Dagur - 19.01.1972, Side 8
p
ty
i
Oft koma erlend skip að landi og nú síðast tveir brezkir skuttogarar.
(Ljósm.: E. D.)
Hýr aagnfræðaskóli tekm í notkun á Ólalsfirði
SMATT & STORT
Ölafsfirði 10. janúar. Laugar-
laginn 8. jan. var mikill sigur-
dagur hjá okkur Ólafsfirðing-
•:im. Þá var hið nýja gagnfræða-
skólahús vígt að viðstöddu
miklu fjölmenni.
Hófst vígslan með því, að
xirkjukór Ólafsfjarðar söng ,.Þú
guð sem stýrir stjarnaher“, með
■jndirleik Soffíu Eggertsdóttur,
íennara. Þá flutti Þorvaldur
Þorsteinsson, formaður fræðslu
•áðs, ræðu. Rakti hann bvgg-
: ngarsögu skólans frá byrjun og
til vígsludags. Var bygging haf-
::n sumarið 1967 og grunnur þá
grafinn fyrir A og B álmu húss-
HLAUT SILFUR-
HESTINN
: NDRIÐI G. ÞORSTEINSSON
hlaut að þessu sinni Silfurhest-
nn fyrir bók sína Norðan við
stríð, sem út kom á síðasta ári.
Sn þessi verðlaun veita gagn-
rýnendur dagblaða ár hvert.
Hlaut Indriði 450 stig. Næstur
varð Hannes Pétursson með 300
stig fyrir bók sína Rímblað og
oriðju í röðinni urðu Jón Helga
son og Steinar Sigurjónsson
neð 100 stig fyrir bækurnar
Orð skulu standa og Farðu burt
skuggi. □
LAUGARDAGINN 15. þ. m.
var opnuð skrifstofa hjá hinu
nýstofnaða vátryggingafélagi,
Norðlenzk Trygging h.f., í BP-
húsinu við Tryggvabraut á
Akureyri.
Starfssvæði félagsins er fvrst
og fremst Norðlendingafjórðung
ur en einnig mun félagið taka
að sér tryggingar hvar sem er
á landinu.
Félagið mun annast allar
venjulegar vátryggingar að und
anskildum líftryggingum.
Hluthafar eru nú á annað
hundrað víðsvegar að a fland-
inu en lang flestir enn sem kom
ið er frá Akureyri og nágrenni.
Innborgað hlutafé er r.ú um
ein og hálf milljón en þar að
auki liggja fyrir hlutafjárloforð,
sem nema um tveim milljónum.
Á stofnfundi var hlutafé
ákveðið 2 milljónir en stjórn-
ins. Ekki komst verulegur skrið
ur á bygginguna fyrr en sumar-
ið 1969, en þá voru grunnar
steyptir í báðum þessum álmum
og A álmu komið undir þak.
Sumarið 1970 komst svo B
álma undir þak og var þá farið
að vinna með krafti að innrétt-
ingum að þessum hluta hússins.
Nú eru báðar þessar álmur full-
gerðar innan og allur frágangur
hinn vandaðasti.
í sumar var grafið fyrir C og
D álmu og grunnur steyptur fyr
ir C byggingu skólans. Verður
það því næsti áfangi að ljúka
við byggingu á þessum álmum.
Að lokum færði Þorvaldur öll-
um þakkir er hér höfðu lagt
hönd að verki og óskaði skólan-
um velfarnaðar í starfi. Afhenti
hann síðan bæjarstjóranum, Ás-
grími Hartmannssyni, lykla
skólans.
Tók þá bæjarstjórinn til máls.
Færði hann bygginganefnd skól
ans og formanni fræðsluráðs,
svo og skólastjóra Kristni G.
Jóhannssyni, sérstakar þakkir
fyrir mikið og óeigingjarnt starf
af hendi leyst í þágu byggingar-
innar. Þá þakkaði Ásgrímur öll-
um er unnið höfðu að byggingu
skólans svo og bæjarbúum fyrir
einhug og góðan vilja sem óefað
hefði orðið byggingunni til fram
dráttar. Að lokum óskaði hann
skólanum gæfu og gengis og
inni heimlað að auka það í 5
milljónir, sem hún gerði mjög
fljótlega vegna mikillar eftir-
spurnar og góðra undirtekta
almennings, er því aðeins eftir
að selja eina og hálfa milljón í
hlutabréfum.
