Dagur


Dagur - 03.02.1971, Qupperneq 4

Dagur - 03.02.1971, Qupperneq 4
(-------—-------------§1 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. Dreifing verkfræðiþekkingar í LAGAFRUMVARPI, sem Fram- sóknarmenn liafa lagt fyrir Alþingi það, er nú situr, segir svo: Ráða skal á vegum ríkisins verkfræðíráðunauta til starfa í tilteknum umdæmum: Einn í Vestnrlandsumdæmi með að- setur í Borgamesi, einn í Vestfjarða- umdæmi með búsetu á ísafirði, tvo í Norðlendingafjórðungi með bú- setu á Akureyri og á Sauðárkróki, einn í Austurlandsumdæmi með bú- setu á Egilsstöðum og einn í Suður- landsumdæmi með búsetu á Selfossi. Gert er ráð fyrir, að hér. sé um verkfræðinga að ræða, og hafi þeir undir yfirumsjón vega- og vitamála- stjóra umsjón með vega- og hafnar- gerð í umdæmum sínum, enda hafi þeir á sama hátt með höndum undir búningsrannsóknir, áætlanagerð og viðhald. Ennfremur er gert ráð fyrir, að fela megi verkfræðiráðunautum ríkisins umsjón með hverskonar opinberri byggingastarfsemi í um- dæminu, í samráði við húsameistara ríkisins og skipulagsstjóra — og að vera til ráðuneytis bæjarstjómum, sýslunefndum og sveitarstjómum við mannvirkjagerð, gegn þóknun. Frumvarp þetta er í meginatrið- um samið af staðsetningamefnd rík- isstofnana, sem vinstri stjómin skip- aði 1958. í henni voru alþingismenn irnir Gísli Guðmundsson, Ágúst Þor valdsson, Ásgrímur Harmannsson bæjarstjóri í Ólafsfirði, Gunnlaugur Jónasson bankaritari á Siglufirði, Jónas Guðmundsson þáverandi fram kvæmdastjóri Sambands íslenzkra sveitarfélaga og Jóhann G. Ólafsson bæjarstjóri á ísafirði, en síðar í hans stað Sturla Jónsson hreppstjóri. Hafa þeir Gísli og Ágtxst áður flutt mál þetta á Alþingi, en nú er það nokkuð breytt, einkum jxannig, að gert er ráð fyrir verkfræðiráðu- nautum á fleixi stöðum en áður. Á kjördæmisþingi Framsóknar- manna í Norðurlandskjöidæmi eystra hefur oftar en einu sinni verið rætt um skiptingu landsins í um- dæmi eða fylki með sjálfstjórn í nán- ar tilteknum sérmálum, innan ríkis- heildarinnar. Kæmist slík skipan á, er trúlegt, að umdæmin eða fylkin kæmu upp verkfræðistofnunum inn- an sinna vébanda. En á meðan eng- in slík skipting hefur átt sér stað, verður að gera ráð fyrir n'kisstofn- unum eða starfsemi í tengslum við þær, eins og nú er gert. En starfsemi] verkfræðiráðunautanna, eins og hún er hugsuð í frumvarjinu, er leið að markinu um meiri sjálfstjóin lands- hlutanna. □ GISU GUÐMUNDSSON ALÞINGISMAÐUR: LANDHELGI ISLANDS OG ÞRÓUN HENNAR RETTINDI BUNDIN NÁMI Landfielgismálið er nú að komast á dagskrá að nýju. Gísli Guðmundsson alþingismaður var árið 1958 fulltrúi Frarn- sóknarflokksins í viðræðum þingflokkanna um útfærslu landhelginnar og fonnaður utanríkismálanefndar 1959, þegar Alþingi gerði einróma, eftir tillögu nefndarinnar, merka ályktun um málið. Dagur hefir því beðið hann að rifja upp nokkur meginatriði úr sögu máfsins hérlendis, og gerir hann það í þessari grein. ÞEGAR íslendingar tóku á ný við fullum yfirráðum yfir landi sínu, var landhelgi við fsland talin 3 sjómílur út frá strönd- um landsins, en auk þess firðir og víkur 10 sjómílur eða minna á breidd. Um þessa landhelgi höfðu Danir samið við Breta árið 1901, og var hún einnig talin gilda gagnvart fiskiskipum annarra þjóða hér við land. Á 19. öld var landhelgin 4 sjó- mílur, og fyrr á tímum 16, 24 eða jafnvel 32 sjómílur frá strönd. Árið 1948, eða nálega 4 árum eftir stofnun lýðveldisins sam- þykkti Alþingi lög um ,,vísinda- lega verndun fiskimiða land- grunnsins.