Dagur - 20.03.1971, Blaðsíða 7

Dagur - 20.03.1971, Blaðsíða 7
7 FRA BÚNÁÐAR 53. BÚNAÐARÞINGI var slitið mánudaginn 15. þ. m. og hafði staðið í þrjár vikur og er það venjuleg lengd. Um það bil 60 erindi voru lögð fram og urðu langflest afgreidd með ályktun- um frá þinginu. Það lætur að líkúm að mál þau, sem þessi mörgu erindi fjalla um snerta flest svið þess fj.lbreytilega at- vinnuvegar, sem landbúnaður- inn er og vissulega voru þau ekki öll’ jafn mikilvæg. T. d. voru gerðar ályktanir um hundahald í sveitum, eftirleitir úr lofti og tollflokkun mjólkur- mæla, svo eitthvað sé nefnt af því smærra. Á hinn bóginn voru svo ályktanir um þýðing- armestu svið landbúnaðarins, t. d. raforkumálin, jarðræktar- lögin og búfjárræktarlögin. Þá var og gerð sambykkt um at- hugun á stækkun húsrýmis fyr ir Hótel Sögu. Á þessu þingi var ríkjandi mikil eindrægni manna á með- al, enda engin þau mál til með- ferðar sem pólitískum flokkum þykir girnileg til að hafa að bitbeini. Þó voru skoðanir allmjög skiptar um stækkun hótelsins - Jarðnæði eftirsótt (Framhald af blaðsíðu 1). grásleppan. Við þyrftum að setja upp kavíarverksmiðju t. d. á Dalvík til vinnslu á þeim 11 þús. tunnum grásleppuhrogna, sem veiðast á ári hér við land. íslendingar framleiða, held ég, 60% af þessari tegund hrogna á heimsmarkaðinum. Auðvitað ættum við engin hrogn að selja úr landi nema í góðum „neyt- endaumbúðum“ í stað þess að selja þetta úr landi í tunnum. Stöku menn teygja gæðinga sína, en ég kýs heldur göngu- ferðir, helzt á skíðum, á vetr- um. Og svo skreppur maður á skauta með börnum og ungling- um. Hér eru oft góð skautasvell og börnin í Húsabakkaskóla nota það. töluvert og ýmsir fleiri,- □ og vil ég því eyða að því máii nokkrum orðum. Eins og flestum mun kunn- ugt á Búnaðarféiag íslands % Bændahallarinnar en Stéttar- samband bænda Vs. Húsið var að verulegu leyti byggt fyrir íé sem fengið var sem framleiðslu gjald á búvöru. Bændastéttin Iíjörtur E. Þórarinsson. hefur þannig Íátið af hendi mik ið fé í byggiriguna, sem að öðru leyti var reist fyrir lánsfé, sumt erlent. Ein hæð í húsinu er alveg undirlögð skrifstofum Búnaðarfélagsins og Stéttarsam bandsins, nokkurt húsriæði er leigt út, en langmestur hluti hússins er notaður til hótel- reksturs, þ. e. Hótel Saga sem er rekið fyrir reikning Bænda- hallarinnar en hún lýtur sér- stakri fimm manna stjórn. Það er alkunna að rekstur hússins gekk nokkuð þunglega fyrst framan af meðan skuldirnar voru miklar og hækkuðu vegna gengisfellinga jafnframt því sem af þeim var greitt. Nú hef- ur hins vegar birt yfir, rekstur- inn gengur vel, hótelið skilar gróða, einkum síðastliðið ár, búið er að breyta erlendum lán um í innlend og búvörugjaldið er fallið niður. Nú lagði stjórn Bændahallar- innar fyrir Búnaðarþing beiðni um leyfi þingsins til að mega gera könnun á möguleika og hagkvæmni þess að stækka gistirými hótelsins um rösklega helming. Um þessa beiðni voru skoð- anir mjög svo skiptar. Endirinn varð þó sá, að samþykkt var með naumum meirihluta að láta þessa athugun fara fram og skal niðurstaðan lögð fyrir næsta Búnaðarþing. Hvað sem ofaná verður í því efni er skylt að geta þess, að Hótel Saga er ágætis gististað- ur og bar fá bændur gistingu á vetui-na fyrir brot af venjulegu gjaldi. í lok þings var svo stjórnar- kosriing að þessu sinni, Þor- steinn Sigurðsson dró sig nú í hlé eftir langan og glæsilegan feril í íormannssæti Búnaðar- félagsins. Hann hélt snjalla kveðjuræðu og var hvorki þá ns fyrr á honum að sjá eða heyra neina aíturíör. Er það ailra mál að hann hafi gegr.t sínu mikilvæga embætti með eiristökum glæsibrag og skilizt við það með fyllsta sóma. Skal svo iokið frásögn af Búnaðar- þingi 1971 og kemur nú til kasta stjórnar Búnaðarfélagsins að þoka áleiðis þeim máium, sem þingið gerði ályktanir um. (Framhald af blaðsíðu 1) skila áliti sínu til stjórnar B.S.E. eigi síðar en í janúarlok 1972 og skal stjórnin leggja þá álitsgerð fyrir næsta aðalfund lögum. Nefndin skipti með sér B.S.E. ásamt umsögnum og til- störfum. 