Dagur - 21.04.1971, Blaðsíða 5
4
3
t
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Síroar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaðurr
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
FLOKKSÞINGIÐ
FIMMTÁNDA flokksþingi Fram-
sóknarmanna er lokið. Sú nýjnng
vakti athygli, að það var öllum opið,
sem fylgjast vildu með þingstörfun-
um, þótt kjörnir fulltrúar einir
hefðu þar atkvæðisrétt. Þá vakti það
athygli hve fjölmennt það var, þrátt
fyrir samgönguerfiðleika, og í þriðja
lagi hið feimnislausu skoðanaskipti,
sem eiga að einkenna hvern lvðræðis
legan stjómmálaflokk. Yfirgiips-
mikil og sköruleg í'æða flokksfor-
mannsins, Ólafs Jóhannessonar, í
Háskólabíói á föstudagskvöldið, gaf
viðstöddum sannarlega margvísleg
umhugsunarefni um stjórnmálavið-
horfið í landinu og um stefnu Frarn-
sóknarflokksins í hinum ýmsu mála-
flokkum. í fjórða lagi einkenndist
þingið af bjartsýni og áhuga á þeim
viðfangsefnum, sem framundan eru
og þegar hafin til undirbúnings al-
þingiskosninganna í vor.
Mörgum virðist ofarlega í huga sú
vonargleði andstæðinganna, að
Framsóknarflokkurinn væri að
klofna vegna hatrammra deilna inn-
an flokksins, milli hinna yngri og
eldri. Hafa blöð í Reykjavík og á
Akureyri verið margorð um það
mál. Umræður um svokallaðar
vinstri viðræður ungra manna við
Hannibalista voru opnar og gerði
formaður grein fyrir þeim í yfirlits-
ræðu sinni og síðan ungu mennimir
á fundum flokksþingsins. Ungir
menn í röðum Framsóknarflokksins
hafa ætíð verið vaxtarbroddur flokks
ins og eru það ennþá, og sá vaxtar-
broddur hefur um áratugi verið
áberandi á flestum eða öllum þing-
urn af þessu tagi. Nú eru í röðum
Framsóknarmanna fjölmargt af
ungu fólki, sem héfur kosið að hasla
sér þar völl, fremur en í öðrum flokk
um, og er það fólk svo sannarlega
ekki steypt í sama mót, hefur mikið
svigrúm innan flokksins, vegna frjáls
lyndrar og öfgalausrar stefnu flokks-
ins í fjölmörgum málurn. En flokk-
urinn hefur einnig fastmótaðar og
ákveðnar skoðanir í þýðingarmestu
málum lands og þjóðar og er ekki
einn af hentistefnuflokkum í íslenzk
um stjórnmálum. En grunntónninn
í stefnu Framsóknarflokksins frá
upphafi til þessa dags er þessi:
Framsóknarflokkurinn vill byggja
upp á íslandi sannkallað frjálst lýð-
ræðis- og menningarþjóðfélag efna-
lega sjálfstæðra manna, sem leysa
sameiginleg verkefni eftir leiðum
samtaka, samvinnu og félagshyggju.
Þjóðfélag, sem metur manngildi
meira en auðgildið. Og þar sem
vinnan, þekkingin og framtakið er
sett ofar og látið vega meira en auð-
dýrkun og fésýsla. O
ÖLL mín uppvaxtarár hafði ég
eyjuna fögru, Hrísey, fyrir aug-
unum og síðan er hún mér kær.
Hún hefur til forna verið skógi
og víði vaxin og af því hlotið
nafn sitt. Fjörðurinn hlaut svo
nafn af eyjunni og var nefndur
Eýjafjörður.
Fjallahringnum umhverfis
Eyjafjörð hefur oft verið sungið
verðugt lof, en sjálfur væri
fjörðurinn allur annar ef ekki
væri Hrísey í honum miðjum,
7—8 kílómetra löng frá norðri
til suðurs og 2.5 km. breið um
Miðbæ, en þar er hún breiðust.
