Dagur - 27.09.1972, Page 1
LV. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 27. sept. 1972 — 45. tölublað
FILMUhúsið AKUREYRI
Kraffajötunn frá Akureyri
REYNIR LEÓSSON frá Akur-
eyri, járniðnaðarmaður í Njarð-
vík, hefur vakið athygli, sem
óvenjulegur kraftakarl. Hann
er þó aðeins meðalmaður á
vöxt, 74 kg að þyngd, rúmlega
þrítugur að aldri.
Fyrir nokkrum dögum vann
hann sér það til frægðar, að
FERÐAMAÐUR FANN
FÉ í FÖNN
FERÐAMAÐUR, sem leið átti
um Kísilveginn svokallaða,
austan Laxárdals, sagði svo frá
á mánudaginn:
Þegar ég var austur af
Kringluvatni varð mér litið á
snjóskafl norðan við veginn.
Þar var dilkur, hálfur upp úr
skaflinum. Fór ég til að huga
betur að þessu. Reif dilkurinn
sig þá upp og var allhress og
virtist sjálfbjarga. En í bælinu,
þar sem hann hafði verið, lá
móðir hans dauð. Mun fé þetta
hafa fennt í hríðaráhlaupinu
fyrr í þessum mánuði, og hefur
því verið í snjó á þriðju viku.
Gefur þetta hugmynd um, að
víðar geta svipuð atvik hafa
orðið, og að fé kunni enn að
vera lifandi í fönn.
Ferðamaður tók mark og
brennimark ærinnar og gerði
aðvart á næsta bæ, Geitafelli.
slíta af sér bönd og brjótast út
úr fangaklefa með óskiljanleg-
um hætti. Að viðstöddum frétta
mönnum og Jögreglumönnum
voru lagðir á Reyni miklir
fjötrar. Má þar nefna 30 metra
langa stálkeðju, sem brugðið
var og læst með sterkum lásum
um líkama hans. Þá var Reynir
settur í tvenn fótjárn og hand-
járnaður var hann aftan við
bak. Var Reynir í sitjandi stell-
ingu er þannig var um hnútana
búið. Síðan var hann færður
inn í traustasta fangaklefa
landsins, á Keflavíkurflugvelli,
og látinn þar inn.
Reynir sleit og braut af sér
alla hlekki og síðan kom hann
hress og ómeiddur út úr fanga-
klefanum, hafði mölvað járn-
bentan steinvegginn. Þykir
þetta og önnur kraftaafrek
Reynis Leóssonar með hinum
mestu ólíkindum. Q
Gamla nienntaskólaliúsið á Akureyri.
(Ljósm.: E. D.)
Menntaskólinn veröur settur á sunnudaginn kemur
MENNTASKÓLINN á Akur-
eyri verður settur á sunnudag-
inn kemur. Með því skólaári,
sem nú er að hefjast, verða
nokkur þáttaskil. Nýr skóla-
meistari, Tryggvi Gíslason, fyrr
um lektor í Noregi, tekur við
skólastjórninni í stað Steindórs
Tekið upp áfanga- og annakerfi í skólanum
SauSnaut íil Flateyjar ?
ÚT V AR PSFRÉTT um þetta
efni vekja þá spurningu, hvort
Flatey á Skjálfanda muni eftir
skamman tíma verða dvalar-
staður sauðnauta frá Græn-
landi. Nokkrir menn frá Reykja
vík, ásamt Hirti Eldjárn, fóru
nýlega skoðunarferð til eyjar-
innar, með þetta í huga. Spurði
Dagur Hjört, hvernig málum
þessum væri háttað.
f máli þessu hefur ekkert
gerzt, sagði hann, Um það er
aðeins það að segja, að áhuga-
mannahópur hefur málið á dag-
skrá og er að kynna sér mögu-
leika á innflutningi sauðnaut-
anna og dvalarstað fyrir þau,
sem vart verður leyfður nema
á eyðieyju, eins og Flatey, sem
ekki hefur verið byggð í nokk-
ur ár. Til þess að flytja sauð-
naut til landsins, þarf leyfi land
búnaðarráðuneytisins og svo
leyfi danskra stjórnvalda til að
taka skepnurnar og flytja þær
úr landi. Leiðangur þyrfti svo
að senda vestur til að fanga dýr
in og flytja þau, ef til kæmi.
