Dagur - 06.03.1971, Side 7
Að duga eða drepast - VIÐ ÞURFUM AÐ HAUDA VÖKU OKKAR
(Framhald af blaðsíðu 4)
Öll sanngirni krefst þess
af öðrum ríkjum að þau við-
urkenni þau fiskveiðimörk
við ísland sem mest eru við-
urkennd í reynd hjá öðrum
þjóðum heims.
Undanþágusamningurinn
við Breta frá 1961 og Þjóð-
verja frá 1962 verður efa-
laust okkar versti „Þrándur
í Götu“ en fram lijá honum
verður að komast.
Til þess er talið að helzt
sé um tvær leiðir að velja:
Að láta, sem hann sé ekki
til, eða að hann sé ekki bind
andi fyrir okkur vegna þess
að um nauðungarsamning
hafi verið að ræða.
Hin leiðin er að segja
samningunum upp, með t.
d. sex mánaða fyrirvara, og
láta svo skeika á sköpuðu
með það hvað Bretar segja
eða gera.“ □
Iíörfuknattleiksmót
íslands
í 1. deild keppa hér í íþrótta-
skemmunni á Akureyri Þór og
KR og hefst leikurinn kl. 4 e. h.
á laugardag. □
Handknattleiksmót
Islands
í 2. deild hélt áfram um síðustu
helgi m.a. með leik KA og Þórs.
Þór sigraði KA með aðeins eins
marks mun 17—16 eftir harðan
og tvísýnan leik. □
(Framhald af blaðsíðu 8).
Sagði hann, að kröfur um-
hverfisverndar á hendur fyrir-
tsekjum gætu valdið þeim
rekstrarerfiðleikum, en þó
hefðu þau hag af skynsamleg-
um mengunarvörnum, er til
lengdar léti. Ekkert fyrirtæki
hefði efni á því að stórskaða
umhverfi sitt, því að slíkt gæti
valdið þeim miklum álits-
hnekki, skapað óánægju meðal
starfsfólks og beðið heim skaða
bótakröfum á hendur fyrirtæk-
inu. Skynsamlega rekið fyrir-
tæki tekur ekki slíka áhættu.
Hagnað atvinnureksturs af
mengunarvörnum er þó erfitt
að meta í tölum, en auðveldara
að reikna út kostnaðinn. Fyrir-
tæki una illa óskynsamlegum
mengunarmörkum í reglugerð-
um, og hljóta því að stuðla að
rannsóknum, svo að hægt sé að
setja skynsamleg mörk. Enn-
fremur benti hann á, að náttúru
vernd þrifist ekki við fátækt,
og hefði því einnig hag af öfl-
ugu atvinnulífi. Hér hlýtur því
gagnkvæmur skilningur grund-
vallaður á þekkingu að verða
heilladrýgstur, fremur en ein-
hliða ákvarðanir, sem annað
hvort lama atvinnulífið með
óraunhæfum reglugerðum, eða
valda óbætanlegu tjóni á um-
hverfi, og þar með einnig öðr-
um atvinnugreinum.
Þótt lítið hafi verið drepið á
málefni einstakra landshluta á
ráðstefnunni, má þó hagnýta
ýmislegt er þar kom fram, til
að gex-a sér grein fyrir aðsteðj-
andi vandamálum á þessu sviði
á Akureyri. Það er mikilvægt
að koma auga á þau áður en
þau fara að valda verulegu
tjóni, svo hægt sé að fyrir-
byggja það. Mengunarvarnir
AKUREYRARBÆR
AUGLÝSING
Bæjarstjórn Akureyrar hefir samþykkt að gera
kauptilboð í húseignina Brekkugötu 4 í því skyni
að reka þar æskulýðshús.
Þeir íbúar í nágrenni ihússins, sem telja mál þetta
varða hagsmuni sína, eru beðnir að koma athuga-
semdum sínum á framfæri við undirritaðan fyrir
20. marz næstkomandi.
Akureyri, 5. marz 1971.
BÆJARSTJÓRINN Á AKUREYRI,
Bjarni Einarsson.
Húseigendur
verktakar
Vandaðar og nýtízkulegar raflagnir.
Teiknum og gerum verðtilboð, ef óskað er.
RAFVERK
Furuvöllum 5 — Sími 2-15-71
SVAVAR GUNNARSSON
Sími 2-15-72 — Akureyri.
eru oft dýrar, en þó er venju-
lega enn dýrara að bæta skað-
ann eftir að hann er orðinn, ef
það er þá hægt.
