Dagur - 29.09.1971, Blaðsíða 5
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Björnssonar hi.
LANDSVIRKJUN
ÞJÓÐARINNAR
RÍKISSTJÓRNIN hefur birt sam-
þykkt um stefnu sína á ýmsum svið-
um raforkumála. 1 stjóniarsamþykkt
inni felst m. a. það, að stjórnin muni
leyfa aðra stórvirkjun syðra af þeim,
sem heimilt er að leyfa að lögum frá
því í vor, við Siðöldu í Tungnaá og
beitir sér fyrir því að tengdar verði
sarnan helztu virkjanir landsins og
Landsvirkjun gerð að þjóðareign.
En Landsvirkjun er að hálfu ríkis-
eign á móti Reykjavíkurborg.
í sambandi við þessi mál er ástæða
til að rifja upp ítarlegar breytingar-
tillögur við Landsvirkjunarlögin,
sem þingmenn hér í kjördæminu,
Gísli Guðmundsson, Ingvar Gísla-
son og Stefán Valgeirsson, lögðu
fram á Alþingi sl. vetur þegar lögin
voru þar til meðferðar. En þeir
lögðu m. a. til:
1. Að ekki yrði heimilt að leyfa
tvær stórvirkjanir sunnan fjalla, held
ur skyldi önnur vera norðan fjalla.
2. Að virkjunarleyfi til Lands-
virkjunar yrði bundið tveim skilyrð-
um: Að Landsvirkjun skuldbindi sig
til að tengja saman raforkuverin á,
austanverðu Norðurlandi og Suðirr-
landi þegar talið verður, að þess sé
þörf. I öðru lagi, að Landsvirkjun
selji raforku á sama verði til allra
almenningsrafveitna, sem kaupa
orku frá orkuveitum Landsvirkjun-
ar, hvar sem er á landinu.
3. Að stefnt verði að því, að fyrir-
tækið Landsvirkjun verði ríkiseign
eða sameign ríkis og þeirra sveitar-
og sýslufélaga, er þess óski, í réttu
hlutfalli við fólksfjölda og raforka
til samskonar nota verði seld við
sama verði um land allt.
Þessar voru helztu breytingartillög
ur G. G., I. G. og S. V. við Lands-
virkjunarfrumvarp ríkisstjórnarinn-
ar og voru þær felldar. Þingmenn-
irnir lögðu það einnig til, að heimil-
aðar yrðu minni virkjanir vatns- og
gufuafls ef hagkvæmt þætti. Enn-
fremur, að gerð yrði gangskör að því,
að tryggja sem mesta notkun raforku
til húsahitunar.
Tillögur G. G. og félaga fjölluðu
ekki um svokölluð Laxármál og það
gerir hin nýja samþykkt ríkisstjómar
innar ekki heldur.
Ríkisstjómin hefur lagaheimild,
án skilyrða, til að leyfa Landsvirkjun
að virkja við Sigöldu, en önnur
atriði verður að taka fyrir á Alþingi.
En kjördæmisþing Framsóknar-
manna á Laugum gerði ályktanir í
raforkumálum, sem sagt hefur verið
frá í blaðinu. □
Á AÐ SKIPTA Í.B.A.-LIÐINU?
AKUREYRINGAR FÉLLU í AÐRA DEILD
EINS og öllum er kunnugt, er íslandsmótinu í knattspyrnu, 1.
deild, lokið. Keflvíkingar urðu íslandsmeistarar, en Akureyringar
urðu að bíta í það súra epli að falla niður í 2. deild.
Enginn dómur skal á bað lagð
ur hér, hvers vegna Akureyrar-
liðið náði ekki betri árangri í
sumar en raun ber vitni, eða
við hverja er að sakast í þeim
efnum. Um slíkt þýðir ekki að
fjasa nú.
Ég horfði á flesta leiki liðsins
hér á Akureyrarvelli í sumar,
og voru þeir misjafnir að gæð-
um, eins og raunar oft undan-
farin ár. Það virðist oftast vanta
þennan herzlumun, sem þarf til
þess að sigra í leik, og allir
hljóta að sjá, að kjölfestu vant-
ar í liðið.