“ Þar segir svo í 1. og 2. gr. laganna: „Sj ávarútvegsmálaráðuneytið skal með reglugerð ákveða tak- mörk verndarsvæða við strend- ur landsins, innan endimarka landgrunnsins, þar sem allar veiðar skulu háðar íslenzkum reglum og eftirliti, enda verði friðun á landgrunninu á engan hátt rýrð frá því sem verið hefir. Ráðuneytið skal einnig ákveða allar þær reglur, sem' nauðsynlegar eru til verndar fiskimiðunum á ofangreindum svæðum. Ráðstafanir þessar skulu gerðar, að fengnum tillög- um Fiskifélags íslands og at- vinnudeildar Háskóla íslands. Reglugerðin skal endurskoðuð eftir því, sem vísindalegar rann sóknir gefa tilefni til. — Regl- um þeim, sem settar verða sam- kvæmt 1. gr. laga þessara, skal framfylgt þannig, að þær séu ávallt i samræmi við milliríkja- samninga um þessi mál, sem ís- land er aðili að á hverjum tíma.“ — í greinargerð frum- varpsins sagði, að með orðinu „landgrunn“ væri, eins og sak- ir stæðu, átt við allt að 200 m. dýpi. Þegar þessi lög — venjulega nefnd „landgrunnslögin“ — voru sett, var 3 sjómílna samn- ingurinn, sem Danir gei’ðu við Breta, enn í gildi. ísland sagði upp þessum samningi árið 1949 með tveggja ára fyrirvara, eins og áskilið var í samningnum, og féll hann því úr gildi árið 1951. En á árinu 1950 var samkvæmt landgrunnslögunum sett reglu- gerð um útfærslu landhelgi fyr- ir Norðurlandi, enda talið að GísH Guðmundsson, alþingismaður. Bretar hefðu þar ekki hags- muna að gæta. Eftir að brezki samningurinn var úr gildi fall- inn og Norðmenn höfðu unnið útfærslumál við Breta fyrir Al- þjóðadómstólnum í Hag, var svo árið 1952 sett ný reglugerð um allsherjar útfærslu land- út til muna og ákveðin 12 sjó- mílur frá grunnlínunum frá 1952. Stækkaði þá landhelgin úr 42.905 km2 upp í 69.809 km2, eða um 62.7%. Eins og kunnugt er bar það þá til tíðinda, að brezka stjórnin sendi herskip á íslandsmið og hindruðu þau töku brezkra togara, sem ís- lenzk varðskip stóðu að veiðum innan hinnar nýju landhelgi. 5. maí 1959 samþykkti Alþingi ein helginnar úr 3 sjómílum í 4 og hin ytri takmörk landhelginnar talin 4 mílur frá grunnlínum, sem dregnar voru milli nánar tilgreindra „grunnlínupunkta“ á strönd landsins, þannig, að allir firðir og flóar urðu innan landhelgi. Flatarmál gömlu 3 sjómílna landhelginnar var sam tals 24.530 km2 en varð eftir útfærsluna 1952 samtals 42.905 km2. Árið 1958 var landhelgin færð róma tillögu til þingsályktunar um landhelgismál, sem borin var fram af utanríkismálanefnd þingsins, þar sem mótmælt var ofbeldisaðgerðum Breta, lýst yfir ótvíræðum rétti íslands til 12 mílna fiskveiðalandhelgi og jafnframt því „að afla beri við- urkenningar á rétti þess til lan^ grunnsins alls svo sem stefnt var að með lögununx um vísinda lega vemdun landgrunnsins frá 1948.