Enda þótt héraðið umhverfis
Akureyri muni vafalaust vera
einkar viðkvæmt fyrir loft-
mengun vegna landslags og
veðurskilyrða, mun hún þó ef-
laust vera langt neðan hættu-
marka enn. En sjónum beggja
megin Oddeyrar þarf að gefa
nánar gætur. Lágmarkskröfur,
sem Akureyringar hljóta að
gera til verndar Pollinum, eru,
að ekki sé leitt í han meira af
lífrænum efnum en svo, að þau
nái að rotna eða berast burtu,
án þess að um óeðlilega súr-
efniseyðingu verði að ræða.
Einnig þarf frárennsli bæjarins
að þynnast nægilega, til að
hættulaust geti talizt, að börn
leiki sér í fjörunni. Úrgangsefni
frá verksmiðjum verða sömu-
leiðis að þynnast nægilega, svo
að lífi í Pollinum og firðinum
stafi ekki hætta af. Full ástæða
virðist vera, að láta fara fram
athugun á mengunarástandi
Pollsins, svo að hægt sé að gera
úrbætur í tæka tíð, þegar þörf
krefur. Byrja mætti á því að
láta kanna súrefnismagn sjávar
á nokkrum stöðum, taka sýni
til gerlarannsókna og safna
upplýsingum um gerð og magn
úrgangsefna frá atvinnugrein-
um í bænum, og hvar þau ber-
ast til sjávar.
í Reykjavík veldur hinn kyrr
stæði sjór í vogunum sunnan
Seltjarnarness nokkrum vand-
kvæðum. Þótt Akureyri leiði
mun minna af úrgangsefnum til
sjávar en höfuðborgin, fara þau
þó öll í enda hins þrönga Eyja-
fjarðai'. Við vitum lítið um,
hver hreinsi- og dreifingar-
afköst hans á úrgangsefnum
eru. Þau eru sennilega breyti-
leg eftir árstíðum, m. a. eftir
vatnsmagnj Eyjafjarðarár, sem
hér gegnir að líkindum mikil-
vægu hlutverki. Þetta eru
atriði, sem við vitum of lítið
um, og þarfnast því athugunar.
Eftir því sem bærinn okkar vex
og dafnar, hlýtur að koma að
því fyrr eða síðar, að gefa verði
gaum að þessum málum. Aðeins
með því að afla þekkingar á
hreinsihæfni fjarðarins á mis-
munandi stöðum, og hreyfingar
háttum loftstrauma yfir byggð-
arlaginu, er hægt að taka skyn-
samlega afstöðu til staðsetn-
ingu nýrra iðngreina frá sjónar
miðum umhverfisverndar. □
Til sölu ódýr TRILLA.
Einnig 25 ný og nýleg
grásleppunet. Skipti á
bíl mög'uleg.
Uppl. í sínia (96) 4-11-84
á kvöldin.
R M R — V S T — 9 — 3 — 8V2
— FR — FL — BM —
H V
SUNNUDAGASKÓLI Akureyr
arkirkju verður n. k. sunnu-
dag kl. 10.30 f. h. Öll börn
hjartanlega velkomin. —
Sóknarprestar.
HJALPRÆÐISHERINN
Sunnudag kl. 2 e. h.
sunnudagaskólinn. Kl.
20.30 almenn samkoma.
Mánudag kl. 4 e. h. Heimilis-
sambandið. Deildarstjóri
brigader Enda Mortensen
heimsækir Akureyri. Allir
hjartanlega velkomnir.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚS-
INU á Akureyi'i hafa borizt
gjafir frá Jónínu Sigríði Jóns
dóttur frá Borgarhóli kr.
100.000.00, og frá systrunum
frá Steinkirkju til minningar
um bróður þeirra, Harald
Hallsson, kr. 20.000.00. —
Stjórn sjúkrahússins sendir
gefendunum innilegar þakkir.
— T. G.
GJAFIR til Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri. Gjöf frá
Guðrúnu Sæmundsdóttur,
Holtagötu 8, kr. 10.000.00, frá
öskudagsliði Sigríðar Stefáns-
dóttur kr. 547.00 og frá ösku-
dagsliði Laufeyjar Birkis-
dóttur kr. 300.00. — Með
þökkum móttekið. — Ingi-
björg R. Magnúsdóttir.
AHEIT á Strandarkirkju: Kr.
500 frá S., kr. 500 frá’F. G. S.
og kr. 300 frá S. — Beztu
þakkir. — Birgir Snæbjörns-
son.
