Dagur - 22.12.1971, Síða 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
JÓLIN
HÁTÍÐ LJÓSANNA fer nú i hönd,
pvi að i gœr var myrkasti dagur árs-
ins, samhvœmt almanakinu, og fer
sól nú hækkandi á ný, pótt litlu muni
dag hvern. Og jafnframt er framund-
an hátiðin milila í minningu Hans, er
fyrir nær tveim árpúsundum boðaði
frið á jörðu og kærleika meðal mann-
anna, og gaf mannkyninu nýja trú
og aðra sýn til andlegra verðmæta og
til alls pess, er lífsanda dregur.
ísletidi^igar eru deilugjörn pjóð,
halda uppi látlausu málpófi og jafn-
vel málaferlum út af cigin samskipt-
um. Á stjórnmálasviðinu eru pessar
deilur bæði liarðastar og linnuláús-
astar. Þær eru engu síður harðar og
óvægnar manna i milli og stjórnmál
eru sigilt umræðuefni, par sem tveir
menti hittast eða fleiri. Mönnum
hættir til pess að gera einstaka stjórn-
málaforingja að hálfguðum, en atld-
stæðingana svarla. Á pann hátt er
auðveldast að haggast ekki i hinni
pólitisku trú, en par er einnig sú
hœttan mest, að hafna rökum fyrir
trúna og um leið peirri frjálsu skoð-
anamyndun, sem á að vera grund-
völlur lýðrœðis í hverju pvi landi,
sem ekki bannar frjálsa hugsun.
Hinsvegar eru íslcndingar tnjög
umburðarlyndir í trúmálum, fremur
hæglátir í peim efnum, sækja litt
kirkju sína, en leggja á pað álierzlu,
viðasthvar, að lúrkjuhús séu hlý og
sælin hæg. Þeir eru miklir dulhyggju-
mcnn að fornu og nýju. Þessu er viða
i öðrum löndutn á annan vcg farið,
par setn trúmáladeilur risa hátt, en
stjórnmál siður.
Hinar hörðu deilur okkar um
stjórnmál og önnur mál, vilja oft
markast af pröngsýni, og pá er sú
hætta á næsta leiti, að pœr verði
mannsketnmandi, en fyrir öðrutn eru
deilurnar orðaleikur og iprótt. En
á heild er hinn ojmi umræðuvett-
vangur i blöðum og útvarpi, sjálft
fjöregg líðræðis og frjálsrar hugsun-
ar.
Auðvitað höldum við áfram að
skiptast á skoðunum, hvcr eftir pvi,
sem hann er maður til, pvi að skoð-
anaskiptin og deilurnar eru pættir i
daglcgu lifi. En næstu daga ættum
við pó að leggja ágreiningsmálin á
hilluna, fagna hækkandi sól og opna
bæði hug og hjarta fyrir pvi, setn góð
móðir kennir barni sínu utn allan
hinn kristna heim. —
GLEÐILEG JÓL!
- Jðrðhifinn á Norðurlandi
(Framhald af blaðsíðu 1)
vegna virkjunar spratt 35 gráðu heit
lind fram úr berginu. Jarðfræðingur
hefur talið, að laugarnar frá Brúum að
Birningsstöðum, sem er yzti bærinn í
Laxárdal, myndu álíka vatnsmiklar,
samanlagt og laugarnar hjá Laugum í
Reykjadal.
Vestan Þorgerðarfjalls, í Þegjanda-
dal, eru nokkrar smálaugar, allt að 37
gráðu heitar, en ókannaðar.
í Reykjadal eru volgar lindir í aust-
urhlíð dalsins, allt frá Öndólfsstöðum
að Brún. Mestur hitinn er í nágrenni
Laugaskóla og hefur hann verið nýttur
síðan 1924 fyrir skólann og næstu bæi.
Laugar þær, sem notaðar eru, eru milli
50 og 60 gráðu heitar. í landi Stafns og
Víða í Reykjadal, eru smá-volgrur og
ennfremur nálægt Víðikeri í Bárðar-
dal.
Mývatnssveit er mikið jarðhitasvæði.
Þó eru ekki íbúðarhús hituð með jarð-
hita. Austan við Námafjall voru bor-
aðar nokkrar holur fyrir mörgum ár-
um, og á síðustu árum í Bjarnarflagi
vegna Kísiliðjunnar og raforkufram-
leiðslu. Þar öskra gufuborholur dag og
nótt. Stóragjá og Grjótagjá eru náttúr-
legir baðstaðir, sem vekja furðu ferða-
manna, báðar með hraunþaki og heitu
-vatni. Margir brennisteinshverir eru í
Námaskarði.
