Dagur - 03.04.1971, Qupperneq 5
4
3
f~.' '
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Sáffðnefnd skipuð
af Hæsfaréffi
í SlÐASTA blaði Dags var birt til-
laga sú til þingsályktunar um sátta-
nefnd í Laxárdeilunni, sem átta
Framsóknarmenn lögðu frarn á Al-
þingi. Þar sem nú liður að þingslok-
um, getur svo farið, að hún hljóti
ekki afgreiðslu í þinginu. En ekkert
er því til fyrirstöðu, að forsætisráð-
heira geti farið þá leið, er í tillög-
unni felst.
Því hefur áður verið hreyft utan
þings, að hyggilegt sé að stofnun,
óháð ríkisstjórninni, og þá lielzt
Hæstiréttur, tilnefni sáttasemjara.
Framsóknannenn á þingi leggja til
að skipuð verði þriggja manna sátta-
nefnd eftir tilnefningu Hæstaréttar,
en slíkar sáttanefndir hafa stundum
verið skipaðar í kjaiadeilum þegar
mikið hefur legið við. Það nýmæli
er í tillögunni, að sáttanefnd sé
heimilt að -tarfa sem frjáls gerðar-
dómur í deilunni, ef deiluaðilar
verði sammála um að óska þess. í
þessu fælist þá að líkindum það, eða
gæti falist, að aðilar féllust á það
fyrirfram, að hlýta úrskurði sátta-
nefndar. Þannig var stundum að far-
ið á þjóðveldisöld, til að útkljá við-
kvæm deilumál.
TiIIögumenn vekja athygli á, að
ef til greina kæmi að stöðva, á kostn-
að ríkissjóðs, um lengri eða skemmri
tíma, vinnu við framkvæmdir við
Laxá, sem nú er unnið að, mætti
telja eðlilegt, að ákvörðun um slíkt
yrði hluti af væntanlegu samkomu-
lagi, ef það tækist, enda hefur Hæsti-
réttur þegar úrskurðað Laxárvirkj-
un rétt til að vinna þar verk, út af
fyrir sig, en hins vegar ákveðið liig-
bann við því, að breyta straumstefnu
árinnar, að setlri lögbannstryggingu.
Ennfremur segja tillögumenn að
óhætt sé að fullyrða, að þess sé al-
mennt óskað, og ekki sízt í þessum
landshluta, að samkomulag takist í
því deilumáli sem hér urn ræðir.
Hefur það verið von margra, að nú-
verandi raforkumálaráðherra tækist
að koma þessu samkomulagi í kring,
enda hefur hann með réttu talið það
hlutverk sitt, þar sem ráðuneyti raf-
orkumála ásamt Orkustofnun ber
ábyrgð á því, að virkjun var ákveðin
og hafin við Laxá. En rétt er talið,
að Alþingi láti samkomulagstilraun-
ina til sín taka á þann hátt, sem hér
hefur verið að vikið.
Um þessi atriði og önnur fjallar
greinargerð sú, er fylgdi þingsálykt-
unartillögunni. □
Húnavakan hefsl á annan í páskum
HUNAVAKAN hefst í Félags-
heimilinu á Blönduósi á annan
í páskum. Það er Ungmenna-
samband Austur-Húnvetninga
sem sér um Húnavökuna og hef
. ur gert frá því hún komst fyrst
á. Margir eru þeir sem skemmt
hafa á Húnavöku en hún hefur
verið haldin í rúmlega tuttugu
ár, og fjölmargir eru þeir sem
sótt hafa þangað upplyftingu
frá daglegri önn.
í ár verða það fimm félög sem
skemmta auk þess sem Blöndu-
ósbíó sýnir nokkrar kvikmynd-
ir. Dansað verður fimm kvöld
vikunnar. Hljómsveitin Os-
menn á Blönduósi leikur fyrir
dansinum nema á þriðjudags-
kvöldið. Þá skemmtir Hljóm-
sveit Ingimars Eydal frá Akur-
eyri ásamt söngvurunum Hel-
enu og Bjarka. Á föstudags-
kvöldið verður unglingadans-
leikur.