3. Aðalfundur B.S.E. haldinn 15.—16. marz 1971 lætur í ljós óánægju með gildandi fyrir- komulag á stjórnarkosningum Stéttarsambands bænda og ósk- ar eftir að það veröi endurskoð- að. Sérstaklega vflÍ fundurinn benda á það, að formaður og varaformaður yerði kosnir af fulltrúum á aðalfundi. Einnig að athugaðir verði möguleikar á því að kalla saman kjör- mannafundi fyrir kjördæmin og þar yrðu kosnir stjórnar- menn. 4. Aðalfundur B.S.E. haldinn 15.—16. marz 1971 samþykkir að fela stjórn og ráðunautum að fylgjast með þeim tilraun- um, sem gerðar kunna að verða í sambandi við hraðþurrkun heys. Einnig telur fundurinn að vinna beri að því að fá opin- bera aðila til að leggja fram fé til þessarar tilraunastarfsemi og þá að fá slíkar tilraunir gerð ar hér í Eyjafirði. 5. Aðalfundur B.S.E. 1971 beinir því til næsta Búnaðar- þings að taka til gagngerðrar endurskoðunar rannsóknar- starfsemi landbúnaðarins og lög þar að lútándi. Fylgir þessari tillögu ítarleg greinargerð. 6. Aðalfundur B.S.E. 1971 lýs- ir fylgi sínu við ályktun síðasta Búnaðarþings um ræktun ís- lenzka fjárhundastofnsins. 7. Aðalfundur B.S.E. 1971 beinir þeim tilmælum til ráðu- nauta í sauðfjárrækt hjá Bún- aðarfélagi íslands, hvort ekki væri heppilegra að binda við vissa „prósent“-tölu í stað ær- tölu fjölda áa á skýrslu í sauð- fjárræktarfélögum t. d. 50%. 8. Aðalfundur B.S.E. 1971 tel- ur að auðvelt sé að útrýma óþrifum á sauðfé með lyfjum þeim, sem nú eru tiltæk, ef reglugerð um sauðfjárbaðanir er framfylgt í öllum atriðum. Fundurinn skorar á sveitar- stjórnir á sambandssvæðinu að HJÁLPRÆÐISHERINN Sunnudaginn 21. þ. m. kl. 2 e. h. sunnudaga- skólinn, kl. 20.30 al- menn samkoma, yngri her- menn taka þátt í samkom- unni. Mánudaginn 22. þ. m. kl. 4 e. h. Heimilissambandið. Allir hjartanlega velkomnir. AÐALFUNDUR Fegrunarfé- lags Akureyrar verður hald- inn í Hótel Varðborg fimmtu daginn 25. marz kl. 20.30. Venjuleg aðalfundai^ttirf.. — Stjórnin. •• ••>»• •• NÝLOKIÐ er fjögurra umferða sveitahraðkeppni Bridgefélags Akureyrar. Keppnin var tvísýn og skemmtileg allan tímann. Sigurvegari varð sveit Halldórs Helgasonar, en auk hans eru í sveitinni Ármann Helgason, Jó- sjá um, að téð reglugerð verði framkvæmd skilyrðislaust og að býðun fari ekki fram fyrr en baðstjóri ákveðuiv 9. Aðalfundur B.S.E. 1971 beinir því til stjórnar Stéttar- sambandsins að láta athuga svo vel, sem auðið er kvótafyrir- komulag til að hafa áhrif á magn mjóllturframleiðslu. 10. Aðalfundur B.S.E. 1971 samþykkir eftirfarandi: Þar sem fyrir liggur endur- skoðun laga um búfjárrækt, vill fundurinn beina þeim til- mælum til nefndar þeirrar, er að þessari endurskoðun vinnur, að kaflinn um hrossarækt sé tekinn til vandlegrar endur- skoðunar. í því sambandi vill fundurinn benda á eftirfarandi: Hrossarækt er nú stunduð í miklum mæli í þéttbýli og þau samtök fjölmenn, er að því standa. Verður að líta svo á, að óeðlilegt sé að láta félagsskap bænda bera fjárhagslegan kostn að af slíkri starfsemi. 