Dagur - 11.10.1972, Side 4
4
III I
Skriístoíur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Simar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
ÍRÉITAÁTT
UM það leyti sem lýðveldið var
stofnað, fyrir rúmum aldarfjórðungi,
var komið upp fjórðungssambönd-
um á Norður- og Austurlandi. Sýslur
og kaupstaðir áttu fulltrúa á fjórð-
ungsþingum. Einn elsti forgangs-
maður þessarar hreyfingar var
Hjálmar Vilhjálmsson, þá sýslumað-
ur á Seyðisfirði. Þessi tvö fjórðungs-
samök gerðu tillögur um nýja lýð-
veldisstjómarskrá, en samkvæmt
þeim átti m. a. að skipta landinu í
fylki, sem minntu á hina fornu lands-
fjórðunga. Liðu svo fram tímar og
enn er lýðveldisstjórnarskráin ósam-
in. En árið 1964, rétt áður en þús-
und ár vom liðin frá lögfestingu
hinna fornu landsfjórðunga, fluttu
þeir Karl Kristjánsson og Gísli Guð-
mundsson tillögu um það á Alþingi,
að athugaðir yrðu möguleikar á, aS
skipta landinu í fylki með sjálfstæði
í sérmálum. Ekki hefur slík. löggjöf
enn náð fram að ganga, en hinsveg-
ar hafa í flestum landshlutum, án
lagasetningar, myndast samtök sveit-
arfélaga sem halda aðalfundi eða
fjórðungsþing, gera ályktanir, kjósa
sér stjórn og framkvæmdastjórn og
ráða framkvæmdastjóra til starfa,
afla sér tekna og láta ýmislegt til sín
taka á opinberum vettvangi í þágu
sinna landshluta.
Á fjórðungsþingi Norðlendinga
nú í haust náðist eftirtektarverð sam-
staða í raforkumálum og flugvallar-
málum en bæði þessi mál voru hita-
mál og virtust ætla að verða Þrándur
í Götu í allri samvinnu heimafyrir. I
raforkumálum var stefnan mótuð
þannig með fullri samstöðu fulltnía:
Fullnýtt verði öll tiltæk raforka á
Norðurlandi og svæðið sameinað í
eina Norðurlandsvirkjun, eign
heimamanna og ríkisins. Hlutlaus
könnun verði gerð á hagkvæmustu
lausninni. Norðurlandsvirkjun selji
alla raforku á sama heildsöluverði til
dreifingaraðila og unnið verði að
auknum áhrifum heimamanna í
stjórn Rafmagnsveitna ríkisins Nátt-
iiruverndarsjónarmið verði í heiðri
höfð við allar raforkuframkvæmdir.
Þá náðist um það full samstaða,
hvernig Norðlendingar sjálfir telji
bezt leystan þann vanda, sem skap-
ast hefur um gerð flugvalla. En þar
komu til greina Akureyri, Sauðár-
krókur og Aðaldalur, sem staðir fyr-
ir flugvallargerð og í sambandi
við samgönguáætlun. Fjórðungsþing
náði fullri samstöðu um röðun verk-
efna í þessu máli og var hörð deila
þar með leyst. Má af þessu Ijóst vera,
að Fjórðungssambandið er í vaxandi
mæli sameiningarafl Norðlendinga
og að naumast verður fram hjá því
gengið með mál þau er þennan
landsfjórðung varðar sérstaklega.
Margskonar framkvæmdir í Úlafsfirði StyrktarféL aldraðra
Ólafsfirði 5. október. Hér hefur
verið einmuna veðurblíða allan
septembermánuð og það sem af
er október, svo að segja má, að
við höfum búið við einstæða
sumarveðráttu þessa haust-
daga.
Telja má, að næg atvinna hafi
haldizt hér frá því snemma í
ágúst, en þá glæddist aflinn
heldur hjá bátunum yfirleitt.
