Dagur - 17.04.1971, Síða 2

Dagur - 17.04.1971, Síða 2
2 RÆTT VIÐ STEFAN HALLDORSSON, HREPP STJÓRA OG BÚNAÐARÞINGSFULLTRÚA Á HLÖDUM, HÖRGÁRDAL Þetta er í fyrsta sldpti, sem þú situr á Búnaðarþingi. Hvað viltu segja um þingið í heild? Búnaðarþingi lauk hinn 15. marz sl. eftir að hafa staðið í 22 daga. Um það mætti margt segja en fátt eitt verður að nægja. Þingstörfum er hagáð þannig, að fulltrúar skiptast í nefndir, sem síðan búa hin ýmsu erindi, sem berast, undir þingfundi og leggja þau þar fram í formi ályktana. Þing- fundir eru síðan haldnir dag- lega eftir að mál fara að koma frá nefndum og eru, að jafnaði, tvær umræður um hvert mál. Búnaðarþing heíur ákveðin þingsköp og munu þau í stórum dráttum áþekk þingsköpum Al- þingis og meðferð mála svipuð að því undanskildu, að deilda- skipting er engin. 1 hvaða nefnd áttir þú sæti? Ég átti sæti í búfjárræktar- nefnd og fengum við þar til meðferðar milli 10 og 20 mál. Ef ég ætti að nefna eitthvað af þeim sérstaklega mundi ég benda á erindi um innflutning á holdanautasæði, álit og tillögur nefndar Búnaðarfélags íslands UM páskana fór fram í Hlíðar- fjalli Skíðamót íslands og Ungl- ingameistaramót íslands í Alpagreinum. Auk þeirra aðila sem að skíðamálum vinna hér í bænum og sáu um þessi mót, tóku margir þátt í að gera þau sem glæsilegust og bezt úr garði. Mörg fyrirtæki og ein- staklingar léttu mjög undir fjár hagslegri hlið mótsins með því að gefa verðlaun og auglýsa í leikskrám. Öllum þessum aðil- um svo og gestum mótsins er grciddu sinn aðgangseyri að mótinu vill mótsstjórnin þakka aðstoðina. ORÐ DAGSINS NÚ, á þessum miklu líkams- ræktartímum, þegar „trimmið11 ryður sér æ meira til rúms, er mönnum e. t. v. hættara við en ella, að gleyma þörfum sálar- innar, enda eru sjálfsagt enn í góðu gildi orðin: Hraust sál í hraustum líkama. Og til að mæta hinni andlegu þörf manns ins eru til margar leiðir. Um helgina verður settur í gang símsvari hér í bæ. Ef hringt er í símanúmerið 2-18-40, fá menn fyrst að heyra orð dagsins, þ. e. a. s. orð frá heilagri ritningu, og síðan stutta hugleiðingu í anda orðsins. Að sjálfsögðu er öllum heimilt að hringja í um- rætt númer eins oft og þeir vilja, en skipt verður um efni dag hvern. Það skal tekið fram, að þeir, sem að þessu standa, eru evangelisk-lútherskir, félagar úr KFUM og söfnuðinum á Sjónarhæð. Munið, að símanúmerið er 2-18-40. □ um fyrirkomulag afkvæmarann sókna á nautum, einkum með tilliti til vaxandi fjölda nauta, sem ráðgert er að taka í notkun árlega á nautastöðinni á Hvann eyri og í Laugardælum svo og fjárhagslega undirstöðu slíkra rannsókna, og frumvarp til laga um ullarmat, sem samið hefur verið að tilhlutan landbúnaðar- ráðherra. Þá lagði nefndin fram álykt- un um endurskoðun búfjárrækt arlaganna og benti sérstaklega á nokkur einstök atriði í því sambandi. Hvaða mál telur þú mikilvæg ust af þeirn, sem afgreidd voru á þinginu? Erfitt er að slá nokkru föstu um mikilvægi hinna ýmsu mála, en alls hlutu 53 mál af- greiðslu. En auk framangreindra er- inda, sem öll hlutu þinglega af- greiðslu, má