Byggð var eyjan á landnáms-
öld og sennilega ætíð síðan. í
jarðabók Árna Magnússonar er
þess getið, að í eynni hafi Salt-
nes og Hvatastaðir um skeið
verið í eyði. Snemma á 14. öld
eða 1318 er þess getið í gömlum
máldögum, að Munkaþverár-
kirkja hafi átt að fá í eftirgjald
frá Hrísey 5 vættir af salti, auk
30 vætta af skreið. Gæti það
fljótt á litið bent til saltvinnslu.
En lengst af hafa bæirnir verið
tveir í Hrísey, Yzti- og Syðsti-
bær.
Frá Hrísey til vesturlandsins
eru um 3.5 km. og svipuð vega-
lengd austur til Látrastrandar.
Á kyrrum kvöldum heyrðist oft
hundgá frá eynni vestur yfir
sundið, einnig kýrbaul og svo
auðvitað skellirnir í mótorbát-
unum, og ég held, að einu sinni
hafi ég heyrt söng Hreins Páls-
sonar yfir fjörðinn, en hann
átti það til að syngja við vinnu
sína niðri á bryggju í Hrísey,
þar sem hann dvaldi um þetta
leyti, og þann söng hefði ég
viljað heyra á ný.
Stundum fórum við strákar
á árabáti til Hríseyjar og þótti
gaman. Þar var mikið um að
vera, sjósókn mikil, eins og þar
hefur jafnan verið, líka var þar
verzlun og þar voru haldin böll.
Marga Hríseyinga þekkti ég
um þetta leyti og man suma
sérstaklega vel. En flestir
þeirra, sem ég man bezt frá
æskuárum mínum, voru þá í
blóma lífsins eða aldraðir orðn-
ir og hafa nú safnazt til feðra
sinna. Meðal þeirra voru at-
hafnamenn miklir og sjógarpar,
félagsmálamenn og margir voru
sjómenn og bændur jöfnum
höndum. Afkomendur þessara
manna búa margir í Hrísey og
flutt út sjávarvörur fyrir um
35 milljónir króna. Er það all
ríflegur útflutningur 290 eyjar-
skeggja. Er þó sjaldan talað um
mikinn afla eða „uppgripatekj-
ur“ á þeim stað, síðan á síldar-
árunum, en þá færðist víða „líf
í tuskurnar“, sem kunnugt er.
Þá var Hrísey uppgangsstaður
hinn mesti, ögn í líkingu við
Siglufjörð, sem sló öll met í
ævintýrum útgerðar og peninga
flóðs, einnig á sviði lystisemda,
að því er sagt var. Margir kann
ast síðan við svar stúlkunnar,
sem var spurð, hvort hún hefði
verið á Siglufirði: Nei, en ég
hef verið í Hrísey, sagði hún.
En nú kveðjum við gamla tím
ann og bregðum okkur til eyj-
vinna þar mestallt árið. Nýlok-
ið er miklum endurbótum í
frystihúsinu. Og svo er alltaf
einhver vinna hjá hreppnum.
Hvar verzlið þið einkum?
Okkur tekst að eyða kaupinu
okkar þótt ekki sé nema ein
verzlun í eynni, en hana hefur
Kaupfélag Eyfirðinga. Utibús-
stjóri er Björgvin Jónsson. Átta
manns vinna að staðaldri við
verzlun og skrifstofustörf við
útibúið og hjá frystihúsinu. Oft
er talað um, að þar sem ein
verzlun sé á einhverjum stað,
ríki einokun í viðskiptunum.
Ekki er það svo hér í Hrísey.
Við höfum sama verð á vörum
og verzlanir KEA á Akureyri.
En hitt er rétt, að menn geta
Sigurður Finnbogason.
styggð. Og hér er miðstöð
þeirra rannsókna, sem undan-
farin ár hafa staðið yfir á lifn-
aðarháttum hennar. Hér koma
árlega fuglafræðingar og dvelja
langdvölum við störf sín. Okk-
ur er öllum farið að þykja vænt
um blessaðar rjúpurnar, énda
eru þær svo gæfar, að þær eta
með hænsnunum og vappa í
húsagörðum, alveg rólegar þótt
um sé gengið.
Eru nokkrir draugar i Hrís-
ey?