Aftur á móti var atvinna stopul
hjá hraðfrystihúsunum í júní
og júlí, þar sem afli var þá afar
tregur.
Nokkuð hefur verið hér um
byggingaframkvæmdir. Tíu
íbúðarhús eru í smíðum og auk
þess stór og mikil slökkvistöð.
Er ráðgert að björgunarsveit
Slysavarnafélagsins verði þar
einnig til húsa með sinn útbún-
að. Þá hefur Ólafsfjarðarbær
staðið í stórræðum á þessu
sumri og m. a. látið steypa 240
metra langan akbrautarkafla til
viðbótar þeim, sem áður var
steyptur á aðalgötu bæjarins,
stéttarhellur lagðar og kantar
steyptir beggja megin vegarins.
Ennfremur hafa kantar verið
steyptir og hellur lagðar með-
fram Ólafsvegi. En sá vegur var
malbikaður í fyrra. Er að þessu
mikill þrifnaðarauki og vel
séður bæjarbragur af aðkom-
andi gestum.
Þá hefur verið unnið mikið
KRISTJÁN FRÁ DJÚPALÆK:
SÚLUR annað hefti 1972
Rifstjórar Jóhannes Óli Sæmundsson og Erlingur Davíðsson
.. EKKI er þetta sízta heftið af
Súlum. Enginn þurfti að efa að
nóg væri hráefnið hér um slóð-
ir í kostmikla andlega rétti. Hitt
hafði maður á tilfinningunni, að
færri myndu til að matreiða, en
raun ber vitni. í þessu fjöl-
breytta lesefni er allt furðulega
vel skrifað, og trúlega frá hendi
höfundanna sjálfra, þótt ritstjór
ar kunni að bæta þar um á
stöku stað. Það er til dæmis
'ékki amalegt að lesa greinina
hans Þorkels Björnssonar, sem
—Erlingur Davíðsson skráði.
Raunar eru þetta tvær greinar.
Sú fyrri, „Frændfólk mitt á
'Þröm“, er skrifuð af svo ríkum
-húmor og góðvild í bland, að
það vekur manni gleði, því oft
viljum við verða dálítið grimm-
ir í gríninu, íslendingar. Síðari
greinin, „Doktorinn á Jökuldal“
er mikill fengur ekki einungis
vegna sinna sérstæðu skemmti-
legheita, heldur gefur hún okk-
ur Ijósa mynd af því, hvernig
fólk í afskekktum sveitum bjó
sér gleðiföng. Raunar er þetta
framhalds gamanleikrit, sem
þéir léku þarna á Jökuldalnum,
og entist nokkur ár. Það mun
hafa stytt þeim vetrarkvöldin.
Næst vil ég nefna „Skolur og
Gráni“, grein, sem Erlingur
skráði eftir Aðalsteini Guð-
mundssyni. Greinin fjallar um
dýr! Hundur og sauður eru
aðálpersónurnar. En sögur af
dýrum eru ekki síður merkileg-
ar en sögur af fólki.
Ég vildi að Súlur gætu flutt
okkur í hvert sinn svo ágæta
frásögn af dýrum.
Á líkri bylgju er grein Jóns í
Garðsvík: „Þegar ég keypti
TEKINN
TRAUSTATAKI
EFTIR dansleik í Sjálfstæðis-
húsinu sl. laugardagskvöld var
tekinn traustataki einn af mögn
urum hljómsveitarinnar. Er hér
um að ræða 100 vatta bassa-
magnara af gerðinni Marshall.
Magnari þessi kemur engum að
gagni nema þeim, sem viðeig-
andi tæki hefur.
Nú eru það vinsamleg til-
mæli, að hann eða þeir, sem
magnarann tóku, skili honum
til undirritaðs og verður þá fall
ið frá skaðabótakröfu og lög-
reglunni ekki blandað í málið.
Ef hlutaðeigandi vill halda
nafni sínu leyndu, er nóg að
hringja og segja hvar magnar-
ann er að finna, og mun þá horf
ið frá frekari eftirgrennslan.
