Dagur


Dagur - 02.02.1972, Qupperneq 8

Dagur - 02.02.1972, Qupperneq 8
8 SMÁTT & STÓRT Aðal verzlunar- og skrifstofuhús KEA á Akureyri. (Ljósm.: E. D.) Kornmölisn cg fóðurblöndunarstöð á Oddeyri Bændur byggja sér korngeymslur við f jósin KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA ■ jndirbýr nú breytingar á flutn- :ngi og meðferð fóðurvara. "Stefnt er að því að flytja hingað :aust korn og mala það síðan á staðnum. Korngeymar, mölun Sveit Halldórs Helga- sonar varð Akureyrar- meistari í bridge JRSLIT í sveitakeppni B. A. 1971—72 urðu þessi: stig 1. Sv. Halldórs Helgasonar 129 2. — Mikaels Jónssonar 123 3. — Páls Pálssonar 117 1. — Harðar Steinbergss. 109 1. — Guðm. Guðlaugssonar 95 3. — Sveinbj. Sigurðssonar 73 7. — Viðars Valdemarss. 31 3. — Gunnars Berg 26 9. — Hauks Arnþórssonar 19 Næsta keppni er einmenn- ngs- og firmakeppni og hefst lún þriðjudaginn 8. febrúar kl. 20. Spilað verður í Landsbanka- salnum. Q og blöndun verður við Sjávar- götu á Oddeyri, þar sem áður var Plasteinangrun. Er talið lík- legt, að framkvæmdin verði gerð í sumar. KEA annast að mestu sölu erlendra fóðurvara til bænda í héraðinu og að nokkru dreif- ingu á ósekkjuðu fóðri, með sér stökum flutningabíl, er tekur sex tonn. Bændur útbúa nú hjá sér fóðurgeymslur til að geta tekið á móti hinu ósekkjaða fóðri. Fyrir jól og fyrri hluta janúar mánaðar var mjög óttast um, að þurrð yrði á kjarnfóðri vegna verkfalla á flutningaskipum. Var þá mjög mikil sala en KEA átti nægar birgðir til að mæta þeirri eftirspurn. Samkvæmt viðtali við Ásgeir Halldórsson, er veitir Kornvöru húsi KEA forstöðu, er sala er- lendrar fóðurvöru meiri en gert hafði verið ráð fyrir og þrátt fyrir mikil og góð hey bænd- anna. Stafar þetta m. a. af lækk uðu verði sl. haust, og nemur sú lækkun 1100 krónum á tonni. Q GLAUMBÆR Fjórar þúsundir ungra manna og kvenna komu nýlega saman í Reykjavík til að ræða aðsteðj- andi vandaniál sín. Eitt af meiri háttar gleðskaparhúsum borgar innar, Glaumbær, var brunnið. Takinark og baráttumál þessa unga fólks er að fá nýjan Glaum bæ hið fyrsta. Stundum hefur æska þessa lands átt sér háleit- ari hugsjónir. LAXINN NEMUR LAND Á síðustu árum hefur laxinn numið land með aðstoð áhuga- manna. Fiskvegir liafa verið gerðir, þar sem náttúrlegar hindranir stöðvuðu laxinn á ár- legri göngu sinni upp eftir veiði ánum. Á sumum stöðum voru laxastigar byggðir við hlið foss- anna, eða fossar og flúðir „sprengdir niður“. Opnuðust laxinum þá ný svæði. Með þess- um hætti lengdust laxgöngu- svæði, og jafnframt laxveiði- svæði um meira en 300 kíló- metra samtals. Enda hefur lax- veiði aukizt verulega hér á landi á sama tíma, og er land okkar það eina á norðurliveli jarðar, sem getur státað af auk- inni gengd laxa. LENGSTI LAXFISKVEGUR Lengsti, nýgerður fiskvegur er í Svartá við Reykjafoss. En við það opnast 25 km. veiðisvæði. Fiskvegur þessi er nær 200 metra langur og liggur úr 14 m. djúpum gljúfrum upp fyrir foss- inn. Veiðivötn h.f. önnuðust framkvæmdina og njóta svo lax veiðanna, samkv. samningi við landeigendur. LÆKNAR OG FÍKNILYF Læknar hafa opinberlega verið sakaðir um óhóflega og víta- verða útgáfu á ávísun ávana- og fíknilyfja, síðast í sjónvarpi fyr- ir skömmu. Læknafélag íslands hefur af þessu tilefni endurtekið tilmæli sín lun, að skrásett verði öll „reseft“ á slík lyf, svo að hið sanna megi koma í 4-jós. Munu margir ætla, að þörf sé á að taka þau tilmæli til greina. ÍSf 60 ÁRA íþróttasamband íslands, sem er f jölmennasti félagsskapur ungra manna og kvenna hér á landi er íþróttir stunda, með öllum sín- um félögum og sérgreinadeild- um, átti 60 ára afmæli á föstu- daginn. Voru þá mikil og veg- leg hátíðaliöld í liöfuðborginni og fjölþættar íþróttasýningar í Laugardalshöll, að viðstöddum ýmsum helztu virðingarmönn- um þjóðarinnar. NÁTTÚRUVERNDARRÁÐ hefur sent frá sér tilkvnningu þess efnis, að lífkerfi Laxár og Mývatns sé svo sérstakt, að var- hugavert sé að byggja laxastiga lijá Brúurn og gera efri hluta Laxár að laxveiðiá, nema að rannsókn leiði í Ijós, að ekki hljótist tjón af. KEMUR DROTTNINGIN? Friðrik IX. Danakonungur ætl- aði að koma liingað til lands í opinbera lieimsókn í vor. Nú hefur verið rætt um, að Margrét (Framhald á blaðsíðu 4) Léifu bifhjólin eru