Dagur - 26.01.1972, Qupperneq 5
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Síniar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAYlÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Ör þróun í
prentun
TEKIÐ er til starfa í Revkjavík nýtt
fyrirtæki fjögurra dagblaða borgar-
innar, Blaðprent h.f., sem Tíminn,
Vísir, Þjóðviljinn og Alþýðublaðið
sameinuðust um að kaupa og er
þetta offsetprentsmiðja. fslendinga-
þættir Tímans var fyrsta blaðið, sem
þar var prentað nú um helgina.
Gefur þessi prentsmiðja, sem kostar
35 milljónir, miklu fleiri möguleika
í prentun, svo sem hvað liti snertir,
og sparar vinnukraft um 25%.
Stjórnarformaður Blaðprents er
Jónas Kristjánsson en fiamkvæmda-
stjóri Ólafur Eyjólfsson. Eyrirtækið
er til húsa í Síðumúla 14.
Með þessarri nýju offsetprent-
smiðju er brotið blað í prentun dag-
blaða hér á landi. En í prentun er
þróun ör hin síðustu áiin. Sam-
kvæmt nýjum upplýsingum er offset-
prentun nú í undirbúningi lijá
Morgunblaðinu. >
Með offsetprentun eru hinar dýru
setjaravélar og blýsteypa úr sögunni,
en ritvélar og myndamót koma þar í
staðinn.
Dagblöð höfuðborgarinnar liafa
flest átt við fjáihagsörðugleika að
stríða og hið sama má segja um viku-
blöð þau, sem út eru gefin í öðrum
landshlutum. En öll eru þessi blöð
gefin út af pólitískum flokkum eða
félögum, dagblöðin reglulega, sex
daga vikunnar en vikublöðin, sem
svo eru flest íanglega nefnd, koma
út hálfsmánaðarlega eða enn sjaldn-
ar. Hin íaunverulegu vikublöð eru
aðeins útgefin á Akureyii, stundum
reglulega langtímum saman. En
mánaðaeyður voru t. d. í útgáfu
Verkamanns, Alþýðumanns og Al-
þýðubandalagsblaðs sl. sumar, eftir
kosningarnar og á þessu ári hefur
aðalmálgagn Sjálfstæðismanna enn
ekki komið út. Fjárskorturinn lamar
útgáfustarfsemina og hann hefur
heldur ekki gengið hjá garði Dags,
Jxótt regluleg útgáfa hans hafi ekki
verið látin raskazt af þeim sökum.
Rætt hefur verið um sameiningu
blaða á Akureyri, og kom það mál
á dagskrá hjá bæjaxstjórn. Þótt það
kunni að vera áhugaverð hugmynd,
væri eflaust líklegra til efnahagslegs
ávinnings, að athuga leiðir til sam-
vinnu í prentun að hætti forráða-
manna sunnanblaða. □
RáSsiefna um heiibrigðismáfin
Bjarney GuSbjartsdóflir
Nokkur minningarorð
GAMLAR, þögular bæjarrústir
finnast víða og grænir blettir í
kring. En þar er nú ekkert fólk
og horfið mannlíf þar hjúpað
þoku gleymskunnar.
Einn af þessum stöðum er
Sker á Látraströnd, og nú eru
allir bæir þar komnir í eyði.
En á þessum bæ fæddist
Bjarney Guðbjartsdóttir 25. maí
1895, en hún hefur nú nýlega
kvatt þennan heim 76 ára að
aldri. Þarna hófst löng vegferð,
sem ekki verður þó unnt að
rekja í þessum línum.
Foreldrar Bjarneyjar voru
hjónin Guðbjartur Björnsson og
Sigríður Bjarnadóttir. Var Guð
bjartur lengst af sjómaður.
Um tvítugsaldur giftist Bjarn-
ey Jóni Þorgeiri Gunnlaugssyni.
Fluttu þau þaðan að Nolli og
síðar bjuggu þau lengi á Greni-
vík. Þaðan fluttu þau til Akur-
eyrar.
Bjarney var dugmikil hús-
móðir en það kom sér vel, því
að hún eignaðist 10 börn, en
sum þeirra dóu í æsku. Þegar
hún missti Jón mann sinn 1932,
giftist hún nokkru síðar í annað
sinn Guðlaugi Stefánssyni.