Draugar! Fólk talar lítið um
þá eða þau fyrirbæri, sem nefnt
er draugagangur eða þesshátt-
ar. Áreiðanlega verður fólk þó
vart við eitt og annað, heyrir
og sér það, sem ekki er auðvelt
hana sem allra fj'rst. En þá
verður hún ágæt fyrir fiskiskip.
Samgöngurnar?
Ferjubáturinn Sævar gengur
milli lands og eyjar þrjár fastar
ferðir í viku á sumrin, í sam-
bandi við áætlunarbíla, eða
„Dalvíkurrútuna“ til Akureyr-
ar. Á vetrum eru ferðirnar
tvær í viku. En auk þess er
ferjan ætíð viðbúi að fara auka-
ferðir þegar með þarf. Hilmar
Símonarson er ferjumaðurinn.
Auk þess eru svo ferðir Drangs.
Samgöngur mega því heita við-
unandi. En flugferðir höfum
við engar ennþá, því að til þe'ss
vantar flugvöllinn.
Hvernig er að eiga heima í
Hrísey?
HRÍSEY prvði Eviafi
arinnar. Sjálf er Hrísey hin
sama og fyrr, löng, ávöl, frá
sumum sjónarhólum lík risa-
hval, sem stendur botn. Á aust-
anverðri eyjunni eru sjávar-
hamrar, hæst er hún um miðj-
una norðanverða og þar er viti
og annar á Hrólfsskeri, norðan
eyjarinnar.
Og líklega er mannlífið líkt
því, sem fyrrum var, að
minnsta kosti lifir fólkið, sem
þar býr nú, eyjalífi eins og for-
feður þess, og þótt sjónvarp sé
í hverju húsi og tekjur meiri og
jafnari en áður, er sjórinn
stundaður af sama kappi og
áður, á vélknúnum bátum, en
sennilega myndu Hríseyingar
ekki leggjast eins þungt og
öruggt á árina, ef róa þyrfti,
eins og þeir gömlu gerðu.
Við ræðum að þessu sinni við
Sigurð Finnbogason fréttarit-
ara Dags í Hrísey og leggjum
fyrir hann hverja spurninguna
af annarri. Hann svarar greið-
lega og á honum er ekkert það
hik í samræðum, sem sagt er
einkenni þeirra, sem í eyjum
búa. Hann er frá Harðbak á
Sléttu.
ekki skokkað í aðra verzlun, ef
einhver vara þykir dýr í kaup-
félaginu, og fengið samanburð
á vöruverðinu.
Þið hafið auðvitað skóla fyrir
börn og unglinga?
Já, og skólastýra er Nanna
Þórsdóttir. Nemendur munu
vera um 60 talsins. Þess utan
er handavinna kennd í sérstök-
um tímum. Skólahúsið er orðið
nokkuð gamalt og það er orðið
allt of lítið og fullnægir ekki
kröfum tímans. Þyrfti því að
stækka það og bæta, sem allra
fyrst. Námsárangur verður
minni þar sem börn á mismun-
andi aldri og á mismunandi
þroskastigi verða að sitja sam-
an í bekk. Lauslega áætlað sýn-
ist mér skólakostnaður okkar á
hvern nemenda vera um 20
þúsund krónur.
Félagslíf?
Það er nú sennilega svipað
hér og í öðrum þorpum af svip-
aðri stærð. Hér eru starfandi
verkalýðsfélag, slysavarnafélag,
ungmennafélag og kvenfélag.
Oll gera þessi félög eitthvað á
sviði félagsmálanna. En við karl
mennirnir verðum víst að viður
Þessa mynd af norðanverðum Eyjafirði tók Snorri Snorrason yngri. Hrísey á miðri myndinni.
mynda kjarna þess samfélags,
sem þar er og vinnur við fram-
leiðslustörf á þéttbýlisstað eyj-
arinnar, í landi Syðstabæjar.
Enn sækja menn sjóinn en eru
nú held ég minni bændur en
fyrrum.
Og ekki þurfa Hríseyingar að
skammast sín fyrir iðjuleysi og
slæpingshátt, þótt þeim gefist
að vísu ríkulegar næðisstundir,
þegar veðurguðunum þóknast.