Fæstir gera sér grein fyrir
því hve mikið starf er á bak
við það að færa upp sjónleik.
Tveir menn hafa verið frá byrj-
un traustir áhugamenn í leik-
starfinu og leikið öll árin. Þeir
eru Bjami Einarsson og Tómas
R. Jónsson. Þessir menn draga
sig nú í hlé sökum aldurs.
. Nú standa yfir æfingar á
gamanleiknum Betur má ef
duga skal eftir Peter Ustinov.
Þær hófust í janúar. Leikinn á
að sýna á Húnavökunni þrisvar
sinnum. Þ. e. mánudagskvöld,
miðvikudagskvöld og sunnu-
dagseftirmiðdag. Leikrit þetta
var fyrst sýnt hér á landi í Þjóð
leikhúsinu sl. vetur við góðan
orðstír. Þetta er því önnur upp-
færsla á leiknum hér á landi.
Ungmennasambandið hefur
frá stofnun reynt að stuðla að
eflingu íþróttalífs innan héraðs
svo og ýmsum öðrum mehning-
ar- og framfaramálum. Á liðnu
sumri var haldið Héraðsmót í
frjálsum íþróttum svo og í
knattspyrnu og sundi. Þá sá
sambandið um framkvæmd
Meistaramóts Norðurlands, sem
haldið var á Blönduósi í ágúst.
Þar var einnig háð frjálsíþrótta
keppni milli U.M.S.S., U.S.V.H.
og U.S.A.H. á liðnu hausti
gelvkst það, í samvinnu við
Kaupfélag Húnvetninga, fyrir
félagsmálanámskeiði. Þar voru
þátttakendur um 90. í sambandi
við Húnavökuna gefur sam-
bandið út rit sem Húnavaka
nefnist.
Að venju annast Ungmenna-
sambandið Húsbændavöku á
þriðjudagskvöld á Húnavök-
unni. Þar verður flutt erindi og
tvöfaldur kvartett undir stjórn
Jónasar Tryggvasonar syngur.
Þá verður hagyrðingaþáttur og
fleira til fróðleiks og skemmt-
unar.
Hjálparsveit skáta var stofn-
uð á Blönduósi 24. apríl 1964.
Unglingameisfaramót Isl.
a skíðum haldið á Húsavík
SRA sendir 38 keppendur á
mótið. Fararstjórar verða þeir
Stefán Jónasson og Reynir
Pálmason. Tilhögun keppninn-
ar er sem hér segir:
Föstudagur 2. apríl.
Kl. 14 mótið sett. Kl. 15.30
hefst stórsvig, keppendur alls
93, 18 stúlkur, 46 drengir 15—16
ára og 29 drengir 13—14 ára.
Þá fer fram stökk og eru 8 kepp
endur skráðir til leiks, 4 í hvor-
um flokki.
Laugardagur 3. apríl.
Svig, keppendur alls 91, 18
stúlkur, 44 drengir 15—16 ára
og 29 yngri, þ. e. 13—14 ára.
Ganga, keppendur 15 í yngri
flokki 13—14 ára, en 16 í flokki
15—16 ára. Þá verður keppt í
5 km. göngu stúlkna og er það
aukagrein og mjög skemmtileg
nýbreytni, en keppendur eru 3.
Sunnudagur 4. apríl.
Þá fer fram flokkasvig og þar
keppa 2 sveitir 13—14 ára, en í
15—16 ára flokki keppa 6 sveit-
ir. Þá fer fram boðganga, sem
6 sveitir taka þátt í.
Alls eru keppendur skráðir
til leiks í mótinu 115, og eru
þeir frá: Akureyri 38, Héraðs-
sambandi Þingeyinga 27, ísa-
firði 19, Siglufirði 12, Reykja-
vík 12 og úr Fljótum 3. □
Skíðamóf Islands 1971
haldið á Ákureyri
SKÍÐAMÓT ÍSLANDS 1971
fer fram á Akureyri um pásk-
ana, eða frá 6.—12. apríl n. k.