Hann var sjómaður framan af
ævi en bæjarstarfsmaður hin
síðari ár meðan heilsan entist.
Hann er nú 79 ára að aldri.
Yngsta barn hennar er Jóngeir
af síðara hjónabandi.
Af börnum Bjarneyjar eru 5
á lífi: Páll, Héðinn og Jóngeir
togarasjómenn á Akureyri, Sig-
urlína búsett í Ólafsfirði og Sig-
ríður búsett á Húsavík.
Bjarney átti lengi heima í
Lundargötunni. En 3 síðustu
árin átti hún heima á Hvanna-
völlum 8. Þá var heilsa hennar
mjög farin að bila. Hún lézt á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur
eyri 12. janúar sl.
Ný reglugerð um eiturefni.
Nýjar reglugerðir um með-
ferð og notkun eiturefna birtust
í haust í Stjórnartíðindum, og
öðluðust þá gildi. Er ein um
útgáfu og afgreiðslu eiturbeiðna
og tilsvarandi leyfa, önnur um
notkun eiturefna og hættulegra
efna í landbúnaði og garðyrkju
og útrýmingu meindýra og sú
þriðja um notkun og bann við
notkun tiltekinna eiturefna og
hættulegra efna. Hver sem er
getur nú ekki keypt eða selt og
haft undir höndum eiturefni og
sá, sem leyfi hefur til þess, ber
persónulega ábyrgð á því.
í reglugerð eiturefnanefndar
er gert ráð fyrir að einstakling-
ar þurfi sérstök leyfi til að fá
keypt eiturefni og séu gefin út,
skilríki til þess. Á lögreglustjóri
að gefa út eiturbeiðnir og má
selja einu sinni gegn sömu eitur
beiðni, ef um er að ræða efni.
sem talið er á lista I um sterk
eiturefni, en þrisvar sinnum, ef
um er að ræða efni, sem talin
eru á lista tvö.
Veita má iðnaðarmönnum
leyfi til 1—3 ára í senn og er
þeim skylt, að bera á sér leyfis-
skírteinið við störf. Sett hefur
verið sérstök reglugerð með
ýtarlegum ákvæðum til nota
vegna garðyrkju og landbún-
aðar.
Eiturefnum er skipt í hættu-
flokkana X, A, B og C. Eru efn-
in í hættuflokknum X og A
talin eiturefni, en efnin í hættu-
flokknum B og C hættuleg efni.
Tvö börn sín missti hún upp-
komin. Geir drukknaði af bát
frá Grenivík ungur að aldri og
Guðlaug lézt í Reykjavík og var
gift þar. Ég hygg að fráfall Guð-
laugar hafi verið henni þyngri
sorg en flest annað, sem hana
henti á lífsleiðinni. Um þessa
dóttur sína talaði hún ætíð með
viðkvæmni.
Hér verður ekki rakin nein
ævisaga. En allir vita, að þeir,
sem fæddust fyrir síðustu alda-
mót þekktu fátækt og erfið-
leika. En ekki skyggði það þó á
eðlilega lífsgleði þessa fólks.
Það leit sízt daprari augum á
lífið en nútímamaðurinn gerir.
Bjarney var í eðli sínu skap-
rík og stjórnsöm. En glaðlynd
var hún og bjartsýn. Sjúkleika
sinn bar hún með hetjuskap.
Hún lét sér mjög annt um
heimili sitt og vildi hafa það
sem snyrtilegast.
Löng ævi er liðin og minning-
arnar einar eftir.
Guð blessi minningu hennar.
Eiríkur Sigurðsson.
Leyfi fyrir efni í A hættuflokki
fá þeir einir, sem hafa leyfi til
að kaupa og nota efni og efna-
sambönd í hættuflokki X. Ekki
þarf sérstök leyfi til að nota
efni á B og C lista, en efni í X,
A og B flokkum á einungis að
selja í sérverzlunum. Aftur á
móti er hægt að kaupa efni á
C-lista hvar sem er.
í þessari reglugerð eru ströng
ákvæði um ílát og umbúðir og
merkingu þeirra. Sem dæmi má
geta þess að á lista I, sem er
sterkt eitur má m. a. finna blá-
sýru, nikótín, styrknin, fosfór
o. s. frv. Á lista II, sem er eitur
BÓKASAFN ÞORSTEINS M.
