Dagur - 03.02.1971, Síða 8
£
ý Þessi 12 tonna eikarbátur var sjósettur lijá Skipasnn'ðastöð KEA fyrir helgina. í honum er 167
» ha. Skania Vabis-vél. Eigandi er Stefán Stefánsson á Dalvík. Hjá skipasiníðastöðinni er annar
« bátur dálítið á veg kominn, 26 tonn, og beðið hefur verið um nokkra aðra dekkbáta. Yfirsmið-
ur er Tryggvi Gunnarsson, er einnig gerir teikningarnar. Bátar frá Skipasmíðastöð KEA þykja
3 mjög vandaðir að allri gerð. (Ljósm.: E. D.)
Framsóknarvisl i öliu kjördæminu
SMATT & STORT
3T.TÓRN kjördæmissambands
Framsóknarmanna í Norður-
í.andskjördæmi eystra hefur
ákveðið, að efna til spilakvölds
: öllu kjördæminu í vetur á
Samningur m
fogarasmíði
NÚ ERU hafnir á Akureyri
aamningar um smíði tveggja
skuttogara hjá Slippstöðinni hf.
En ákveðið er, ef samningar
vakast, að Útgerðarfélag Akur-
eyringa h.f. verði kaupandi
annars togarans. Ú. A. hefur
forrkaupsrétt á hinum togaran-
am líka ef okkur sýnist svo,
sagði Gísli Konráðsson fram-
kvæmdastjóri Ú. A. í gær.
Samningar munu taka nokk-
arn tíma, en ráðherra eða ríkis-
stjórn skipaði sérstaka samn-
inganefnd vegna þessa verk-
efnis. □
tímabilinu 25. febrúar til 7.
marz.
Kjördæmissambandið leggur
til heildarverðlaun, 5 fyrir kon-
ur og 5 fyrir karlmenn. En
fyrstu verðlaun karls og konu
eru farseðlar til Mallorka fyrir
tvo, 40—50 þús. kr. virði. Einnig
eru fern önnur verðlaun veitt.
Þá er vert að veita því at-
hygli, að ef óskað er eftir, munu
frámbjóðendur á lista flokksins
mæta og flytja ávarp, og þarf
um það að hafa samráð við skrif
stofu flokksins á Akureyri, sími
21180.
Þá minnir stjórn kjördæmis-
sambandsins á eftirfarandi
vegna alþingiskosninganna í
vor:
Kosning fullti’úa á flokksþing
Framsóknarmanna í Reykjavík
18.—21. aprj'l n. k.
Tillögur um ráðstefnur og
þátttöku í þeim. En þær fjallla
um sjávarútveg og landhelgis-
mál (hugsanlegir ráðstefnustað-
ir: Húsavík, Dalvfk, Ólafsfjörð-
ur, Þórshöfn). Ferðamál (hugs-
anlegir staðir fyrir þá ráð-
stefnu: Akureyri og Mývatns-
sveit).
Ef af ráðstefnum verður,
munu fengnir fi’amsögumenn,
sérfræðingar um þau mál, er
um er fjallað. □
FÉLAG yfirmanna á bátaflot-
anum er nú að afla heimildar
hjá félagsmönnum til að boða
verkfall, ef ekki semst um kjör
bátasjómanna á komandi vetr-
T ónlistarky nning
TÓNLISTARKYNNING Philip
Jenkins fór fram í Borgarbíói
á laugardaginn, eins og ætlað
var og áður auglýst. Aðsókn
var sæmileg og píanóleikaran-
um var vel fagnað.
MIKIL AÐVÖRUN
Fyrir skömmu stjórnaði Magn-
ús Bjamfreðsson fréttamaður
sjónvarpsþætti um eiturljdja-
notkun, þar sem læknir, lyfja-
fræðingur, lögreglumaðiu- og
tollþjónn ræddu vandamál
þetta. Var þáttur þessi fróðleg-
ur og jafnframt mikii aðvörun.
Fram kom, að eiturlyfin eru
farin að streyma inn í landið,
ekki í stórum stíi, se*n betur
fer, enn sem komið er, en inn-
flutningur og notkun eru engu
síður staðreynd. Og það er hvar
vetna einkenni þessa vanda-
máls, að lítt verður þess vart
lengi vel, þar sem notkun lyfj-
anna veldur sjaldan mikilli há-
reisti, svo sem við notkun áfeng
is, og fíknilyfin eru lítil fyrir-
ferðar og auðvelt að sniygla
þeim inn í landið. Þau eru eins
og músin, sem læðist, vekja for-
vitni ungmenna, sem ekki vita
hvað þau eru að gera, er þau
byrja á notkun þeirra.
HVAÐ ER TIL VARNAR?
fslendingar hafa haft spurnir a£
eiturlyfjanotkuninni í nágranna
löndunum, þar sem þúsundir
ungmenna liafa fallið fyrir þeinn
og eiga sér vart eða ekki við-
reisnar von. Fræðsla á heimil-
um og í skólum er bezta vörnin
og er það áhrifaríkasta leiðin til
að koma í veg fyrir notkunina,,
og er mest um hana vert, þótt
aðgerðir lögreglu og annarra
yfirvalda hljóti einnig til að
koma, þegar í óefni er komið.
Bæði skólar og heimili hafa
vanrækt bindindisfræðslu, svo
að skammarlegt er. Þúsundir
áfengissjúklinga í landinu bera
því máli vitni. Illt væri, ef eitur
lyfjanotkunin bættist við og má
einskis láta ófreistað til að fyrir
byggja þá yfirj'ofandi hættu.