Skíðaráð Akureyrar sér um
mótið, mótsstjóri verður Her-
mann Sigtryggsson og yfirdóm-
ari Helgi Sveinsson frá Siglu-
firði. í mótið eru skráðir 78
keppendur víðsvegar að af
landinu. Keppnin sjálf fer öll
fram í Hlíðarfjalli.
Dagskrá Skíðamóts íslands
verður sem hér segir:
Þriðjudagur 6. apríl:
Kl. 14.00 Mótið sett: Þórir Jóns
son form. SKÍ. (Við
Skíðahótelið).
Kl. 15.00 10 km. skíðaganga 17
—19 ára flokkur.
Kl. 16.00 15 km. skíðaganga 20
ára og eldri.
Miðvikudagur 7. apríl:
Kl. 15.00 Stökk 20 ára og eldri
Starfsemi hennar hefur ætíð
verið blómleg, fundir haldnir
reglulega farið í fjallgöngur og
æfingaleitir og námskeið í hjálp
í viðlögum sótt. Hins vegar hafa
raunverulegar leitir verið fáar.
Félagar sveitarinnar eru 22 og
undanfarið hafa þeir æft upp
Revíukabarett, sem þeir sýna
tvisvar á Húnavökunni, fyrri
sýningin verður á mánudag en
sú síðari á föstudagskvöld. Þar
verða sýndir leikþættir og
sungnar frumsamdar gaman-
vísur. Þá kemur hljómsveitin
Ósmenn fram og fleira verður
til skemmtunar.
Karlakórinn Vökumenn hef-
ur starfað í 12 vetur. Æfingar
hafa oftast byrjað um miðjan
nóvember og staðið fram í
april. Kórfélagar eru nú 22.
Söngstjórn hefur Kristófer
Kristjánsson, Köldukinn, ann-
azt frá stofnun. Á Húnavök-
unni í ár skemmtir karlakór-
inn bæði á laugardags- og
sunnudagskvöld. Samanstendur
sú dagskrá af kórsöng og gam-
anleiknum „Gullbrúðkaupið“
eftir Jökul Jakobsson.
Lionsklúbbur Blönduóss var
stofnaður 10. okt. 1959. Stofn-
endur voru 20. Margt gott hafa
klúbbfélagar látið af sér leiða.
Til dæmis er það árlega sem
þeir bjóða gamla fólkinu á Hér-
aðshælinu í stutta eins dags
ferð um héraðið. Nokkrum sinn
um hefur klúbburinn fært Hér-
aðshælinu lækningatæki, t. d.
smásjá, blóðrannsóknartæki og
nú síðast í vetur heyrnarpróf-
unartæki. Fyrir hver jól er Hér
aðshælinu fært jólatré, sem
stjórn klúbbsins hverju sinni
setur upp og skreytir. Þá hafa
Blönduóskirkju verið færðir
altarisstjakar og Barna- og mið
skólanum myndvarpi.
Á Húnavökunni í ár verður
dagskrá á laugardagseftirmið-
dag í umsjá Lionsklúbbsins.
Þar verður lesið upp bundið og
óbundið mál úr klassiskum
verkum um vorið. Einnig verð-
ur flutt létt tónlist. Ekki verður
selt inn á dagskrá þessa en allir
velkomnir. □
H.S.Þ. vann
SL. SUNNUDAG fór fram
bridgekeppni í Ljósvetninga-
búð milli HSÞ og UMSE.
Kepptu átta fjögurra manna
sveitir frá hvorum þessara
aðila. Keppninni lauk með sigri
HSÞ, sem hlaut 92 stig á móti
68 stigum UMSE. Þetta var
fjórða bridgekeppni þessara
sambanda og hefur HSÞ unnið
þrívegis en UMSE einu sinni.