Hjörtur sagði ennfremur.
Flatey virðist góður staður fyr-
ir ofurlitla sauðnautahjörð. Eyj
an er einir fjórir ferkílómetrar,
öll vafin gróðri. Ef leyfi fást,
ÞUNGUR DILKUR
SLÁTURHÚSSTJÓRI KEA á
Akureyri tjáði blaðinu á föstu-
daginn, að til slátrunar hefði
komið dilkur einn frá Önguls-
stöðum, er hafði kroppþungann
33.3 kg. Eigandi er Baldur Krist
insson. Mun þetta með ein-
dæmum. Q
verður farið að huga að fjár-
hagshlið málsins. Norðmenn
fluttu sauðnaut til Noregs frá
Grænlandi og hafa dálitla villta
hjörð í Dofrafjöllum, ennfrem-
ur tamin dýr á einum búgarði
norðarlega í landinu. Kjöt sauð
nautanna er mjög gott og ullin
er ákaflega verðmæt, mörg þús
und krónur hvert kíló. Inn-
flutningurinn myndi mjög
auðga dýraríki landsins, og til-
raunin myndi ennfremur leiða
í Ijós, hverjir hagrænir mögu-
leikar eru fyrir hendi hér á
landi í þessari grein. Q
Steindórssonar, er látið hefur
af s'törfum vegna aldurs.
Blaðið leitaði fregna um skól
ann hjá skólameistara nú um
helgina, svo og um breytingar
á kennslu sérstaklega, og fara
svör hans hér á eftir:
Menntaskólinn á Akureyri
verður settur á sunnudag á Sal.
í vetur verða rétt um 500 nem-
endur í skólanum, og er það
heldur færra en í fyrra. Ástæð-
an er einkum sú, að stofnaðar
hafa verið menntadeildir við
nokkra gagnfræðaskóla á Norð-
ur- og Austurlandi, og sækja
allmargir nemendur á fyrsta ári
því þangað. Heimavist M. A. er
löngu fullsetin, og hefur orðið
að neita nokkrum nemendum
um vist. Kennarar við skólann
eru 26. allir fastráðnir.
í vetur verður að nokkru
komið á áfanga- og annakerfi í
skólanum. Kennt verður á
þremur önnum, haustönn fram
til 20. desember, vetrarönn
fram í miðjan marz og vorönn
til maíloka. Allt námsefni skól-
ans verður metið í einingum,
en auk þess verður sjálf skóla-
sókn nemenda einnig metin til
námseininga, og getur léleg
tímasókn valdið því, að nám í
skólanum verður lengra en
ella. f lok hverrar annar er tek-
ið próf í námsefni áfangans, og
getur sú áfanga- eða annareink-
unn síðan orðið hluti af loka-
einkunn, stúdentsprófseinkunn.
Þegar námsefninu er skipt nið-
ur í áfanga, eins og nú er víða
gert í menntaskólum landsins,
er leitazt við að gera nemend-
um efnið aðgengilegra og gfea
þeim betri yfirsýn yfir nám sitt,
svo að þeir geti skipulagt vinnu
sína betur.
í heimavist búa í vetur 145
nemendur. Dagleg stjórn verð-
ur í höndum nemenda sjálfra,
sem kjósa sér heimavistarráð,
er sjálft setur reglur um dag-
lega umgengni og heimilishætti
og sér um að þessum reglum sé
framfylgt.
Dagur þakkar upplýsingarn-
ar. Q
Vænt slálurfé á Húsavík
Á HÚSAVÍK á að lóga 37.170
kindum í haust. í samtali við
sláturhússtjórann, Baldvin
Baldursson á Rangá, kom það
fram, að féð reynist vænt.