óvinsæl LÉTTUM bifhjólum fer fjölg- andi á Akureyri, að því er yfir- lögregluþjónninn tjáði. Þessi Nýr flugvöllur á Egilstöðum ? Egilsstöðum 31. janúar. Vegir eru blautir en greiðfærir. Fjarð- arheiði var rudd í dag og Odds- skarð bílfært. Héðan fóru tveir vörubílar til Mývatnssveitar í dag með smíðað efni í skemmu, sem þar á að reisa. Veghefill var með í för, en ekki talið lík- legt, að hann þyrfti mikið að hefla. Bílfæri hefur verið óvenju- gott á þessum vetri. Hins vegar hefur flug legið niðri vegna þess hve flugvöllurinn hefur verið meir síðustu daga. Þykir okkur það hart þegar vegir eru allir færir. Vonir standa til, að flugvöllurinn verði endurbvggð ur á næsta ári, enda er þess full þörf að gera við þann gamla eða búa til nýjan. Þorrablótin, með tilheyrandi matar- og drykkjugleði, eru enn tíðkuð, ásamt með enn fleiri lystisemdum. Atvinna er næg, enda hægt að stunda útivinnu í allan vet- ur. Og í dag er verið að steypa efstu hæð fjölbýlishúss, sem Brúnás byggir. Aðrar iðngrein- ar ganga þokkalega, þótt menn beri ugg í brjósti vegna kaup- hækkana og vöntunar á lánsfé. En hreindýrin, sem enn er komið slangur af, líta vel út og eru augnayndi, og hafa þau ekki þungar áhyggjur af morg- undeginum, og ekki er að sjá, að skattahrellingar þjaki þau hið minnsta, og víst er um það, að þau þrífast ekki síður síðan „viðreisn“ geispaði golunni. V. S. farartæki eru heldur óvinsæl meðal almennings, einkum sök- um hávaðans af þeim. Lögregl- an hefur stöðvað allmarga ungl- inga á léttum bifhjólum, eða skellinöðrum vegna brota á um- ferðarreglum. Meðal annars er bannað að hafa farþega á þess- um hjólum, en brot á því banni eru nokkuð algeng og fara í vöxt. Margar kvartanir hafa auk þess þorizt frá almennum borgurum út. af skellinöðrunum. Við höfum, sagði lögregluþjónn inn, tekið létt bifhjól úr umferð og látið Bifreiðaeftirlitið skoða þau með tilliti til hávaðans. Q F élaasmálanámskeið Kartöflur seldar austur cg vestur Svalbarðseyri 31. janúar. Hér eru vegir betri nú en oftast að sumarlagi, og í dag er verið að opna Vaðlaheiði, en þar munu Bernadetta Devlin HEIÐURSGESTURINN á „Pressuballinu“ 17. marz, verð- ur Bernadetta Devlin, þekkt kona í heimsfréttum, yngsti þingmaður Breta, ættuð frá Norður-írlandi og hefur mjög komið við sögu í átökunum þar, sat í fangelsi um hríð, eftir að hún varð þingmaður, og í fyrra- dag lagði hún hendur á einn af ráðherrunum í brezka þinginu, er írlandsmálin voru þar á dag- skrá. Q SAMKV. mótaskrá eiga að fara- fram tveir leikir í 2. deild ís- landsmótsins í handknattleik í íþróttaskemmunni um næstu helgi. Grótta kemur norður og leikur við Þór og KA. Segja má að þetta séu úrslitaleikirnir í þessum riðli 2. deildar. Grótta hefur unnið alla sína leiki, þar á meðal Þrótt úr Reykjavík tví- vegis. Q hafa verið einhverjir smá- skaflar. Hér er verið að vinna í kart- öflum, því að héðan er talsverð sala til Austurlands og einnig til margra staða á vestanverðu Norðurlandi. Kaupfélagið tók á móti meiri kartöflum en síðustu árin, eða 7500—-8000 tunnum, bæði af Svalbarðsströnd og úr Grýtubakkahreppi, en ræktun- in hefur færzt norður hin síð- ari ár. Stöku sinnum er skotist á sjó, en hér á Svalbarðseyri er ekki önnur sjósókn en sú, að stöku menn fara á sjó, renna hand- færi og afla sér í soðið. Spilakvöld munu vera fram- undan og þorrablót, en leiklist er ekki stunduð nú í vetur. K. G. Á MORGUN, fimmtudag, hefst félagsmálanámskeið í Félags- heimili Framsóknarmanna, Hafnarstræti 90, Akurevri. Leiðbeinandi er Guðmundur Birkir Þorkelsson og verður áherzla lögð á þjálfun í félags- málastörfum, svo sem fundar- stjórn og ræðulist. Þátttaka er þegar veruleg. Það er kjördæmissamband Síminn lélegur Kópaskeri 31. janúar. Konur í Kelduhverfi efndu nýlega til þorrablóts í Skúlagarði og fleiri munu væntanleg. Vegir eru mjög greiðfærir, en aurbleyta er ofurlítil. Hér er verið að breyta og endurbæta verzlun kaupfélags- ins þessa dagána. Síminn er í hinu mesta ólagi og hefur svo verið undanfarið. K. Á. Framsóknarmanna og Félag ungra Framsóknarmanna á Akureyri, sem námskeið þetta halda. □ ÞÓRARINN HARALDSSON bóndi í Laufási í Kelduhverfi varð sjötugur 29. janúar. — Dagur sendir honum árnaðar- óskir.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.