Dagur - 27.09.1972, Síða 1

Dagur - 27.09.1972, Síða 1
LV. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 27. sept. 1972 — 45. tölublað FILMUhúsið AKUREYRI Kraffajötunn frá Akureyri REYNIR LEÓSSON frá Akur- eyri, járniðnaðarmaður í Njarð- vík, hefur vakið athygli, sem óvenjulegur kraftakarl. Hann er þó aðeins meðalmaður á vöxt, 74 kg að þyngd, rúmlega þrítugur að aldri. Fyrir nokkrum dögum vann hann sér það til frægðar, að FERÐAMAÐUR FANN FÉ í FÖNN FERÐAMAÐUR, sem leið átti um Kísilveginn svokallaða, austan Laxárdals, sagði svo frá á mánudaginn: Þegar ég var austur af Kringluvatni varð mér litið á snjóskafl norðan við veginn. Þar var dilkur, hálfur upp úr skaflinum. Fór ég til að huga betur að þessu. Reif dilkurinn sig þá upp og var allhress og virtist sjálfbjarga. En í bælinu, þar sem hann hafði verið, lá móðir hans dauð. Mun fé þetta hafa fennt í hríðaráhlaupinu fyrr í þessum mánuði, og hefur því verið í snjó á þriðju viku. Gefur þetta hugmynd um, að víðar geta svipuð atvik hafa orðið, og að fé kunni enn að vera lifandi í fönn. Ferðamaður tók mark og brennimark ærinnar og gerði aðvart á næsta bæ, Geitafelli. slíta af sér bönd og brjótast út úr fangaklefa með óskiljanleg- um hætti. Að viðstöddum frétta mönnum og Jögreglumönnum voru lagðir á Reyni miklir fjötrar. Má þar nefna 30 metra langa stálkeðju, sem brugðið var og læst með sterkum lásum um líkama hans. Þá var Reynir settur í tvenn fótjárn og hand- járnaður var hann aftan við bak. Var Reynir í sitjandi stell- ingu er þannig var um hnútana búið. Síðan var hann færður inn í traustasta fangaklefa landsins, á Keflavíkurflugvelli, og látinn þar inn. Reynir sleit og braut af sér alla hlekki og síðan kom hann hress og ómeiddur út úr fanga- klefanum, hafði mölvað járn- bentan steinvegginn. Þykir þetta og önnur kraftaafrek Reynis Leóssonar með hinum mestu ólíkindum. Q Gamla nienntaskólaliúsið á Akureyri. (Ljósm.: E. D.) Menntaskólinn veröur settur á sunnudaginn kemur MENNTASKÓLINN á Akur- eyri verður settur á sunnudag- inn kemur. Með því skólaári, sem nú er að hefjast, verða nokkur þáttaskil. Nýr skóla- meistari, Tryggvi Gíslason, fyrr um lektor í Noregi, tekur við skólastjórninni í stað Steindórs Tekið upp áfanga- og annakerfi í skólanum SauSnaut íil Flateyjar ? ÚT V AR PSFRÉTT um þetta efni vekja þá spurningu, hvort Flatey á Skjálfanda muni eftir skamman tíma verða dvalar- staður sauðnauta frá Græn- landi. Nokkrir menn frá Reykja vík, ásamt Hirti Eldjárn, fóru nýlega skoðunarferð til eyjar- innar, með þetta í huga. Spurði Dagur Hjört, hvernig málum þessum væri háttað. f máli þessu hefur ekkert gerzt, sagði hann, Um það er aðeins það að segja, að áhuga- mannahópur hefur málið á dag- skrá og er að kynna sér mögu- leika á innflutningi sauðnaut- anna og dvalarstað fyrir þau, sem vart verður leyfður nema á eyðieyju, eins og Flatey, sem ekki hefur verið byggð í nokk- ur ár. Til þess að flytja sauð- naut til landsins, þarf leyfi land búnaðarráðuneytisins og svo leyfi danskra stjórnvalda til að taka skepnurnar og flytja þær úr landi. Leiðangur þyrfti svo að senda vestur til að fanga dýr in og flytja þau, ef til kæmi. Hjörtur sagði ennfremur. Flatey virðist góður staður fyr- ir ofurlitla sauðnautahjörð. Eyj an er einir fjórir ferkílómetrar, öll vafin gróðri. Ef leyfi fást, ÞUNGUR DILKUR SLÁTURHÚSSTJÓRI KEA á Akureyri tjáði blaðinu á föstu- daginn, að til slátrunar hefði komið dilkur einn frá Önguls- stöðum, er hafði kroppþungann 33.3 kg. Eigandi er Baldur Krist insson. Mun þetta með ein- dæmum. Q verður farið að huga að fjár- hagshlið málsins. Norðmenn fluttu sauðnaut til Noregs frá Grænlandi og hafa dálitla villta hjörð í Dofrafjöllum, ennfrem- ur tamin dýr á einum búgarði norðarlega í landinu. Kjöt sauð nautanna er mjög gott og ullin er ákaflega verðmæt, mörg þús und krónur hvert kíló. Inn- flutningurinn myndi mjög auðga dýraríki landsins, og til- raunin myndi ennfremur leiða í Ijós, hverjir hagrænir mögu- leikar eru fyrir hendi hér á landi í þessari grein. Q Steindórssonar, er látið hefur af s'törfum vegna aldurs. Blaðið leitaði fregna um skól ann hjá skólameistara nú um helgina, svo og um breytingar á kennslu sérstaklega, og fara svör hans hér á eftir: Menntaskólinn á Akureyri verður settur á sunnudag á Sal. í vetur verða rétt um 500 nem- endur í skólanum, og er það heldur færra en í fyrra. Ástæð- an er einkum sú, að stofnaðar hafa verið menntadeildir við nokkra gagnfræðaskóla á Norð- ur- og Austurlandi, og sækja