Þorsteinn M. Jónsson, fyrrum
skólastjóri á Akureyri, og Sigur
jóna Jakobsdóttir kona hans,
seldu ríkinu bókasafn sitt, 10—
12 þús. bindi. En þau gáfu jafn-
framt Handritastofnuninni hehn
ing söluverðsins, og mun sú
stofnun eiga að fá allt safn Þor-
stcins. Þá hefur Handritastofn-
un borizt gjöf frá Júdit Jón-
björnsdóttur, og eru það upp-
tökur á rímnakveðskap föður
hennar, frá þriðja tug aldar-
innar, gerðar hjá danska út-
varpinu.
ÞORRABLÓT
Hinn gamli siður, að blóta
þorra, er erm við lýði á landi
LAUGARDAGINN 8. janúar
var haldinn í Húsavík ráðstefna
um heilbrigðismál. Til ráðstefn-
unnar voru boðaðir oddvitar og
fleiri sveitarstjórnarmenn úr
Húsavíkur- og Breiðumýrar-
læknishéruðum auk oddvita
Kelduness-, Oxarfjarðar- og
Presthólahrepps í Kópaskers-
læknishéraði. Einnig mættu á
fundinum sjúkrasamlagsfor-
menn, læknar, starfsmenn
sjúkrahússins í Húsavík og
fleiri aðilar úr héraðinu.
Þá komu til fundarins þeir
Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri
og Tryggvi Helgason flugmaður.
Miklar umræður urðu um
ástand heilbrigðismála í hérað-
inu og væntanlegar skipulags-
breytingar heilbrigðismála í
landinu, um læknaskort, sjúkra
flutninga, mál sjúkrasamlag-
anna o. fl. Kom þar m. a. fram,
að fyrirhugað e rað sjúkrasam-
lögin starfi í óbreyttri mynd út
þetta ár, þótt innheimta hjá ein-
staklingum falli niður, en eignir
og skuldir samlaganna verða
gerðar upp miðað við sl. áramót
og þeim skipt á ríki og sveitar-
félög.
Mikill einhugur var meðal
fundarmanna um að styðja fyr-
irhuguð kaup Tryggva Helga-
sonar á nýrri sjúkraflugvél með
kaupum eða milligöngu um sölu
skuldabréfa eða á einhvern
annan hátt og sýna með því í
verki hug almennings í hérað-
inu gagnvart þeirri mikilsverðu
þjónustu, sem Tryggvi hefur
innt af hendi með sjúkraflugi
sínu.
Þá urðu miklar umræour um
læknamiðstöðina, sem í reynd
hefur starfað í Húsavík að und-
anförnu og sem þjónað hefur
Húsavíkur- og Breiðumýrar-
læknishéruðum auk Kópaskers-
og Raufarhafnarlæknishéruðum
lengst af eftir því sem unnt hef-
ur reynzt. Á Húsavík starfa nú
4 læknar.
má finna rottueyðingarefnin
Warfarin og Antu, DDT í blönd
um, lindan í blöndum o. s. frv.
Á lista III má finna efni eins og
vítissóta, enda má selja þau efni
frjálst, en greinilega merkt.
Allir aðilar, sem hafa hags-
muna að gæta í þessum málum
svo og einstaklingar sem þurfa
á notkun þessarra efna að
halda, ættu skilyrðislaust að
kynna sér þessar nýju reglu-
gerðir, ef það hefur ekki þegar
verið gert. — Fjögur dauðsföll
urðu af eiturefnum 1971.
Oddgeir Þ. Árnason,
garðyrkjustjóri.
hér. Fólk kcmur saman, étur úr
troguni og gerir sér glaðan dag
í mat og drykk. Var sá munað-
ur umtalsverður á þeim tínium,
er kjör voru svo kröpp, að maga
fylli var hátíð, og svo virðist
enn vera, þótt flestir éti eins og
þeir þola á degi hverjum.
Þorrablótin eru haldin í sveit
um og bæjum um land allt.
Víða í sveitum eru þau þó
miklu meira en átveizla og
drykkja, því að vanalega er
kapp lagt á, að finna og flytja
ýmiskonar skenuntiefni, og
tekst' það oft vel, þótt ekki sé
leitað út fyrir viðkomandi sveit.
Svipað gera einnig margir starfs
hópar í þéttbýli, er enn blóta
þorra.