benda á samþykkt ir um endurskoðun jarðræktar- laganna, hækkun lána til véla- og verkfærakaupa, aukinn stuðningur við grænfóðurrækt, um rafmagnsmál, dreifingu, verðjöfnun o. fl. Þeir sem gáfu bikara til móts ins voru eftirtaldir aðilar: Sjálfstæðishúsið Akureyri (Stórsvig karla). Útgerðarfélag Akureyringa (15 km. ganga). H. S. Ölgerðin Egill Skallagrímsson (Stökk 20 ára og eldri). Prentverk Odds Björnssonar (Norræn tvíkeppni). Útvegsbankinn Akureyri (Stórsvig kvenna). Landsbankinn Akureyri (Svig kvenna). Búnaðarbankinn Akureyri (Alpatvíkeppni kvenna). Sparisjóður Glæsibæjarhrepps (30 km. ganga). Iðnaðarbankinn Akureyri (Svig karla). J. M. J. Akureyri (Alpatvíkeppni karla). Sportvöruverzlun Brynjólfs Sveinssonar (10 km. ganga 17—19 ára). Coca Cola umboðið Akureyri (Stökk 17—19 ára). Kjötiðnaðarstöð KEA (Norræn tvík. 17—19 ára). Linda Akureyri (Flokkasvig). Hótel Varðborg (3x10 km. boðganga). Sjóvá L.fél. ísl. Kr. P. Guðmundsson (Flokkasvig). Vörusalan (3x10 km. boðganga). Hótel KEA (Flokkasvig). Brauðgerð Kr. Jónssonar & Co. (Flokkasvig). Smjörlíkisgerð KEA (3x10 km. boðganga). Gullsmiðir Sigtryggur og Pétur (Skíðamót íslands 1971). Þá var samþykkt ályktun um búnaðarmenntun. Þar segir meðal annars, „að stefna beri að því að í lok þessa áratugar skuli sem flestir þeir, er hefja búskap, hafa fengið visst lág- mark búfræðimenntunar.“ Margt fleira mætti nefna. Var sá tími, sem Búnaðarþing hafði til umráða, nægur til af- greiðslu þeirra mála, er fyrir lágu? Starfstimi Búnaðarþings tak- markast einkum af tvennu. í Stefán Iialldórsson. fyrsta lagi af fjölda þeirra mála, er liggja fyrir hverju sinni og í ár voru þau óvenjumörg, eða alls 61. í öðru lagi af fé því, sem varið er hverju sinni til þing- haldsins og mun það heldur af skornum skammti. Það leiðir af sjálfu sér að þingfulltrúar verða að gefa sér nægan tíma til starfa, ef vel á að vanda afgreiðslu mála, en það sem helzt er til tafar og óþæginda er það, að erindi eru að berast fram á síðustu daga þingsins. Til athugunar mun hafa ver- ið að setja einhver tímatakmörk um framlagningu mála, en á því eru annmarkar. T. d. er ýmsum málum frá Alþingi, er landbúnað varðar, vísað til um- sagnar Búnaðarþings og eru þau að koma fram allan þing- tímann. Fékk ekki Búnaðarþing til unisagnar tillögur um endur- skoðun á eignarrétti yfir óbyggðum landsins? Þinginu voru sendar til um- sagnar tvær þingsályktunartil- lögur, sem lagðar voru fram á Alþingi um þessi mál, önnur flutt af Braga Sigurjónssyni en hin af Ásberg Sigurðssvni. Eru tillögurnar svipaðs eðlis og fjalla í stórum dráttum um það sama, þ. e. um nýtingu og rétt til óbyggða og afrétta, svo og um veiði- og fiskiræktarrétt í ám og vötnum. Þar er því varp- að fram m. a., hvort ekki sé eðli legt að gera allar ólDyggðir, vötn og ár að sameign þjóðarinnar á einn eða annan hátt. Varð ég var við þá skoðun allvíða, að sýnt væri að takmarka yrði yfir ráðarétt bænda yfir óbyggðum og fallvötnum, ef árekstrar út af þeim málum endurtaka sig og ekki næst samkomulag og samningar með skaplegum hætti t. d. um