Á þessum tímamótum skjóta
upp kollinum margar spurning-
ar. Þær eru raunar ekki nýjar,
því hér í bæ hafa á undanförn-
um árum oft verið uppi talsvert
háværar raddir um það, að
skipta ÍBA-liðinu í sínar frum-
eindir, KA og Þór. Margir
sakna leikjanna milli þessara
aðila frá gamalli tíð, en yfir
þeim leikjum var sérstök stemn
ing, eins og á stórleikjum, og
stóðu KA-menn öðrum megin
vallarins en Þórs-menn hinum
megin, og hvöttu sína liðsmenn
til dáða. Ég man oft eftir slíkum
leikjum á gamla KA-vellinum
og einnig á Þórs-vellinum þeg-
ar ég var strákur, og hitnaði oft
í kolunum þar.
Það fer ekki á milli mála, að
skipting á ÍBA-Iiðinu hefur
marga erfiðleika í för með sér
fyrir Þór og KA, en þeir eru
aðallega fjárhagslegs eðlis. Það
er mín trú, að þeir séu yfirstíg-
anlegir, eins og allir erfiðleikar
í sambandi við íþróttamál.
Skiptingin hefur vissulega einn
ig sína kosti, en þeir eru fyrst
og fremst, að fleiri efnilegir
knattspyrnumenn komast að en
nú er, og þar af leiðandi hljóta
Akureyringar að eignast fleiri
góða knattspyrnumenn en nú.
Miðað við mannfjölda, t. d.
Keflavík og Vestmannaeyjar
með ca. 5 þús. íbúa hvor bær,
ætti fyllilega að vera grundvöll-
ur fyrir 2 góðum liðum hér. —
Verðlækkun á fóðurvörum
f HAUST verður töluverð lækk
un á fóðurvöruverði hjá Sam-
bandinu, þ. e. á fóðurvörum,
sem fluttar eru inn frá FAF í
Danmörku. Ástæðan fyrir þess-
ari lækkun er fyrst og fremst
mikil uppskera á byggi, og þess
vegna lækka fóðurblöndurnar í
beinu hlutfalli við bygginnihald
þeirra, en maís og maísblöndur
lækka allmiklu minna en annað
fóður.
Innflutningsdeildin hefur íest
Skólastúlku vantar
herbergi, helzt sem
næst M.A.
Uppl. í síma 2-11-12
milli kl. 14 og 16.
2—3 herbergja íbúð
ÓSKAST TIL LEIGU
strax eða 15. október.
Uppl. í sínia 2-16-08.
TIL LEIGU
SKRIFSTOFU-
HERBERGI
í Hafnarstræti 101.
(Amaro).
Uppl. gefur húsvörður.
Nemandi í MA
ÓSKAR EFTIR
HERBERGI
Uppl. í síma 2-14-63.
EINBÝLISHÚS
TIL SÖLU
í innbænum. Uppl. í
síma 114-55 eftir kl. 19
og'hjá Ásmundi S.
Jóhannssyni,
sími 1-27-42.
4ra herbergja
ÍBÚÐ TIL SÖLU
Hallgrímur Skaptason,
síini 1-19-35.
kaup á nokkur þúsund tonnum
af fóðri, þar á meðal 1500 tonn-
um af byggi, sem keypt eru frá
Kanada, og er það í fyrsta sinn
sem Innflutningsdeildin kaupir
korn þaðan. Kanadafóðrið er
væntanlegt til landsins með
Skaftafellinu í lok október, en
skipið er sérstaklega útbúið til
að flytja laust fóður.
Samkvæma skýrslum frá Dan
mörku, þaðan sem allir íslenzk-
ir fóðurinnflytjendur kaupa það
tilbúna fóður, sem þeir flytja
inn, var útflutningur FAF, sem
eingöngu selur Sambandinu og
kaupfélögunum, 88% af heildar
útflutningi Dana á fóðurvörum
til íslands fyrstu sex mánuði
þessa árs, en var 78% sama
tímabil í fyrra. Koma því aðeins
12% til skipta á milli þeirra
AFGREIÐSLU-
STÚLKA óskast.