Á síðasta ári munu þeir hafa
Hvernig er atvinna í Hrísey?
Atvinna var almennt nægileg
frá því í marz í fyrra og þar til
í lok október í haust. Síðan hef-
ur vinna verið misjöfn og oft
stopul. Hér er frystihús, rekið
af Kaupfélagi Eyfirðinga og er
það auðvitað helzta lyftistöng
atvinnulífsins. Þar vinna hús-
mæðurnar, allar sem geta og
svo unglingarnir, þegar fiskast.
Og þar fær skólafólkið vinnu á
sumrin. En 12—15 karlmenn
kenna, að konurnar eru dug-
legri en við. Hér, eins og víða
annarsstaðar sannast það, að
kvenfélagið er duglegast. Kon-
urnar láta m. a. líknar- og menn
ingarmál til sín taka.
En mál málanna hér er auð-
vitað útgerðin?
Já, afkoma fólksins byggist á
henni, fyrst og fremst. Hér eru
9 þilfarsbátar, sex til tuttugu og
tvær lestir, og 8—10 opnir vél-
bátar. Svo er Frosti frá Skaga-
strönd, fimmtíu lesta bátur, að
bætast í hópinn. Eigandi er Al-
freð Konráðsson. Við þá báta,
sem hafa verið hér, vinna 35—
40 manns og hafa þeir sína af-
komu af því, sem þeir draga úr
sjó. Þessir bátar leggja svo hér
upp afla sinn, þar að auki Snæ-
fellið og svo ýmsir bátar af og
til.
En búskapurinn er orðinn
lieldur lítill í eynni?
Hann er mjög lítill, þó munu
um 80 kindur vera á fóðrum
hjá okkur í vetur samanlagt og
er það nú ekki mikið. Engin
kýr er hér lengur og heldur
enginn hestur, enginn hundur
en nokkrir helvízkir kettir.
Menn hafa dálítið af alifuglum,
einkum hænsn, en þó ekki nægi
legt fyrir staðinn, því að menn
eta ósköpin öll af eggjum. Nokk
ur garðrækt er stunduð, eink-
um kartöflurækt og leigir
hreppurinn út garðlönd handa
þeim, sem vilja. Við þurfum
lítið eða ekkert að kaupa af
kartöflum, þegar sæmilega
árar.
Tún eru töluvert stór og hafa
ekki verið nytjuð nema að tak-
mörkuðu leyti, síðan búskapur
minnkaði og er það náttúrlega
síður en svo búmannlegt að
eiga ónytjuð tún. En þessi tún
eru frá þeim tíma, er búskap-
urinn var almennur. Þá var
margt sauðfé í Hrísey og 26 kýr
þegar þær voru flestar. í sumar
heyjuðu bændur úr Grýtu-
bakkahreppi tún hér og fluttu
uppskeruna heim til sín. Þótti
okkur ánægjulegt, að grasið
varð einhverjum að gagni.
Það er jarðhiti í Hrísey?
Já, heldur betuf. Fyrir fjór-
um árurn var boráð eftir heitu
vatni, tvær holur, átutt frá þorp
inu. Þar streyma upp 10 lítrar
af 65—67 gráðu heitu vatni.
Verið er að rannsaka kostnað
við að koma upp hitaveitu, en
þeim rannsóknum er ekki lok-
ið. En sennilega líður ekki á
löngu þar til við fáum heitt
vatn í hvert hús óg verða það
góð umskipti. í fjörunni við
austanverða eyna er sjóðandi
vatn, og kemur sá staður upp
úr sjó á stórstraumsfjöru. Þar
segir sagan, að sjómenn hafi
soðið sér egg, er þeir tóku úr
varpinu. En í Yztabæjarlandi
hefur varp verið nokkurt.
Fyrir fáum árum var grafið
eftir köldu vatni, og náðist þá
ágætt neyzluvatn, hreint og
kalt.
Hrísey er paradís rjúpunnar?