Á opnunardegi lágu fyrir fjöl-
margar tryggingabeiðnir og þar
á meðal trygging á 4 flugvélum.
Stjórn félagsins álítur að
Norðlendingar geti sjálfir ann-
ast þessa þjónustustarfsemi en
þurfi ekki að sækja hana til
Reykjavíkursvæðisins eins og
verið hefur hingað til.
Stjórn félagsins skipa: Valdi-
mar Baldvinsson, Aðalsteinn
Jósepsson, Hreinn Pálsson, Pét-
ur Breiðfjörð og Óli J. Ólason.
Forstöðumaður er Bjarni
Arthúrsson.
(Fréttatilkynning)
afhenti Kristni G. Jóhannsyni
skólastjóra lykil skólans.
Flutti þá Kristinn skólastjóri
skörulega ræðu. Sagðist hann
fagna mjög þeim merka áfanga,
sem náðzt hefði í skólamálum
okkar Ólafsfirðinga með bygg-
ingu þessa hluta skólans, sem
nú er lokið, en lagði jafnframt
á það þunga áherzlu, að nú yrði
ekki látið staðar numið, heldur
lokið sem fyrst byggingu á
þeim álmum, sem eftir eru.
Hvatti Kristinn að lokum kenn-
ara skólans og nemendur að
vinna einhuga saman að því, að
hin nýju húsakynni mættu bera
sem ríkulegastan ávöxt.
Að lokum söng kirkjukórinn
„Við stöndum á bjargi sem bif-
ast ei má“.
í þessum tveim álmum, sem
(Framhald á blaðsíðu 4)
HÚSMÆÐRASKÓLI Akureyr-
ar var settur 5. janúar, af skóla-
stjóranum, Guðrúnu Kristins-
dóttur, og fór setningarathöfnin
fram í skólanum. Þessi atburð-
ur er einkum fréttnæmur vegna
þess, að skólasetning hefur ekki
farið fram í skólanum um ára-
bil, þótt þar hafi verið nám-
skeiðahald er konur hafa sótt
vel.
Síðan skólinn tók til starfa 6.
september í haust hafa 47 kon-
ur sótt matreiðslunámskeið
hans, 20 konur sóttu vefnaðar-
námskeíðin og 42 konur sauma-
námskeiðin. Ennfremur voru 10
nemendur í fyrsta hluta af átta
ÞARFLAUSIR OG ÞÓ----------
Dráttarvélar og fleiri vélknúin
tæki, svo og bifreiðar, flugvélar
og önnur farartæki hafa tekið
við störfum liestsins og gert
hann „þarflausan“. Minning
lians er þó í heiðri höfð víða um
lönd og enn er hann notaður til
margra hluta til skemmtunar og
við þær tegundir íþrótta, sem
enn eru stundaðar og krefjast
hesta. Veðreiðar draga enn að
sér fólksfjölda, hindrunarhlaup
hesta, kappakstur með hestum
og margt fleira. Veðhlaupahest-
ar eru seldir fyrir svimliáar fjár
upphæðir, svo og kynbótahross.
Ilestar eru þarflausir, segja
margir, en þeir eru, þrátt fyrir
það, í hávegum hafðir og svo
mun lengi verða, þótt þeir gegni
nýju hlutverki.
LÉTTIVAGNAR
Við þekkjum kappreiðarnar hér
á landi, en livorki hindrunar-
hlaup eða aksturskeppni í létt-
um vögnum. Á sumum stöðum
erlendis, ferðast fólk ódýrt í
hestvögnum er breyta má í
svefnvagna að kveldi. Keppt er
í kappakstri, þar sem einn hest-
ur gengur fyrir og eru þeir
vagnar mjög léttir og einfaldir.
Vill nú ekki einhver hagleiks-
maður gera tilraun með að fram
leiða slíkan vagn, tvíhjóla, er
lientaði til kappaksturs og einn-
ig ferðalaga? Fyrirmyndir væri
sjálfsagt að fá erlendis til þess
að komast hjá mörgum mistök-
um. Að vetrinum þyrftu svo
léttir hestasleðar að auka
ánægju þeirra, sem eiga hesta
og vilja nota þá sér til skemmt-
unar og lieilsubótar.