allmargir nemendur á fyrsta ári því þangað. Heimavist M. A. er löngu fullsetin, og hefur orðið að neita nokkrum nemendum um vist. Kennarar við skólann eru 26. allir fastráðnir. í vetur verður að nokkru komið á áfanga- og annakerfi í skólanum. Kennt verður á þremur önnum, haustönn fram til 20. desember, vetrarönn fram í miðjan marz og vorönn til maíloka. Allt námsefni skól- ans verður metið í einingum, en auk þess verður sjálf skóla- sókn nemenda einnig metin til námseininga, og getur léleg tímasókn valdið því, að nám í skólanum verður lengra en ella. f lok hverrar annar er tek- ið próf í námsefni áfangans, og getur sú áfanga- eða annareink- unn síðan orðið hluti af loka- einkunn, stúdentsprófseinkunn. Þegar námsefninu er skipt nið- ur í áfanga, eins og nú er víða gert í menntaskólum landsins, er leitazt við að gera nemend- um efnið aðgengilegra og gfea þeim betri yfirsýn yfir nám sitt, svo að þeir geti skipulagt vinnu sína betur. í heimavist búa í vetur 145 nemendur. Dagleg stjórn verð- ur í höndum nemenda sjálfra, sem kjósa sér heimavistarráð, er sjálft setur reglur um dag- lega umgengni og heimilishætti og sér um að þessum reglum sé framfylgt. Dagur þakkar upplýsingarn- ar. Q Vænt slálurfé á Húsavík Á HÚSAVÍK á að lóga 37.170 kindum í haust. í samtali við sláturhússtjórann, Baldvin Baldursson á Rangá, kom það fram, að féð reynist vænt. Meðalvigt dilka hinn 20. sept. var 16.4 kg, en þess ber að geta, að flest var féð úr Mývatns- Ráku á haldi yfir Hvítahraunskvlslina FRÉTTARITARI Dags í Þistil- firði, Óli Halldórsson, sem nú er sláturhússtjóri á Þórshöfn, sagði eftirfarandi á mánudag- inn: Búið er að ganga fyrstu göng ur í öllum heiðum og verið að ganga aðrar göngur í Tungusels heiði, Hvammsheiði og Dals- heiði og komið út í dag. Óhemjumikinn snjó hafði sett niður á heiðarnar í september- hretinu, en fé mun þó ekki hafa farizt í stórum stíl, en þó eitt- hvað. Annars sögðu gangna- menn í fyrstu göngum, að enn væri svo mikið stórfenni, að enginn gæti um það sagt, nema að fé leyndist undir fönnum ennþá, ennfremur í kílum og lækjum. í Hvammsheiði kom það fyr- ir, sem enginn man til, að áður hafi þar gerzt í fyrstu göngum, að Hvítahraunskvísl, sem fellur í Hafralónsá og er allmikið vatnsfall, var rekin á haldi. Var þó búin að vera hláka í nokkra daga. Féð reynist ágætlega vænt. Eftir þrjá fyrstu dagana var meðalvigtin ekki lakari en í fyrra, líklega heldur meira, eða 16.5 kg. í Garðsrétt heimtum við bræður, Gunnar og ég, úti- genginn, veturgamlan hrút. Móðir hans kom ekki af fjalli í fyrrahaust, hefur eflaust farist, en tvílembingur á móti þessum veturgamla heimtist af fjalli þá. Þessi hefur hins vegar lifað veturinn út og er 72 kg. lifandi vigt, er hann kom af fjalli. Á hornum þessa hrúts má rekja tíðarfarið síðasta vetur. Fram- förin hefur verið lítil í nóvem- ber, en svo hefur hann tekið góðum bata í góðu tíðinni um jólin, en komist í hann krappan seint í janúar, en síðan geysi- legum bata í febrúar og marz. Svo hefur djúp skora myndazt í hornin um páskana og síðan eru hornin slétt og jafnvaxin. Ber þetta allt saman við veðr- áttuna. Dragnótabátarnir eru búnir með fiskinn og fæst helzt eitt- hvað á færi. Trilluformaður einn sagðist hafa keyrt um all- an sjó á föstudáginn með fisk- leitartæki og aldrei keyrt um Þistilfjörð jafn dauðan. Einnig sagði hann, að ýsan, sem veidd var í fiskinót í sumar framan við hafnargarðinn, væru kannski síðustu ýsurnar á ís- lands«*i4um. Q sveit og Bárðardal og kemur þaðan að jafnaði vænt sláturfé. Skarphéðinn Sigurðsson á Úlfsbæ lagði hér inn 44 dilka og voru þeir með 20.07 kg kroppþunga meðalvigt. Þyngsti dilkurinn sem hingað hefur komið var 27.7 kg og átti hann Jón Jónsson á Einarsstöðum. En nokkuð margir dilkar með 27 og þar í kring, hafa verið lagðir hér inn nú í haust. Slátrun gengur hér mjög vel og án óvæntra tafa. Teknar eru inn 1500 kindur á dag, en ætl- unin að auka dagsslátrunina upp í 1650. Slátruná að ljúka 16. október, sagði sláturhús- stjórinn að lokum. Q TONLEIKAR Á FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ 28. september verða píanótón- leikar í sal Tónlistarskólans á Akureyri. Ferry Gebhardt, sem er prófessor við Tónlistarskól- ann í Hamborg, leikur verk eftir Mozart, Schubert, Beet- hoven og Brahms. Prófessorinn hélt tónleika hér á Akureyri fyrir fjórum árum. Sala aðgöngumiða er í Bókabúðinni Huld og hefst á miðvikudag. Tónleikarnir hefjast kl. 21.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.