Dagur - 16.06.1971, Page 6

Dagur - 16.06.1971, Page 6
6 frá stjórn Náttúruverndarsamtaka Austurlands STJÓRN Náttúruverndarsam- taka Austurlands leyfir sér hér á eftir að benda á fáein brýn viðfangsefni og ýmislegt, sem aflaga fer: Mjög víða í þéttbýli er um- gengni ósæmileg. Það má ekki gerast lengur, að sorpi sé ekið í sjó eða á fjör- ur, í ár og læki eða því sé safn- að í hauga á víðavangi. Sveitar- félög þyrftu hið bráðasta að taka fyrir slíkt og athuga mögu leika á samvinnu um sorpeyð- ingu. Umhverfis atvinnufyrirtæki er víða safnað ódæmum af ónýtu eða þarflitlu drasli til mikillar óprýði og skaða fyrir umhverfið. Lóðir við íbúðarhús eru tíð- um ófrágengnar árum og ára- tugum eftir að húsin eru tekin í notkun og hið sama gerist jafn vel við opinberar byggingar. Slíkt umhverfi verður aldrei vistlegt og setur frumbýlings- brag á byggðirnar. Viðhald húsa, lóða og ann- arra mannvirkja setur víða á hakanum meira en góðu hófi gegnir til tjóns fyrir eigendur og lýta á umhverfinu. Ónýtar eða niðurníddar girð- ingar og skúrbyggingar sjást víða í þéttbýli eða næsta ná- grenni þess. Ur öllum þessum atriðum og fleiri ótöldum má bæta á skömmum tíma með góðum vilja og samvinnu sveitar- stjórna og almennings. Austfirðingar! Gerum þétt- býli okkar og nágrenni þess aðlaðandi fyrir okkur sjálfa og þá sem okkur heimsækja. Um umhverfi í sveitum gildir margt hið sama og í þéttbýli. Ábyrgð bænda sem landeigenda er þó margfalt meiri en fólks á mölinni. Hirðuleysi og slæm umgengni til sveita stingur ekki síður í auga en í þéttbýli. Alltof víða er umhverfi sveita býla lýtt stórlega með alls kyns drasli, vélum og vélarhlutum á dreif. Niðurníddar girðingar og gripahús eru engum til gagns eða sóma. Brúsapallar, vegvísar, hlið og heimreiðar geta verið smekkleg og fallið að umhverfinu, ef til er vandað. Gæta þarf varúðar við allt jarðrask, ræktun, sandnám og malartekju, þannig að ekki verði grandað sérkennilegu landslagi, gróðursvæðum, jarð- myndunum eða fornum minj- um. Ábyrgð þeirra, sem fyrir vegagerð standa, er mikil í þess um efnum. Lögum samkvæmt er öllum, er jarðraski valda, skylt að ganga frá því á snyrtilegan hátt, og eftir vegagerð ber að græða úpp jarðvegssár. Ekki er sama, hver og hvern- ig reistar eru benzínstöðvar, söluturnar eða sumarbústaðir. Olía, frárennsli og sorp frá slík- um mannvirkjum geta verið hættulegir mengunarvaldar. Samkvæmt nýsettum náttúru verndarlögum má ekki reisa slík mannvirki á óskipulögðum svæðum nær sjó en 150 metra Umboðsmannafundur hjá Samvinnufryggingum S AM VINNUTRY GGIN G AR efndu til fundar með forstöðu- mönnum nokkurra stærstu um- boða sinna, dagana 31. marz — 2. apríl sl. Fundarform var með nýju sniði, og byggðist á hringborðs-... umræðum og fyrirspurnaformi. Ræddu umboðsmenn fyrst saman innbyrðis og báru saman , bækur, um hin ýmsu vandamál umboðanna, svo og þau mál, sem efst eru á baugi. Fengu þeir síðan til viðræðu þá starfs- menn, sem um þessi mál fjalla, og beindu til þeirra fyrirspurn- um og ábendingum, og voru - Flókin staða (Framhald af blaðsíðu 4) flokkanna óski nýrrar stjórn- arstefnu af heilum huga, þar sem landhelgismálið sé tekið föstum tökum og hiklausum, efnahagsmálin endurskoðuð í heild og þjóðartekjunum réttlátlegar skipt en verið hefur síðasta áratuginn. Forseti íslands annast nú að sínum hluta myndun nýrrar ríkisstjórnar hér á landi, en stjórnmálaflokk- arnir rannsaka hina flóknu stöðu, sem upp er komin á taflborði stjómmálanna. Við vonum öll, að vel takist til um framhaldið. □ málin raedd af einurð og hrein- : skilni. , Nýjungar á sviði trygginga yoru kynntar umboðsmönnum m. a. iðgjöld og skilmálar hinn- ar; nýju sjúkra- og slysatrygg- ingar. . Með fundum þessum er leit- a?t við ,að auka fræðslu, koma á nánara samstarfi, kynnast markaðinum og svara þörf lians. Að loknum fundi þáðu um- boðsmenn veitingar hjá fram- kvæmdastjórn á heimili hans, en snæddu síðan kvöldverð í Naustinu, ásamt starfsmönnum, er mætt höfðu á fundinum, og lauk þar með heimsókn þeirra að sipni. Umboðsmenn, sem