ÖN GULSST AÐ AHREPPUR.
í Öngulsstaðahreppi eru laugar og
volgrur á nokkrum stöðum. Björn
Jóhannsson fyrrum bóndi á Syðra-
Laugalandi varð fyrstur til að hita upp
bæ sinn með laug, sem þar er skammt
austan við og var það haustið 1926.
Laugin gaf þrjá fjórðu úr lítra á sek.
Um 1930 var svo sundlaug byggð þar,
sú er þar er enn og nýlega endurbyggð
og hituð með vatni úr sömu volgrum.
Fáum árum síðar, eða 1937, var svo
kvennaskóli örskammt frá tekinn í
notkun og einnig hitaður með laugar-
vatni, en þá var vatnið meira en full-
nýtt og varð að taka hitann frá sund-
lauginni til að húsmæðraefnin héldu á
sér hita. Síðar var úr bætt með leiðslu
úr Hólslaug, sem er skammt fyrir norð-
án. Með Hólslaug hefur Hólsbær lengi
verið hitaður. Þar hefur ekki verið bor-
að. Við Laugalandslaug var borað en
án teljandi árangurs.
Enn var í grenndinni byggt félags-
heimilið Freyvangur, og er að því
stefnt, að hita það með laugarvatni.
Brúnalaug var lengi þvottalaug
næstu bæja, en frá 1937 er jarðhitinn
notaður til að hita upp gróðurhús.
Vatnið þar er 67 gráður.
Neðan við Björk er volgra og önnur
hjá Grýtu, báðar niðri á flatlendinu og
munu ekki hafa verið notaðar að neinu
ráði. Þá má nefna laug hjá Garðsá í
sömu sveit, sem fyrr var einkum þæft
við og sá þess merki til skamms tíma.
SIGLUF J ÖRÐUR.
í Siglufirði eru laugar í Skútudal,
4 km frá kaupstaðnum, við rætur Hóls-
hyrnu að austan. Þar var borað eftir
heitu vatni árið 1964, 100 m djúp hola.
Sú borun þótti gefa til kynna, að unnt
væri að ná þar vatni til nytja. Á tveim
síðustu árum var borunum haldið
áfram og eru borholurnar nú fjórar og
árangurinn er 9 lítrar af sjálfrennandi,
60—65 gráðu vatni á sekúndu. Það er
Siglufjarðarkaupstaður, sem vatnsleit
þessa hefur látið gera, með varmaveitu
fyrir augum. Næsta sumar verður enn
borað í Skútudal og á þá að fást úr
því skorið, hvort draumur Siglfirðinga
um hitaveituna rætist eða ekki. En
reiknað er með, að 35 lítra á sek. þurfi
til að hita bæinn. Rafsegulmælingar
hafa farið fram og þykja þær benda til
þess, að rétt sé að halda tilraunum
áfram.
SVARFAÐARDALUR,
Jarðhitavottur er í hlíðunum norðan
við Dalvík, í landi Hóls á Ufsaströnd,
en svo er litið á, að þar sé ekki að
vænta nytja af heitu vatni. Jarðhiti er
í vesturhlíð dalsins ofan við Laugahlíð,
nokkrar uppsprettur um 30 gráðu heit-
ar. Litlu norðan við Laugahlíð var
Sundskáli Svarfdæla byggður á árun-
um 1928—1930, fyrsta yfirbyggða sund-
laug landsins og hituð með laugarvatni.
Ungmennafélögin Þorsteinn Svörfuður
í Svarfaðardal og Ungmennafélag
Svarfdæla á Dalvík stóðu fyrir fram-
kvæmdinni, áttu sundlaugina í hálfan
fjórða tug ára. Kristinn Jónsson neta-
gerðarmaður á Dalvík og lengi sund-
kennari, var helzti hvatamaður að
byggingu Sundskálans, og sundkennslu
á þeim tíma. En Svarfaðardalshreppur
var fyrsta sveitarfélag landsins, sem
kom á hjá sér skyldusundi.
