Dagur - 01.09.1971, Qupperneq 7
7
Ávarp til Veslur-lslendinga
flutt í samsæti, sem Islendingum var haldið á
Blönduósi 18. júní 1971 af Halldóru Bjarnad.
GÓÐU íslendingar að vestan!
Verið hjartanlega velkomnir
heim til gamla landsins okkar
fagra, góða!
Þið eruð dugleg að koma
heim í hópum árlega. Þakka
ykkur fyrir komuna! — Við
œttum að fara eins að: Koma
árlega í hóp til ykkar. — Það
ætti vel við!
Þið eigið marga góða vini hér
heima. — Nefni einn að gamni,
sém þið hittið bráðum: Jón
Rögnvaldsson, garðyrkjumann
á Akureyri. — Hann var mörg
ár vestra, öllu kunnugur. —
Það var gaman að athuga til-
lögu, sem hann kom með í vet-
ur í blaði. — Þið hafið líklega
séð hana. — Það var að íslenzka
ríkið ætti að gefa íslendingum
vestan hafs jörð á íslandi, eyði-
jörð, sem þið gætuð svo lagað
og ráðskað með eftir ykkar vild.
Þið yrðuð sjálfsagt ekki lengi
að gera hana að höfuðbóli! At-
hugið þetta, góðir hálsar! Ágæt
hugmynd! — Jón sagði mér að
skrifa Auði, ráðherra um þetta,
og leggja hugmyndinni lið. —
Sem ég að sjálfsögðu gerði.
Það eru nú rétt 33 ár síðan ég
varð svo fræg að fá heimboð frá
löndum vestan hafs: Þjóðrækn-
isfélaginu og Kvennasamband-
inu, var heilt ár. — Kvenna-
nefnd tók á móti mér og réði
öllu um ferðir mínar. — Ég
hafði handavinnusýningu með.
— Maður var borin á höndum,
ekki mátti gista á hóteli, ekki
kaupa sér bíl, en bezt af öllu
var þó að mega allsstaðar tala
íslenzku!
Sýningarnar urðu víst 50
meðal landa, frá hafi til hafs, og
sjálfsagt jafnmörg erindi. —
Maður reyndi að tína til það
helzta fréttnæmt að heiman, en
þegar karlarnir voru að þákka
mér fyrir lesturinn, sögðu þeir:
„Þú sagðir okkur ekkert sem
við vissum ekki áður!“ — Þetta
eigið þið blöðunum ykkar að
þakka: Lögbergi og Heims-
kringlu, sem bráðum eru 100
ára.
Þau fræða ykkur um ailt sem
gerist á gamla landinu. — Alls-
staðar voru þau frammi þar
sem ég fór um.
í guðsbænum látið þau ekki
niður íalla, það er lífæðin! Við
hér heima þurfum að hjálpa
ykkur betur með þau.
Oll þessi ár hafa mér verið
send blöðin ykkar, auðvitað
ókeypis! En þetta dugar ekki!
— Æ sér gjöf til gjalda! — Ég
tók mig þess vegna til og bauð
„Frón“, bókasafninu ykkar
góða, 100 bækur úr mínu bóka-
safni, og lét þá orðsendingu
fylgja að þeir skyldu ota „Núma
rímum“ hans Sigurðar Breið-
fjörð að þeim gömlu, en „Aðal-
Gæzlusystur og fóstrur vantar til starfa frá 1. okt.
næst komandi.
Upplýsingar gefur
FORSTÖÐUKONAN
í símum (96) 2-14-54 og (96) 2-17-54:
ATVINNA!
Viljum ráða skrifstofustúlku nu þegar, vana bók-
'haldi og einnig stúlku til símavörzlu frá 1. okt.
SLIPPSTÖÐIN H.F.
Akureyri.
teisf meS vöruverðinu
NESQUIK (227 gr.) kr. 45,60.
NESOUIK (450 gr.) kr. 87,00.
* fc f!
NESKAFFI (Luxus) kr. 97,00.
KJÖRBUÐIR
KEA
1 resmiðir!
Okkur vantar NOKKRA TRÉSMIÐI nú þegar
í gott verk. — ÁKVÆÐISVINNA.
SMÁRI H. F. — byggingarverktakar,
Furuvöllum 3 — Sími 2-12-34.
steini“, skáldsögunni hans síra
Páls, að þeim yngri.