fundinn sátu, voru: Frá Akranesi: Sveinn Guð- mundsson. Frá Borgarnesi: Jón Einarsson. Frá Grundarfirði: Jónas Gestsson. Frá Patreks- firði: Svavar Jóhannsson. Frá ísafirði: Þorgeir Hjörleifsson. Frá Sauðárkróki: Geirmundur Jónsson. Frá Akureyri: Sig- mundur Björnsson. Frá Húsa- vík: Þormóður Jónsson. Frá Egilsstööuro: Magnús Ingólfs- son. Frá Hvolsvelli: Guðni Jó- harínsson. Frá Selfossi: Karl J. Eiríks. Frá Keflavík: Þórir Gunnarsson. Frá Hafnarfirði: Sigurður Gunnarsson. Frá Blönduósi: Ari G. Guðmunds- son. eða nær ám eða stöðuvötnum en 100 metra frá vatnsborði. Leyfi sveitarstjórna og um- sögn náttúruverndarnefnda þarf að koma til, áður en heim- ilt er að reisa sumarbústaði. Eigendum jarða, sem fara í eyði, er skylt að ganga svo frá mannvirkjum, að ekki stafi hætta af eða teljist til lýta. Hvar sem er á landinu þarf ferðafólk og heimamenn að minnast kjörorðsins: Hreint land er fagurt land. Villt dýralíf og gróður er meðal dýrmætustu auðæfa landsins. Völdum hvergi óþarfa truflun á lífríkinu. Minnumst laga um friðun fugla og gróður- vernd. Sveitarstjórnir og aðrir þyrftu að auðvelda ferðafólki dvöl og góða umgengni með því að koma upp tjaldstæðum með hreinlætisaðstöðu í hverju sveitarfélagi. Obyggðir á hálendi Islands eru þjóðareign og dýrgripur, sem allir verða að sameinast um að varðveita. Þær eru jafn- vel enn viðkvæmari fyrir raski og sóðaskap en byggðirnar á láglendi. Ferðafólk og starfs- menn á hálendi íslands. Forð- izt allan þarflausan akstur utan merktra bílaslóða. Sérhvers sár er þar lengi að gróa. Reyðarfirði, 2. maí 1971 í stjórn Náttúruverndarsamtaka Austurlands Hilmar Bjarnason. Hjörleifur Guttormsson. Sigfús Kristinsson. Sigurður Blöndal. Völundur Jóhannesson. Tilboiítóskast í 3ja tonna TRILLUBÁT með 16 ha. Sabb-vél og Simrad dýptarmæli. Nánari nppl. í síma 6-17-42 og 6-17-07, Hrísey. Til sölu: Nýtt Bochs OLÍUVERK fyrir 2ja cyb vél og nýr Ferro- graph dýptarmælir. Einnig nýupptekin, 27 iha. Lister F.R.3 bátavél, ásamt skrúfubúnaði og þorskanót, 80x12 faðrn- ar. Uppl. í síma 1-19-22, eftir kl. 8 á kvöldin. TRILLA óskast til leigu — í góðu lagi og með dýptarmæli — í ca. 2 mánuði. Uppl. í síma 6-13-72. PÚÐABORÐ, svart, sporöskjulagað, ísaumað gulu og grænu, mjög gamalt, var í misgripum afgreitt út frá okkur fyr- ir um mánuði. — Vin- samlegast skilist sem allra fyrst gegn þóknun. Gufupressan, Skipagötu 12. Ung, barnlaus hjón óska eftir 2ja lierbergja ÍBÚÐ strax. / Uppl. í síma 2-11-45. SKODA OCTAVIA Super, árg. ’64, til sölu. Mjög góður bíll. Uppl. í síma 4-12-64, eftir kl. 7 á kvöldin. Til sölu er FIAT 1100, árg. 1960, selst ódýrt. Uppl. í síma 2-17-65. Til sölu bifreiðin A-1095 - TAUNUS 12 M, station, árg. ’66. Mjög vel með farin. U]>])!. í síma 1,23-19. Til sölu A-1024, FIAT 850, árg. ’66. Lítið ek- inn. Uppl. í síma 1-20-68, Lórenz Halldórsson. HÚSASMIÐUR óskast nú þegar eða síðar eftir samkonrulagi. Uppl. í síma 1-25-36. TAPAÐ! PÁFAGAUKUR, grænn að lit, lítið eitt stærri en skógarþröstur, tapaðist frá Þingivallastr. 31. Hefur sézt í trjám í Mýrahverfi. — Finnandi ln ingi í síma 1-24-84. Há fundarlaun. YFIRTENGI af dráttar- vél tapaðist á leiðinni Akureyri—Vaðlaheiði. Finnandi hringi í síma 1-10-47. Týndur er svartur KÖTTUR (högni) rneð hvíta bringu og hvíta leista á fótunr. Finnandi vinsamlega hringi í síma 1-15-63. FÉLAGSMENN í KRABBAMEINSFÉLAGI AKUREYRAR Góðfúslega athugið, að félagsgjöldum er veitt móttaka á skrifstofu Sjúkrasamlags Akureyrar. Þar geta nýir félagar einnig látið innrita sig. KRABBAMEÍNSFÉLAG AKUREYRAR. Mótorpaknmgar fyrirliggjandi í CHEVROLET, OPEL, JEPPA, VOLVO, TAUNUS, SKODA, MOSKVITCH o. fl. ÞÓRSHAMAR H.F. - Akureyri SÍMI 96 1-27-00 BIFREIÐAEIGENDUR! - BIFREIÐAVERKSTÆÐI! Eigum nií fyrirliggjandi hina viðurkenndu MONRO-MATÍC TVIVIRKU HÖGGDEYFA í: :, - tií' CHEVROLET VAUXHALL VOLVO FORD RAMBLER DODGE ROVER OPEL ÞÓRSHAMAR H.F. AKUREYRI. Sími 1-27-00. WILLY’S ', : VOLKSWAGEN BENZ , t TAUNUS . ' REO-STUDEBAKER SKODA MOSKVITGH O. FL.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.