Bóka og blaðasalan.
Brekkugötu 5.
Sími 1-13-37.
Kona óskast til að gæta
barns á öðru ári frá 9—6
fimm daga vikunnar.
Uppl. í síma 2-15-74
efir kl. 18.
Vantar tvo lagtæka menn
Ofnasmiðja Norðurlands
h.f. Kaldbaksgötu 5.
Sími 2-18-60.
Stúlka óskast til
bamagæslu tvo tíma á
dag.
Uppl. í síma 1-28-98.
Vil ráða
VANAN
FJÓSAMANN
í vetur.
Kjartan Magnússon,
Mógili. - Sími 2-15-70.
Þessi mál hafa nú verið mik-
ið rædd manna á meðal hér í
bæ að undanförnu, og sýnist
sitt hverjum, eins og eðlilegt er.
Að mínu viti verður nú að taka
þessi mál fyrir hjá stjórnum
félaganna og leikmönnum ÍBA-
liðsins, og síðan á almennum
félagsfundum, sem auglýsa þarf
vel. Þá finnst mér að hinir fjöl-
mörgu knattspyrnuunnendur
hér í bæ og nágrenni, sem trú-
lega hafa greitt milljónir króna
í aðgangseyri að knattspyrnu-
leikjum undanfarin ár, verði að
fá að láta sitt álit í ljós. Þess
vegna fylgir hér með atkvæða-
seðill, sem þeir geta fyllt út og
sent síðan til Dags, pósthólf 58,
Akureyri, og stendur atkvæða-
greiðslan yfir til 15. október, en
þá verða atkvæðin talin og nið-
urstaðan birt í blaðinu.
Samkvæmt þeim upplýsing-
um, sem ég hef aflað mér, ligg-
ur ekki ljóst fyrir hvernig fara
skuli með svona mál eins og
þetta, því ekkert slíkt mál hefur
komið upp síðan 3. deild var
stofnuð. Eitt sæti er laust í 2.
deild, og sýnist því eðlilegast,
að KA og Þór fengju að leika
um það sæti, ef af skiptingu
yrði, og það liðið sem sigraði í
þeirri viðureign léki í 2. deild,
en hitt liðið í 3., þó vissulega
megi segja, að það sé „klassa“-
munur á Akureyrarfélögunum
og þeim liðum, sem leika í 3.
deild. Ef skipting yrði sam-
þykkt af íþróttafélögunum, Þór
og KA, væri því trúlega eðli-
legast að næsta skref í málinu
yrði að sækja um það til KSÍ
að félögin fengju að leika um
lausa sætið í 2. deild, og það
væri mjög óeðlilegt ef slíkri
beiðni yrði hafnað. En ef svo
færi mætti taka málið upp á árs
þingi KSÍ, sem venjulega er
haldið í nóvember.
Ekki verður frekar rætt um
þetta að sinni, en orðið er auð-
vitað laust hér í blaðinu, ef
menn vilja segja sitt álit á
prenti. Að lokum eru sem flest-
ir knattspyrnuunnendur hvattir
til að taka þátt í atkvæðagreiðsl
unni o ghafa þannig með at-
kvæði sínu áhrif á ákvörðun í
þessu stórmáli.
Sv. O.
ATKVÆÐASEÐILL
'Vilt þú láta skipta ÍBA-liðinu?
1 □ NEI □ JÁ
Nafn
Heimili
Krossið í reitinn, nei, já, eftir
því sem ykkur finnst.
Dilkar þyngstir
á Þórshöfn
SAMKVÆMT þeim fregnum
um vænleika fjár í haust, sem
blaðið hefur aflað sér, eru dilk-
ar vænstir á Þórshöfn. Sagði
ÓJi Halldórsson sláturhússtjóri,
að meðalvigt væri um 16.5 kg,
og hefði hretið þó áreiðanlega
truflað vöxt dilkanna nokkuð.