Haustið 1965 var tilraunaborun gerð
í Laugahlíð. Fengust 3 sek. 1 af 36
gráðu heitu vatni. Það vatn var síðan
leitt í Sundskálann og heimavistar-
barnaskólann á Húsabakka, í landi
Laugahlíðar. Húsabakki var fyrsta
húsið í Svarfaðardal, sem hitað var með
laugarvatni.
f landi Hamars var örlitil laug.
Svarfaðardalshreppur lét bora þar eftir
heitu vatni haustið 1966. Sveitarfélag
Dalvíkurhrepps fékk leyfi til að hag-
nýta jarðhitann á Hamri og hófst borun
þar aftur 1968. Þar eru nú 3 borholur,
sem gefa nú 28 lítra á sek. af nær 60
gráðu heitu vatni. Heita vatnið streym-
ir inn í borholurnar á 155—215 metra
dýpi. í júlí 1969 hófust svo hitaveitu-
framkvæmdir. Flest hús í þéttbýlasta
hluta Dalvíkurþorps hafa nú verið
tengd hitaveitunni. Byrjað er á fjórðu
borholunni. Þeir bræður, Hjalti og
Jóhannes Haraldssynii’, hafa verið
miklir hvatamenn jarðhitaleitar og
hitaveitunnar.
VESTAN EYJAFJARÐARAR.
Á svæðinu suður frá Akureyri, vest-
an Eyjafjarðarár, eru margar laugar.
Þessar eru helztar:
Gilslaug er í gilinu milli bæjanna
Ytra-Gils og Syðra-Gils. Laug þessi er
í gilbotninum, og hefur hún ekki verið
notuð.
Reykhúslaug er heitasta laugin á um
ræddu svæði, eða 70—75 stig á C.
Vatnsmagnið er nálægt 3 sekúndulítr-
um, en í því magni er meðtalinn ca. 1
sek.l., sem fékkst við jarðborun á veg-
um Kristneshælis árið 1948. Meginhluti
þessarar laugar er notaður til upphit-
unar húseigna Kristneshælis og íbúðar-
húsa í Reykhúsum. Laugin var virkjuð
í þágu Kristneshælis árið 1926. Nokkur
hluti laugarinnar hefur til margra ára
verið notaður ti-1 upphitunar gróður-
húsa. Sveinbjörn Jónsson á merkan
þátt í nýtingu jarðhitans, hér nyrðra.
Kristneslaug kemur upp í lækjargili
nokkurn spöl fyrir ofan bæinn í Krist-
nesi. Er laug þessi ca. 55 stiga heit og
við fyrstu mælingar var vatnsmagnið
innan við 1 sekúnduliter. Þarna var
borað á vegum Kristneshælis ca. 400 m.
djúp hola á árunum 1936—38, en ár-
angur varð lítill. Við borunina o. fl. að-
gerðir jókst þó vatnsmagn laugarinnar
um rúmlega Vz sekúndul. Laugin er
notuð til upphitunar íbúðarhúss í
Kristnesi og nokkur hluti hennar er
notaður í þágu Kristneshælis. Við laug
þessa byggði Umf. Framtíðin opna
sundlaug, sem notuð var til sund-
kennslu um árabil.
í landi Grísarár er hiti í jörð (Grís-
arárlaug). Laug þessi kemur upp í mýri
nálægt þjóðveginum. Er því erfitt að
nytja hana, enda hitastig lágt. Um tíma
var þveginn þvottur við laug þessa af
næstu bæjum.
Hrafnagilslaug er skammt vestan
þjóðvegarins, nokkrum metrum vestan
við gamla þinghúsið (nú barnaskóli).
Getið er um laug þessa bæði í Víga-
Glúmssögu og Sturlungu. Hefur þarna
verið baðstaður í fornöld, og þarna hef-
ur verið þveginn þvottur, sennilega frá
mörgum bæjum. Laug þessi er 50—53
stiga heit, og vatnsmagnið var nálægt
1 sekúndulíter áður en nokkrar til-
raunir voru gerðar til að auka það.
Líkur benda til, að hægt sé að dæla
6—10 sekúndul. upp úr eyrunum. Jarð-
borun var framkvæmd þarna á vegum
unglingaskólans, sem þarna er í smíð-
um, en sú tilraun bar lítinn árangur.
Laugin er nú notuð til upphitunar fé-
lagsheimilisins Laugarborgar, barna-
skólahússins (áður þinghús) og nú síð-
ast unglingaskóla, sem er í smíðum.