virkjanir. Bún- aðarþing mælti gegn samþykkt þessarar tillagna, og taldi þær óþarfar með öllu. Telur þú að Iöggjafinn muni fara inn á þá braut, að svipta bændur eignarrétti sínum á landi og fallvötnuni? Nei, því trúi ég ekki, og vona að til þess komi aldrei. Ég tel réttlætiskennd okkar íslend- inga það mikla og virðingu fyr- ir eignarréttinum það sterka, að lítil hætta sé á slíku. Hins vegar gildir sama lögmál um allt vald í hverju sem það felst. Ef talið er að valdið sé ekki hóf lega beitt verður reynt að draga úr því. Á því er enginn vafi, að bændur eiga mikið undir því á komandi árum, að sú skoðun verði ekki almenn í þéttbýlinu, að þeir fari ekki vel með það vald, sem þeir hafa nú yfir land inu, og að það komi um of niður á þjóðinni í heild. Það hefur reynzt mestur vandinn síðan sögur hófust að halda þannig á valdinu, að samfélagið sætti sig við það. Við bændur verðum að hafa tvennt í huga: Að standa á rétti okkar og verja landið fyrir óþarfa raski og skemmd- um, en ganga þó ekki svo langt í því efni, að meiri hlutinn telji sig hafa ástæðu til að skerða rétt okkar. Er þörf á stefnubreytingum í landbúnaðarmálum yfirleitt, og í hvaða efnum helzt? Vissulega er þörf á breyttri stefnu á ýmsum sviðum. Mætti nefna marga þætti í því sam- bandi, en helzt koma mér í hug verðlags- og lánamálin og grípa þau reyndar hvert í annað. Með lögum er ákveðið að tekjur bænda skuli vera í sem nánustu samræmi við tekjur annarra vinnandi stétta. Þetta samræmi hefur enn eigi náðzt og meðan bændur eru tekjulægsta stétt þjóðfélagsins er ekki hægt að gera ráð fyrir, eða að ætlast til, að þeir geti lagt svo sem neitt fjórmagn fram sjálfir til fram. kvæmda. Þar af leiðandi þurfa þeir á miklum og hagkvæmum lónum að halda, en fyrir því er ekki nærri r.ógu vel séð. Árið 1962 voru sett lög um Stofnlána deild landbúnaðarins við Bún- aðarbankann og átti hún að sjá bændum fyrir föstum fjárfest- ingarlónum, enda yfirtók hún þá sjóði er áður höfðu þessi mál með höndum, þ. e. Bygg- ingasjóð og Ræktunarsjóð. Þá voru jafnframt sett lög um að bændur sjálfir skyldu fjár- magna þessa nýju deild að nokkru með 1% gjaldi á sölu- vörur landbúnaðarins. Nú fer því fjarri að Stofnlána deildarlánin séu bændum nægj anleg og verða þeir því sífellt að bæta á sig lausaskuldum. Hitt er þó alvarlegra, hvað lán deildarinnar eru með óhag- stæðum vaxtakjörum. Fyrir árið 1962 voru vextir af Byggingasjóðslánum 314% og af Ræktunarsjóðslónum 4%. Nú eru tilsvarandi lán með 6% og 614% vöxtum. Þar við bætist að bændur greiða í Stofn lónadeildina, eins og að framan segir, 1% gjald af búvörufram- leiðslunni og var sú greiðsla yfir 23 millj. kr. sl. ór. Skuldir bænda við Stofnlánadeildina, sem myndazt hafa síðan lögun- um var breytt 1962, eru um 660 milljónir króna. Má því segja að þsgar búvörugjaldið er tekið’ með, séu vextir af stofnlánun- um um 10%. Er því ekki að undra þó að bændur fari að átta sig á, hvað að þeim snýr. Er unnt að breyta þessum málum? Auðvitað er það hægt og það Frá mótsstjóm Skíðamóts ÍsL 1971 verður að gerast ef ekki á illa