Dagur - 03.02.1971, Blaðsíða 2
2
SÝSLUNEFND Eyjafjarðar
kaus veganefnd til þess að end-
urskoða vegaáætlun sýslunnar,
sem gerð var fyrir fjögur ár á
sínum tíma, árin 1969—1972 að
báðum meðtöldum, ennfremur
var veganefnd falið að fylgja
eftir kröfum um endurbætur
þjóðvegakerfisins í sýslunni.
Formaður veganefndar er
Hilmar Daníelsson sveitarstjóri
á Dalvík. Sneri blaðið sér til
hans og fékk hjá honum eftir-
farandi upplýsingar um vega-
málin.
Vegunum er skipt í þjóðbraut
ir og landsbrautir. Á árinu 1969
voru á áætlun til þjóðbrauta
rúmar 2 millj. kr. til að greiða
skuld af Múlavgei. Árið 1970
voru 3 milljónir á áætlun. Það
fer í veg á Öxnadalsheiði. Árið
1971 eru 4.9 millj. áætlaðar. Þar
af fara 2.2 millj. kr. i skuld af
Múlavegi, 1 milljón í Lágheiði.
Það, sem kalla má framkvæmda
fé það ár eða 1971, er 1.7 millj.
til vegabóta frá Reistará til
Hagaóss og 1 millj. kr. á að fara
í veginn frá Brimnesá að Karls-
á, sem er framhald Múlavegar.
Á árinu 1972 fara 2.5 millj.
kr. í veginn milli Brimnesár og
Karlsár og 1.2 millj. í veginn
Reistará—Hagaás. Samtals í
þessa tvo vegarkafla eiga að
fara 3 millj. 1971 og 1972 og 3.5
millj. kr. Brimnesá—Karlsá.
(Frsmhald af blaðsíðu 81.
37 VÍSINDAMENN
Ekki færri en 37 vísindamenn
í mörgum greinum líffræðinnar
hafa sent forsætisráðherra all-
harðort bréf um flúormengun
frá álbræðslunni í Straumsvík.
Véfengja vísindamennirnir
ýmsa þætti þeirrar opinberu
skýrslu, er svokölluð flúor-
nefnd samdi um mengun frá
álbræðslunni. Er þetta í raun
réítu kæra og töluvert alvarleg,
(Framhald á blaðsíðu 21
1. Veita skal, eftir því sem
unnt er, blöðum og öðium fjöl-
miðlum sem þess óska, upplýs-
ingar varðandi þá starfsemi
aðildarfélaganna, sem varðar
landbúnaðarmál.
2. Upplýsingaþjónustan skal
vera málssvari félaganna varð-
ar.di sérstök deilumál eða um-
ræðuefni um landbúnaðavmál,
sem snei-ta starfsemi þeh'ra og
uppi eru hverju sinni.
3. Veita skal almennar upp-
lýsingar um landbúnaðinn sem
atvinnugrein og gildi hans og
stöðu í þjóðfélaginu, og koma
þeim upplýsingum á framfæri
með skrifum í blöð og tímarit,
Samkvæmt þessu er ekkert fé
ætlað til framkvæmda á innan-
héraðsvegum, sem við höfum
svo kallað á árunum 1969—1970
nema þessar fyrrgreindu smá-
upphæðir 1971—1972.
Svo eru það landsbrautirnar.
Árið 1969 var á áætlun til lands
brauta 570 þús. -kr. og árið 1970
1.4 millj. kr. og það mun kafa
verið ætlað í veginn niður að
endurvarpsstöðinni, en 200 þús.
áttu að fara í Glæsibæjarflóa og
530 þús. kr. voru áætlaðar í brú
á Finnastaðaá, sem byggð var
í sumai'.
Svo lagast þetta ögn á árinu
1971, því að ácptlaðar eru 6.3
millj. kr. í landsbrautir, þar af
á að gera vegabætur í Svarf-
aðardal fyrir 1.6 millj. kr., frá
Dalvík að Klaufabrekku, tæpar
1.7 millj. í Hauganesveg, sem
unnið var fyrir lánsfé áður, 0.4
millj. kr. eiga að fana í Hörgár-
dalsveg, nálægt Dunhaga og 0.5
millj. kr. eiga að fara í veg að
endurvarpsstöðinni, sem mun
hafa verið unnið fyrir á sl. ári
og þá fyrir lánsfé.
Norðurlandsvegur að Hrafna-
gili á að fá 2.2 millj. kr. og því
fé er þegar búið að verja til
viðhalds, að ég hygg, á siðasta
ári.
Draga má þá niðurstöðu af
því, sem nú hefur verið sagt, að
það er engu eða nær engu fé
þar sem niðurstöður hinnar
opinberu skýrslu séu að veru-
legu Ieyti byggðar á röngum
eða fölskum forsendum.