Laug þessi var notuð til að hita upp
sundlaug meir en tvo áratugi.
Botnslaug er syðst í Hrafnagilslandi
rétt austan við þjóðveginn. Laug þessi
var talin um 67 stiga heit, en hún kem-
ur upp í mýri, og er því erfitt að segja
til um vatnsmagn og raunverulegt hita-
stig.
í landi Hleiðargarðs í Saurbæjar-
hreppi var laug, en hennar gætir lítið
nú, þar sem hún hefur grafizt í skriðu-
föllum a. m. k. tvisvar sinnum, svo að
sögur fari af.
Hólsgerðislaug er nálægt Eyjafjarð-
ará, norðan við hólinn, sem bærinn
Hólsgerði stendur á. Hitastig er lágt.
Við laug þessa var byggð sundlaug
nokkrum árum eftir aldamótin, og var
kennt sund þar nokkur ár.
Beint á móti Stóradal er Varmhagi
og hefur heyrzt getið um jarðhita þar.
Ennfremur mun vera einhver laug í
Strjúgsárdal, nokkru framan við eyði-
býlið Strjúgsá.
SKAGAFJÖRÐUR.
f jarðamatsbók frá 1942 er jarðhiti
talinn á 38 býlum í Skagafjarðarsýslu,
og er jarðhitinn í 8 hreppum. Mestur
er jarðhitinn í Fljótum og Lýtings-
staðahreppi. í þessum sveitum er jarð-
hiti notaður til upphitunar á allt að
20 bæjum samtals, en það var ekki fyrr
en á árunum milli 1940 og 1950, sem
heitt vatn var leitt inn í hús, til upp-
hitunar, en miklu fyrr í Varmahlíð og
eru þar öll hús hituð með laugarvatni.
Á Steinsstöðum í Lýtingsstaðahreppi er
skólinn hitaður með laugarvatni og í
Fljótum skólinn á Sólvöllum.
Heitt vatn var fyrst leitt í hús á
Sauðárkróki 5. febrúar 1953. Þar voru
þá til notkunar 14 lítrar á sekúndu af
68 gráðu heitu vatni. Nú eru öll hús
kaupstaðarins hituð með laugarvatni og
enginn skortur á því í næstu framtíð.
Það hun hafa verið Ólafur Sigurðs-
son á Hellulandi, sem kom auga á það,
að heitt vatn sprytti upp úr botni Ás-
hildarholtsvatns, sem er örskammt frá
Sauðárkróki, og átti hugmyndina að
hitaveitu Sauðárkróks. Við athugun
reyndist þetta rétt og þá var borað úti
í vatninu með ágætum árangri og síðan
oftar við þetta sama vatn. Er þetta
jafnframt eini staðurinn í sýslunni, þar
sem heits vatns hefur verið leitað með
jarðbor. Fyrsti borinn, sem notaður
var, var frá Jarðhitadeildinni, en síðan
var jarðbor smíðaður af heimamanni
og reyndist vel.
Sundlaugar í Varmahlíð, Sauðár-
króki, Steinsstöðum og á Barði í Fljót-
um, eru allar hitaðar með laugarvatni,
ennfremur á Reykjum í Hjaltadal og á
Víðivöllum í Blönduhlíð. Þessi ófull-
komna upptalning sýnir, að víða í hér-
aði eru jarðhitasvæði og enn hefur að-
eins á einum stað verið leitað að heitu
vatni með borun. Er líklegt, að á fleiri
stöðum, sennilega mörgum, væri unnt
að fá mikið magn af heitu vatni upp á
yfirborðið, til margskonar nota í sveit-
um héraðsins. Og á fleiri stöðum er
jarðhiti en hér voru nefndir.
HÚNAVATNSSÝSLA.
í Húnavatnssýslu er mestur jarðhiti
á fjórum stöðum: Á Reykjum í Hrúta-
firði, Reykjum í Miðfirði, Reykjum á
Reykjabraut og á Skarði á Vatnsnesi.
Volgrur eru á Tannastaðabakka og við
Laxárvatn, svo og á hálendi sunnar í
sýslunni.
ÖLAFSFJÖRÐUR.
f desember 1944 var lokið við að
tengja öll hús þéttbýlisins við Ólafs-
fjörð nýrri hitaveitu, frá Gai'ðsdal.
Aðalæð er 3.5 km., fallhæð 70 metrar.
