Dagur - 01.09.1971, Blaðsíða 1

Dagur - 01.09.1971, Blaðsíða 1
HÉR á Akureyri hafa götur verið malbikaðar samkvæmt þéirri áætlun, er um það var gérð og mun nú framkvæmdum lökið.' • Malbikaðir voru tveir kíló- metrar eða tuttugu þúsund fer- metrar samtals. Þessar götur voru malbikað- ar: Byggðavegur 210 m., Trj'ggvabraut 530 m., Langa- hlíð og Höfðahlíð 800 m., Skóla- stígur 350 m. og Möðruvalla- stræti 140 m. Fagna ber því, þegar áætlanir standast, en áætlanirnar voru auðvitað mjög takmarkaðar, svo að Akureyri er jafn mikill ryk- og forarbær og hann hefur lengi verið vegna þess að varan- legt slitlag vantar enn á mestan hluta gatnanna. .□ Fé fennti og rafiínur slifnuðu Reykjahlíð 30. ágúst. í þessum hreppi varð úrkoman í norðan- hretinu 52 mm. á tveim sólar- hringum, sem er óvenju mikið hér. Símalínur slitnuðu og staur ar brotnuðu vegna ísingar. Raf- línustaurar brotnuðu í Hofs- staðaheiði, en lögðust út af í mýrlendi þar sem verst fór. Urðu því margir bæði rafmagns og símalausir. Nú hefur verið gert við þetta og fengu síðustu bæirnir rafmagn í gær. Þetta vonda norðanáhlaup kom á afmæli Miðkvíslar- atburðarins í fyrra. Fé hefur fundizt dautt og einnig hefur það náðzt lifandi úr fönn, svo sem norður í Reykjahverfi og hér í sveit á Gautlöndum og Stöng. Hætt er við slæmum heimtum í haust af völdum þessa vonda hrets. Hey eru ekki úti svo teljandi sé en bændur áttu eftir að slá síðari slátt. Búnaðarfélagið gekkst fyrir félagsræktun í Hofsstaðaheiði fyrir þá bændur, er minnst hafa túnin og vantar ræktanleg lönd heima hjá sér. Þetta nýja tún er 75 hektarar og var heyjað í fyrsta sinn nú í sumar, og feng- ust af því um þrjú þús. hestar heys. Innan sveitar lokuðust ekki vegir af snjó, þótt talsverður snjór væri. P. J. Barnaskóli Akureyrar. (Ljósm.: E. D.) Barnaskóli Akureyrar 100 ára SYNINC OPNUÐ I SKOLANUM A FOSTUDAG Byrjað á nýrri Glerárbrú TUTTUGU manna vinnuflokk- ur brúarsmiða undir stjórn Hauks Karlssonar, hefur búið um sig við Glerárbrú hina neðstu. Þar á að byggja nýja brú, 27 metra breiða, með hand- riði í miðju og gangbrautum. Fyrst verða byggðir nýir brú- arstöflar austan gömlu brúar- innar og þar komið upp akfærri brú á. Síðan verður gólf brúar- innar, sem er laust, fært til og annað steypt. Gert er ráð fyrir, að brúar- smíðin taki þrjá mánuði, en það fer þó mjög eftir veðráttu hve vel verkið gengur. Gamla Gler- árbrúin, sem vísar skakkt við götur þær, er að henni liggja, er hættuleg og of mjó. Er gleði- efni að úr þessu verður nú bætt með nýrri brú. □ BARNASKOLI AKUREYRAR er 100 ára og hin opinbera barnafræðsla er álíka gömul hér í bæ. Út er að koma bók um barnafræðsluna og barnaskól- ana í bænum af þessu tilefni. Afmælis Barnaskólans hefur verið minnzt á margvíslegan hátt, en einn þáttur í því er sýning, sem opin er almenningi á föstudaginn kl. 2—4, og á laug ardag og sunnudag kl. 4—7 e. h. Sýningin er þrískipt. í einni Kjördæmisþing að Laugum KJÖRDÆMISÞING Framsókn- artnanna í Norðurlandskjör- dæmi eystra hefst á Laugum í Reykjadal 4. september og lýk- ur næsta dag. En hinn 3. sept- ember verður stjórnarfundur samtakanna. Framsóknarfélögin