Það stóð ekki á þakklæti með
mikilli virðingu frá ykkur
vestra: Maður var sendur til að
veita þessu viðtöku, semja skrá
og senda allt vestur.
Það gleður mig að bið hafið
komið ykkar ágæta safni
„Frón“ upp í gott húsnæði,
vona að það verði vel þegið.
Og nú er tíminn að verða lið-
inn! Það var gaman að taka á
móti ykkur, og ferðin hefur öll
verið góð, því blessað veðrið
hefur leikið við okkur! — Ég
óska ykkur góðrar ferðar áfram,
og svo heim yfir hafið! Og góða
heimkomu! — Bið kærlega að
heilsa!
Verið í Guðsfriði! □
Fyrsta
HINN 26. ágúst tók formaður
fræðsluráðs Akureyrar, Sigurð-
ur Óli Brynjólfsson, fyrstu
skóflstunguna að nýja barna-
og unglingaskólanum í Glerár-
hverfi og síðan tók jarðýta að
flytja til jarðveg. Skólanum var
valinn staður skammt frá gamla
barnaskólahúsinu. □
Héraðsfundur
HÉRAÐSFUNDUR Eyjafjarðar
prófastsdæmis verður haldinn
að Freyvangi og Munkaþverá
sunnudaginn 12. sept. n. k.
Fundurinn hefst með guðs-
þjónustu í Munkaþverárkirkju
kl. 13.30.
Þeir reikningshaldarar
kirkna, sem ekki hafa þegar
sent reikninga kirkna og kirkju
garða, eru vinsamlegast beðnir
að senda þá tafarlaust. Eins og
reikningshöldurum á að vera
kunnugt þurfa reikningar að
berast prófasti það tímanlega,
að hægt sé að leggja þá endur-
skoðaða fyrir héraðsfund til
samþykktar, en á þessu er mjög
mikill misbrestur.
Prófastur.
FRÁ Akureyrarkirkju Messa
fellur niður n. k. sunnudag
vegna burtveru sóknarprest-
anna.
HJALPRÆÐISHERINN
í tilefni af komu Koman
dörs Knudsen og frú til
Akureyrar bjóðum vér
yður á samkomu í Alþýðu-
húsinu miðvikudaginn 1. sept
ember kl. 20.30. Þar verður
sýnd kynningarkvikmynd og
borið fram kaffi. Deildarstjór
inn Brigader Enda Mortensen
stjórnar. Verið hjartanlega
velkomin. — Hjálpræðisher-
inn.
MÖÐRUVALLAKLAUSTURS-
PRESTAKALL. Guðsþjón-
usta að Möðruvöllum n. k.
laugardag 4. sept. kl. 9 e .h.
Ath. breyttan messutíma
vegna útvarpsupptöku. —
Sóknarprestur.
BARNAVERNDARFÉLAG Ak
urcyrar heldur fund miðviku
daginn 1. sept. kl. 8.30 e. h. í
Varðborg (uppi). Fundarefni:
Fréttir af Landsfundi ísl.
barnaverndarfélaga. — Stjórn
in.
FRÁ Ferðafélagi Akureyrar:
Ferðir þær, sem frestað var
vegna ófærðar um síðustu
helgi, verða farnar sem hér
segir: Berjaferð í Flateyjar-
dal 5. sept. Miklafell í Hofs-
jökli 3.—5. sept. Miðar óskast
sóttir á skrifstofu félagsins,
Skipagötu 12, á fimmtudag kl.
18.00—19.30. — Ferðanefnd.
DREGIÐ hefur verið í happ-
drætti KA og Þórs. Vinning-
ar féllu þannig: 1. Flugfar
fyrir 2 Ak.—Rvík—Ak. nr.
960. 2. Flugfar fyrir 1 Ak.—
Rvík—Ak. nr. 54. 3. Flugfar
fyrir 1 Ak.—Rvík—Ak. nr.
294. 4. Flugfar fyrir 1 Ak,—
Rvík—Ak. nr. 759. Vinninga
má vitja á skrifstofu ÍBA,
Hafnarstræti 100.
Eiginkona mín
HELGA FRÍMANNSDÓTTIR
Aðalstræti 76, Akureyri,
sem andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
þann 27. þ. m. verður jarðsungin frá Akureyrar-
kirkju föstudaginn 3. sept. kl. 1,30 e. h.
Ólafur Sölvason
Innilegar þakkir til allra ættingja og vina fyrir
auðsýnda sanrúð við andlát og jarðarför
GARÐARS BJÖRNS PÁLSSONAR
frá Garði í Fnjóskadal.