í fundarlok var samþykkt svo
hljóðandi ábending til sveitar-
stjórna í héraðinu:
„Fundur um heilbirgiðismál,
haldinn í Húsavík 8. janúar
1972, telur að setja beri á stofn
og löggilda læknismiðstöð í
Húsavík fyrir Húsavíkur- og
Breiðumýrarlæknishéruð ásamt
Kópaskerslæknishérað eða
hluta þess þótt síðar yrði. Jafn-
framt verði komið upp starfs-
aðstöðu fyrir lækna á nánar til-
teknum stöðum í umdæminu.
Beinir fundurinn því til við-
komandi sveitarstjórna, að þær
geri með sér samstarfssamning
um þessi mál.“
9. 1. 1972.
FRÁ BRIDGEFÉLAGI
AKUREYRAR
STAÐAN í Ak.mótinu í bridge
fyrir síðustu umf.
stig
1. Sv. Halldórs Helgasonar 123
2. Sv. Páls Pálssonar 117
3. Sv. Mikaels Jónssonar 107
4. Sv. Harðar Steinbergss. 89
5. Sv. Guðm. Guðlaugssonar 78
6. Sv. Sveinbj. Sigurðssonar 70
7. Sv. Viðars Valdimarssonar 22
8. Sv. Hauks Arnþórssonar 19
9. Sv. Gunnars Berg 15
Síðasta umf. er spiluð 25/1 að
Hótel KEA og eigast þá við
sveit Halldórs og sveit Mikaels
og er það úrslitaleikur um Ak-
ureyrarmeistaratitilinn, því að
sveit Páls situr yfir. □
Bílainnflutmgur
SAMKVÆMT skýrslu frá'Hag-
stofu íslands var mikill bifreiða
innflutningur á liðnu ári.
Alls voru fluttar inn 6434
nýjar fólksbifreiðar og 625 not-
aðar, eða samtals 7059. Enn-
fremur voru fluttir inn 302
sendiferðabílar, þar af 31 not-
aður.
Þá voru fluttir inn 235 nýir
vörubílar, auk notaðra af ýms-
um gerðum.
Innfluttir bílar samtals árið
1971 voru 7729 talsins.
Fólksbifreiðar í tíu efstu sæt-
unum voru:
Volkswagen .... ... 1160
Ford ■,•••• ... 798
Volvo .... 468
Fiat ... 444
Saab ... 384
Moskvitch ... 339
Toyota ... 322
Sunbeam ... 293
Citroen ........ ... 292
Land Rover .... ... 276
Frá Náttúrulækninga-
félagi Akureyrar
KÆRU BÆJARBÚAR! Eins og
flestum er kunnugt hefur N.L.
F.A. sett sér það markmið að
hyggja heilsuhæli á Norður-
landi sem rekið verði með svip-
uðu sniði og hælið í Hveragerði.
Þetta er ekkert smáfyrirtæki
eins og flestir gera sér jóst og
munu margir þurfa að leggja
hönd á plóginn áður en markinu
verður náð. En „sameinaðir
stöndum vér“ og með sameigin-
legu átaki hefur oft verið lyft
sannkölluðum Grettistökum. Á
nýafstöðnum aðalfundi N.L.F.A.
var samþykkt að halda hluta-
veltu í fjáröflunarskyni um
miðjan febrúar. Ákveðið hefur
verið að félagið heimsækji bæj-
arbúa í byrjun febrúar til að
biðja um hluti eða peninga-
framlög.
Treystum á góðar undirtektir.
Með fyrirfram þökk.
Fjáröflunarnefnd.
Fjögur dauðslöll al eiturefnum 1971
SMATT & STÚRl
5
Saga Jónsdóttir í hlutverki sínu. (Ljósniyndastofa Páls)
Dýrin í Hálsaskógi
MIKKI refur, Lilli klifurmús,
bangsafjölskyldan, Héra-stubb-
ur bakari og bakaradrengur,
ásamt öðrum skógardýrum,
hafa nú skemmt börnum jafnt
sem fullorðnum átta sinnum.
Mikil aðsókn hefur verið að
sýningunum og segja má að
jafnan hafi hvert sæti í húsinu
verið skipað. Hafa skólar úr
Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýsl-
- SAMBANDSFRÉTTIR
Framhald af blaðsíðu 8.
nauðsynlegar breytingar og
endurbætur á þeim.
Heildarkostnaður 650—700
milljónir.
