Dagur - 16.06.1971, Blaðsíða 6
6
frá stjórn Náttúruverndarsamtaka Austurlands
STJÓRN Náttúruverndarsam-
taka Austurlands leyfir sér hér
á eftir að benda á fáein brýn
viðfangsefni og ýmislegt, sem
aflaga fer:
Mjög víða í þéttbýli er um-
gengni ósæmileg.
Það má ekki gerast lengur,
að sorpi sé ekið í sjó eða á fjör-
ur, í ár og læki eða því sé safn-
að í hauga á víðavangi. Sveitar-
félög þyrftu hið bráðasta að
taka fyrir slíkt og athuga mögu
leika á samvinnu um sorpeyð-
ingu.
Umhverfis atvinnufyrirtæki
er víða safnað ódæmum af
ónýtu eða þarflitlu drasli til
mikillar óprýði og skaða fyrir
umhverfið.
Lóðir við íbúðarhús eru tíð-
um ófrágengnar árum og ára-
tugum eftir að húsin eru tekin
í notkun og hið sama gerist jafn
vel við opinberar byggingar.
Slíkt umhverfi verður aldrei
vistlegt og setur frumbýlings-
brag á byggðirnar.
Viðhald húsa, lóða og ann-
arra mannvirkja setur víða á
hakanum meira en góðu hófi
gegnir til tjóns fyrir eigendur
og lýta á umhverfinu.
Ónýtar eða niðurníddar girð-
ingar og skúrbyggingar sjást
víða í þéttbýli eða næsta ná-
grenni þess.
Ur öllum þessum atriðum og
fleiri ótöldum má bæta á
skömmum tíma með góðum
vilja og samvinnu sveitar-
stjórna og almennings.
Austfirðingar! Gerum þétt-
býli okkar og nágrenni þess
aðlaðandi fyrir okkur sjálfa og
þá sem okkur heimsækja.
Um umhverfi í sveitum gildir
margt hið sama og í þéttbýli.
Ábyrgð bænda sem landeigenda
er þó margfalt meiri en fólks á
mölinni. Hirðuleysi og slæm
umgengni til sveita stingur ekki
síður í auga en í þéttbýli.
Alltof víða er umhverfi sveita
býla lýtt stórlega með alls kyns
drasli, vélum og vélarhlutum á
dreif.
Niðurníddar girðingar og
gripahús eru engum til gagns
eða sóma.
Brúsapallar, vegvísar, hlið og
heimreiðar geta verið smekkleg
og fallið að umhverfinu, ef til
er vandað.
Gæta þarf varúðar við allt
jarðrask, ræktun, sandnám og
malartekju, þannig að ekki
verði grandað sérkennilegu
landslagi, gróðursvæðum, jarð-
myndunum eða fornum minj-
um.
Ábyrgð þeirra, sem fyrir
vegagerð standa, er mikil í þess
um efnum.
Lögum samkvæmt er öllum,
er jarðraski valda, skylt að
ganga frá því á snyrtilegan
hátt, og eftir vegagerð ber að
græða úpp jarðvegssár.
Ekki er sama, hver og hvern-
ig reistar eru benzínstöðvar,
söluturnar eða sumarbústaðir.
Olía, frárennsli og sorp frá slík-
um mannvirkjum geta verið
hættulegir mengunarvaldar.
Samkvæmt nýsettum náttúru
verndarlögum má ekki reisa
slík mannvirki á óskipulögðum
svæðum nær sjó en 150 metra
Umboðsmannafundur hjá
Samvinnufryggingum
S AM VINNUTRY GGIN G AR
efndu til fundar með forstöðu-
mönnum nokkurra stærstu um-
boða sinna, dagana 31. marz —
2. apríl sl.
Fundarform var með nýju
sniði, og byggðist á hringborðs-...
umræðum og fyrirspurnaformi.