EIRIKUR SIGURÐSSON:
IIASÖTT SAMTIÐARINNÁ8
ENNTASKÓLALEIKURINN
EINS og frá var sagt í 14. tölu-
blaði völdu menntaskólanemar
á Akureyri Rómeó og Júlíu, eft-
ir Shakespeare, sem skólaleik-
rit sitt á þessu skólaári. Víst er,
að ekki er höfundurinn af lak-
ara taginu og leikritið er víð-
frægt og eitt hinna sígildu við-
fangsefna, að því er virðist, þótt
bráðum séu liðnar þrjár aldir
síðan það var samið.
Frumsýningin var svo 24.
marz og var aðsókn góð og við-
tökur ágætar.
Leikstjórar voru frú Þórhild-
ur Þorleifsdóttir og Arnar Jóns
son, og hafa þau æft leikinn
með nemendum hátt í tvo mán-
uði. Hefur mikil vinna verið
lögð í undirbúning þessara sýn-
inga og leikarar verið mjög
áhugasamir.
Aðalhlutverkin leika Gyða
Bentsdóttir og Ingólfur Steins-
son. Þessi hlutverk, titilhlut-
verk leiksins, eru viðamikil og
erfið. Gyða hefur ágætan fram-
burð svo að hvert orð hennar
komst til skila, og hún sýndi
viðkunnanlegt öryggi á sviðinu.
Ingólfur náði allgóðum tökum
á hinum blóðheita Rómeó og
ástríðufulla elskhuga, en svip-
brigði hans féllu ekki alltaf ná-
kvæmlega að efninu.
Fóstruna lék Anna Einars-
dóttir, en hún er formaður Leik
félags Menntaskólans á Akur-
eyri. Leikur hennar og fram-
sögn var með ágætum, enda
mun hún ekki alger byrjandi á
leiksviði.
Foreldra Júlíu léku Guð-
mundur Ólafsson og Valgerður
Bjarnadóttir. Hlutverk þeirra
eru allveigamikil.
Ævar Kjartansson leikur
bróðir Lárenz, er gervi hans
gott en liann talar öf lágt'.'
Búningár voru smekklegir og
sumir fállegir. Leiksviðsbúnað-
ur var eirifaldúr og leikstjór-
arnir furidu góða lausn á þeim
vanda, sem fylgir því að svið-
setja leik, sem gerist á mörgum
stöðum.
Alls eru leikendur 28, óg eru
sum smáhíutverkin mjog vel af
hendi leyst en önnur miður.
Menntaskólaleikurinn í ár er
verðugt viðfangsefni, og sýnir
dirfsku hins unga fólks. En það
hefur þó ekki reist sér hurðarás
um öxl og veldur verkefninu
með sóma, þegar á heildina er
litið.
Sýningum lýkur fyrir páska
og verða sýningar fáar hér á
Akureyri,. .en .leikför til ._Siglu-
fjarðar er árlegur liður þessar-
ar starfsemi.
Menntaskólaleikurinn er ár
hvert forvitnileg tilbreytni í
leikhúslífiriú. Ferskleiki hins
unga fólks og nýja fólks hverju
sinni, hefur góð áhrif, bætir oft
að mestu eða öllu bresti þá, er
fylgja kunná byrjendaskrefun-
um í þéssári list- og skemmti-
grein. Sumir menntaskóláleikir
eru efnis- og alvörulitlir, inni-
haldslausir, eins og kallað er,
en eiga að vekja hlátur og gera
það stúhdum. Mikill og dýr-
mætur tíriíi. neménda fer í
æfingar og verður ekki hjá því
komist þegar sjónleik á að
sýna. En þegar verkefni eru
valin, sem verulegt innihald
hafa og léikstjóm við hæfi, er
þetta ágætur skóli út af fyrir
sig, gagnstætt því er vinna er
lögð í léleg verkefni, sem jafn-
an þreyta leikarana og gefa
þeim lítið í staðinn.