Meðalkostnaður við breyting-
ar, sem eingöngu miðast við
hinar bandarísku kröfur, er um
11—12 millj. kr. á hvert frysti-
hús. Ef hins vegar er reiknað
með æskilegum endurbótum,
nýbyggingum, þar sem slíkt er
talið nauðsynlegt, og nýjum og
endurbættum vélakosti, er
heildarkostnaðurinn fyrir þau
30 frystihús, sem Sambandið
annast sölu fyrir, talinn nema
650—700 millj. kr.
Fjármagn, sem samsvarar verð-
mæti 6 skuttogara.
Guðjón gat þess einnig, að
greinilegt væri, að fjármagns til
þessara framkvæmda yrði að
afla á næstu 2—3 árum, til þess
að hægt væri að mæta þeim
kröfum, sem gerðar yrðu á hin-
um þýðingarmikla bandaríska
fiskmarkaði, og ekki siður til að
hægt væri að vinna úr ,því vænt
anlega aukna aflamagni, sem
kæmi til með að berast á land
úr hinum nýju togurum, sem í
smíðum eru. í því sambandi
væri o gvert a ðhafa í huga, að
til þess að koma þessum 30
frystihúsum í það ástand, að
þau væru samkeppnishæf fram
leiðslutæki, þyrfti aðeins fjár-
magn sem samsvaraði verðmæti
6 skuttogara.
Freðfiskur til Sovétríkjanna.
Nú fyrir skömmu var undir-
ritaður í Moskvu samningur
milli Sjávarafurðadeildar og
Sölumiðstöðvar -hxaðfrystihús-
um efnt til hópferða á sýning-
arnar.
Næstu sýningar á þessu
skemmtilega skógarævintýri
Torbjörns Egner verða fimmtu-
dagskvöld kl. 8 og laugardag og
sunnudag.
Sjá auglýsingu á öðrum stað
í blaðinu.
(Fréttatilkynning)
anna annars vegar og matvæla-
innkaupastofnunarinnar Prodin
torg V/O hins vegar um sölu á
10.500 tonnum af frystum fisk-
flökum og 4.000 tonnum af heil-
frystum fiski til Sovétríkjanna
á árinu 1972. Var þessi samning-
ur gerður á grundvelli ramma-
samnings landanna um við-
skipti á árunum 1972—75, en
áður höfðu verið seld 1.500 tonn
af fiskflökum, sem falla undir
rammasamninginn fyrir árið
1972.
Að heildarverðmæti eru þess-
ar sölur um 800 milljónir króna.
Af hálfu Sambandsins annaðist
samningsgerðina Andrés Þor-
varðarson sölufulltrúi, en af
hálfu Sölumiðstöðvarinnar Árni
Finnbjörnsson sölustjóri. □
Popphljómsveitir á Ak
ALLMIKLAR breytingar hafa
átt sér stað hjá hljómsveitum
bæjarins nú um áramótin.
Hljómsveitin „Úthljóð" ásamt
Erlu Stefánsdóttur hætti störf-
um og breytingar urðu í hljóm-
sveit Pálma Stefánssonar. Stofn_
uð var ný hljómsveit sem ber
nafnið „Tilfelli". Hana skipa
þeir Orvarr Kristjánsson, sem
er hljómsveitárstjóri, Gunnar
Tryggvason, Sævar Benedikts-
son, Júlíus Fossberg og Stefán
Baldvinsson.
í hljómsveit Pálma Stefáns-
sonar verða auk hans þeir Stein
grímur Stefánsson, Grétar Ingv
arsson og Brynleifur Hallsson.
Á Hótel KEA verður starf-
rækt hljómsveit í vetur. Þar
verða Rafn Sveinsson, Þórarinn
Magnússon og Orn Bjarnason,
söngkona er Erla Stefánsdóttir
Áfieif á Sfrandarkirkju
EFTIRTALIN áheit á Strandar-
kirkju hefur afgreiðsla blaðsins
móttekið og eru sum þeirra állt
frá árinu 1966, en trassazt hefur
að birta þessi áheit.
Frá H.K. kr. 50, ónefnd kona
kr. 200, Á. kr. 250, S.S. kr. 150,
Ingibjörg Halldórsdóttir kr. 300,
Lilja kr. 100, N.N. kr. 300,
ónefndur kr. 100, J.S. kr. 400,
S.H. kr. 100, S.F. kr. 20, G.S. kr.