Ræddu umboðsmenn fyrst
saman innbyrðis og báru saman ,
bækur, um hin ýmsu vandamál
umboðanna, svo og þau mál,
sem efst eru á baugi. Fengu
þeir síðan til viðræðu þá starfs-
menn, sem um þessi mál fjalla,
og beindu til þeirra fyrirspurn-
um og ábendingum, og voru
- Flókin staða
(Framhald af blaðsíðu 4)
flokkanna óski nýrrar stjórn-
arstefnu af heilum huga, þar
sem landhelgismálið sé tekið
föstum tökum og hiklausum,
efnahagsmálin endurskoðuð
í heild og þjóðartekjunum
réttlátlegar skipt en verið
hefur síðasta áratuginn.
Forseti íslands annast nú
að sínum hluta myndun
nýrrar ríkisstjórnar hér á
landi, en stjórnmálaflokk-
arnir rannsaka hina flóknu
stöðu, sem upp er komin á
taflborði stjómmálanna. Við
vonum öll, að vel takist til
um framhaldið. □
málin raedd af einurð og hrein-
: skilni.
, Nýjungar á sviði trygginga
yoru kynntar umboðsmönnum
m. a. iðgjöld og skilmálar hinn-
ar; nýju sjúkra- og slysatrygg-
ingar.
. Með fundum þessum er leit-
a?t við ,að auka fræðslu, koma
á nánara samstarfi, kynnast
markaðinum og svara þörf
lians.
Að loknum fundi þáðu um-
boðsmenn veitingar hjá fram-
kvæmdastjórn á heimili hans,
en snæddu síðan kvöldverð í
Naustinu, ásamt starfsmönnum,
er mætt höfðu á fundinum, og
lauk þar með heimsókn þeirra
að sipni.
Umboðsmenn, sem fundinn
sátu, voru:
Frá Akranesi: Sveinn Guð-
mundsson. Frá Borgarnesi: Jón
Einarsson. Frá Grundarfirði:
Jónas Gestsson. Frá Patreks-
firði: Svavar Jóhannsson. Frá
ísafirði: Þorgeir Hjörleifsson.
Frá Sauðárkróki: Geirmundur
Jónsson. Frá Akureyri: Sig-
mundur Björnsson. Frá Húsa-
vík: Þormóður Jónsson. Frá
Egilsstööuro: Magnús Ingólfs-
son. Frá Hvolsvelli: Guðni Jó-
harínsson. Frá Selfossi: Karl J.
Eiríks. Frá Keflavík: Þórir
Gunnarsson. Frá Hafnarfirði:
Sigurður Gunnarsson. Frá
Blönduósi: Ari G. Guðmunds-
son.
eða nær ám eða stöðuvötnum
en 100 metra frá vatnsborði.
Leyfi sveitarstjórna og um-
sögn náttúruverndarnefnda
þarf að koma til, áður en heim-
ilt er að reisa sumarbústaði.
Eigendum jarða, sem fara í
eyði, er skylt að ganga svo frá
mannvirkjum, að ekki stafi
hætta af eða teljist til lýta.
Hvar sem er á landinu þarf
ferðafólk og heimamenn að
minnast kjörorðsins: Hreint
land er fagurt land.
Villt dýralíf og gróður er
meðal dýrmætustu auðæfa
landsins. Völdum hvergi óþarfa
truflun á lífríkinu. Minnumst
laga um friðun fugla og gróður-
vernd.
Sveitarstjórnir og aðrir
þyrftu að auðvelda ferðafólki
dvöl og góða umgengni með því
að koma upp tjaldstæðum með
hreinlætisaðstöðu í hverju
sveitarfélagi.
Obyggðir á hálendi Islands
eru þjóðareign og dýrgripur,
sem allir verða að sameinast
um að varðveita. Þær eru jafn-
vel enn viðkvæmari fyrir raski
og sóðaskap en byggðirnar á
láglendi. Ferðafólk og starfs-
menn á hálendi íslands. Forð-
izt allan þarflausan akstur utan
merktra bílaslóða. Sérhvers sár
er þar lengi að gróa.
Reyðarfirði, 2. maí 1971
í stjórn Náttúruverndarsamtaka
Austurlands
Hilmar Bjarnason.