“ Lyktir deilunnar við Breta urðu þær, að ríkisstjórnin gerði við þá samning um málið árið 1961, er samþykktur var á Alþingi eftir harðar deilur þar. Samkvæmt samningnum var Bretum heimiluð veiði innan landhelgi um þriggja ára skeið eða til 1964. Bretar féllust á breytingu grunnlínupunkta, sem stækkaði landhelgina frá 1958 um 5.065 km2 eða 7.3% og er landhelgin nú 74.874 km2 eða sem svarar nálega % af flatar- máli landsins. En það atriði samningsins, sem meginágrein- ingnum olli, og nú skapar ís- lendingum sérstakan vanda, er þannig orðað í samningnum frá 1961: Mánaíoss” heiiir nýja skipið rr HINU nýja skipi Eimskipafé- lagsins, sem er í smíðum hjá Aalborg Værft A/S í Álaborg, var hleypt af stokkunum kl. 12 á hádegi í dag við hátíðlega athöfn. Forsætisráðherrafrú Ragnheiður- Hafstein gaf skip- inu nafn við þetta tækifæri og mælti: „Megi gifta standa í stafni og Drottinn veita leiðsögn far- mönnum og fleyi. Sigldu ætið heill í höfn. „Mánafoss11 skal nafn þitt vera.“ SKJÁLFANDAFLJÓT TEPPIR SAMGÖNGUR (Framhald af blaðsíðu 1) legt óstand ef áfram heldur. Nú þegar er vatnið við brúna hjá Stóruvöllum að minnsta kosti 3 metrum hærra en fljótið er venjulega. Norðan brúar flæðir það vestur að veginum. Brotið hefir það símastaur og liggur vírinn í vatninu í línunni aust- an yfir að Stóruvöllum, Lækja- völlum og barnaskólanum og er símasambandslaust við þá staði og ekki fært eins og er að gera við vegna vatnsdýpis. Ef þessu heldur fram sem horíir hækk- ar vatnið frameftir og er þá vegur sunnan brúarinnar aust- an fljóts í hættu. Annars er hægt að segja það, að þrátt fyrir hamfai'ir náttúru- aflanna reynir fólkið að gera sér dagamun eftir ástæðum. Kemur saman, spilar og dansar gjarnan á eftir. Þó er víða fá- mennt á heimilum, börn og unglingar á skólum. Mjög er skipt um til hins bjartara og betra þar sem raf- magnig kom í haust, þó margar kringlóttar kostaði það auð- vitað. Og gott var að heyra um- sögn fulltrúa rafmagnsveitn- anna á Norðurlandi í útvarpinu á dögunum að lokið yrði raf- væðingu sveitarinnar á næsta sumri. Menn eru ekki svartsýnir, finnst dagurinn orðinn bísna langur þó eftir sé að þreyja þorrann og góuna, og sjaldan komi vorveður með einmánuði. 2. febrúar. Fljótið er enn óbreytt og ísi lagt fram undh- Lundarbrekku. Snjór hefur vax ið og hljóp í gadd. Búið er að gera við símann. Þ. J. „Ríkisstjórn íslands mun halda ófram að vinna að fram- kvæmd ályktunar Alþingis frá 5. maí 1959 varðandi útfærslu fiskveiðilögsögunnar við ísland, en mun tilkynna ríkisstjóm Bretlands slíka útfærslu með sex mánaða fyrirvara, og rísi ágreiningur um slíka útfærslu, skal honum, ef annarhvor aðili óskar, skotið til Alþjóðadóm- stólsins.“ Samskonar samningur var síðar gerður við Vestur-Þýzka- land, en geta ber þess, að Vest- ur-Þýzkaland hafði, og raunar öll önnur ríki en Bretland, virt í verki útfærsluna frá 1958, og ekki staðið að veiðum í hinni nýju landhelgi íslendinga. í SAMBANDI við nýgerða kjarasamninga og endurskoðun ýmissa reglugerða vil ég mjög undirstrika eftirfarandi: 1. Menn, sem hafa ha.ft næga menntun samkvæmt fyrri lög- um og reglugerlum úl að inna tiltekin verk af hendi og því talizt „fullgildir“ menn verða að halda stöðu sinni þrátt fyrir auknar menntunarkröfur til starfsemi, ef ekki er um gjör- byltingu á formi að ræða. 2. Þeir, sem eru að búa sig undir sérnám eða eru í námi, sem veiúr viss réttindi verða að fá vissan frést eða millikröfur um aukningu náms úl að ná tilskyldum réttindum sam- kvæmt nýrri reglugerð. Á hvorutveggja hefir mér fundizt skorta að væri gott við ýmsar reglugerðarbreytingar undan- farið og því margir óánægðir og orðið nærri utangátta í