200, K.H. kr. 300, Jónas kr. 300,
tvö áheit frá K.H. kr. 100, Árni
kr. 500, S.K. kr. 200, N.N. Dal-
vík kr. 200, Á.S. kr. 175, G.J. kr.
125, H.S. kr. 300, Á.J. kr. 300,
frá ónefndum hjónum kr. 200,
St. Hj. kr. 50, Har. Jóh. kr. 50,
Þ.J. kr. 200, F.J. kr. 100, N.N.
kr. 3.000, G.L. kr. 200, M.S. Dal-
vik kr. 150, N.N. Dalvík kr. 100,
R. J. kr. 200, Ó.Ó. kr. 200, G.S.
kr. 175, G.J. kr. 1.000, G.J. kr.
300, N.N. kr. 100, R.L. kr. 100,
Á. kr. 200, ónefnd kona kr. 100,
K.J. og F.S. kr. 100, gömul kona
kr. 100, Lilla kr. 100, B.S. kr.
275, M. kr. 500, N. og N. kr. 200,
G.S.S. Blönduósi kr. 500, B.Á.
Dalvík kr. 100, ónefnd kona kr.
100, ónefnd kona kr. 100, G.J.
gamalt áheit kr. 700, G.K. kr. 200,
Þ.L. Dalvík kr. 215, G.S. Dalvík
kr. 25, Kristín Ólafsdóttir kr.
250, kona á Dalvík kr. 500, H.K.
kr. 100, G.S. kr. 200, N.N. kr.
200, Rósa kr. 150, V.Á. kr 500,
Gunnlaugur Friðriksson kr. 200,
F. kr. 1.500, frá móður kr. 250,
S. F. kr. 50, Kristjana Halldórs-
dóttir kr. 500, Kjartan Júlíusson
kr. 100, S.O. kr. 200, ónefndur
kr. 500, N.N. kr. 1.000, N.N. Dal-
vík kr. 200, Sigurgeir Sigurpáls-
son kr. 500, B.S. kr. 215, Gunn-
laugur Friðriksson kr. 100,
ónefndur gamalt áheit kr. 500,
Þ.S. kr. 200, Anna kr. 300, G.S.
kr. 100, Þ.J. kr. 500, R.Á. kr.
500, K.A. kr. 500, ónefndur kr.
300, Sigríður kr. 200, V.Á. kr.
I. 000, S.Ó. kr. 100, K.R. kr. 200,
Kristín Stefánsdóttir kr. 200,
S.F. kr. 200, Þ.J. kr. 500, H.B.
kr. 100, G.L. kr. 200, ónefndur
kr. 200, Z kr. 200, N.N. kr. 200,
J. J. kr. 1.000, S.S. kr. 325, H.Á.
kr. 300, K.K. gömul áheit kr.
100, L.G. kr. 100, Á. kr. 500, F.B.
kr. 100, Sigrún Þorláksdóttir kr.
500, Á. kr. 100, M.J. kr. 200,
ónefndur kr. 1.000, G.S.S. tvö
áheit kr. 1.500, J.T. kr. 500, B.E.
kr. 100, A.J. kr. 100, Valdimar
kr. 1.000, G.K. kr. 600, Ása kr.
500, H.Á. kr. 25, G.L. kr. 100,
D.B. kr. 200, G.J. kr. 300, Anna
kr. 300, H.Á. kr. 50, Inga kr. 200,
Lóa kr. 100, amma kr. 100, A.J.
kr. 500, kona á Húsavík kr. 500,
ómerkt kr. 150, Halldór kr. 50,
K. K. gamalt áheit kr. 100, N.N.
kr. 150, S.K. kr. 60, N.N. kr. 500,
Ingibjörg Halldórsdóttir kr. 200,
N.N. kr. 100, B.G. kr. 200, K.G.
kr. 200, H.J. kr. 50, G.L. kr. 100,
G. K. kr. 500, Sigríður kr. 200,
N.N. kr. 1.000, Dalvíkingur kr.
150, N.N. kr. 100, ónefnd kona
kr. 100, Þ.L. Dalvík kr. 230,
gamalt áheit frá S.G. kr. 200,
ónefndur kr. 1.000, N.N. kr.