11. Aðalfundur B.S.E. 1971 samþykkir, samkvæmt ósk for- manns Stéttarsambands bænda, að beina þeim tilmælum til Mjólkursamlagsins og KEA að gerð verði tilraun með fram- leiðslu og sölu á smjörlíki blönduðu smjöri, ef með því yrði unnt að auka sölu smjörs- ins frá því, sem nú er. Allar þessar tillögur voru samþykktar án mótatkvæða og flestar með samhljóða atkv. allra fulltrúa. Niðurstöðutölur fjárhagsáætl unar, er fundurinn samþykkti, voru kr. 2.026.000.00. Fjölgað var um 2 menn í stjórn sambandsins samkvæmt breytingum, sem gerðar voru á lögum þess. Hlutu kosningu: Arnsteinn Stefánsson bóndi í Stóra-Dunhaga og Sigurgeir Garðarsson bóndi á Staðarhóli. Aðrir í stjórninni eru: Ár- mann Dalmannsson, Akureyri, Eggert Davíðsson, Möðruvöll- um og Sveinn Jónsson bóndi, Ytra-Kálfskinni. — Stjórnarfor- maður var kosinn Ármann Dal- mannsson. í lok fundarins gaf Stefán Halldórsson búnaðarþingsfull- trúi yfirlit yfir störf Búnaðar- þings, en því lauk daginn áður. ÁHEIT á Strandarkirkju kr. 1.000 frá S. G. — Til Rauða kross íslands kr. 300 frá ösku dagsliði Ogmundar, Oddnýj- ar, Guðrúnar, Ingu, Dagnýj- ar, Rögnvaldar og Ingibjarg- ar. — Beztu þakkir. —- Birgir Snæbjörnsson. SLÖKKVISTÖÐIN — Sjúkra- bíllinn — Brunaútkall, sími 1-22-00. SKRIFSTOFA Áfengisvarnar- nefndar Akureyrar er flutt í Hótel Varðborg, sími 12600, og er opin alla fimmtudaga kl. 5.30—7 e. h. hann Helgason, Alfreð Pálsson og Guðmundur Þorsteinsson. Röð sveitanna er þessi: stig 1. Sv. Halldórs Helgas. 2348 2. — Mikaels Jónssonar 2329 3. — Harðar Steinbergss. 2267 4. — Soffíu Guðmundsd. 2168 5. — Páls Pálssonar 2028 6. — Hinriks Hinrikss. 2018 7. — Sveinbj. Sigurðss. 1962 Meðalárangur var 2160 stig. Næsta keppni verður ein- menningskeppni og firma- keppni félagsins og hefst hún n. k. þriðjudag (22. marz) og er allt spilafólk hvatt til að koma og taka þátt í keppni þessari. Spilað er í Landsbanka- salnum. □ - SÆLUVIKAN (Framhald af blaðsíðu 1) kórinn Heimir syngur undir stjórn Árna Ingimundarsonar. Kvikmyndasýningar verða alla dagana og vandað til myndanna eftir föngum. Þá verða dans- leikir sex kvöld. Mánudags- skemmtanirnar eru helgaðar börnum og unglingum. Þá skemmtir m. a. skólafélag gagn fræðaskólans með söng, upp- lestri og leikþáttum. Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar bónda á Geirmundarstöðum í Sæ- mundarhlíð leikur fyrir dansi. Hann hefur stjórnað hljómsveit í mörg ár. Sæluvikunni lýkur svo á 8. degi, á sunnudags- kvöldið. Skagfirzkt fjör verður í þessu öllu saman, ef að vanda lætur, og búast má við tölu- verðu fjölmenni. Aðspurður um hesta, sagði Guttormur: Ætlunin var, að hingað kæmi skip í vetur til að sækja 300 hross til útflutnings. Sæmilegt verð var boðið. En bændur vildu ekki selja nema 200 og skipið kom þess vegna ekki og ekkert varð úr hrossa- sölunni. Tamningastöð er hér á Sauð- árkróki. Léttfeti rekur hana og hefur svo verið ár hvert um lengri tíma. Tamningamenn eru Sigurjón Gestsson, Reykjavík og Skafti Steindórsson frá Haf- steinsstöðum. Hrossin eru fram undir 30. Stöðin starfar með þennan hóp frá 1. marz til l'. maí. Svo kemur annar hópur á eftir. Hestar eru keyptir og seldir eins og gengur og verðið er ákaflega mismunandi, kannski 35 þús. kr. eða svo fyrir efni- lega skepnu og svo niður í sláturverð eða eitthvað svo- leiðis. □ 1 Þaklia innilega lieimsóknir, gjafir, heillaskeyii ogf alla vinsemd á sjötugsafmœli mínu, 15. marz s.l.f Lifið heil. ? I I i- I i 1 i i i GERÐUR ÁRNADÓTTIR. <- t . f Hjartans þakkir til allra þeirra, er sýndu mérl vinsemd á sexiugsafmcclinu. © Lifið heil. i i t HELGA ÞORÐARDOTTIR. Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er auð- sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför GUÐRÚNAR SKÚLADÓTTUR, Hólsgerði. Sérstakar þakkir færum við læknum, hjúkrunar- liði og öðru starfsfólki Sjúkrahúss Húsavíkur. Systkini hinnar látnu. Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og veitta að- stoð vegna andláts og jarðarfarar JÓNATANS DAVÍÐSSONAR, bónda, Fífilgerði. Vandamenn. Hjörtur E. Þórarinsson. - Frá aðalfuntíi Bíinaðarsambaiiíls Eyjafjarðar Sveif Halldcrs Helpscnar ssgraði Firmakeppni íiefst næstkomandi þriðjudag

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.