Ingimar Eydal.
hann Bleik“. Enginn, sem þekk-
ir Jón, mun efast um ágæti
tungutaksins. En gaman væri
að fá framhald, sambýlissögu
þeirra Jóns og Bleiks.
Af miklu er að taka. Eiður
Guðmundsson skrifar greinina
„Benedikt í Flöguseli“. Já, það
var stundum dimmt í fortíð-
inni.
Jóhannes Óli ritar „Sjórinn
vildi mig ekki“, frásögn Aðal-
steins Jónssonar vélstjóra. Slík-
ar mannraunasögur eru hverj-
um íslendingi hugstæðar. Og
sízt ætti ég að gleyma hlut Hall
freðar Arnar: „Lífsatriði og
draumar“ því þótt vökuveröld
okkar sé dásamleg er draum-
heimurinn fegri. Gjarna vildi
ég að draumar og frásagnir af
því hvernig þeir rætast yrði
fastur liður í Súlum. Jóhannes
Óli heldur áfram að skrá
örnefni á fiskimiðum Eyfirð-
inga og Erlingur dulræna
þætti.
Auk þessa er margt af fróð-
leik og öðru merkisefni í þessu
4. hefti hins unga norðlenzka
rits, sem rúm leyfir ekki að
nefna nú. En þökk sé öllum,
sem að ritinu vinna. Ég er þess
fullviss, að sá, sem kemst í eitt
af heftum þessa rits mun vilja
sjá þau öll. Efnið er rétt valið.
Frágangur allur er góður og
prófarkalestur í lagi. Eitt ártal
er þó rangprentað, neðstu línu
á bls. 190, 1915 á að vera 1815.
að endurbótum við hafnargarð-
ana í sumar og er unnið enn.
Á norðurgarði var slitlag hellu
endurnýjað og rétt af á nokkr-
um kafla, framendi á vestari
hafnargarði endurbættur stór-
lega og lokað með þykku, járn-
bentu steinsteypulagi. Varnar-
garður fyrir væntanlega friðar-
höfn styrktur mjög með hleðslu
úr stórbjörgum.
í dag hófst hér borun eftir
heitu vatni í landi Skeggja-
brekku, um hálfan annan kíló-
meter frá bænum. En jörð
þessa keypti Ólafsfjarðarbær
fyrir réttum tveim árum. Ráð-
gert er að bora 300 metra djúpa
holu, við svonefndan Laugar-
læk, sem er rétt á landamerkj-
um Ósbrekku og Skeggja-
brekku. Er þetta talinn heldur
álitlegur staður því að þarna
hefur fundizt heit æð, Skeggja-
brekkumegin, 32 stiga heit.
Slátrun lauk hér í fyrradag
og var slátrað 1816 kindum. Féð
var fallegt og vænt. Tveir
þyngstu dilkarnir höfðu 26 kg
skrokkþunga og áttu þá frú
Ásta Jónsdóttir á Brimnesi og
Sveinn Stefánsson frá Vatns-
enda. Nýrnamör og nýru voru
ekki í þessari vigt. B. S.
LAUGARDAGINN 30. sept. sí.
var stofnað í Húsavík Styrktar-
félag aldraðra í Þingeyjarsýslu.
Starfssvið félagsins eru Þing-
eyjarsýslurnar báðar og Húsa-
víkurkaupstaður, en það er
opið öllum einstaklingum.
Markmið þess er að stuðla að
bættri aðbúð aldraðra þjóð-:
félagsþegna og bætum hag
• þeirra á allan hátt.
Hyg'gst félagið m. a. ná mark
miði sínu með því að beita sér
fyrir byggingu íbúðar- og hjúkr
unaraðstöðu fyrir aldraða í hér
aðinu í samvinnu við sveitar-
stjórnir, sýslufélög, sjúkrahús-
stjórn og fleiri aðila.