1.000, S.J. gamalt áheit kr. 100,
P. kr. 1.000, S.H.P.H. kr. 300,
N.N.Á. kr. 200, S.H. kr. 100, Á.J.
kr. 100, N.N. kr. 1.000, G.S. kr.
300, S.P. kr. 100, B.Á. Dalvík kr.
400, G.F. Dalvík kr. 25, S.H. kr.
100, K.K. kr. 100, S.K. og K.K.
kr.100, G.S. kr. 1.000, S.H. kr.
200, ónefndur kr. 500, J.G. kr.
300, N.N. kr. 100, Á.S. gamalt
áheit kr. 200, E.L. kr. 200, Þ.J.
kr. 500, J.V.J. kr. 500, H.B. kr.
300, Valdimar kr. 1.000, ónefnd-
ur kr. 100, ónefndur maður kr.
200, J.K. kr. 500, Í.S. kr. 1.000,
N.N. kr. 300, N.N. kr. 150.
ónefndur kr. 500, J.F. kr. 200,
Eyfirðingur kr. 1.000, hjón að
norðan kr. 9.040, í. kr. 200, S.S.
og S.f. kr. 1.000, N.N. kr. 1.000,
Á.F. kr. 300, Á.S. kr. 300, N.N.
kr. 100, Þorbjörg kr. 100, Hanna
kr. 100, Sigrún kr. 100, kona á
Akureyri kr. 300, F.S. kr. 200,
Á.H. kr. 500, N.N. kr. 100, S.G.S.
kr. 250, N.N. Dalvík kr. 200,
Á.G. kr. 200, L.G. kr. 200, G.J.
kr. 500, J.G. kr. 150, M.E. kr.
1.000, kona á Húsavík kr. 500,
G.S. kr. 200, ónefndur kr. 50,
K.R. kr. 100, Á.H. kr. 1.000, Dal
búi kr. 200, K.R. kr. 500, G.S.
kr. 100, R.K.J. kr. 500, ónefndur
kr. 50, Þ.M. kr. 200, Kristjana
Halldórsdóttir kr. 00, H. og K.
kr. 1.000, ónefndur kr. 300, Ó.P.
og K.H. kr. 100, N.N. Dalvík kr.
100, F. kr. 500, H.L. kr. 25, H.S.
kr. 25, G.A.D. kr. 100, Þ.J. kr.
500, G.P. kr. 500, J.T. kr. 1.000,
Ö.P. kr. 50, ónefndur kr. 250,
Á.H. kr. 500, Kristjana kr. 200,
Guðrún Guðnadóttir Hólsgerði
kr. 500, K.F. kr. 300, Þ.L. Dalvík
kr. 150, N.N. Dalvík kr. 950,
H. F. kr. 2.000, ónefnd kona kr.
I. 000, frá ónefndum kr. 300,
ónefnd kr. 600, V. kr. 100, S.Á.
kr. 500, N.N. kr. 500, G.S. kr,
200, V.G. kr. 300, I.H. kr. 1.000,
ónefndur kr. 500. — Samtals kr.
91.870.00.
Séra Birgir Snæbjörnsson
sóknarprestur hefur veitt fénu
móttöku fyrir hönd kirkjunnar.
Nýft grænmeii
RAUÐRÓFUR '
HVÍTKÁL
GULRÆTUR
KJÖRBUDIR
KEA
Bifreiðaeigendur! Bifreiðaverkstæði!
• LÍMUM HEMLABORÐA í ALLAR
TEGUNDIR BIFREIÐA, VINNUVÉLA og
IÐN AÐARVÉL A
• RENNUM SKÁLAR OG DISKA
• FELLUM BORÐANA í SKÁLARNAR
........ÖVHjBEAT!NG B8AKES
Hemlaviðgerðiii kennir ekki að fullum notum,
nerna borðarnir liggi vel í skálunum.
FULLKOMIN TÆKI - VÖNDUÐ VINNA.
★ ★ ★ ★
HEMLABORÐAR í flestar bifreiðir
EFNI: - ofið og fíber
ÞÓRSHAMAR H.F., Akureyri
- S í M I (96) 1-27-00 -
Dansflokkurinn
Torea frá Taliiti
skemmtir n.k. föstudags- laugardags- og sunu-
dagskvöld.
O
Flokkurinn kemur fram kl. 10.30.
SJÁLFSTÆÐISHÚSIÐ