Rómeó og Júlía hjá nemend-
um Menntaskólans á Akureyri
lyftir leiklistarlífi bæjarins á
sinn hátt og því ber hinu unga
fólki bæði þökk og heiður fyrir
framtakið.
Leikliúsgestur.
VIÐ lifum á undarlegum breyt-
ingatímum. Þeir minna helzt á
gelgjuskeið unglinga, þar sem
framtíðin er óráðin. Þannig
koma okkur, mönnunum með
gráu hárin, samtíðin fyrir
sjónir.
Eitt virðist mér þó einkenna
þessa tíma mest. Flest mál eru
gerð að æsingamálum. Umræð-
ur um þau í fjölmiðlum eru
meira á bylgjulengd tilfinninga
en rökrænnar hugsunar. Var
ekki einhvern tíma sagt, að
hinn siðaði maður hefði það
yfir hinn frumstæða mann, að
hann réði fram úr málum sín-
um með hjálp hugsunarinnar,
en léti ekki æstar tilfinningar
hlaupa með sig í gönur?
Af hverju kemur þetta? Ég
held að sökin sé hjá fjölmiðlum,
blöðum, útvarpi og sjónvarpi.
Þeir sækjast eftir æsandi frétta
efni og keppast um að verða
fyrstir með fréttir sem koma
róti á tilfinningarnar. Má þar
nefna stríðsæsingar.
Hugsum um allar umræður
um kynferðisfræðsluna á síðast
liðnu ári. Það var nú meiri fyrir
gangurinn í öllum fjölmiðlum.
Helzt leit út fyrir, að það þyrfti
lyfseðil frá lækni til þess að
barn fæddist í þennan heim.
Hingað til hefur það gengið án
þess. Og ég held að allar þessar
umræður um kynferðislífið hafi
ekki verið hollar fyrir börn og
unglinga. Þær hafa beint hugs-
un þeirra of snemma . inn á
brautir, sem vel hefði mátt
bíða. Allir æptu um, að börn
þyrftu að fá kynferðisfræðslu.
Ef átt er við, að það eigi að
fræða um þessi líffæri eins og
önnur í mannslíkamanum, er
ég því sammála. En ef talið er
nauðsynlegt, að fræða börn út
í æsar um þessi mál, er ég því
ósammála. Ég held ekki að það
sé heppilegt að vekja þær
hneigðir of snemma. Og viss
dul á að vera yfir þessum mál-
um. Það gerir mun á manni og
dýri.
En þetta var æsandi umræðu
efni og með þáttum í útvarpi
og sjónvarpi var hægt að fá
fólkið til að hlusta. Það leit
helzt út fyrir, að þarna væri
um einhverja nýja uppgötvun
að ræða.
Þannig er því varið um mörg
fleiri mál. Þó vil ég taka það
fram, að mér finnst umræðu-
ÁLYKTUN UM FERÐAMÁL
ÁLYKTUN ferðamálaráðstefnu
Félagasambands Framsóknar-
manna í Norðurlandskjördæmi
eystra og Framsóknarfélags
Reykjavíkur, sem haldin var á
Akureyri 27. marz 1971.
Ferðaþjónusta er þegar orð-
inn stór þáttur í atvinnulífi
þjóðarinnar. Á síðastliðnu ári
námu gjaldeyristekjur lands-
manna af erlendum ferðamönn-
um nær 1 milljarð íslenzkra
króna.
Heildarhlutur ferðamála í
þjóðarbúskapnum er þó miklu
stærri, ef allt er tekið með.
Ráðstefnan bendir á, að með
skipulögðum vinnubrögðum má
gera þessa atvinnugrein að enn
stærri og arðmeiri þætti í at-
vinnulífinu, og nýta þannig þau
miklu gæði, sem landið býr yfir
á þessu sviði. Til þess að svo
megi verða telur ráðstefnan
þetta nauðsynlegast:
1. Heildaráætlun verði gerð
um framtíðarþróun íslenzkra
ferðamála. Verði sú áætlun
grundvölluð á nauðsynlegum
rannsóknum og undirbúningi,
enda verði hún gerð í tengslum
við aðra þætti atvinnulífs.