þjóð- lífinu. Það er brýn nauðsyn að sýna lipurð og undanþágu frá ný- settum reglum. Til að skýra málið örlítið vil ég taka dæmi af tveim gagn- fræðingum sem höfðu rétt til inngöngu í tiltekinn skóla. Ann ar sótti um inngöngu strax og fékk hana en hinn nemandinn taldi sér hag í því að vinna eitt ár áður en hann héldi áfram námi, en í millitíðinni voru ákvæðin hert svo að það kost- aði minnst eitt skólaár í viðbót til að fá inngöngu í téðan skóla. Þetta dæmi er aðeins tekið úl að undirstrika nauðsyn þess að allar slíkar breytingar séu til- kynntar með góðum fyrirvara. Kennari. Klúbburinn Öruggur akstur Á LAUGARDAGINN hélt klúbburinn Oruggur akstur á Akureyri og í Eyjafirði aðal- fund sinn á Hótel KEA. Komu þar saman á annað hundrað manns. Meðal gesta voru: Björn Vil- mundarson frá Samvinnutrygg- ingum, Pétur Sveinbjarnarson framkvæmdastjóri Umferðar- ráðs og Bogi Nílsson fulltrúi bæjarfógeta á Akureyri. Flutti sá síðastnefndi mjög fróðlega ræðu um umferðarmál á Akur- eyri, er óskað hefur verið að birt væri. Pétur Sveinbjarnar- son flutti einnig efúrtektarvert erindi um tjónatíðni í umferð ýmissa landá,- En Björn Vil- mundarson afhenti viðurkenn- ingar fyrir 5 ára tjónalausan akstur og verðlaun fyrir 10 ái-a akstur án tjóna. í þeim verð- launum felst fritt ársiðgjald. Að þessu sinni hlutu 56 viður kenningu en 28 verðlaun, og er þetta með færra móti. Fundarstjóri var Jóhannes Haraldsson frá Dalvík. Svavar Jóhannsson hjá Bif- reiðaeftirliti ríkisins kom á þennan fund í boði klúbbsins, ásamt nemendum í námskeiði til meiraprófs bifreiðastjóra, og þakkaði hann fyrir góða kennslustund. Sýnd var kvikmyndin „Hratt of hratt“, sem er dönsk um- ferðarmynd. Nýja stjórn klúbbsins skipa: Stefán Tryggvason, Jón Péturs- son og ísak Guðmann. □ Viðstaddir athöfnina voru auk frú Ragnheiðar Hafstein, Jóhann Hafstein, forsætisráð- herra, Sigurður Bjarnason, ambassador, Gunnar Björnsson og frú og af hálfu Eimskipa- félagsins Einar B. Gúðmunds- son, hrl., Óttarr Möller, :for- stjóri, Viggó E. Maack, skipa- verkfræðingur og konur þeirra. Auk þess voru stjórnendur skipasmíðastöðvarinnar og fleiri gestir frá Álaborg og nágrenni. M.s. „Mánafoss“ er systur- skip m.s. „Dettifoss“, sem kom til landsins í desember sl. og einnig var smíðaður hjá Aal- borg Værft A/S. Hann er 4.160 DW tonn að stærð, lestarrými er um 178 þúsund teningsfet, þar af frystirými 9 þúsund ten- ingsfet. Lengd milli lóðlína er 85.5 metrar og breidd 14.3 metr- ar. Aðalvél skipsins er 3.600 hestöfl, smíðuð af Burmeister & Wain í Kaupmannahöfn. Ganghraði er áætlaður 14 sjó- mílur. Lestar m.s. „Mánafoss" eru tvær, hvor með tveimur milli- þilförum. Utbúnaðm- allur er miðaður við nýjustu og full- komnustu flutaingatækni, þar sem vörur eru fluttar á vöru- brettum eða í vörukistum „containers“ og gaffallyftarar eru notaðir við fermingu og affermingu. Áætlað er að smíði m.s. „Mánafoss" ljúki í apríl n. k. (Fréttatilkynning) Á fundi klúbbsins Öruggur akstur á Akureyri og í Eyjafjarðarsýslu. (Ljósm.: G. P. K.) Endurskoiun skóla- og fræðslumála Hvar á tónlistarkennslan heima? Nú nýverið hafa verið lögð fram tvö lagafrumvörp úm end urskipulagningu skóla- og fræðslumála. Annað um skóla- kerfi en hitt um grunnskóla — skyldunámsskóla. Margt er í þessum frumvörpum, sem vek- ur athygli og