Já, hún er það. Hér á rjúpan
griðland og er ekki skotin eða
að skýra. Sjálfur hef ég og mitt
fólk heyrt dularfullan umgang
í mínu húsi, en ekki held ég
það séu neinir draugar, a. m. k.
er þar ekkert illt á ferð, getur
alveg eins verið eltthvað gott
Það er sérstaklega friðsæll
staður, enginn hávaði af bílum
eða flugvélum, því að hér eru
aðeins tveir bílar og tvær skelli
nöðrur, og svo jarðýta og skurð
grafa. En eftir vinnutíma trufl-
Hríseyjarkirkja.
og það þykir rnér nú líklegra.
Jú, ég veit áð kona ein hefur
séð sama manninn tvisvar sinn-
um að minnsta kosti og kannski
óftar, í sama húsinu, þár sem
enginn lifandi rnaður var stadd-
ur, annar en hún sjálf. En fólk
talar lítið um þessháttar. Það
■ eru vissir hlútir, sem ekki er
■talað mikið úm,',eW eflaúst tölu-
vert hugsað um og undir það
heyra dulræn efni og pólitík,
svo dæmi sé neínt. En ■ þetta
stafar ekki af því, að Hrísey-
ingar séu einhverjir drumbar í
viðræðmn, öðru nær, eji sinn er
siður í landi hverju.
Embættismenn?
Já, við höfum auðvitað þkkar
embættismenn. Sóknarprestur-
inn okkar er séra Kári Valsson,
hreppstjóri er’ Björgvin Jóns-
son, oddviti er Garðar Sigur-
Pálsson og símastjórinn er frú
Lára Sigurjónsdþttir, allt ágæt-
isfólk.
Þið liafið sæmilcga höfn?
Höfnin er núýfremúr litil, en
hún er góð, ,nú brðið. Brýggju-
háusinn var vlengdur um 25
metra í sumar og var það mikil
bót. Á móti bryggjuhausnum er
hlaðinn hafnargárður, þannig
að hafnarmyniiið er ekki nema
35—40 metrar. Er höfnin því
súg- og öldulaus, en hún er of
grunn og þarf því að dýpka
ar enginn vélarhávaði, nema
hinn vrðkunnanlegi' og jafni
söngur bátavélanna, sem koma
og fara. Loftið er hreint og eng-
in mengun, enda er fólkið
hraust. Og hér í Hrísey er ákaf-
lega fagurt og mikið útsýni, og
umhverfið mjög breytilegt. En
þegar fjörðurinn er lognsléttur,
eins og spegill, girtur þessum
■ fagra fjallahring, veit ég ekkert
fegurra umhverfi. Fólkið er
traust óg gott í umgengni og
öllum .viðskiptum. Mér finnst
gott að eiga heima í Hrísey.
Hvemig er hið pólitíska and-
rúmsloft í Hrísey?
Við búum við ákaflega gott
og heilnæmt loft, eins og áður
sagði. Hið pólitíska loftslag er
nú aldrei eins hreint, finnst
mér. Og það er nú svo í Hrísey,
að íbúarnir ræða lítið um stjórn
málin og má telja þá fremur
dula í þeim efnum. Þetta litla
samfélag okkar er að ýmsu
leyti öðruvísi en ókunnugir
ímynda sér, t. d. að þessu leyti.
Nú eru menn pólitískir eins og
gengur og gerist, en mönnum
er það jafnframt ljóst, að deil-
ur, sem oft spretta af pólitísk-
um urhræðum, henta ekki vel,
fremur en aðrar deilur, þar sem
hver þarf að styðja annan ef
fólkinu á að líða vel. Ég er aust
an af Sléttu og þar var ékki
tíðkað að þegja um hlutina, en
þar er fremur strjálbýlt og
nokkuð veðrasamt og ósam-
komulag, ef eitthvert var,
veðraðist af manni milli bæja.
En fólkið fylgist með í stjórn-
málum hér í Hrísey, ekki síður
en annarsstaðar, og flestir
munu kjósa þegar þar að kem-
ur, hvort sem þeir láta það
uppi, hvern þeir kjósi. Og póli-
tískum forystumönnum er jafn-
an vel tekið hjá okkur, hver
svo sem í hlut á, og reynt er að
greiða götu allra, sem til okkar
koma.
