Dagur


Dagur - 26.01.1972, Qupperneq 1

Dagur - 26.01.1972, Qupperneq 1
Dagur LV. árg. — Akureyri, miðvikudagiim 26. janúar 1972 — 4. tölublað Franski togarinn aS koma KALDBAKUR landaði í Grims- by 7. janúar 88 tonnum og seldi aflann fyrir 15.120 pund eða kr. 38.03 pr. kg. Svalbakur landaði á sama stað 11. janúar 117 tonnum. Verð 20.491 pund eða 38.80 pr. Harðbakur landaði 3. janúar í Grimsby 89 tonnum. Seldi fyrir 15.696 pund eða kr. 37.50 kr. kg. Sléttbakur landaði 11. janúar einnig í Grimsby 98 tonnum. Verð aflans var 18.605 pund eða 42 krónur kílóið. Harðbakur er í siglingu en hinir togararnir eru á veiðum. Áki Stefánsson togaraskip- stjóri er, ásamt nokkrum öðr- um, farinn til Buologne í Frakk landi til að sækja nýkeyptan togara U. A., sem væntanlega verður tilbúinn til afhendingar fyrir mánaðámótin. Q Dalvík UM miðjan mánuðinn komu hingað 12—1300 minkar, tvær tegundir, keyptir frá Sauðár- króki og Akranesi. Eigandinn er Þorsteinn Aðal- steinsson útgerðarmaður á Dal- vík, sem keypti af hreppnum íbúðarhúsið á Böggvisstöðum, fékk þar ennfremur stóra lóð og hefur byggt vandað hús fyrir loðdýrin og sett upp trausta girðingu umhverfis það. Skarp- héðinn Pétursson er þar bú- stjóri. Mun í ráði að stækka búið til muna. Mestur hluti fóð- ursins fæst hjá frystihúsinu á Dalvík. Stofnkostnaður nú er um 12 milljónir króna, þar með talin dýrin og gamlar og nýjar bygg- ingar. Félagsútgerð Aðalsteins Lofts sonar er að byggja frystiaðstöðu Vinningaskrá Happ- drættis Framsóknar 1. Bifreið: nr. 9203. 2. Snjósleði: nr. 31970. 3. Sunnuferð: nr. 9320. 4. Segulbandstæki I: nr. 35155. 5-10. Reiðhjól: nr. 3842, 18365, 23168, 26501, 31574, 37500. 11-12. Segulbandstæki II: nr. 21949, 37771. 13-15. Mynd-sýningavélar: nr. 6893, 16414, 43853. 16-25. Sportvörur: nr. 9684, 13343, 18776, 18964, 20750, 26435, 28990, 31396, 32607, 44859. 26-50. Bækur: nr. 1618, 1824, 3157, 5674, 5967, 7470, 8502, 10130, 11873, 15471, 15795, 16615, 19523, 20629, 23486, 23914, 32980, 34937, 35633, 39896, 40061, 40176, 42204, 42544, 43432. (Birt án ábyrgðar). við fiskmóttökuhús sitt hér á staðnum, og er félagsútgerðin mikill atvinnuveitandi hér. Bát- ur hennar, Loftur Baldvinsson, er nú að búast til loðnuveiða, mun halda úr höfn í dag eða á morgun. Snjór er orðinn um 40 senti- metrar, jafnfallinn. Fólksbíla- færi er því ekki. Togbátarnir eru báðir inni eins og er. Dauft er yfir atvinnu lífinu ennþá, enda hefur lítið fiskazt það sem af er árinu. J. H. Húsavíkurkaupstaður. (Ljósm.: E. D.) Róið á hverjum degi út frá Húsavík Húsavík 25. janúar. Róið var í fyrri hluta þessa mánaðar á hverjum virkum degi og 15. janúar hafði Fiskiðjusamlag Húsavíkur tekið á móti 212 tonnum af fiski. í síðustu viku voru farnir 5 róðrar og aflinn var 50 tonn. Laugardaginn 22. Æskulýðssfarfsemi í Lóni ÆSKULYÐSRÁÐ Akureyrar hefur tekið á leigu í sex mánuði félagsheimili Geysis, Lón. Þar er nú undirbúnin ýmiskonar starfsemi og húsnefnd