Hér er um svo alvarlegt má.1
að ræða, að ráðherra mun varí
gcta skoíið sér undan að svara
opinberlega, eða að sýna af sér
þá rögg að fyrirskipa, með að-
stoð Alþingis cf með þarf, að
fullkomnustu hreinsitæki verði
sett í álbræðsluna áður en verr
fer.
blaðamnanafundum og erinda-
flutningi í skólum og útvarpi
eftir því sem aðstæður leyfa.
4. Þá skal upplýsingaþjónust-
an sjá um móttöku erlendra
gesta, er hingað leita í beim til-
gangi að fræðast um íslenzkan
landbúnað.
Til að koma þessari starfsemi
á laggirnar og veita henni for-
stöðu fyrst um sinn hafa fram-
anskráð samtök ráðið Inga
Tryggvason, bónda og kennara
á Kárhóli í Reykjadal. Hefur
Ingi aðsetur sitt á 3. hæð
Bændahallarrirnnar og er síma
númer hans 20025.
(Fréttatilkynning)
varið til byggingu á þjóðbraut-
um á þessu fjögurra ára tíma-
bili hér í sýslunni. Og megin-
hluti þess, sem er á áætlun þessi
ár, fer í svokallaða tengivegi.
Borið saman við ýmsar aðrar
sýslur, er okkar hluti lélegur,
á sarna tíma og stórkostlegu fé
á nú að verja í hraðbrrautar-
framkvæmdir syðra.
Vegir sýslunnar eru með
elztu vegum, gerðir frá því upp
úr aldamótum og fram yfir
1930, sokknir meira og minna
og alls ekki í upphafi gerðir
fyrir þá umferð, sem nútíminn
krefst.
Þá er vert að geta þess, að á
allmörgum stöðum í sýslunni
eru hættustaðir, sem valdið
hafa milljóna tjóni og fé vantar
til að endurbæta, og er þó til-
tölulega auðvelt að lagfæra. □
Körfuknattleikur
ÞOR keppti í Reykjavík í 1.
deild í körfuknattleik um helg-
ina. Á laugardag sigraði KR
Þór með 73 stigum gegn 64, en
á sunnudag sigraði Þór Val
með 75 stigum gegn 71. □
SKÍÐAMENN efna til nám-
skeiðs í skíðagöngu fyrir drengi
og stúlkur á aldrinum 12—15
ára. Hefst námskeiðið n. k.
föstudag kl. 5 e. h. við íþrótta-
- Málverkasýning ...
(Framhald af blaðsíðu 1).
krítarmyndir frá skólaárum
höfundar. Á sýningunni verða
23 myndir til sölu, og er verði
í hóf stillt.
Grímur var, sem fyrr getur,
bóndi í hinu afskekkta byggðar
lagi, en eftir að hann fluttist til
Akureyrar, vann hann við smíð
ar og ýmiskonar önnur störf á
meðan hann enn hafði sæmilega
heilsu. Og ekki fór hann að fást
við liti og léreft fyrr en um
sextugt, og ekki hafði hann
hugsað sér að auglýsa þessi tóm
stundastörf. Það mun þó sann-
ast á sýningunni, að hún mun
margan gleðja.
Þá er þess að geta, að Grímur
hefur hin síðustu ái'in ski’áð
manntal úr Þönglabakkapresta-
kalli frá 1703 til 1900 og eru það
fjögur stór bindi og verða þau
á sýningunni. Sá fróðleikur, er
þar er samankominn, er auð-
vitað nátengdur málverkunum
af bæjunum, þar sem þetta fólk
bjó og fer vel á því, að mönn-
um gefst kostur á að athuga
þetta á einum stað.
Sýningin verður í Lands-
bankasalnum 4., 5. og 6. febrúar
SKÁKÞINGI Akureyrar er rétt
ólokið, en aðeins er eftir að
tefla eina umferð og nokkrar
biðskákir. Staða efstu manna er
nú þessi: vinn.
Jón Björgvinsson 6
Júlíus Bogason 5V2
Guðmundur Búason 5
Hreinn Hrafnsson 5
Leó Jóhannesson 5
Rúnar Búason 5
Keppendur eru 26 talsins.
í unglingaflokki eru efstir og
jafnir Heimir Haraldsson og
Bjarki Bragason með 10 vinn.
Örn Pálsson er með 9 v. Kepp-
endur í unglingaflokki eru 14
talsins.
Næsta umferð verður tefld á
fimmtudagskvöldið, en Skák-
þinginu lýkur með hraðskák-
móti og verðlaunaafhendingu
fimmtudagskvöldið 11. febrúar
og er teflt í Landsbankasalnum.
Skáksamband íslands og Tafl
félag Reykjavíkur halda opið
skákmót í Reykjavík í marz, og
er áætlað að um 40—50 kepp-
endur taki þátt í mótinu og
hljóta fimm efstu menn á Skák-
þingi Akureyrar rétt til þátt-
töku í því. Að auki hlýtur sigur
vegarinn á Skákþingi Akureyr-
ar landsliðsréttindi á Skákþingi
íslands.
