Dagur - 03.04.1971, Síða 1
LIV. árg. — Akureyri, laugardaginn 3. apríl 1971 — 17. tölublað
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstrælj 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJOSMYNDAVÖRUR
FRAMKÓLLUN - KOPIERING
Lðgarfossvirkjun verður
boðin út 15. apríl næslk.
Arinbjörn RE 54.
(Ljósm.: E. D.)
Mjólkurostur til Svíþjóðar
EINS og flestum er kunnugt,
hafa íslendingar flutt umtals-
vert magn af mjólkurosti til Sví
þjóðar nú um skeið. í Svíþjóð
fæst nú hærra verð fyrir mjólk
urost en í Bandaríkjunum, en
um nokkur undanfarin ár hefur
Bandaríkjamarkaðurinn gefið
okkur bezt verð fyrir ostinn.
í sænska vikublaðinu Land
er nýlega frá því skýrt, að Sví-
ar hafi ni'i vaxandi áhyggjur af
samdrætti í mjólkurframleiðslu.
Svíar flytja inn mjólkurduft frá
Kanada og smjör frá Finnlandi,
en þar í landi hafa smjörbirgðir
minnkað úr 25 þúsund tonnum
þegar mest var á sl. ári í 10
þúsund toiui við sl. áramót.
Þá segir Land, að orðrómur
sé uppi um innflutning á neyzlu
mjólk til Svíþjóðar frá Dan-
mörku og Finnlandi.
ESJA AFHENT Á
FYRSTA SUMARDAG
ESJA, síðara- strandferðaskip
Skipaútgerðar ríkisins, er nú að
verða fullbúið í Slippstöðinni
og er stefnt að því að skipið
verði afhent eigendum sínum á
sumardaginn fyrsta, 22. apríl.
Verið er að ganga frá öllu um
borð og reyna vélar og tæki,
sem öll eru komin á shm stað
í skipinu.
Egilsstöðum 1. apríl. Tíðin hef-
ur verið þokkaleg liér undan-
farið, norðaustanátt, lítið frost
og ekki mikill snjór í byggð.
Færðin er sæmileg um Hérað
og um Fagradal til Reyðar-
fjarðar, en aðeins snjóbílar kom
ast yfir Fjarðarheiði til Seyðis-
fjarðar. Flugsamgöngur við
Egilsstaði hafa gengið nokkurn
veginn ótruflaðar.
Mikil ánægja ríkir hér eystra
yfir þeirri ákvörðun Eimskipa-
félagsins að Reyðarfjörður
skuli framvegis vera aðalhöfn
fyrir Austfirði. Austfirðingum
hefur lengi fundizt þeir vera
nokkuð afskiptir, þar sem engin
aðalhöfn hefur verið á svæðinu
Fyrstu handritin
MENNTAMÁLARÁÐHERRAR
íslands og Danmerkur skiptust
á fullgildarskjölum um afhend-
ingu liandritanna í Kaupmanna
höfn á finuntudaginn. Var þar
tilkynnt að handrit Flateyjar-
bókar o'g Sæmundar-Eddu yrðu
afhent 21. apríl. Er nú ekkert
því til fyrirstöðu lengur, að hin
kærkomna afhending handrit-
anna fari fram, samkvæmt fyrri
samningum. Og handritunum
er þegar búið verðugt og gott
húsnæði í höfuðborginni. o
milli Húsavíkur og Vestmanna-
eyja. Verður að þessu mikil bót.
Vonandi verður næsta skrefið
að koma upp tollvörugeymslu
á Reyðarfirði og búa svo um,
að Héraðsbúar geti fengið vör-
ur sínar beint í vörugeymslur
á Egilsstöðum.
Atvinna hefur verið góð og
ekkert bólar á neinu atvinnu-
leysi. Menn hafa þó orðið fyrir
vonbrigðum með, að ekki skuli
koma fleiri loðnugöngur, eins
vel og var tekið á móti þeirri
fyrstu.
Félagslífið er nokkuð fjörugt,
aðallega þó spilamennskan. Ný-
lega lauk bridgekeppni á Egils-
stöðum og síðan bridgefélag var
stofnað hér í fyrra, hafa viku-
lega komið saman í Valaskjálf
um 60 manns og fengið útrás
fyrir spilagleði sína.