Vatnsmagn var 12 lítrar á sek. og hit-
inn um 50 gráður. En bæði hefur vatn
verið aukið og það hefur líka hitnað,
a. m. k. á notkunarstað vegna endur-
nýjunar á lögnum, síðast í fyrra.
Volgrur eru víða í Ólafsfirði, svo
sem á Vatnsenda, Þverá og Bakka, og
mikið og heitt vatn er á Reykjum og
á fleiri stöðum þar. Hvei'gi er heita
vatnið notað nema í fyrrnefnda hita-
veitu.
AKUREYRI.
Nær 50 gráðu heitt vatn kemur upp
á nokkrum stöðum í Glerárdal við
Akureyri. Lindum þessum var safnað
saman fyrir forgöngu ungmennafélaga
og vatnið leitt til sundstaðar bæjarins
og þangað rennur það enn. Mun það
talið 3.5 lítrar á sekúndu. Það var fyrst
leitt til bæjarins 1931—1932 og með
því hitaður sundstaður 1933 en hefur
það hitað upp Sundlaugina síðan 1936.
Tvisvar hefur verið borað í Glerárdal,
síðara skiptið 1965, en án árangurs.
Akureyrarkaupstaður lét bora eftir
heitu vatni á Laugalandi á Þelamörk
1941—1942, aftur 1945 og enn 1969—
1970. Með dælingu fást þar a. m. k.
15—20 lítrar af mjög heitu vatni.
Des. 1970. E.D.
Gleðileg jól!
Farscelt nýtt dr!
Þökk fyrir viðskiptin á; árinu.
Almennar Tryggingar h.f.
Hafnarstræti 100.
Gleðileg jól!
Farsælt nýtt ár!
Þökk fyrir viðskiptin á árinu.
Verzlunin Rún.
Viðfal við Slefán Ágúsl
(Framhald af blaðsíðu 8)
Þú hafðir snenima yndi af
söng og tónlist?
Faðir minn Kristján Jónsson
bóndi og smiður var söngvinn
mjög, hafði mjög góða söng-
rödd og var Glæsibær miðdepill
söngs og tónlistar vestan fjarð-
arins um langt skeið með að-
stoð Magnúsar Einarssonar
organista á Akureyri og þátt-
töku Glæsibæjarfeðga og Har-
aldar Pálssonar, Dagverðareyri,
föður Jóhanns Ó. Haraldssonar,
en þeir feðgar voru organistar
um skeið í Glæsibæjarkirkju.
Sjálfur var ég organisti um
tíma við kirkjuna ásamt Lög-
mannshlíðarkirkju og Jón bróð
ir minn til ígripa en aðalorgan-
istastarf hans var þó við Möðru
vallakirkju um áratugi.
Þú manst frostaveturinn
mikla?
Veturinn 1918, hið mikla
kulda- og hafísár, skeði í raun
og veru merkisatburður í lífi
mínu, og var hann örstutt frá
hinum merka sögustað Gáseyri,
en um það hefi ég skrifað all-
ítarlega í Kvöldvökuútgáfuna
1963 og vísast til þess þar.
Þú ert búfræðingur, Stefán?
Við inngöngu mína í Hóla-
skóla haustið 1919 opnaðist mér
nýr heimur og hafði ég mjög
mikið gagn af dvöl minni þar.
Sigurður, er síðai' var búnaðar-
málastjóri, var í þann veginn að
láta af skólastjórn, en við tók
Sigurður Baldvinsson frá
Kornsá og reyndist hann mér
næstum sem faðir minn væri.
Fól hann mér ýmis trúnaðar-
störf við skólann, svo sem bóka-
verzlun skólans í ,,gamla bæn-
um“. Sumarið 1920 tók við skóla
stjórn á Hólum Páll Zophanías-
son, og tel ég að hann hafi verið
allra skemmtilegasti skólastjór-
inn, sem ég eignaðist þar,'kátur
og margminnugur, og naut ég
einnig hins bezta trausts hjá
honum og vildi hann veg minn
sem mestan og gaf mér heil-
ræði, vildi að ég færi í Sam-
vinnuskólann eða Verzlunar-
skólann, sem þó ekki varð af,
því þá tóku kreppuár við.
Svo tóku markskonar störf
við?