ÆFINGAMÓT
GÖNGUMENN héldu æfinga-
mót á nýja golfvellinum að
Jaðri sunnudaginn 31. janúar.
Urslit urðu þessi:
Uglingar 13 til 14 ára. mín.
Ármann Sverrisson 23.16
Vegalengd 5 km.
Unglingar 15—16 ára. mín.
Kristján Vilhelmsson 22.05
Trausti Haraldsson 23.33
Þórarinn Olafsson 23.39
Magnús Vestmann 24.45
Tryggvi Ásgrímsson 29.41
Vegalengd 5 km.
Halldór Matthíasson gekk 15
km. á 56.25 mín. □
vallarhúsið en æfingasvæðið
verður á golfvellinum meðan
færi endist. Kennari verður
Halldór Matthíasson, en hann
er sem kunnugt er nýkominn
frá Svíþjóð þar sem hann var
á þjálfaranámskeiði meg skíða-
göngumönnum. Aukinn áhugi
er nú að glæðast fyrir skíða-
göngu og ef við höfum „Trimm-
ið“ í huga ættu þeir, sem eiga
gömul skíði, að fara að huga að
þeim og iðka skíðagöngu sér til
hressingar. Eins og er, er snjór-
inn nægur og æfingasvæði ótak
markað. □
r
ÍI hefur áœtlunarflug
til Frankfurt í vor
FLUGFÉLAG ÍSLANDS undir
býr nú áætlunarflug til Frank-
furt am Main í Þýzkalandi.
Fyrsta ferðin milli íslands og
Frankfurt verður farin 19. júní
n. k. Ráðgert er að fljúga eina
ferð í viku, á laugardögum, og
verður flogið milli staðanna án
viðkomu annars staðar.
Flugvöllurinn í Frankfurt am
Main er sem fyrr segir einn
fjölfarnasti flugvöllur í Evrópu.
Auk þess að vera á miklu iðn-
aðar- og athafnasvæði í Suður-
Þýzkalandi koma þangað flug-
vélar frá öllum heimshornum
svo samgöngur eru þaðan greið-
ar til allra átta.
(Fréttatilky nning )
Skákþing Norður’an’: verð-
ur haldið á Húsavík að þessu
sinni, og hefst það sunnudaginn
21. febrúar n. k. Þátttökutil-
kynningar þurfa að hafa borizt
fyrir 18. febrúar, en þeim veitir
viðtöku Árni G. Sigurjónsson,
Húsavik í síma 4-13-46.
Að loknu Skákþingi Akureyr
ar verður aðalfundur félagsins,
en hann verður auglýstur síðar.
(Fr éttatilky nning)
Keppni um Thule-
bikarana hafin
THULE-tvímenningskeppni er
hafin hjá B. A., en hún er
kennd við okkar ágæta Thule-
öl. Sana h.f. gaf bikara til þess-
arar keppni, sem er þrjár um-
ferðir. — Röð efstu manna er
þessi:
1. Jón—Hörður 145
2. Alfreð—Guðmundur 135
3. Mikael—Sigurbjörn 131
4. Guðjón—Þormóður 129
Meðalárangur er 108 stig. —
GOLF - KENNSLA
GOLFKLÚBBUR Akureyrar er
nú að hefja vetrarstarf sitt. Nú
sem fyrr, verður nýjum félög-
um veitt ókeypis kennsla. sem
fram á að fai'a í íþróttaskemm-
unni á Gleráreyrum.
Kennt verður tvo daga vik-
unnar, á miðvikudögum milli
kl. 5.30—7.30 og á föstudögum
milli kl. 8—10, og hefur Sævar
Gunnarsson verið fenginn til að
sjá um kennsluna. □
Haii dknattleikur
UM síðustu helgi var keppt hér
á Akureyri í 2. deild í hand-
knattleik karla. Úrslit leikja
urðu sem hér segir:
Á föstudag sigraði KA Þrótt
með 24 mörkum gegn 17. Á
laugardag sigraði Þróttur Þór
með 22 mörkum gegn 19. □
SKEMMTIKRAFTUR
KARL Stefánsson, Akureyring-
ur, er nú að hefja starf eftir
tveggja ára hlé. Hann skemmt-
ir með gríndönsum í skrautleg-
um búningum ásamt brúðu
sinni, við undirleik þeirra hljóm
sveita, er viðstaddar eru hverju
sinni.
Karl hefur skemmt í Reykja-
vík allmörg ár áður, en er nú
búsettur á Akureyri. — Sími
hans er 2-11-13. □
SMÁTT & STÓRT
- UPFLÝSINGAÞJÓNUSTA LANDBÚNAÐAR
Námskeið í skí&pnp á Ak.