ánægju, ef unnt reynist að útfæra þetta keríi. En margt finnst mér þó lýsa nokkuiTi sýndarmennsku og þyrRi miklu skýrari ákvæði um aðgerðir hins opinbera til að jafna aðstöðumun nemenda bæði vegna búsetu og fjárhags og verður í rauninni aldrei gert, nema með „byltingar“- aðgerðum, ef miðað er við nú- verandi stjórnarstefnu. En hvað urn það þá hljóta með tilkomu þessara frumvarpa að hefjast miklar umræður, sem ættu gott af sér að leiða. Mín tillaga er því sú að hraða þessu frumvarpi ekki um of en undirbúa það vel en nota jafn- framt tímann til jöfnunar á að- stöðúmun nemenda, en það er til vansa hve mikill hann er og jafnframt „opna“ kerfið eins og að er stefnt. Það sem gerði það að verkum að ég stakk nú niður penna er að mér er ekki Ijóst hvemig t. d. tónlistarskólum (og sjálf- sagt fleiri sérskólum) er ætlað að falla inn í frumvarpið um skólakerfi. í fyrstu grein frum- varpsins segir: „Allir skólar, sem kostaðir eru eða styrkúr að hálfu eða meira af aimanna- fé, mynda samfelli skólakerfi." í 2. gr. segir m. a.: „Á fram- haldsskólastigi eru almennir framhaldsskólar, þar á meðal menntaskólar, svo og sérskól- ar.“ 6. gr. frumvaipsins hljóðar svo: „Kennsla er veitt ókeypis í öllum skólum, sem kostaðir eru að meiri hluta af almanna- fé.“ Ef Tónlistarskóli Akureyrar er tekinn sem dæmi á hann samkvæmt 1. gr. frumvarpsins að vera hluti af samfelldu skóla kerfi vegna þess að hann er kostaður eða styrktur að miklu meira en hálfu af almannafé (bæ og ríki). Og svo í frarn- haldi af því og 6. gr. frumvarps ins á nemendum að vera veitt ókeypis kennsla sem ekki er raunin nú. Hvort er þetta nú ætlunin eða er það svo að veiga miklir þættir í menntunarkerf- inu hafa gleymzt? Þótt hér hafi verið minnst á tónlistarskóla þá hlýtur sama spuming að liggja á tungunni gagnvart fleiri sérskólum. S. Ó. B. Garðyrkjuskóli NorSurlands á Akureyri UM síðustu aldamót voru stofn- aðir 2 garðyrkjuskólar hér á landi. Annar í Reykjavík, undir forustu Einars Helgasonar, en hinn á Akureyri, að frumkvæði Sigurðar Sigurðssonar og fleiri. Þessir skólar stóðu fram um 1940. Kennslan var aðallega verkleg, en einnig nokkur bók- leg fræðsla jafnhliða. Fór kennslan mestmegnis fram á hinum árlegu vor- og sumar- námskeiðum, sem stóðu yfir í allt frá 6 vikum og upp í 6 úl 8 mánuði. Nýttist kennslan sér- staklega vel, þar sem hún fór fram í gróðrarstöðvum, sem höfðu með höndum uppeldi og sölu á garðplöntum fyrir al- menning. Getur þessi starfsemi orðið drjúg tekjulind garðyrkju skóla, ef praktísk þekking og ráðdeild er fyrir hendi. Tæplega orkar tvímælis að Garðyrkjuskóli Ræktunarfélags Norðurlands á Akureyri studdi mjög að alhliða framförum í al- mennri garðyrkju og ræktun á Norðurlandi. Hygg ég að sama máh gegnj um garðyrkjuskól- ann eða námskeiðin við Gróðr- arstöðina í Reykjavík, hvað við víkur Suðurlandi. Seinna mun svo Garðyrkjuskólinn í Hvera- gerði hafa tekið við hlutverki hennar að einhverju leyti a. m. k. Hins vegar lagðist garðyrkju- kennslan alveg niður á Akur- eyri um 1940 og hefir því engin verið þar i rúman aldarfjórð- ung, einmitt á þeim árum sem framfarir og margvíslegar nýj- ungar hafa komið fram á ná- grannalöndum okkar, garðyrkj- unni til framdráttar. Það er líka augljóst mál, þeim sem til þekkja, að garðyrkju hefir frem ur hnignað á Norðurlandi á