Á SÍÐUSTU tónleikum Tón-
listarfélags Akureyrar lágu
frammi áskriftarmiðar fyrir
væntanlegar tónlistarkynningar
Philip Jenkins á píanósónötum
Mozarts. Þessi könnun leiddi í
mánaða námskeiði matsveina á
fiskiskipum og flutningaskipum,
og luku þeir prófi þessa áfanga.
Nú er sauma- og vefnaðar-
námskeiðum fram haldið. En
auk þess eru 17 nemendur á
fimm mánaða húsmæðraskóla,
sem starfar með nokkuð öðrum
hætti en hinum hefðbundna.
Nemendur fá jafnmikla kennslu
í hússtjórnarfræðum og einnig
í bóklegum fræðum en útsaumi
og vefnaði var sleppt. Þó hafa
nemendur aðgang að vefnaðar-
námskeiði og að læra að sníða
og sauma eigin fatnað.
Aðsókn er meiri að skólanum
en hægt er að sinna. □
VINDHOGG
Mörgum þótti Morgunblaðið slá
mörg vindhögg og stór er það í
suniar allt í einu varð stjórnar-
andstöðublað og úr því allur
vindur. Þá settust öryrkjar að'
„veizluborði“ og líka gamal-
mennin, að dómi Mbl. vegua
þess að ofurlítið var bættur
hagur hinna verst stöddu í þjóð
félaginu eftir að ný stjóm tók
við. En þetta litla vindhögg var
ekki héppilegt fyrir stjórnar-
andstöðuna.
FÖLSUÐU UMMÆLIN
Stærra var það vindliögg þeirra
Mbl.-manna er þeir fölsuð,u um
mæli forsætisráðherra, og mat-
reiddu þau í blaðinu. En Mbl.
varð að láta sér það lynda, að
draga í land og að hafa orðið
sér til minnkunar. Von var, að
Mbl. væri ekki ánægt, en í stað
þess að láta mistökin sér að
kenningu verða, reiddi það enn
til höggs, og lýsti yfir því, að
þrír þingmenn Framsóknar
styddu ekki núkilvæg efnis-
atriði í stefnu ríkisstjórnarinn-
ar. Þetta var líka vindhögg, sem
aðeins skaðaði stjórnarandstöð-
una.
STÓRA BOMBAN
Síðasta stórbomba Mbl. var svo
sú, er það birti hluta úr ræðu
Emils Jópssonar, er merkt var
trúnaðannál, en blaðamaður
Mbl. komst yfir, og birt var í
Mogganum sem ræða Einars
Ágústssonar utanríkisráðherra.
En þessi stórbomba sprakk í
höndunum á Mbl.-mönnum og
blaðið neyddist til að biðjast
opinberlega afsökunar á frum-
hlaupi sínu.
ljós svo mikla aðsókn, að kynn-
ingarnar fara fram bæði laugar-
dag og sunnudag. Þeir sem
fyrstir urðu til að skrifa sig, fá
miða, er gilda fyrir sunnudag-
ana. En að auki eru nokkrir
miðar fáanlegir og verða seldir
við innganginn. Er fólk vinsam-
lega beðið að koma á þeim degi,
sem miðar segja til um.
Áskriftarmiðar verða næstu
daga bornir í hús og kosta mið-
ar að öllum kynningunum kr.
200 en að hverri einstakri kr.
75.
Kynningarnar hefjast n. k.
laugardag 22. jan. og sunnudag-
inn 23. jan. og hefjast kl. 17.
Fara þær fram í húsakynnum
Tónlistarskólans. □
ÆSKULÝÐSBLAÐIÐ
fjölbreytt að efni, 3.—4. tölu-
blað, er komið út og verður selt
á sunnudaginp. Það er um 70
blaðsíður, myndskreytt. Rit-
stjóri er séra Bolli Gústafsson.
Undirskrif tarlistar
um raforkumál
verða sendir ríkisstjórninni í
næstu viku. Þegar hafa listar
með 2600 nöfnum borizt í hend-
ur stjórnar Eyjafjarðardeildar
samtakanna. Hins vegar eru
enn úti nokkrir listar og eru
menn beðnir að skila þeim í
hendur stjórnarmanna fyrir
föstudaginn 21. janúar.
Stjórn Eyjafjarðardeildar.
Frá Hagsnuinasamtökum
Norðlendinga.
(Fréttatilkynning)
Matsveinaefnin í Húsinæðraskólanum.
Nýff véfryggingarféiag á N-landi
Húsmæðraskóli Ákureyrar settur
T ónlistar ky nningar