Á þessum næstu árum var ég
fyrsta árið við heimiliskennslu
1923 til 1924, síðan 1 ár 1924—25
hjá Sveinbirni Jónssyni bygg-
ingameistara við bókhald o. fl.,
næstu 4 árin hjá I. Brynjólfs-
son & Kvaran og var Ágúst
Kvaran þar húsbóndi minn, þar
næst í 4—5 ár hjá Verzluninni
París og síðasta árið se mverzl-
unarstjóri, en árið 1936 réðst ég
forstjóri Sjúkrasamlags Akur-
eyrar og var það óslitið til 1.
sept. 1970, að ég lét af störfum
samkvæmt eigin ósk. Á þessum
árum var ég jafnframt fram-
kvæmdastjóri Almannatrygg-
inga á Akureyri 1946—57. Á
félagsstörf mín á öllum þessum
árum ætla ég ekki að minnast,
það yrði alltof langt mál í til-
tölulega stuttu blaðaviðtali, en
á þessum árum dreif margt á
daga mína í félagsmálum.
Þú hefur ætíð verið bindindis
niaður og starfað ötullega að
bindindismálum?
Já, ég get ekki látið hjá líða
að geta þess, að ég varð þegar
í æsku snortinn af stefnu föður
míns í bindindismálum, en
ákvað að eyða ekki tímanum í
prédikanir um þessi mál, heldur
láta verkin tala og tel mig hafa
stefnt í rétta átt, en framundan
beið margt óleyst, því vestur á
þessari stóru lóð við VVarðborg
bíður staður sem ætlaður var
fyrir sönghöll og stærra og full-
komnara bíó. Svíður mér að
hafa ekki komizt lengra með
það mál. Hefi átt margar
áhyggjustundir út af því, en
verð að vona að einhver komi
því máli lengra áleiðis eða í
höfn, en fann liann ekki því
miður áður en ég varð að þoka.
Og nú hefur þú dvalið ár í
höfuðborginni?
Hinn 17. nóv. sl. var rétt ár
liðið frá þvi að við stigum upp
í flugvél á Akureyri á leið til
Reykjavíkur, þar sem hið nýja
heimili beið okkar hér í Reykja-
vík, en húsgögn okkar og hafur-
landleiðina til Reykjavíkur og
task hafði síðustu dagona farið
börn okkar og ýmsir góðir hjálp
endur raðað upp í okkar fyrir-
hugaða heimili að Drápulilíð 20,
hvar við höfum búið síðan.
Þökk sé þeim öllum er hugs-
að hafa hlýtt til okkar, heim-
sótt okkur eða sent okkur vina-
kveðjur.
Við hjónin óskum ykkur alls
góðs og allra heilla á nýju ári
og kveðjum ykkur með óskum
um gleðileg jól, ségir Stefán
Ágúst Kristjánsson að lokum,
og þakkar blaðið viðtalið og
sendir viðmælanda sínum og
fjölskyldu hans beztu kveðjur
suður yfir heiðar. □
Norðlenzkir vegir
eru flestir færir en mjög svell-
aðir og því hálir og hættulegir
nema fyllstu varúðar sé gætt.
Til jólagjafa!
DÖMUPEYSUR
— heilar og hnepptar,
bæjarins mesta úrval
DÖMUBLÚSSUR
— margar gerðir og
litir
DÖMU-
UNDIRFATNAÐUR
— í miklu úrvali
Ný gerð af
NÁTTKJÓLUM
VERZLUNIN DRÍFA
Sími 1-15-21.
imj
Boulique
ViÖ höfum jólagjöfina
fyrir
unnustann, eiginmanninn
og soninn
JMJ-föt - tizkuföt unga mannsins
ARISTO- og KORÓNA.föt
- á unga og aldna
JAKKAR
RUXUR
margar gerðir og litir
FLAUELSBUXUR
m. hnepptri klauf
SKYRTUR og BINDI
PEYSUR
margar gerðir og litir
NYLONSTAKKAR
HLÍFÐARBUXUR
KULDAJAKKAR
FRAKKAR
stuttir og síðir
INNISLOPPAR
í glæsilegum litum
NÆRFÖT
margar gerðir og litir
SOKKAR
LEÐURBELTI
margar gerðir
SIÍYRTUHNAPPAR
SNYRTIVÖRUR
LEÐURJAKKAR
nýjar gerðir
HERRADEILD
JMJ
AKUREYRI
RAÐHUSTORGI 3
SÍMI 11133
GRÁNUFÉIAGSG. 4-
SÍM1115 99
f