Dagur - 03.02.1971, Qupperneq 1
LÁGFREYÐANDI
Dagur
LIV. árg.— Akureyri, miðvikudaginn 3. febrúar 1971 — 5. tölubh
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sfmi 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJÓSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPiERING
Loðnan er á leiðinni
SAMKVÆIMT umsögn Hjálm-
ars Vilhjálmssonar fiskifræð-
ings og leitarstjóra á Árna
Friðrikssyni, var loðnan komin
suður á móts við Glettinganes
í vikulokin. Loðnan stendur
mjög djúpt, er víðsvegar á 65—
75 mílna löngu svæði við land-
grunnsbrúnina. Er loðnan
dreifðari en síðustu tvo árin á
göngu sinni suður með Austur-
landinu, en gengur nær landi.
í þessari fyrstu loðnugöngu ái-s
ins er eingöngu fullvaxin loðna
og kvenfiskar hrognafullir.
Búið er að selja 5—6000 tonn
af loðnulýsi úr væntanlegum
afla fyrir 97 sterlingspund tonn-
ið en heimsmarkaðsverð hefur
hækkað síðan. Og um 2000 tonn
mun búið að selja Japönum af
frystri loðnu. □
Skjálfandaíljót feppir samgönpr
Stórutungu 23. jan. Tíðarfar
hefur verið rysjótt síðan um ára
mót, þó er fremur snjólétt. Viku
af janúar gerði blota svo snjór
rann í svell og storku og er nú
jarðlaust nema aðeins á fremstu
bæjunum í Bárðardal.
Mjólkurflutningum hefur ver
ið haldið uppi þrautalítið, þó
hefur þurft að flytja mjólk
stöku sinnum á léttari farar-
tækjum, þar sem ófært hefir
orðið fyrir bíl, vegna þess að
„vegurinn“ er hjólför neðar en
umhverfið og skafið hefur á
APOLLO 14
APALLO 14 var skotið á
loft frá Kennedyhöfða á
sunnudagskvöldið, 40 mínút-
um síðar en áætlað hafði
verið, vegna óhagstæðs veð-
urs. Ætlunin er að lenda á
tunglinu á föstudaginn, á
tunglferju, eins og í þeirri
frækilegu för, er menn fyrst
stigu niður fótum þar. Tungl
fararnir heita Stuert A.
Roosa, Alan B. Shepard,
sem er fararstjóri og Edgar
D. Mitchell. Talið er, að
tunglferð þessi standi níu
daga, ef áætlun er unnt að
halda. □
veginn, þar sem hann er lágur,
eða nánast jafn umhverfinu. Þó
var úr þessu bætt með heflum,
en það endist skammt ef snjóar.
Nú síðustu viku hefur Skjálf-
andafljót hálf stíflazt af ísreki
og krapi sem sezt hefur að við
lagís sem er á fljótinu norðar
í dalnum. Tvívegis með stuttu
millibili hefur gert frosthörkur
svo að frost varð allt að 30 stig
í Svartárkoti en nokkru minna
neðar í dalnum. Svona mikið
frost orsakar mikla krapmynd-
un í opnum vötnum. Nú þegar
er vegurinn alveg lokaður aust-
an fljóts, norðan og sunnan
Hrappsstaða. Enn er óséð hvern
ig þetta fer, en getur orðið alvar
(Framhald á blaðsíðu 4)
Enn reyndar sættir í Laxárdeilunni
í JANÚARMÁNUÐI voru enn
reyndar sættir í Laxárdeilunni,
formaðar af hinni gömlu sátta-
nefnd. |
Þar var bréflega rætt um
hugsanlega framvindu mála og
Hegranes sk 2 kom á laiprdag
Sauðárkróki 1. febrúar. Hingað
kom á laugardaginn Hegranes
SK 2, keypt í Frakklandi,
þriggja ára fiskiskip og tæp 400
tonn að stærð. Safnaðist margt
fólk við höfnina er skipið kom
og Hákon Torfason bæjarstjóri
og stjórnarformaður útgerðar-
stjórnar bauð farmenn vel-
komna með hið nýkeypta skip.
Skipstjóri er Guðmundur Árna
son. Hegranes fer á togveiðar
innan tíðar, þegar nauðsynlegar
brej'tingar hafa farið fnam.
Skipið reyndist vel á heim-
sighngu. Eigandi er Útgerðar-
félag Skagfirðinga h.f.
Svolítið hefur verið unnið af
skelfiski í Fiskiðjunni og var
hann fluttur frá Skagaströnd.
Þorrablót var í Miðgarði á
laugardaginn. Undirbúnir eru
sjónleikir vegna Sæluviku.
S. G.
stungið upp á nokkrum atriðum
til athugunar.
Helztu atriðin eru: Að jarð-
göng verði hönnuð að nýju, þau
þrengd og stöðvarhús og inn-
taksgrein verði aðeins fyrir
eina 19 MW vél. Þá eiga dag-
sveiflur í væntanlegu uppi-
stöðulóni — miðað við um 20
metra stíflu — ekki að verða
teljandi. Samanlagt útiloka
þessi ati’iði framhaldsvirkjun
og Gljúfurversvirkjun væri þá
endanlega úr sögunni.