Fréttamaður sagði ennfrem-
ur, að heimtur margra bænda
væru mjög slæmar, vantaði 50
dilka og jafnvel fleiri á fjár-
mörgum bæjum. Væri senni-
legt, að mun fleira fé hefði far-
izt í snjó en ennþá væri ljóst
orðið. Töluvert margt fé bæri
það með sér, að það hefði skrið-
ið úr fönn. □
Tvíbreiður
SVEFNSÓFI
TIL SÖLU
Uppl. í síma 1-14-99
eftir kl. 18.
ÞRIÐJA STÚRVIRKJUN
VERÐI VIÐ DETTIFOSS
EINS og kunnugt er hefur nú verið ákveðin virkjun við
Sigöldu ásamt háspennulínu til Norðurlands. Samtenging
orkuveitusvæðanna gefur margvíslega möguleika um orku-
flutninga milli Norður- og Suðurlands. Samkvæmt upplýs-
ingum Jakobs Björnssonar, verkfræðings Orkustofnunar-
inpar, sem fram komu á fundi í Fjórðungsráði Norðlendinga
3. september sl., er ljóst, að virkjun við Dettifoss er jafnvel
hagkvæmari en virkjun við Sigöldu. Verkfræðingurinn gat
þess, að slík virkjun væri útilokuð því að ekki er markaður
| fýrfr orkuna í Norðurlandi. Með þeirri ákvörðun ríkisstjórn-
arinnar að leggja háspennulínu norður um Sprengisand,
skapast skilyrði til þess að virkja Dettifoss, sem næstu stór-
virkjun, þótt í byrjun væri ekki nægur markaður fyrir ork- ;
una fyrir norðan. Við þá endurskoðun laga um Landsvirkj-
un, scm rífifestjórnin Icggur til, er nauðsynlegt að taka 61
greina það baráttumál Norðlendinga, að virkjun við Detti-
foss verði ákveðin sem næsta stórvirkjun.
Landsvirkjun verður ekki sameignarvirkjun allra lands-
manna í augum þjóðarinnar nema að fulltrúar allra lands-
liluta eigi stjómaraðild að hinni nýju alþjóðarvirkjun.
Ákvörðun um að ákveða eða jafnvel lögfesta virkjun Detti-
foss, sem næstu stórvirkjun á eftir Sigölduvirkjun er Iíkleg
61 að sameina menn um stefnu ríkisstjórnarinnar í orku-
málum. ~ '■■■»-' □
Nauðsynlegt er að vernda fiskisfofnana
Heilsuhæli á Norðurlandi
TIL SOLU
er
LÍTIÐ HJÓNARÚM
með dýnum og
náttborðum.
Einnig
HÁLFSJÁLFVIRK
ÞVOTTAVÉL
Uppl. í síma 210-87 f.h.
og eftir kl. 5.
TIL SOLU
er
DVERG HONDA
Uppl. í síma 1-22-09.,
FATASKÁPUR og
SNYRTIBORÐ
til sölu.
Uppl. í síma 1-15-37.
I ERINDI, sem Ingvar Hall-
grímsson, forstjóri Haframi-
sóknastofnunarinnar, fluttn á
fundi þeim, sem sjávarútvegs-
ráðherra boðaði til um land-
helgismálið sl. fimmtudag, rakti
hann m. a. þróun vciða á ýsu
hér við land og ofveiði ýsu-
stofnsins. Ilann sagði m. a.:
„Ýsustofninn við ísland var
talinn sígilt dæmi um ofveidd-.
an stofn. Eftir að ýsustofninnl
hafði hlotið verðskuldaða hvild
á stríðsárunum 1914—1918 var
meðaldagsveiði cnskra togara
af ýsu um 1000 kg. árið 1920, en
var kominn niður í 250 kg. 1937:,
Þrátt fyrir stóraukna sókn og
bætta veiðitækni féll heildar-
ýsuveiðin við ísland á tímabil-
inu 1928—1937 úr 60 þúsund'
tonnum á ári í 28 þúsund tonn,
og ýsuafli íslendinga sjálfra íéll
úr 11 þúsund tonnum á ári nið-
ur í 4 þúsund tonn á sama tíma.