Hjörleifur Guttormsson.
Sigfús Kristinsson.
Sigurður Blöndal.
Völundur Jóhannesson.
Tilboiítóskast í 3ja tonna
TRILLUBÁT með 16
ha. Sabb-vél og Simrad
dýptarmæli.
Nánari nppl. í síma
6-17-42 og 6-17-07,
Hrísey.
Til sölu: Nýtt Bochs
OLÍUVERK fyrir 2ja
cyb vél og nýr Ferro-
graph dýptarmælir.
Einnig nýupptekin, 27
iha. Lister F.R.3 bátavél,
ásamt skrúfubúnaði og
þorskanót, 80x12 faðrn-
ar.
Uppl. í síma 1-19-22,
eftir kl. 8 á kvöldin.
TRILLA óskast til leigu
— í góðu lagi og með
dýptarmæli — í ca. 2
mánuði.
Uppl. í síma 6-13-72.
PÚÐABORÐ, svart,
sporöskjulagað, ísaumað
gulu og grænu, mjög
gamalt, var í misgripum
afgreitt út frá okkur fyr-
ir um mánuði. — Vin-
samlegast skilist sem
allra fyrst gegn þóknun.
Gufupressan, Skipagötu
12.
Ung, barnlaus hjón óska
eftir 2ja lierbergja ÍBÚÐ
strax. /
Uppl. í síma 2-11-45.
SKODA OCTAVIA
Super, árg. ’64, til sölu.
Mjög góður bíll.
Uppl. í síma 4-12-64,
eftir kl. 7 á kvöldin.
Til sölu er FIAT 1100,
árg. 1960, selst ódýrt.
Uppl. í síma 2-17-65.
Til sölu bifreiðin A-1095
- TAUNUS 12 M,
station, árg. ’66. Mjög
vel með farin.
U]>])!. í síma 1,23-19.
Til sölu A-1024, FIAT
850, árg. ’66. Lítið ek-
inn.
Uppl. í síma 1-20-68,
Lórenz Halldórsson.
HÚSASMIÐUR óskast nú þegar eða síðar eftir samkonrulagi. Uppl. í síma 1-25-36.
TAPAÐ! PÁFAGAUKUR, grænn að lit, lítið eitt stærri en skógarþröstur, tapaðist frá Þingivallastr. 31. Hefur sézt í trjám í Mýrahverfi. — Finnandi ln ingi í síma 1-24-84. Há fundarlaun.
YFIRTENGI af dráttar- vél tapaðist á leiðinni Akureyri—Vaðlaheiði. Finnandi hringi í síma 1-10-47.
Týndur er svartur KÖTTUR (högni) rneð hvíta bringu og hvíta leista á fótunr. Finnandi vinsamlega hringi í síma 1-15-63.
FÉLAGSMENN í
KRABBAMEINSFÉLAGI AKUREYRAR
Góðfúslega athugið, að félagsgjöldum er veitt
móttaka á skrifstofu Sjúkrasamlags Akureyrar.
Þar geta nýir félagar einnig látið innrita sig.
KRABBAMEÍNSFÉLAG AKUREYRAR.
Mótorpaknmgar
fyrirliggjandi í CHEVROLET, OPEL, JEPPA,
VOLVO, TAUNUS, SKODA, MOSKVITCH
o. fl.
ÞÓRSHAMAR H.F. - Akureyri
SÍMI 96 1-27-00
BIFREIÐAEIGENDUR! -
BIFREIÐAVERKSTÆÐI!
Eigum nií fyrirliggjandi hina viðurkenndu
MONRO-MATÍC
TVIVIRKU HÖGGDEYFA í:
:, - tií'
CHEVROLET
VAUXHALL
VOLVO
FORD
RAMBLER
DODGE
ROVER
OPEL
ÞÓRSHAMAR H.F.
AKUREYRI.
Sími 1-27-00.
WILLY’S ', :
VOLKSWAGEN
BENZ , t
TAUNUS . '
REO-STUDEBAKER
SKODA
MOSKVITGH
O. FL.