hefur verið skipuð, tveir frá Æsku- lýðsráði og þrjú ungmenni. For- maður er Ingólfur Ármannsson en framkvæmdastjóri er Har- aldur Hansen. í Lóni et ráðgert að hafa opið hús, halda dansleiki, námskeið og kvöldvökur. Þar verður einnig veitingasala. Unglingar hafa unnið að breytingum á húsinu og munu þeir kvaddir þar til meira starfs. Eflaust gefst tækifæri til þess síðar, að segja nánar frá þessari starfsemi. Q ASl kynnir landhelgismál ALÞYÐUSAMBAND íslands hefur sent frá sér yfirlit um landhelgismálið til verkalýðs- og sjómannasambanda víðsveg- ar um heim. í greinargerðinni er fyrst sýnt ljóslega fram á hversu íslend- ingar eru háðir fiskveiðum, í öðru lagi er fjallað um nauðsyn þess að vernda fiskistofnana, þá er fjallað um lagahlið málsins og lagarétt til landgrunnsins, um gildi einhliða aðgerða, sögu- legan rétt, hlutdeild íslendinga í fiskveiðum, alþjóðega verka- skiptingu, alþjóðlega samstöðu verkalýðssamtaka og er það lengsti kaflinn, sem lýkur með áskorun til verkafólks á sjó og landi í öllum löndum. Q janúar hafði Verið róið svo til hvern einasta virkan dag mán- aðarins og Fiskiðjusamlagið tek ið á móti 262 tonnum. Þess munu fá dæmi eða engin, að hægt hafi verið að sækja svo vel sjó í janúarmánuði á Húsavík. Sjóinn sækja 7 þilfarsbátar með línu og einn með net. Ennfrem- ur róa örfáar trillur þegar á sjó gefur fyrir þær. Vinna hefur verið í Fiskiðju- samlaginu alla virka daga mán- aðarins til þessa. Hafin er til- raun með ákvæðisvinnu í frysti húsinu. í öllum janúarmánuði í fyrra fékk Fiskiðjusamlagið 171 tonn af fiski. Rétt eftir áramót voru teknar í notkun tvær kennslustofur í bvggingu Gagnfræðaskóla á Húsavík. Þar er kennt tveim bekkjardeildum Gagnfræðaskól ans fyrri hluta dags og Iðnskól- anum síðari hluta dagsins. Stefnt er að þvi, að taka alla bygginguna í notkun næsta haust. Þar verða 8 kennslustof- ur, auk þess salur fyrir bóka- safn og lestrarstofa. Hinn 14. þ. m. hófst hér á Húsavík námskeið til meira- HríseyingarlátasmíJabáta Á LAUGARDAGINN var hald- inn sérstæður fundur í Háskóla bíói í Reykjavík. Þar mætti fólk á tvítugsaldri, fjögur þúsund talsins, en til fundarins boðaði svonefnd Glaumbæjarhreyfing, sem fjölmiðlar hafa frá sagt. Tilgangur hreyfingar þessar- ar, svo og fundarins, er að búa ungu fólki aðstöðu til að „tjá sig og gleðja á eðlilegan hátt“. DAGUR kemur út á miðvikudaginn 2. febrúar. arhreyfing En þann stað er ekki að finna í Reykjavík eða nágrenni, síðan Glaumbær brann í vetur, en hann var, skemmtistaður, vett- vangur til umræðna, fundarstað ur, leikhús og tónleikahús. Hinn fjölmenni fundur kaus 30 manna Glaumbæjarráð til að vinna að því við ráðamenn borg arinnar, að úr verði bætt. Ef ekki reynist unnt að fá Glaum- bæ endurbyggðan, vill unga fólkið fá annan stað óþekkan, og er reiðubúið að rétta þeim hjálparhönd, sem vinna vilja að framgangi þessa máls. Q Hrísey 24. janúar. Því miður hefur einn bátur, Auðunn, ver- ið