Tafarlaus og síðan ákveðin og
arvertíð. Fæst bráðlega úr því
skorið hvort verkfallsheimildin
verði veitt.
Kjarasamningar bátasjó-
manna hafa verið lausir frá ára
mótum, en ekki hefur enn verið
neinn samningafundur með full
trúum útgerðarmanna og báta-
sjómanna.
Einhvern næstu daga verður
samninganefnd undirmanna á
bátunum kölluð saman til fund-
ar til að taka ákvörðun um að-
gerðir vegna kjaramálanna.
markviss fræðsla í menntastofn
unum landsins, svo og á heimilr
um, er bezta vörnin.
32JA STIGA FROST
Á föstudaginn, 29. janúar, mæld
ist 32 stiga frost á Arnarvatni í
Mývatnssveit en 25 stig á laug-
ardagsmorguninn. Er. þetta i
annað skipti, sem frostið kemst
í 32 stig nú í vetur pg í sama
mánuði. En í stilltu véðri er
frost oft tveim stigum meira á
bæjunum við Laxá í Mývátns-
sveit en annarsstaðar þar í sveit
því að kolda loftið • streymir
norður, ems og vatnið. Laxá er
nú ísi lögð að mestu leyti, eftir
hin miklu frost, og rennsli er
stöðugt nú og ekki rennslis-
truflanir sjáanlegai-. Vátnið er
nú lagt að Miðkvísl og Mývetn-
ingar settu sjálfir plankastífl-
una Kjá Haganesi nú í vetur.
„ÞÚSUND BLÓM“
Það er misskilningur hjá L:\russ
Jónssyni og ísl.-ísafold. að Dag-
ur vilii banna Lárusi að llugsa,
Dagur vili euunitt að Lárus
hugsi sem mest sjálfur ’og þurfi
hvorki að sækja hugsanir tií
Efnahagsstofnunarinnar, Seðla-
bankans né Sjálfstæðisflokks-
ins. Gert var ráð fyrir að fram-
kvæmdastjóra Fjórðungssam-
bandsins væri öll norðlenzkl
mold jafn kær, og liann myndi,
eins og Mao formaður, vilja láta
„þúsund blóm spretta.“ En
blómin hjá báðum eru færri en
vonir stóðu til.
ÞRÍSTÖKK LÁRUSAR
Því meira, sem Lárus hugsar,
því ljósara mun honum verða,
að Fjórðungssambandið á að
vera annað og meira en stökk-
pallur, þó að hið ágæta þrístökhl
Lárusar, fyrst upp í fram-
kvæmdastjórastólinn, þaðan inn
í bæjarstjórn Akureyrar og nú
væntanléga inn á þing, sé gott
met á stuttum tíma.
SAMUR VIÐ SIG
Einn aliniinkur úr þeirri hjörð,
sem nú er búið að flytja til
landsins, slapp og naut frelsis
um nokkurt skeið. Hann drap
100 hænsn en náðist og var
drepinn. Háar sektir liggja við,
er dýr þessi sleppa úr haldi.
Þennan mink vill enginn eiga
og vísar hver frá sér. Nú hefur
á Alþingi komið sú tillaga, að
marka verði minka eða merkja.
Kemst þá upp um eigandann
ef minkur finnst á fjalli.
(Framhald á blaðsíðu 2)
Lína langsokkur á morgun
Afla verkfallsheioiildðr
Uppíýsinpstofnun landbúnaðar
VEGNA veikinda leikara varð
að fresta frumsýningu Leikfé-
lags Akureyrar á sjónleiknum
Línu langsokk, er vera átti á
sunnudaginn var.
Nú er frumsýningin ákveðin
á morgun, fimmtudaginn 4.
febrúar og hefst hún kl. 8 síð'-
degis. □
STÉTTARSAMBAND bænda,
Framleiðsluráð landbúnaðarins,
Samband íslenzkra samvinnu-
Bændaskóli á Suðurl.
LANDBÚNAÐARRÁ|ÐHERRA
hefur skipað nefnd, er gera á
tillögur til ráðuneytisins um
staðsetningu nýs bændaskóla á
Suðurlandi.
En bændaskólarnir á Hólum
og Hvanneyri eru þegar full-
sétnir og hafa þurft að neita
■bændaefnum um skólavist.
Formaður hinnar nýskipuðu
nefndar er Gunnlaugur E.
Briem, Halldór Pálsson, Her-
mann Sigurjónsson, Hjalti
Gestsson og Magnús B. Jóns-
son. □
félaga, Mjólkursamsalan í
Reykjavík, Sláturfélag Suður-
lands, Osta- og smjörsalan s.f.
og Grænmetisverzlun landbún-
aðarins ákváðu fyrir nokkiu að
efna til sameiginlegrar starf-
semi, sem hefði það hlutverk að
veita blöðum, útvarpi og öðrum
fjölmiðlum hvers konra upplýs-
ingar um landbúnaðarmál.
Sú starfsemi, sem hér um
ræðir, hefur hlotið nafnið Upp-
lýsingaþjónusta landbúnaðar-
ins. Er gert ráð fyrir, að upp-
lýsingaþjónustan verði áþeklc
þeirri starfsemi, sem erlendis
ryður sér mjög til rúms og geng
ur undir nafninu Public Rela-
tion, skammstafað P. R.
Verkefni upplýsingaþjónust-
unnar verða aðallega sem hér
segir: (Framhald á blaðsíðu 2)
Lína Iangsokkur og legregluþjónarnir. (Ljósmyndastofa Páls)