Félag landeigenda telur þessi
atriði ekki fela í sér sáttagrund
völl, enda hafi kröfum þeirra
um frestun framkvæmda verið
hafnað. En sú krafa um frestun
var byggð á því samkomulagi,
er náðist um líffræðilega rann-
sókn á vatnasvæði Laxár og
Mývatns.
Ekki skal um það sagt hvort
svar Þingeyinganna er endan-
legt, eða hvort unnt reynist að
koma á viðræðum með deilu-
aðilum um þessar nýju og
óformlegu tillögur. □
Mikil aukning í millilandaflugi FÍ
Málverkasýning Gríms frá Jökulsá
NOKKRIR eldri og yngri vinir
og kunningjar Gríms Sigurðs-
sonar fyrrum bónda á Jökulsá
á Flateyjardal, sem nú er bú-
settur á Akureyri, hafa farið
þess á leit við hann, að hann
sýni nokkur málverk sín al-
menningi. Og er þetta nú
ákveðið.
Grímur Sigui-ðsson er einn af
síðustu bændum Flateyjardals,
þar fæddur og upp alinn. Hann
hefur máiað 25 niyndir af bæj-
unum í Þönglabakka- og Flat-
eyjarsóknum, eins og þeir voru
í lok nítjándu aldar. Marga
'þeirra man hann og þekkti vel,
en af öðrum hefur hann fengið
nákvæmar lýsingar frá þeim,
sem lengra mundu. Þessar
myndir, sem munu vera nokkuð
sérstæðar í sinni röð, eru ekki
sölumyndir, en munu eiga að
fylgjast að til fróðleiks fyi’ir
eftirkomendurna og hina
mörgu, sem rekja ættir sínar
til þessara byggða.
Auk þess vei’ða á sýningunni
allt að 40 myndir aði'ax'. Allt eru
þetta olíumálverk, nema 6 svart
Framhald á bls. 2
Grímur Sigurðsson með málverkum síniun af gömlum bæjum og á!
vegg er landslagsmynd frá Flateyjardal. (Ljósm.: E. D.)
NÚ liggja fyrir tölur um far-
þegaflutninga Flugfélags ís-
lands árið 197d. Það einkennist
af mikilh grósku í fai'þegafllutn
ingum á áætlunarleiðum félags-
ins milli Janda, þar sem aftur á
móti rétt náðist að jafna metin
við árið 1969 í innanlandsflug-
inu. Ástæðan er verkfall, sem
stöðvaði innanlandsflugið í fjór-
ar vikur. Dágóð aukning varð í
vöruflutningum svo og póst-
flutningum milli landa. í leigu-
flugi varð einnig umtalsverð
aukning.
Árið 1979 urðu faiþegar í
áætlunai'flugi á leiðum Flug-
félags Islands milli landa 67.563
á móti 51.597 árið áður. Aukn-
ing er 31.%. Vöruflutningar
milli landa námu 1050 lesturn
og' jukust um 9.5%. Þá voru
fluttar 242.1 lest af pósti milli
landa og varð aukning þar 33%.
Ferþegar á áætlunarleiðum
Flugfélagsins innanlands árið
1970 urðu 108.328 á móti 107.032
árið áður. Aukning er 1.2%.
Vöruflutningar námu 3.402 lest
um og jukust um 3.6% og póst-
ur innanlands varð 437.3 lestir
og minnkaði um 3.9%.
Nokkur aukning varð í leigu
flugferðum árið 1970 miðað við
árið áður. í leiguflugferðum
flutti Flugfélagið 13.355 farþega
á móti 11.054 árið áður og er
það 20.8% «ukning. í leiguflug-
ferðuta áoaaMuaiands voru fhittár
788 farþegar. Veruleg aukning
varð í vöruflutningum í leigu-
flugi og munar þar að sjálf-
sögðu mest um hina miklu flutn
inga á byggingarefni o. fl. til
AngmagsaUk í Grænlandi á
öndverðu ári 1970.
Alls urðu farþegar Flugfélags
íslands í áætlunarflugi og leigu
flugferðum 190.034 og er það
11.5% aukning miðað við árið
á undan.
(Fréttatilkynning)
bæjarins
GESTUR Ólafsson arkitekt et’
byrjaður á skipulagsstarfi fyrir-
Akureyrarkaupstað. En hann
mun semja skipulagsáætlun
fyrir kaupstaðhm á þessu og
næsta ári, ásamt mörgum öðr-
um er hann velur sér til að-
stoðar, og að fengnum þeim
óskum Akureyringa sjálfra, er
vai'ða framtíðarþróun staðarins.
Er þetta yfirgripsmikið verk-
efni og margþætt, en alveg
nauðsynlegt í vaxandi bæjar-
félagi, sem þegar telur nær 11
þús. íbúa.
Gestur Ólafsson mun innan
skamms rita grein eða greinai'
um skipulagsmálin fyrir Dag.