seldur héðan og fór hann til Grenivíkur. En hins vegar er nú búið að semja um smíði þriggja báta og verið að semja um þann fjórða. Byrjað er á fyrsta bátnum, 30 tonna bát hjá Slippstöðinni á Akureyri, og einnig á 12 tonna bát hjá Skipasmíðastöð KEA. Þá mun smíði að hefjast á 12 tonna bát á Siglufirði, en ekki er fullsamið um smíði á þeim fjórða, sem væntanlega verður um 20—25 tonna bátur. Kominn er töluverður snjór og hefur rennt í djúpa skafla. Sjósókn er engin, eins og er, enda hefur viðrað illa til þess. Senn verður þorrablót haldið. Söngkennari er hér og hefur víst sjaldan verið sungið eins mikið og nú. Menn eru á kafi í launamið- um og öðrum hrellingarplögg- um hins opinbera, svo sem skattaskýrslum, og geta ekki litið upp úr því, fyrr en því er lokið. íbúar eru um 300, eins og verið hefur undanfarin ár. Tekjur manna eru alveg sæmi- legar, og ekki yfir neinu að kvarta. Menn eru glaðir í hjarta og ber það vott um gott trúar- líf, enda mikið messað og kirkju sókn góð. S. F. prófs fyrir bifreiðastjóra. Er gert ráð fyrir, að það standi í 5—6 vikur. Þátttakendur eru 43. Kennarar eru: Sigurður Indriða son frá Akureyri, sem kennir á vél og yagn, Vilhjálmur Páls- son íþróttakennari á Húsavík, sem kennir hjálp í viðlögum og Aðolf Aðolfsson lögfræðingur frá Reykjavík, sem kennir um- ferðarlög og reglur. Aðolf er nýfluttur til Húsavíkur, ráðinn að embætti bæjarfógetans. Kaupfélag Þingeyinga verður 90 ára 20. febrúar n. k. og verð- ur nánar sagt frá því síðar. Þ. J. Bíðum enn efíir sjónvarpinu Haganesvík 24. jan. Hér er kom inn ofurlítill snjór og nokkrir skaflar. En veðurhæð var hér mikil í nótt, og enn gengur á með éljum. Ofært mun minni bílum. Við bíðum ennþá eftir sjón- varpinu, sem við vonuðum að stytti okkur stundir um jólin. En sjónvarpið er enn ókomið, en von til þess nú, að sjónvarps stöðin, sem hér var reist, komi nú loks í gagnið, innan skamms tíma. Góða tíðin undanfarið mun hafa flýtt framkvæmdum. Svo er þorrablót í Ketilási framundan. Það er góður sam- komustaður og þar verður þorramatur fram borinn í trog- um, og mun þar ekki matföng skorta. E. Á. Þorrablót Iramundan Ási Vatnsdal 24. jan. Frá því um jól og þar til fyrir tæpri viku hefur verið einmunatíð. En þá fór að snjóa ofurlítið og nú er kominn þæfingur. Þungfært er orðið á vegum og verður að flytja mjólkina á trukk. Engin stórtíðindi hafa hér gerzt. Þó er feikna mikið þorra- blót nýafstaðið á Blönduósi og stóð kvenfélagasamband sýsl- unnar fyrir því og þótti það vel takast o£ var þar fjölmenni saman komið. Svo eru miðs- vetrarskemmtanir framundan eða þorrablót heima í hreppun- um. Menn verða að gera sér ein- hvem dagamun, því að víða er frekar fámennt á heimilunum. Nú er allmikil snjókoma. Þó mun ennþá gott í högum fyrir hrossin. Mín hross eru þó að koma hér heim, og eiga von á tuggu út. Veðurblíðan stytti skammdeg ið, fannst manni a. m. k. G. J.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.