Á fundinum var samþykkt,
að fyrstu framkvæmdir, sem
félagið beiti sér fyrir verði
bygging dvalar- og hjúkrunar-
aðstöðu fyrir aldraða í tengsl-
um við sjúkrahúsbygginguna í
Húsavík enda fáist til þess full-
nægjandi landrými og heim- -
ildir.
Er ætlunin að haft verði sam-
band við stjórn sjúkrahússins
og eigendur þess um málið og
þess farið á leit að allir aðilar
komi sameiginlega á fót sér-
stakri byggingarnefnd.
Náist samstaða um málið er
Safnamál á Ausfurlandi
AÐALFUNDUR Sambands
sveitarfélaga á Austurlandi,
kaus á síðastliðnu ári fimm
manna nefnd til að „kanna
skipulag og uppbyggingu safna
á Austurlandi, jafnframt því að
gera tillögur til stjórnar SSA
um framtíðarskipulag þessara
mála“.
Á aðalfundi SSA, 2. sept. sl.,
skilaði nefndin ýtarlegri
skýrslu, þar sem greint er frá
þeim söfnum og safnavísum,
sem nú eru í fjórðungnum, og
gerðar tillögur um skipan safna
mála í framtíðinni.
Nefndin leggur til að fyrst
um sinn verði unnið að upp-
byggingu eftirtalinna safna:
a) Burstarfellsbær og minja-
safn á Burstarfelli.
b) Skjalasafn á Egilsstöðum.
c) Minja- og landbúnaðar-
safn á Skriðuklaustri.
d) Skógminjasafn á Hall-
ormsstað.
e) Náttúrugripa- og byggða-
sögusafn í Neskaupstað.
SMÁTT & STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8)
spáð er, vegna þess hve stofn-
arnir eru þegar orðnir veikir
og ásókn mikil, höfum við
nokkrum árum of seint hafizt
lianda um útfærsluna. Það hef-
ur jafnan reynzt þjóðinni dýrt
að lifa undir íhaldsstjórn.
ÚTIVIST BARNA
Mikið ber á því, að börn og
unglingar séu úti á götum bæj-
arins eftir þann tíma á kvöldin,
sem lög og reglur banna útivist.
Mun þetta einkuin sök foreldra
og e. t. v. þeirra einnig, sem um
eiga að fjalla. En á öðrum stað
í blaðinu er birt grein um þetta
efni. Um leið og foreldrar eru
minntir á þetta mál, ber barna-
verndarnefnd og yfirvöldum að
sjá um, að eftir lögunum sé
farið.
BRENNUR
Nú þegar má sjá, að börn undir
búa brennur fyrir næstu ára-
mót. Þetta er gott og blessað
svo langt sem það nær. Hins
vegar þurfa börnin að fá leyfi
lögreglu og slökkviliðs um
brennustæðin hverju sinni, og
er skynsamlegra að gcra það
áður en brennuefni er safnað
saman. Ennfremur cr hætt við,
að hið léttara efni verði fokið
út í veður og vind, þegar svo
snemma er byrjað.
EINKAMÁL EÐA HVAÐ?
Ýmsir halda því fram, að neyzla
áfengis sé einkamál, sem öðrum
komi ekki við. Þetta er rétt svo
laugt sem það nær. En mál
þetta er miklu meira en einka-
mál. Svo mun þeim finnast,
sem mæta ölóðum ökumönnum
og öðrum slíkum á förnum vegi.
Tæpast mun þeim finnast
áfengisneyzlan cinkamál og
öðrum óviðkomandi, sem hug-
leiða, að tveir ölvaðir lestar-
stjórar í Mexíkó voru valdir að
dauða rúmlega 200 manna og
slysum á meira en 1000 manns,
í mesta járnbrautarslysi um
áratugi í því ríki, um þrjátíu
ára skeið.
stefnt að því, að undirbúningi
undir byggingaframkvæmdir
verði lokið í vetur.