síð- ari árum, einkum til sveita, enda þótt hinir stærri bæir og þorp hafi reynt að útvega sér að einhverju leyú kunnáttu- menn til að starfa við garðyrkju staðanna. Hér skal ekki farið út í rök- ræður um nytsemi garðyrkju og garðyrkjukennslu. Hugsandi fólk veit að garðyrkja er þrosk- andi og bæði líkamleg og and- leg heilsulind, og mikið hags- muna- og menningannál hverju þjóðfélagi. Er þetta viðhorf viðurkennt um allan heim. Hér á landi þarf meðal fjöl- skylda að rækta, ef vel á að vera, grænmeti og kartöflur til heimilisnota fyrir sem svarar 25 til 30 þúsund krónur árlega, miðað við ríkjandi verðlag. Þessa uppskeru geta flest heim- ili aflað sér með frístundavinnu svo að segja kostnaðarlaust, í miklum hluta landsins í meðal- ári. Sé plast og sólreitir notaðir við grænmetisræktunina, fæst meiri uppskera og öruggari. Þá hefh' reynzt auðvelt að rækta hér ýmsa berjarunna, svo sem rauðber, sólber, hindber o. fl., að ógleymdum jarðarberjunum. Nú hefir raunar komið í ljós að til eru nokkrir all valdamikl- ir menn í landinu, sem ekkert sjá sem til framfara má telja, nema nokkrar risastórar verk- smiðjur sem dreift sé um land- ið, og flesúr íslendingar eiga svo að vinna þar fyrir erlenda LAMDI BÍLA REIÐUR maður, ungur og ölv- aður, skeytti um helgina skapi sínu á fimm bílum við Sjálf- stæðishúsið á Akureyri og skemmdi þá meira og minna. Lamdi hann og sparkaði, braut luktir og radióstengur, dældaði bíla og rispaði. En pilti þessum vai- áður vísað úr fagnaði húss- ins. Hefur hann játað brot sitt. auðhringi. Þessa menn virðist það engu máli skipta þótt verk- smiðjurnar eitri andrúmsloftið, sjóinn við strendurnar, svo og gróðurinn í landinu. Þeim finnst ræktun tiKinningasemi eða rómantík. Þeir virðast láta sig litlu skipta gróður og nátt- úruvernd, skilja ekki gildi og þýðingu ræktunar, eða þróun Jón Rögnvaldsson. landbúnaðar og garðyrkju fyrir framtíð og menningu þjóðarinn- ar. En þennan hugsunarhátt verður að leiðrétta, og það get- ur einmitt garðyrkjuskóli á Norðurlandi hjálpað ,til að gera, og hann verður að gera meira, hann á að glæða trú og áhuga fyrir almennri garðyrkju og ræktun í landinu, og það verð- ur að forða landbúnaðinum og garðyrkjunni frá mengun stór- iðjunnar og að sjálfsögðu einnig sjávarútveginum, og það verða sjómennirnir að sjá um. Er þess um málum hefir verið tryggður öruggur sess í atvinnulífi þjóð- arinnar, þá má koma upp hóf- legri stóriðju í landinu í ein- hverri mynd, sé þess gætt að hún skaði hvorki land né þjóð. Svo sem kunnugt er, hefir garðyrkjuskóli við Akureyri fyrst og fremst verið baráttu- mál kvenna í Norðlendingafjórð ungi um allmörg undanfarin ár, með stuðningi margra mætra manna norðan heiða, en furðu lítið orðið ágegnt, og verður nú að herða róðurinn, og þverskall- ist stjórnvöldin syðra mikið lengur við sanngjörnum kröf- um okkar hér nyrðra um að koma á fót litlum en fullkoriin- um garðyrkjuskóla við Akur- eyri fyrir Norðurland, sem veiti sömu réttindi í skrúðgarðyrkju og almennri garðrækt og skól- inn í Hverðagerði, verðum við að koma honum upp á eigin spýtur til að byrja með. Það ætti raunar ekki að þurfa að eyða orðum að því, að nóg verkefni eru fyrir tvo garð- yrkjuskóla í landinu. Skólinn í Hveragerði er „heitur skóli“ fyrst og fremst og á að vera það, en Akureyrarskólinn á að vera „kaldur skóli“, enda er þar tæplega um jarðhita að ræða. Hins vegar eru skilyrði til kenslu í skrúðgarðyrkju á marg an hátt mun betri en í Hvera- gerði. Á Akureyri er all full- kominn grasagarður og náttúru gripasafn, ennfremur skógrækt- arstöð og tilraunastöð í búvís- indum, auk þess er Akureyri gamalkunn garyrkju- og trjá- ræktarbær. Námsúmi garðyrkjuskóla á Akureyri ætti að vera 2 ár sam- fellt með ríflegu jólafríi (des.