ELDRI-DANSA-
KLÚBBURINN heldur
dansleik í Alþýðulnisinu
laugardaginn 6. ínarz.kl.
21. — Miðasalan opnar
kl. 20.
Stjórnin.
Góður MERCEDES
BENZ 1113, árgerð 1964,
með góðum stálpalli, er
til sölu.
Uppl. í síma 1-22-30.
Til sölu FIAT
MULTYPA, árg. 1960.
Til sýnis að Glerárg. 26.
Uppl. í síma 2-17-68.
Stúlkur óskast
í HRAÐFRYSTIHÚSIÐ.
Upplýsingar hjá verkstjóranum.
ÚTGERÐARFÉLAG AKUREYRINGA HF.
BRUÐHJON. Hinn 27. febrúar
sl. voru gefin saman í hjóna-
band í Akureyrarkirkju ung-
frú Septína G. S. Rósants-
dóttir og Stefán Aspar stýri-
maður. Heimili þeirra verður
að Hríseyjargötu 5, Akureyri.
SLÖKKVISTÖÐIN — Sjúkra-
bíllinn — Brunaútkall, sínii
1-22-00.
I.O.G.T. st. fsafold-Fjallkonan
no. 1 gengst fyrir þorrablóti
í Alþýðuhúsinu sunnudaginn
7. þ. m. kl. 7 e. h. Upplýs-
ingar gefnar á Hótel Varð-
borg, sími 12600. Aðgöngu-
miðar afhentir þar fimmtu-
daginn 4. þ. m. kl. 5—7 e. h.
Æ.F.A.K. AHar deildir
« " Árshátíð félagsins verð
ur haldin í Sjálfstæðis
húsinu sunnudaginn 7.
marz og hefst kl. 15.30. Að-
gangseyrir kr. 60.00. Stór sæ-
hrímnir innifalinn. — Um
morguninn fer fram í íþrótta
skemmunni keppni milli
Æ.F.A.K. og Æ.F.S. og hefst
hún kl. 1030. Eru allir ÆFAK
félagar hvattir til að koma og
hvetja heimamenn. Aðgangs-
eyrir kr. 30.00. Þeir félagar,
sem ætla að taka Sauðár-
króksbúa í mat, skulu mæta
í íþróttaskemmunni fyrir kl.
12.00. — Stjórnin.
visTheimilinu sólborg
hafa borizt þessar gjafir: Frá
Árdísi Sig. kr. 1.000, frá X
kr. 8.000, frá Sparisjóði Akur
eyrar kr. 100.000, frá Bjarna
og Steindóri (öskudagssöfn-
un) kr. 346, frá Vali Knúts-
syni o. fl. (öskudagssöfnun)
kr. 200, minningargj. um
Valdemar Guðm., Hraukbæj-
arkoti kr. 500. — Samtals kr.
110.046.00. — Kærar þakkir.
— Stjórn Sólborgar.
ASTRALÍUSÖFNUNIN. Undir
ritaður hefir tekið á móti
söfnunarfé sem hér segir: Frá
starfsfólki Slippstöðvarinnar
kr. 15.450, frá starfsfólki
gömlu sútuninni Iðunni kr.
3.400, frá starfsfólki Skógerð-
ar Iðunnar kr. 3.100, frá starfs
fólki Heklu kr. 11.800, frá
starfsfólki Gefjunar kr. 7.200,
safnað af börnum i Barna-
skóla Akureyrar kr. 6.500,
safnað af börnum í Barna-
skóla Glerárhverfis kr. 2.550.
Einnig var ég beðinn að færa
gefendum og söfnurum inni-
legustu þakkir þeii'ra sem
gengust fyrir söfnuninni. —
Birgir Snæbjörnsson.
LEIÐRÉTTING. Stundum leik-
ur „prentsmiðjupúkinn11 okk-
ur grátt. í síðasta tölublaði
misprentaðist vísa í grein
Eiríks Sigurðsson. Rétt er
hún svona:
„Þótt himinn okkar heiður
sé og blár,
er húm á æðimörgu
skáldasloti.
— En vel er börnum veitt.
Við höfum bjargað blek-
sölum í ár,
og bóksölum og prenturum
frá þroti.
— Og sama verður sjötíu
og eitt.“
->M
VEGGFÓDRID,
SEM ALLIR BÍÐA EFTIR, ER KOMIÐ
Símar 2-16-90
2-17-90