Sú aukning, sem varð á ýsu-
stofninum á stríðsárunum fyrri
gekk því fljótt 61 þurrðar vegna
ofveiði, og 19 árum eftir fyrri
stríðslok, árið 1937, var ýsu-
stofninn við ísland einn sá nið-
urníddasti, sem sögur fóru af.
A stríðsárunum síðari 1939—.
1944 hlaut stofninn hvfld á ný
og er ýsuveiðarnar hófust fyrir
alvöru eftir seinna stríð, nam
ársaflinn þegar 33 þúsund tonn
um árið 1946 og óx upp í 76 þús-
und tonn árið 1949. En nú þoldi
stofninn ekki meira álag, veið-
inni hrakaði jafnt og þétt og
var komin niður í 46 þúsund
tonn árið 1952, Sagan frá fyrri
stríðsárunum hafði því endur-
tekið sig: Bæði> stríðsdmabilin
veittú stofninum' niiklá ‘ hvíldj
það bættist meira í liann en úr
honum’var tekiþ, og er veiðat:
hófust að loknu ístríði, gaf stofn •
inn góðá véiði fýrst í stað, en>að;(
nokkrum árum Íiðnum var álag :
ið órðið of mikið, meira var ték ;
ið úr stofninum en í hann b'ætt-í:
ist, aílt var að falla í sama horf
■sem fyír. — En hið fyrrncfnda ;
ár, 1952, færa íslendiiigar út
landheJgina, mikilvægum upp-
eldisstöðvum svó sem Faxaflóa
er lokað og bregðúr þá svo við,
að heildarýsuaflinn — svo og
ýsuafli fslendinga---vex- hröð-
um skrefum næstu tíu árin og
nær hámarki árið 1962, 120 þús
und tonn, eða um tvö falt það
árlega aflamagn, er mcst varð á
jrnilli heimsstyrjaldanna tveggja.
Menn eru samdóma um, að
þessa aukning megi þakka út-
þerslu landhelginnar og auk-
inni möskvastærð í botnvörpu
og dragnót, er komst á um svip-
áð ‘ leyti. Þessar ráðstafanir
ásanit útfærslunni 1958 höfðu
einnig í för með sér, að ýsan
fékk að vaxa í friði 2—3 ár
lengur en áður, það er, að lengd
og þyngd veiddrar ýsu óx að
mikluni mun. Mikilvægi þess
fyrir þjóðarbúið má t. d. sjá af
því að 3ja ára vegur ýsan um
300 grömm, en 5 ára tæp tvö
kíló. Hún næstum sjöfaldar
þyngd sína á þessum tveimur
árum, og sést t. d. á því, hve
mikilvægt er, að veiða t. d. 5
ára ýsu í stað 3ja ára. Þyngdar-
aukningin er næstum sjöföld,
og veit ég ekki um neina betri
fjárfestingu. Hér er um afskap-
lega mikilvægt mál að ræða
fyrir íslenzkan útveg og þjóðar
búið í heild, en á meðan erlend-
ir aðilar hirða stóran hluta af
ýsunni á íslandsmiðum verðum
við ekki stjórnendur þróunar-
innar.“ □
AÐ UNDANFÖRNU hafa birzt
nokkrar greinar í blöðum um
nauðsyn þess að reisa nýtt
heilsuhæli á Norðurlandi, sem
hefði svipað verkefni og Heilsu-
hæli N.L.F.Í. í Hveragerði. En
það hæli hefur verið yfirfullt
alla tíð síðan sjúkrasamlögin
fóru að greiða daggjöldin að
fullu, svo að umsóknir um hæl-
isvist eru þar stundum a. m. k.
helmingi fleiri en hægt er að
sinna. Má því öllum ljóst vera,
að það er meira en tímabært
að hefjast handa um að byggja
nýtt hæli. Af blaðaskrifum hef-
ur komið í ljós, að viðræður
hafa farið fram milli félagsskap
ar fatlaðra og lamaðra og félags
náttúrulækningamanna á Akur
eyri. Tel ég það æskilegt, að
samvinna geti tekizt með sem
flestum félögum og einstakling-
um um mál þetta, þar sem það
hlýtur að verða mikið fjárhags-
legt átak að koma slíkri stofnun
upp. Og þar sem auglýst hefur
verið eftir fjárframlögum í
þessu skyni, þá finnst mér tíma-
bært að ræða mál þetta frá
fleiri hliðum en gert hefur ver-
ið í blöðum til þessa.