2. Ferðaþjónusta verði mikil-
vægur þáttur í landshlutaáætl-
unum um uppbyggingu atvinnu
lífs.
3. Nauðsynlegt er að endur-
skipuleggja yfirstjórn ferða-
mála. Ferðamálaráð með nýrri
skipan og víðtækari verði sjálf-
stæður framkvæmdaraðili með
öflugum fjárráðum.
4. Ferðamálasjóður verði
margfaldaður og honum tryggð
ar fastar tekjur í sanngjörnu
hlutfalli við þátt ferðamálanna
í þjóðarbúskapnum á hverjum
tíma.
5. Innlendar peningastofnanir
viðurkenni í verki hinn vax-
andi þátt ferðaþjónustu við
öflim þjóðartekna.
6. Leitað verði samvinnu við
alþjóðlegar lánastofnanir um
uppbyggingu íslenzkra ferða-
mála.
7. Athugað verði við íslenzku
flugfélögin hvort ekki sé tíma-
hært að taka upp framhaldsfar-
gjöld með verulegum afslætti
til og frá landshlutum þegar
seldir eru farmiðar landa milli.
8. Efla þarf hverskonar ferða-
þjónustu á bændabýlum.
skipulagningu og eflingu ferða-
mála og bætta nýtingu þeirrar
aðstöðu, sem fyrir hendi er.
9. Stofnuð verði ferðamála-
félög í einstökum landshlutum,
þar sem hagsmuna og áhuga-
aðilar taki höndum saman. □
- LÆRA AÐ FRJÓNA
(Framhald af blaðsíðu 8).
I ráði er, að Gefjun komi á
fót eins konar sölumiðstöð fyrir
lopavörur og yrði þar tekið á
móti þeim vörum, sem ætlaðar
væru til útflutnings.
Það var Samband norð-
lenzkra kvenna, sem var frum-
kvöðull þessa námskeiðs, en
formaður þess er Dómhildur
Jónsdóttir. En undirbúnings-
nefnd skipuðu Sigríður Haf-
stað, Svanhildur Þorsteinsdótt-
ir og Helga Jónsdóttir, og þær
gengu í vor á fund forráða-
manna Gefjunar og fengu þar
hina ágætustu fyrirgreiðslu.
í viðtali við „prjónakonurn-
ar“ báðu þær fyrir þakklátar
kveðjur til Gefjunarmanna og
sögðu, að það ríkti mikil ánægja
á námskeiðinu. □
og 17—19 ára flokkui
Stökk í norrænni tví-
keppni.
Fimmtudagur 8. apríl:
Kl. 12.00 Stórsvig kvenna.
Kl. 13.00 Stórsvig karla. I
Kl. 15.00 3x10 km. boðganga.
Föstudagur 9. apríl:
Kl. 09.00 Skíðaþing.
Kl. 11.00 Guðsþjónusta í Akur
eyrarkirkju.
Laugardagur 10. apríl:
Kl. 10.30 Svig kvenna.
• \
Sunnudagur 11. apríl:
Kl. 13.00 Svig karla.
Kl. 15.00 30 km. ganga.
Mánudagur 12. apríl:
Kl. 13.00 Flokkasvig.
Kl. 21.00 Verðlaunaafhending
og mótsslit í Sjálf-
stæðishúsinu.
AUDVITAD
KEA
OTÐURSUÐDVÖBUR
Handhægar, Ijúffengar og bragðgóðar.
Matargerðin tekur aðeins 10 mínútur. Veljið um
12 mismunandi úrvais tegundir
fyrir h.eimiiið og í ferðanestið.
Heildsölubirgðir:
Birgðastöð SÍS.
Eggert Kristjánsson & Co. HF.