Rólegt mannlíf?
Já, rólegt og indælt þegar hlé
er á sjósókn og fiskvinnslu.
Fáir eru taugaveiklaðir, held
ég, enda verða margir langlífir.
Menn eru yfirleitt sáttir við til-
veruna, heimta ekki allt af öðr-
um, vilja vera sinnar eigin
gæfusmiðir, með guðs hjálp og
í samvinnu um eitt og annað í
lífsbaráttunni.
Viltu segja eittlivað um fram
tíðina?
Flestir hugsa eitthvað um
framtíðina, um leið og þeir
vinna að verkefnum líðandi
stundar. Mér finnst þörf á fleira
fólki og ég er viss um, að hér
geta verið góð lífsskilyrði fyrir
miklu fleira fólk en nú er hér.
Fólkið hefur flest verið 306
manns, en er nú 290 manns. Má
segja, að fólksfjöldi standi í
stað síðustu árin, en hefði átt
að fjölga. Unga fólkið á að sjá
um það að sínu leyti, en við,
hinir eldri eigum að vinna fyrir
framtíðina og hagsæld yngri
kynslóðarinnar. Við reynum
það eftir megni. En það er nú
svo um búsetu manna, að ýmis-
konar atvik og ástæður ráða
henni. Fjölskyldur flytja hing-
að stundum, en ungt fólk giftir
sig oft burtu frá okkur. En við
ættum að vera fleiri hér. Við
þurfum að stækka bátana okk-
ar og framleiða meira til út-
flutnings, við gætum líka nýtt
landið á eynni miklu meira og
betur og svo þurfum við auð-
vitað að geta menntað unga
fólkið hér heima, meira en nú.
Ég ber ekki kvíðboga fyrir
framtíð Hríseyjar, til þess er
hún of vel sett með tilliti til
fiskveiða, sem er aðal atvinnu-
vegurinn. Eyjan hefur búið
börnum sínum góð lífsskilyrði,
og hvers vegna ættu þau þá
ekki að una þar? Og þar eru
enn miklir möguleikar ónotað-
ir, sem eru verðug verkefni dug
mikils fólks að fást við í fram-
tíðinni, segir Sigurður Finn-
bogason að lokum og þakka ég
honum svörin.
E. D.
A DAGSKRÁ
FYRSTA SKREFIÐ ÚT ÚR VÍTAHRINGNUM
„BONUS“-FYRIRKOMULAG
í SAMVINNUVERKSMIÐJUNUM?
ÞAÐ er kunnara cn frá þurfi
að segja, að á undapförnum ár-
um hefur of oft gætt gagn-
kvæmrar tortrýggni í skiptum
vinnuveitenda og launþega á
hinum íslenzka vinnumarkaði.
Hefur þetta m. a. komið þannig
fram, að gjarnan hefur óskum
launþega um kjarabætur verið
þegar í stað svarað með þeim
rökum, að atvinnuvegirnir
þyldu ekki kauphækkun, en
síðan hefur verkalýðshreyfing-
in gripið til ýmissa þeirra að-
gerða, er ásamt afstöðu vinnu-
veitenda hefur of oft leitt málin
inn í vítahring verkfalla og
sundurlyndis, sem skapað hafa
öllum aðilum tjón, sem e. t. v.
hefði mátt komast lijá, ef meiri
skilningur hefði ríkt af beggja
hálfu þegar í upphafi.
Það er ljóst, að það mundi
mjög verða til þess að skapa
bætt andrúmsloft í skiptum
launþega og atvinnurekenda, ef
fyrir lægi, að sú meginstefna
yrði höfð í fyrirrúmi, að laun-
þegar fengju að njóta á einn eða
annan hátt batnandi afkomu
viðkomandi atvinnurekstrar,
um leið og kröfum yrði stillt í
hóf þegar lakar gengur. Aðild
launþega að stjórn fyrirtækja
gæti verið einn þátturinn af
ýmsum öðrum til að korna slík-
um skilningi á, jafnhliða því
sem lilutlausar upplýsingar
væru veittar um hag atvinnu-
rekstrarins. Og slíkur skilning-
ur myndi að sjálfsögðu leiða til
kjarasanminga til lengri tímn
en nú tíðkast og aukinnar festii
i þjóðarbúskapnum.