Fyrsta spurningin, sem í hug
minn kemur um þetta mál, er
sú, hvar eigi að reisa slíkt hæli.
Mývetningar hafa þegar boðið
nægilegt landrými fyrir slíka
stofnun og þar er nægur jarð-
hiti fyrir hendi. Ennfremur er
leir nærtækur, en raunar er
flutningur á honum algert auka
atriði, miðað við alla flutninga
frá og til slíkrar stofnunar. En
þó að ég unni Mývetningum
alls hins bezta, þá tel ég samt
flest mæla á móti því að reisa
hælið í Mývatnssveit. Eru
helztu rök þessi:
1. Veðurfar er miklu verra í
Mývatnssveit og raunar í allri
Þingeyjarsýslu en t. d. í Eyja-
firði. í Mývatnssveit vorar oft
seint en haustar snemma að,
sumrin því stutt. Nokkra beztu
sumardagana fyllist þar allt af
rykmýi og mývargi, sem angrar
Velrarslarf Leiklélagsins a5 heljasl
Nýr íramkvæmdastjóri hefur verið ráðinn
í ÞESSAR viku hefjast æfingar
hjá Leikfélagi Akureyrar. Leik-
listarnefnd, sem kosin var á síð-
•asta aðalfundi hefur undanfarn-
ar vikur unnið að verkefnavali
með stjórninni. Fyrsta verk-
efnið verður „Það er kominn
gestur“ eftir István Örkeny,
pólskan höfund. Þetta leikrit
hefur áður verið sýnt hjá Leik-
félagi Reykjavíkur og á Egils-
stöðum. Leikstjóri verður Arn-
ar Jónsson og er áætlað að sýna
í byrjun nóvember. Jafnframt
mun Arnar stjórna leikriti fyrir
barnatíma útvarpsins, er það
framhald af „Leyniskjalinu“ eft
ir índriða Ulfsson, sem flutt var
af félaginu sl. vetur.
Eins og kunnugt er hefur Arn
ar unnið af miklum dugnaði
með félaginu sl. tvo vetur, en
mun að þessum verkefnum
loknum á förum til útlanda þar
sem hann mun kynna sér leik-
list næsta vetur.
Annað verkefni í leikhúsinu
verður svo barnaleikritið „Dýr-
in í Hálsaskógi“ eftir hinn
kunna höfund Torbjörn Egner.
Mun það verða sýnt í byrjun
janúar.
í vetur er fyrirhugað að sýna
a. m. k. fjögur verkefni og í
athugun er m. a. íslenzkt leik-
rit. Ekki er að svo stöddu unnt
að greina frekar frá síðari verk-
efnunum, en vonir standa til að
Dalvík 28. sept. Sauðfjárslátr-
unin stendur yfir og er féð
vænna en fyrirfarandi haust,
serp munar um einu kílói á
kropppþað sem af er.
Vinna hefur verið samfelld í
frystíþ-úsinu, þótt aflabrögð hafi
Verið hcldur léleg um tíma.
Björgvjn -var að landa ,i dag um
18 tonnum. Björgúlfur er bilað-
úrt ~Eír 4—15 dragnótabátar hafa
lagt hér upp auk togbátanna
ágælum
tveggja svo að frystihúsið hefur
fengið allmikinn fisk. Og svo
reyta trillurnar talsvert, og
meira í sumar en undanfarið.
í sveitinni gengur allt vel.
Heimtur voru góðar og áfallið
í sumar grandaði ekki fé, svo
vitað sé.
Á Dalvík eru 20 íbúðir í smíð-
um, mislangt á veg komnar.
Yfirleitt má segja, að mann-
lífið sé með ágætum. J. H.
Stefán Baldursson, sem nýlokið
hefur námi í leikhúsfræðum,
verði leikstjóri að einu verk-
efni.