— jan.), sem nemendur gætu not- að til að semja prófritgerð. Taki skólinn aðeins 10 til 12 nem- endur annað hvort ár. Réttast mundi þó að byrja með eins árs skóla. Væru nemendur teknir inn 1. apríl og útskrifaðir 25. marz næsta ár. Nemendur ættu að hafa lokið gagnfræðaprófi, eða öðru hliðstæðu námi. Þá sé þeim og skylt að hafa unnið við garðyrkj ustörf a. m. k. eitt sum- ar. Ekki er gert ráð fyrir að skólinn sé heimavistarskóli fyrst um sinn og á hann að geta fengið inni í einhverjum af skólabyggingum bæjarins, með sína fáu nemendur og fremur litla bóklega nám, sem auðvelr væri að stunda að kvöldinu i lítilli skólastofu. Á skólinn auð- veldlega að geta fengið húsnæðl og hentugt ræktunarland undir garðyrkjustöð á Akureyri, hon- um að kostnaðarlausu eða litlu. Enda þótt gamla Gróðrarstöðin komi tæplega til greina lengur, virðist Rannsóknarráði vera kappsmál að ganga af henni eyðilagðri sem allra fyrst. Við garðyrkjuskólann á Aku ■ eyri er ætlunin að allt verklegt nám fari fram, annaðhvort :í garðyrkjustöð skólans eða þá við garðyrkjustörf hjá einstakl- ingum eða stofnunum i ná • grenni skólans sem hann sæi um að framkvæma. Að sjálf- sögðu yrði skólinn að greiða nemendum umsamið kaup fyrr: vinnu þeirra við garðyrkju á sumrin. Ég læt fylgja þessum hugleic • ingum um væntanlegan garð- yrkjuskóla á Akureyri, bóklega námsskrá fyrir tveggja ára skóla, sem sniðin er eftir náms • tilhögun eins þekktasta garð- yrkjuskóla í Evrópu, eða Wis ■ ley-skólans í Englandi, sem er tveggja ára skóli og leggur mikla áherzlu á verklega námio, sem vissulega er mikiivægt ,1 allri garðyrkju. Gera má ráð fyrir að skoo- anir kunni að vera skiptar um það bóklega nám sem hér er gert ráð fyrir. Sumum 'kann að þykja hæpið að kenna engin tungumál, eða þá of fáir tímar í sumum námsgreinanna, t. d. bókfærslu, garðteikningu, hag- og þjóðfélagsfræði o. s. frv. Þessu er þvi til að svara að fólk með gagnfræðaprófi, á að vera slarkfært í dönsku og ensku, hafa lært nokkuð í bókfærslu, teikningu og fleiri greinum senr koma garðyrkjunáminu að fullu gagni. Er efamál að nokkuð só unnið við að staglast æ ofan í æ á þessum sömu namsgrein- um, en reyna heldur að taka hagnýtt nám, sem miðað er vid fyrirhugað ævistarf, fastari tök- um. Bóklegt nám í tveggja ára garðy rk j uskóla: timar Veðurfræði Ö Bókfærsla 15 Hag- og þjóðfélagsfræði .. 10 Efnafræði og eðlisfræði . . 20 Véla- og verkfærafræði .. 15 Grasafræði . . Skrúðgarðateikning og 40 skipulag 45 Jarðvegs- og áburðarfræði 20 Jurtasjúkdómar og lyf .. 20 Skrúðgarðaplöntur ...... , 30 Matjurtir . 15 Garðyrkjufræði . 4Ö Land- og hallamælingar , . 20 Líffræði . 15 Jurtakynbætur .. . 10 Ágræðsla . 10 Auk bóklegu tímanna er i'étí að gera ráð fyrir allmörgumi fræðilegum erindum í sambancú við verklega námið. Gamlársdag 1970. Jón Rögnvaldsson, j

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.