Meðalvigt dilka hinn 20. sept.
var 16.4 kg, en þess ber að geta,
að flest var féð úr Mývatns-
Ráku á haldi yfir Hvítahraunskvlslina
FRÉTTARITARI Dags í Þistil-
firði, Óli Halldórsson, sem nú
er sláturhússtjóri á Þórshöfn,
sagði eftirfarandi á mánudag-
inn:
Búið er að ganga fyrstu göng
ur í öllum heiðum og verið að
ganga aðrar göngur í Tungusels
heiði, Hvammsheiði og Dals-
heiði og komið út í dag.
Óhemjumikinn snjó hafði sett
niður á heiðarnar í september-
hretinu, en fé mun þó ekki hafa
farizt í stórum stíl, en þó eitt-
hvað. Annars sögðu gangna-
menn í fyrstu göngum, að enn
væri svo mikið stórfenni, að
enginn gæti um það sagt, nema
að fé leyndist undir fönnum
ennþá, ennfremur í kílum og
lækjum.
í Hvammsheiði kom það fyr-
ir, sem enginn man til, að áður
hafi þar gerzt í fyrstu göngum,
að Hvítahraunskvísl, sem fellur
í Hafralónsá og er allmikið
vatnsfall, var rekin á haldi. Var
þó búin að vera hláka í nokkra
daga.
Féð reynist ágætlega vænt.
Eftir þrjá fyrstu dagana var
meðalvigtin ekki lakari en í
fyrra, líklega heldur meira, eða
16.5 kg. í Garðsrétt heimtum
við bræður, Gunnar og ég, úti-
genginn, veturgamlan hrút.
Móðir hans kom ekki af fjalli í
fyrrahaust, hefur eflaust farist,
en tvílembingur á móti þessum
veturgamla heimtist af fjalli þá.
Þessi hefur hins vegar lifað
veturinn út og er 72 kg. lifandi
vigt, er hann kom af fjalli. Á
hornum þessa hrúts má rekja
tíðarfarið síðasta vetur. Fram-
förin hefur verið lítil í nóvem-
ber, en svo hefur hann tekið
góðum bata í góðu tíðinni um
jólin, en komist í hann krappan
seint í janúar, en síðan geysi-
legum bata í febrúar og marz.
Svo hefur djúp skora myndazt
í hornin um páskana og síðan
eru hornin slétt og jafnvaxin.
Ber þetta allt saman við veðr-
áttuna.
Dragnótabátarnir eru búnir
með fiskinn og fæst helzt eitt-
hvað á færi. Trilluformaður
einn sagðist hafa keyrt um all-
an sjó á föstudáginn með fisk-
leitartæki og aldrei keyrt um
Þistilfjörð jafn dauðan. Einnig
sagði hann, að ýsan, sem veidd
var í fiskinót í sumar framan
við hafnargarðinn, væru
kannski síðustu ýsurnar á ís-
lands«*i4um. Q
sveit og Bárðardal og kemur
þaðan að jafnaði vænt sláturfé.
Skarphéðinn Sigurðsson á
Úlfsbæ lagði hér inn 44 dilka
og voru þeir með 20.07 kg
kroppþunga meðalvigt. Þyngsti
dilkurinn sem hingað hefur
komið var 27.7 kg og átti hann
Jón Jónsson á Einarsstöðum.
En nokkuð margir dilkar með
27 og þar í kring, hafa verið
lagðir hér inn nú í haust.
Slátrun gengur hér mjög vel
og án óvæntra tafa. Teknar eru
inn 1500 kindur á dag, en ætl-
unin að auka dagsslátrunina
upp í 1650. Slátruná að ljúka
16. október, sagði sláturhús-
stjórinn að lokum. Q
TONLEIKAR
Á FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ
28. september verða píanótón-
leikar í sal Tónlistarskólans á
Akureyri. Ferry Gebhardt, sem
er prófessor við Tónlistarskól-
ann í Hamborg, leikur verk
eftir Mozart, Schubert, Beet-
hoven og Brahms.
Prófessorinn hélt tónleika
hér á Akureyri fyrir fjórum
árum. Sala aðgöngumiða er í
Bókabúðinni Huld og hefst á
miðvikudag.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.