Félagið hefur gengizt fyrir
leiklistarnámskeiðum tvö sl.
starfsár með ágætum árangri,
og er fyrirhugað framhald á
þeirri starfsemi. Mun leiklistar-
námskeiðið auglýst innan tíðar.
Á undanförnum árum hefur
félagið hamrað á því, að nauð-
synlegar endurbætur væru
gerðar á leikhúsinu. Á sl. ári
var sett upp nýtt og fullkomið
ljósastýriborð og í sumar var
sviðsopið breikkað. Nú eru í
athugun breytingar á fatamót-
töku og forstofu, til hagræðis
fyrir leikhúsgesti, en vinna
þarf að gagngerðum endurbót-
um hússins, sem allra fyrst.
Sigmundur Örn Arngríms-
son, sem verið hefur fram-
kvæmdastjóri félagsins tvö sl.
ár, lætur nú af störfum og mun
hann ætla að dvelja erlendis við
leiklistarnám í vetur. Við starfi
hans hefur tekið Þráinn Karls-
son.
Stjóm L. A: er þannig skip-
uð: Formaður er Jón Kristins-
son, gjaldkeri Guðmundur
Magnússon, ritari Guðmundur
Gunnarsson, meðstjórnendur
Sigurveig Jónsdóttir og Krist-
jana Jónsdóttir.
(Fréttatilkynning)
alla þá, sém útivistar vilja
njóta. Jafnvel í húsum inni eru
þessi kvikindi til mikilla óþæg-
inda.
2. Samgöngur geta orðið mjög
erfiðar í miklum snjóavetrum
til Mývatnssveitar, jafnvel um
hinn svonefnda kísilgúrveg. Er
þess skemmst að minnast, að.fé
fennti á þessum slóðum í ágúst-
mánuði sl. Reynslan er sú, að
hér á landi skiptast á hlýrri og
kaldari tímabil. Það má því
ekki gera ráð fyrir, að -hlýinda-
tímabil eins og verið hefur frá
því um 1920—1965 standi mjög
lengi. Þvert á móti er fn11
ástæða til að ætla, að kulda-
tímabil sé að byrja. Ef við fáum
veðráttu nokkra áratugi svip-
aða því, sem var hér á landi síð-
ustu áratugi 19. aldar og 2
fyrstu áratugi. þessarar aldar,
þá held ég að það væri ékki
hyggilegt að stofna til óþarfa
sjúkraflutninga um þær þyggð-
ir landsins, sem verið hafa
einna snjóþyngstar og harð-
viðrasamastar á öllu Norður-
landi, að útkjálkum einum
undanskildum.
3. Nágrenni kisilgúrverk-
smiðjunnar er til leiðinda slíku
hæli. Sumir telja, að ryk frá
verksmiðjunni geti verið til
óþæginda, en ekki er ég svo
kunnugur að ég geti um það
dæmt. Þetta þarf þó að athug-
ast.
4. Mývatnssveit er þegar eftir
sóttur staður fyrir ferðamenn.
Benda allar líkur til, að ferða-
mannastraumurinn aukist með
hverju ári, sem líður. Síðast-
liðið sumar mátti sjá tjald við
tjald á stórum svæðum. Mikinn
straum erlendra og innlendra
ferðamanna verður að meta til
ókosta fyrir hælið.
5. Vegna fjarlægðar frá Akur
eyri og öðrum kaupstöðum á
Norðurlandi verður lítið um
heimsóknir til sjúklinganna. Er
þetta ekki svo lítill ókostur.
6. Þá er ótalið það atriði, sem
í mínum augum og margra ann-
arra er einna alvarlegastur ann-
marki á því að reisa hælið í Mý
vatnssveit, eða öðrum afskekkt-
um stöðum. Hvernig í ósköpun-
um á að tryggja það, að þangað
fáist læknar, hjúkrunarfólk og
sjúkraþjálfarar? Enginn læknir
fæst til að þjóna Breiðumýrar-
héraði, sem ér þó í einni búsæld
arlegustu og fegurstu sveit
landsins, við hlið tveggja fjöl-
mennra skóla, á krossgötum
með greiðar samgöngur til allra
átta. Enginn læknir fæst til að
þjóna þorpunum á Norðaustur-
landi frá Húsavík til Vopna-
fjarðar. Það verður að athugast
í þessu sambandi, að það er
mikill munur á að dvelja í Mý-
vatnssveit í sumarleyfi eða seti ■
ast þar að um árabil.