í kjör- dæminu hafa þegar kosið full- trúa sína á þingið. Kjördæmisþingin hafa oftazt verið haldin í Laugaskóla, fyrst árið 1960, er kjördæmissam- bandið var stofnað, og hefur það þótt ákjósanlegur þingstað- ur samtakanna. □ deildinni er sýning á sögu skól- ans, í annarri deild er sýnt hvernig skólinn er nú, og í þriðju deildinni eru gamlar vinnubækur nemenda og margs konar annarr fróðleikur. Á sýningunni í Barnaskólan- um eru sögulegar myndir, yngri og eldri, teikningar nemenda, raddir kennara og skólastjóra á segulböndum, kvikmyndir, söng upptökur af kórum skólans, blaðaútgáfan, vinnubækurnar, kennslubókasafn, smíðisgripir og margt annað úr skólastarf- inu, sem fjölmargir hafa eflaust gaman af að kynna sér. Efri hæðir barnaskólahússins eru sem nýjar, málaðar, dúk- lagðar og lýstar og umhverfi skólans er stöðugt endurbætt. Skólastjóri ér Tryggvi Þor- steinsson, og hefur hann sett sýningu þessa upp. Til gamans má geta þess, að 1865 lagði B. A. Steincke það til í sveitarstjórn hér, að fátæk- ustu börnunum á Akureyri væri kennt að lesa, þeim án kostnaðar. Það náði ekki fram að ganga, en mun þó hafa átt sinn þátt í því, að barnaskóli komst á laggirnar litlu síðar. □ Fé fennti á Hólsfjöllum Grímsstöðum á Fjöllum 30. ágúst. Snjór liggur yfir allt enn- þá, en veður er mildara og að- gerðarlítið. Nú er búið að opna Austurlandsveg og vegurinn til Vopnafjarðar er talinn fær jepp um og stærri bílum. Axarfjarð- arheiði mun hafa verið opnuð í gær. Komið hefur í ljós, að fjár- skaðar hafa orðið, en enginn veit hve miklir þeir eru. Bónd- inn á Nýhóli dró fé úr fönn í stríhríðinni. Þetta kemur ekki í ljós fyrr en í göngum. Heyskap var allsstaðar lokið, að heita má, aðeins uppsett hey úti. Þetta var gott heyskapar- sumar. K. S. Bændadagur Eyiirðinga Nú er vciðitíma í ám og vötnum að Ijúka. Þessi mynd er frá Bægisárliyl. (Ljósm.: E. D.) BÆNDADAGUR Eyfirðinga, sem ákveðið hafði verið að halda síðasta sunnudag í júlí, en var frestað, er nú ákveðinn en með breyttu sniði vegna þess hve áliðið er sumars og erfitt um vik með útisamkom- ur. Verður því aðeins kvöld- samkoma að þessu sinni. Fer hún fram í félagsheimilinu Víkurröst, Dalvík 5. september og hefst kl. 21 og verða dag- skráratriði sem hér segir: Ræða; Sigurður Blöndal skóg ai-vörður, söngur; Jóhann Kon- ráðsson og Sigurður Svanbergs son, spurningaþáttur, er Hjört- ur E. Þórarinsson stjórnar, gamanmál, afhending verðlauna til sveitabæja og að síðustu verður dansað. Úthljóð leikur og Eíla Stefánsdóttir syngur. BSE og UMSE gangast fyrir Bændadeginum og mun Ár- mann Dalmannsson stjórna sam komunni. □ Mikill snjór til heiða Langanesi 30. ágúst. í dag er 4 gráðu hiti. Talið er, að á Tungu selsheiði, afrétt Langnesinga, hafi ekki snjóað mikið og ekki líklegt að fé hafi fennt. Meiri snjór er á Þistilfjarðarheiðum. Ottast er, að fé hafi hrakið í ár og læki í veðurofsanum. Axar- fjarðarheiði varð ófær, en var opnuð í gær. Hálsavegur teppt- ist ekki. Ófær varð Hellisheiði og Haukstaðaheiði en þungfært um Sandvíkurheiði. í byggðum festi ekki snjó. G.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.