Um sl. helgi var háð firma-
keppni Austurlands í bridge og
kepptu 17 sveitir, víðast af Aust
fjörðum. Efst varð sveit Aðal-
steins Jónassonar, Eskifirði,
önnur sveit Ara Sigurbjörns-
sonar, Egilsstöðum og þriðja
sveit Þórarins Hallgrímssonar,
Egilsstöðum.
Flogið hefur fyrir, að Lagar-
fossvirkjun verði boðin út 15.
apríl og hugsa Austfirðingar
mikið um þá framkvæmd og
vona, að ekki komi til borgara-
styrjaldar út af henni. V. S.
Skíðamót íslands uni
páskana í Hlíðarf jalli
SKÍÐAMÓT ÍSLANDS fer
fram í Hlíðarfjalli við Akur-
eyri 6.—12. apríl. Þar fer einnig
fram Unglingameistaramót
Norðurlanda 9.—12. apríl. Hlíð-
arfjall verður því miðstöð vetr-
aríþrótta um þessa páska, eins
og svo oft áður.
Af þeim sökum má búazt við
mikilli bílaumferð. Nú er kom-
inn nýr og breiður vegur í Hlíð
arfjalli, en það eru vinsamleg
tilmæli forráðamanna, til öku-
manna, að þeir leggi ekki bif-
reiðum sínum á veginn, á með-
an bílastæði eru laus við Skíða-
hótelið.
Stólalyftan verður opin alla
daga kl. 9—18 nema ef veður
hamli og togbrautirnar við hót-
elið verða í gangi alla daga. Þá
mun Ríótríó skemmta í Skíða-
hótelinu föstudags- og sunnu-
dagskvöld.
Sigurbergur GK 212.
(Ljósm.: ED*
Tveii* bátar sjósettn* í gær hjá
Slippstöðinni li.f. á Akureyri
■: xl
TVEIR nýir fiskibátar voru sjó-
settir í Slippstöðinni í gær í
blíðskaparveðri að viðstöddu
fjölda fólks. Bátar þessir hlutu
nöfnin Arinbjörn RE 54 og Sig-
urbergur GK 212. Arinbjörn er
smíðaður fyrir Sæfinn h.f. í
Reykjavík og er hann 150
brúttólestir, en Sigurbergur er
smíðaður fyrir Sigurberg h.f. í
Hafnarfirði og hann er 110
brúttólestir að stærð.
Kjölur var lagður að báðum
bátunum í byrjun október sl.
og hefur smíði þeirra gengið
samkvæmt áætlun.
Arinbjörn RE verður full-
smíðaður hjá Slippstöðinni.
Hann verður með 600 ha. Alpha
dísilvél, togvinda og hnuvinda
eru smíðaðar hjá Vélsmiðju Sig
urðar Sveinbjörnssonar h.f.
Auk þess verður báturinn með
kraftblökk.
Sigurbergur GK verður dreg-
inn suður til Hafnarfjarðar, þar
sem lokið verður smíði hans, í
Skipasmíðastöðinni Dröfn h.f.
Báðir bátarnir verða búnir
öllum helztu fiskileitartækjum
og útbúnir fyrir línu-, neta- og
togveiðar.
Sjósetningin í dag gekk eins
og bezt verður á kosið, bátarnir
runnu út á flóðinu laust eftir
kl. 3, með örstuttu millibili.
Tveir dráttarbátar biðu þeirra
fyrir utan. Veður var gott og
fjöldi fólks viðstatt. Q
\ÝR YFIRLÆKMR
GAUTI ARNÞÓRSSON tók við
störfum yfirlæknis við hand-
læknadeild Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri með byrjun
marzmánaðar. Hann er Aust-
firðingur að ætt, 37 ára, kvænt-
ur Björgu Björnsdóttur frá Nes
kaupstað og eiga þau þrjá syni.
Hinn nýi yfirlæknir lauk
læknisnámi við Háskóla íslands
en stundaði síðan framhalds-
nám í skurðlækningum í Sví-
þjóð og hefur starfað þar síðan,
fyrst í Sundsvall en síðustu 5
órin við háskólasjúkrahúsið í
Uppsölum.
Aðspurður kveðst læknirinn
vera ánægður yfir því, að vera
hingað kominn, lízt vel á Akur-
eyri og íbúa hennar, líkar vel
að vinna við sjúkrahúsið og
lætur þess getið, að þar sé gott
starfsfólk.
Dagur býður hann velkom-
inn. Q
Gauti Arnþórsson.