Ég læt þessa upptalningu
nægja, þó að ekki sé allt upp
talið, sem ég hef heyrt nefnt
þessu sambandi. Mun eg nú
fáum orðum fyrir mitt ieyt
svara spurningunni um pac,
hvar hælið eigi að rísa ai
grunni. Svar mitt er hiklaus
það, að hælið eigi að reisa í 5—
15 km. fjarlægð frá Akureyri,
Það er í mínum augurn fjar ■
stæða að byggja slíka stofnun i
mikilli fjarlægð frá fólkinu, sen.
kemur til með að nota hælic
mest. En öllum má ljóst vera,
að flestir sjúklinganna hljótá afv
verða frá Akureyri og Eyjs-
fjarðarsýslu, ásamt Ólafsfirð
og Siglufirði, því að á þessu
svæði eru langflestir íbuarni’'
Það er líka alveg víst, að á Ak
ureyri verður höfuðmiðstöf’
læknaþjónustu utan Reykjavík-
ur. Hið nýja hæli á því ao erða
í skaplegri fjarlægð frá Fjórð ■
ungssjúkrahúsi Akureyrar, er,
þaðan munu koma flestir aftur ■
batasjúklingar.
Nú hefur boðizt iand undi
hælið að Stokkahlöðum í Eyja-
firði. Ef nægilegt heitt catr
fæst úr næstu laug (Hrafnagils ■
laug syðri), þá væri hælið ai
mínu viti hvergi betur seit er
á svæðinu Stokkahlaöir—
Hrafnagil. Það er alkunna, ac
veðurfar í Eyjafirði framai
Akureyrar er einna bezt a öllr
landinu. í því sambandi má
benda á, að það sem mórgun
þykir leiðinlegast við Heiisu •
hælið í Hveragerði er einmitr,
veðurfarið, þó að þar se ekk
snjóþyngslum fyrir að fara, Nv
munu standa yfir rannsóknir ;
laugunum í kringum Hrafnagii
og fæst vonandi úr því skoric
áður en langt um líður, hvort
þar fæst nægilegt heitt vatn. Er.
ef það bregst, þá tel ég Skjaldar
vik næst bezta staðinn. Geri éf
þá ráð fyrir, að heitt vatn faisr
frá Laugalandi á Þelamörk, er
þar rennur nú mikið magn af
96 gráðu heitu vatni ut í Hörga,
engum til nytja.
Ég lýk við þessar hugleiðing-
ar að sinni. Tel nauðsynlegt, aö
um þetta mál verði rætt og rit-
að fyrr en seinna, þar sem aug
ljóst er, að sínum augum iitl
hver á silfrið í þessu mali sen .
öðrum. En að lokum leyfi ég
mér að skora á alla Norðlena-
inga að styðja þetta aðkalland:.
mál og styrkja, svo að hælio
komizt upp áður en langir tim-
ar líða.
Akureyri, 24. sept. 1971
Árni Bjarnarsou. ■
Slýrim.skóli á Akureyri
Fyrsti bekkur starfræktur í vetur
f VETUR verður 1. bekkur
Stýrimannaskólans starfræktur
á Akureyri, samkvæmt lögum
frá 1966, þar sem gert er ráð
fyrir, að 1. bekkur starfi til
skiptis á nokkrum stöðum á
landinu.
Guðmundur Steingrímsson
stýrimaður á Akureyri veitir
skólanum forstöðu og eru þegar
komnir yfir 20 nemendur.
Hér er um að ræða ánægju-
lega viðbótargrein í skólabæn-
um og vonandi verður framhald
á þessu námi. Skólinn starfar í
6 mánuði og verður hann settur
1. október. — Sjá auglýsingu á
öðrum stað, □
Guðmundur Steingrímsson,