K.I0TI0NAÐARST0Ð
é
LEÐURJAKKAR
STAKAR BUXUR
efni í sjónvarpi hafa haft bæt-
andi áhrif á málflutning um
stjórnmál. Efnislegar umræður
komi í staðinn fyrir pexið.
Annað en kynferðisfræðslan
hefur verið mjög vinsælt efni í
fjölmiðlum. Það er klám. Það
varð svo vinsælt, að jafnvel
tvær valkyrjur í útvarpinu
vörðu í það heilum þætti og
létu lesa grófustu lýsingar, sem
finnst í fornbókmenntum okk-
ar uni þetta efni. Þær virtust
hafa gaman af þessu.
Svo komu kvikmyndahúsin
til hjálpar og sýndu klámmyncl
undir því yfirskyni, að það /ær.i
fræðslumynd. Þetta umræðu-
efni hélt áfram þar til allir voru
orðnir æstir, eins og til var æt ■
ast, og tóku afstöðu með eða
móti. Og nú virðast engin lög
vera til lengur um þetta efni,
ekki einu sinni klámmyndir,
sem teiknaðar eru í bækur.
Og þá er það mengumn. Þa ■
fundum við alveg nýtt mál. Þao
má gera marga umræðuþætti
um hana — og yfirdrífa næt: ■
una. Þó eflaust athyglisver';
mál.
Þá kem ég að því máli, sem
ég þori þó varla að nefne,
vegna þess, hvað það er eló ■
fimt. Það er Laxárvirkjunar ■
málið. Hvers vegna að nefna
það? Hafa nokkrar æsingar ve
ið í sambandi við það? Um mái ■
ið sjálft ætla ég ekki að ræða,
En ég tel að fjölmiðlar hafi þa ’
villt mjög um fyrir fólki. tílæð •
ur náttúruverndar hafi verio
breiddar yfir milljónaleigu '
laxveiðibænda. Málið gert ac!
tilfinningamáli fyrir náttúru,-
vernd. Og enn er talað um
vatnaflutning og Gljufurvers-
virkjun, (sem ég var frá upp-
hafi mótfallinn) þó að hún sé
fyrir löngu úr sögunni. Það er
búið að gera þetta að slíku hita
máti, að helzt minnir á títuri-
ungaöld.
Þá má ekki gleyma nunda-
haldi í Reykjavík. Það var stöd
ugt umræðuefni í fleiri vikur.
Og þar var barizt hart. Við utar.
Reykjavíkur gáfumst upp við
að lesa blöðin um tíma.
Var einhver að tala um geir-
fugl? Eflaust er gott að eignas-i
geirfugl. En mig undraði, hve
íljótt var hægt að sefja fólkiö
við þá söfnun. Er hægt að láta
fólkið gera hvað sem havaða-
menn segja því?
Við hér á Akureyri eigum
miklu ódýrari og fallegri geir-
fugl. En hann er að visu tilbú-
inn, en gefur þó fulikomlega
hugmynd um hvernig geirfugi
lítur út. Hann er gerður ú:'
svartfuglshömum meí) mikilr.
nákvæmni af listamanninurn.
Kristjáni Geirmundssyni. Hann
er ekki aðeins merkilegur fyn:
það, hve vel hann er gerður,
heldur einnig fyrir, að við skul-
um eiga slíkan listamaiin, sem
hefur gert hann.
Barði Guðmundsson helt þvx
fram, að við værum komnir af
flökkuþjóð, sem hét Herúlar.
Er ekki margt í samtíðinni, sem
bendir til, að þetta geii verid
rétt?
Ég held, að við látum um-
heiminn hafa of mikil áhrif á
okkur. Æsingar hippa er ekk ,
lausnarorðið í dag heldur röK -
ræn hugsun.
íslenzka þjóðin er eins og
hitasóttarsjúklingur. Hún læiv:
sefjast af hávaða og æsingi.
Væri ekki rétt að spyrna viö
fótum, svo að ekki komi
önnur Sturlungaöld? n