Spurning er, hvort ekki væri
rétt fyrir samvinnuhreyfing •
una að taka það til alvarlegrai
athugunar að eiga frumkvæði n
þessum efnum og að ýmsu leyti
eru þegar fyrir hendi hjá sam ■
vinnuverksmiðjunum á Akur ■
eyri aðstæður til að kanna þess i
mál í fullri alvöru. Það vær
t. d. ekki óeðlilegt, að iðnverka ■
fólkið í samvinnuverksmiðjun •
um fengi að njóta þess, t. d. eft-
ir áramótauppgjör, ef hagur
verksmiðjanna hefur farið veru
lega batnandi. Mætti t. d. liugsti
sér, að iðnverkafólkið fengi
greidd viðbótarlaun í samræmi
við vinnu viðkomandi aðila a
árinu, og hluta af hagnaði varií
beinlínis i því sambandi. Auð ■
vitað kæmi slíkt ekki til grcina
þegar ekkert er til skipta og
uppbætur yrðu mismunandi fr:
ári til árs miðað við afkonu
verksmiðjunnar. Það þarf ekkj
að fara mörgum orðum un\
hversu slíkt skipulag mundi
hafa Iivetjandi áhrif á storfhi
og yrði til þess að skapa nýtt og
hressandi andrúmsloft í skipt'
um stjórnenda og launþega. Acl
sjálfsögðu eru á þessu málá
margar hliðar, sem þarf afci
ræða og kanna, en það væri veil
ef forystumenn samvinnuhreyf ■
ingarinnar könnuðu þetia mál
og hreyfðu því við iðnverka-
(Framhald á blaðsíðu 2)
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
ár skrifa þeir Grímur B. Jóns-
son, Páll Sigbjörnsson, Egill
Jónsson og Stefán Aðalsteins-
son. Þá er grein urn sauðfjár-
ræktarfélögin árið 1967—68 eft-
ir Svein Ilallgrímsson og Olaf-
ur E. Stefánsson tekur saman
skýrslur nautgriparæktarfélag-
anna fyrir árið 1968. Síðast, en
ekki sízt, er svo mikil grein,
myndskrcytt, um landbúnaðar-
sýninguna 1968, eftir Agnar
Guðnason.
Þá liefur blaðinu borizt Skin-
faxi, tímarit Ungmennafélags fs
Iands, 1. hefti 1971, sem er 62.
árg. ritsins. Efni ritsins er fjöl-
breytt, þar er m. a. grein um
Héraðssambandið Skarphéðin
60 ára, viðtal við Jóhannes Sig-
mundsson, forrn. HSK og Þóri
Þorgeirsson, íþróttakennara á
Laugarvatni. Grein er um sund
og sagðar eru fréttir af starfi
ungmennafélaganna. Margt
fleira efni er í Skinfaxa. Rit-
stjóri er Eysteinn Þorvaldsson.
Helgi Rðfn Offesen
KVEÐJA
frá foreldrmn og öðrum ástvinum
Hve skjótt hér hefur skugga yfir borið
við skapadóm?
Hví brást það okkar björtu vonum, vorið?
Hví varð hér tóm?
Hve óvænt liefur bjartur strengur brostið
og brotnað knör,
og sár og þungur harmur hugi lostið
við heimanför.
Þú óskason og elskulegi bróðir
um ævistund
æ heill og prúður gekkst um gæfuslóðir
og græddir und.
Og hvar sem fórstu brosti geisli glaður
og greri rós.
Þú varst sem vori hæfði vorsins maður
og vannst þér þrós.
Þú varst hin dýra gjöf af Guði þegin,
þú geislans barn.
Þín minning breiðir blómstur yfir veginn
og birtú a hjarn.
Hún í sér felur Ijós og læknisdóma
og ljúfan yl,
og þannig verður angan ungra blóma
imi cilífð til.
Að baki vetrar bíður vorsins yndi
— þess bjarta rós.
Þér englar drottins sveig úr blómum bindi
við blæ og ljós,
J. Ó.
I