að fara fyrir bændastéttinni. En það er því aðeins hægt að nú- verandi valdahringur stjórn- málanna verði rofinn. Þeir sem nú halda um stjórnartaumana virðast engan skilning hafa á þessum málum. Telur þú að valdahlutföllin á Alþingi breytist við kosningarn ar í vor? Meirihluti sá, er styður nú- verandi ríkisstjórn, er veikur, svo veikur að hann má ekki missa einn mann, þá er stjórnin fallin. Ef við lítum á atkvæðatölur frá síðustu alþingiskosningum hér í kjördæminu sést að Fram sóknarflokkurinn þarf ekki að bæta miklu við til að fá 4 menn kjörna. Árið 1967 hlaut flokk- urinn 4525 atkv. eða 1131 atkv. á 4. mann. Sjálfstæðisflokkur- inn fékk 2999 atkv. eða tæp 1000 atkv. á 3. mann. Alþýðu- bandalagið hlaut 1571 atkv. en nú er það klofið, og eftir síð- ustu bæjarstjórnarkosningum að dæma virðist fylgi þess skipt ast nokkurn veginn jafnt milli hinna tveggja flokksbrota, þann ig að þau eru bæði úr leik. Al- þýðuflokkurinn hlaut 1357 at- kvæði, en í bæjarstjórnarkosn- ingunum tapaði hann miklu fylgi, sérstaklega á Akureyri. Bendir margt til þess, að hefðu þá farið fram kosningar til Al- þingis, hefði Alþýðuflokkurinn ekki haft fleiri atkvæði ó bak við fyrsta mann en Framsóknar flokkurinn á bak við sinn fjórða. í síðustu bæjarstjórnar- kosningum tapaði Alþýðuflokk- urinn allsstaðar fylgi, og ekkert hefur hann afrekað síðan, sem gefur tilefni til að ætla að hann vinni upp það tap, nema síður sé. í þessu kjördæmi stendur því baráttan á milli þessara flokka, og gæti farið eftir þeim úrslit- um, hvort ríkisstjórnin heldur velli eða ekki. Þetta þurfa bændur og aðrir frjálslyndir menn hér í kjör- dæminu að gera sér vel ljóst og láta ekki atkvæði sín falla dauð á Sjálfstæðisflokkinn eða annað hvort áðurnefndra flokksbrota. Varst þú ekki í framboði fyr- ir Alþýðubandalagið í kosning- unum 1963? Ég var það og taldi þá til- raun, sem þá var gerð til að sameina vinstri sinnað fólk í landinu, réttmæta. Síðan hefur Alþýðubandalagið klofnað og meir en það. Þarf ekki að rekja þá sögu. Ég er, fyrst og fremst, félagslega sinnaöur maður og á erfitt með að skilja að frjáls- lyndir menn verði sameinaðir með því að sundra þeim. Er ekki mál til koniið að við, sein vinnum hörðum höndum, fylkjum okkur saman og er það ekki eina leiðin til að rétta lilut okkar? Sú ríkisstjórn, sem setið hef- ur að völdum undanfarin 12 ár hefur, í raun og veru, setið í umboði sundraðra andstæðinga hennar. Það er kominn tími til að þeirri þrásetu linni. Ertu þá genginn í Framsókn- arflokkinn? Nei og óvíst að ég geri það. En ég er bóndi eins og þú veizt, og hvað geta bændur og þeirra fjölslcyldur kosið nú annað en Framsólcnarflokkinn, nema þá að kjósa á móti hagsmunum sínum. Og það sama gildir um allt lágtekjufólk í þéttbýlinu. Eða halda menn að tekjumun- urinn væri orðinn eins geigvæn legur og hann er nú, hefði vinstri sinnuð stjórn verið í landinu undanfarin ár? Dagur þakkar Stefáni við- talið. Ef margir hugsa eins og hann, þá er vorleysing í nánd í íslenzkum stjórnmálum. □

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.