Á næstunni fer fram skrán-
ing félagsmanna í Styrktarfélag
aldraðra, en síðar verður undir-
búin fjársöfnun til væntanlegr-
ar dvalarheimilisbyggingar.
:Þá mun félagið einnig leitast
við að hefja í vétur félagslega
starfsemi meðal aldraðra í hér-
aðinu.
Fyrstu stjóm félagsins skipa:
Björn Friðfinnsson, Mývatns-
sveit, formaður, Óskar Sig-
tryggsson, Reykjahvérfi, gjald-
keri, Björn Haraldsson, Keldu-
hverfi, ritari, Teitur Björnsson,
Reykjadal og sr. Björn H. Jóns-
son, Húsavík, meðstjórnendur.
Varamenn í stjórn eru Aldís
Friðriksdóttir, Húsavík, Aðal-
björn Gunnlaugsson, Áxarfirði
og Sigurjón Jóhannesson, Húsa
vík,
-- Þorm. J., Húsavík.
FYRSTI SNJÓRINN
UM helgipa féll fyrsti snjórinn
í byggð a þessu hausti, þó að-
eíns -fölrí gær voru vegir hálir
á Vaðlaheiði, Öxnadalsheiði og
í Ólafsfjarðarmúla. Lágheiði
var fær bílum á keðjum. Vopna
fjarðarheiði var talin ófær
nema jeppum, svo og Axar-
fjarðarheiði. □
f) Sjóminjasafn á Eskifirði.
g) Kirkj usögusafn í Eydölum
í Breiðdal.
h) Byggðasafn á Höfn í
Hornafirði.
Þá leggur nefndin til, að kom
ið verði á fót Safnastofnun
Austurlands, er nái yfir öll söfn
í fjórðungnum, sem rekin eru
með stuðningi sveitarfélaga eða
ríkis, önnur en bókasöfn. Stjórn
stofnunarinnar skal vinna að
skipulegri uppbyggingu safna á
Austurlandi, og ráða til þeirra
sérhæfða starfskrafta eftir því
sem nauðsynlegt þykir, og afla
þeim tekna.
Með tillögum þessum er stig-
ið stórt spor í áttina til raun-
hæfrar skipunar safnamála á
Austurlandi. Annars vegar er
stefnt að eflirigu vissra safna
(náttúrugripasafns, skjala-
safns), sem taka til alls fjórð-
ungsins, og hins vegar að eðli-
legri dreifingu.
Þótt nefndin fjallaði ekki um
bókasafnsmál, virðist hún gera
ráð fyrir, að aðalbókasafn fjórð
ungsins verði á Egilsstöðum, í
tengslum við skjalasafnið. Með
tillögum þessum er horfið frá
einstrengingslegri „höfuðstaðar
stefnu", enda mun enn verða
nokkur bið á því, að einhver
staður marki sér ótvíræðan
höfuðstaðarsess á Austurlandi.
Einnig er sú stefna tekin, að
aðalsöfnin þurfi ekki endilega
að vera í kaupstöðum, eins og
hingað til hefur verið ríkjandi
skoðun. Hugmyndin um safna-
stofnun er og lrið merk,asta ný-
mæli, sem ef til vill verður inn-
an tíðar að veruleika.
H. Hg.
Fréttafilkynning
Á FUNDI stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs Sjómannafélags
Eyjafjarðar, 8. október, var ein-
róma samþykkt að lýsa yfir
stuðningi við samþykkt þá, sem
þing Sjómannasamband íslands
gerði um landhelgismálio og
jafnframt að vara við öllum
undanslætti í samningum við
aðrar þjóðir. □
BlLAR TIL SÖLU:
Vplvo 144 de luxe 71
Gitroen D, S. special 71
Vuxhall Viva 71-72
Cortina 1600 4ra dyra
70 model •
' (lortiua GT 1600 ’68
Mazda 71
Fiat 125 71
Datsum 1200 72
Camaro (blæju) ’67
Höfum kaupendur að
jeppum.
BