður á skipulagsstarfi fyrir- Akureyrarkaupstað. En hann mun semja skipulagsáætlun fyrir kaupstaðhm á þessu og næsta ári, ásamt mörgum öðr- um er hann velur sér til að- stoðar, og að fengnum þeim óskum Akureyringa sjálfra, er vai'ða framtíðarþróun staðarins. Er þetta yfirgripsmikið verk- efni og margþætt, en alveg nauðsynlegt í vaxandi bæjar- félagi, sem þegar telur nær 11 þús. íbúa. Gestur Ólafsson mun innan skamms rita grein eða greinai' um skipulagsmálin fyrir Dag.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.