Biðjum yk'kur blessunar Guðs.
Vandamenn.
Hugheilar þakkir flytjum við öllum þeim, er auð-
sýndu sarnúð og vinarhug við andlát og útför
TRYGGVA JÓHANNSSONAR,
Ytra-Hvarfi,
og á margvíslegan hátt heiðruðu manningu hans.
Sérstaklega viljum við þakka alla veitta aðstoð í
sambandi við útförina.
Fyrir hönd vandamanna.
Ólafur Tryggvason.
I.O.G.T. st. Ísafold-Fjallkonan
no. 1. Fundur fimmtudaginn
2. sept. kl. 8.30 e. h. í Félags-
heimili templara, Varðborg.
Fundarefni: Vígsla nýliða.
Ferðasaga með myndum. —
Æ.t.
NONNAHÚS. Daglegum sýn-
ingum lýkur frá og með 1.
sept. Þeir sem vilja sjá safnið
eftir þann tíma vinsamlegast
hafi samband við safnvörð í
síma 12777 eða 11396.
LION SKLÚBBURINN
ijý HUGINN. Fyrsti fundur
verður að Hótel KEA
fimmtudaginn 9. sept.
kl. 12.
GJAFIR til Tryggva Svein-
björnssonar, Hrísum, mót-
teknar af Bjarna Kristins-
syni. Kristinn Stefánsson,
Ránargötu 9, kr. 1.000, Ragn-
ar Bollason, Bjargi, kr. 1.000,
Jónína Skaptadóttir, Torfu-
felli, kr. 500, Gunnar Jónsson
kr. 500, Sigurbjörg Guð-
mundsdóttir kr. 300, Steinþór
Helgason, Brekkugötu 12, kr.
500, Lilja Helgadóttir kr. 200,
Ottar Björnsson, Laugalandi,
kr. 1.000, Helga, Litla-
Hvammi, kr. 500, Jón Aðal-
steinsson, Baldursheimi, kr.
1.000, Björn Hermannsson,
Aðalstræti 54, kr. 1.000, Jón
Kristjánsson kr. 1.000, Stefán
Hólm Kristjánsson, Aðal-
stræti 16, kr. 1.000, Hreiðar
Jónsson, Hafnarstræti 99, kr.
500, Leó Guðmundsson, Aðal-
stræti 14, kr. 1.000, Magnús,
Möðruvöllum, kr. 50, fjöl-
skyldan Vallholti, Akureyri,
kr. 500, Helgi Sigurjónsson,
Torfum, kr. 1.000, H. H. kr.
200, Hlynur Jónasson kr.
1.000, Jón Ólafsson, Vöku-
landi, kr. 2.000, Baldur Hall-
dórsson, Aðalstræti 28, kr.
I. 000, Hulda Benediktsdóttir,
Bitrug., kr. 100, Hreinn Ketils
son kr. 2.000, Sigríður og
Brynjólfur kr. 1.000, Helga og
Guðmundur, Kambi, kr.
2.000, Ingvi Ólason, Litladal,
kr. 1.000, Sigurður Stefáns-
son, Aðalstræti 17, kr. 1.000,
Þuríður Jóhannesdóttir kr.
200, frá hjónunum Dvergs-
stöðum kr. 1.500, Helga Sigur-
jónsdóttir, Lyngholti 12, kr.
500, Óli Sölva, Aðalstræti 74,
kr. 500, Karl Steingrímsson,
Hlíðargötu 11, kr. 200, Guð-
rún Bjarnadóttir, Hlíðargötu
II, kr. 200, Þórunn Stein-
grímsdóttir, Hlíðargötu 11, kr.
200, Sigurlaug Tobíasdóttir,
Hlíðargötu 11, kr. 200, Theó-
dór Gunnarsson, Hlíðargötu
11, kr. 200, Helga Baldursdótt
ir, Hlíðargötu 11, kr. 200,
Magni Kjartansson, Árgerði,
kr. 1.000, Dagný Pálsdóttir
frá Skógagerði kr. 500, Rand-
ver, Dvergsstöðum, kr. 1.000,
Sigtryggur Símonarson, Jór-
unnarstöðum, kr. 1.000. —
Samtals kr. 31.250.00.
(nVkomÍð)
HEFST Á MIÐVIKUDAG
Mikil verðlækkun.
MARKAÐURINN
SÍMI 1-12-61.
i»i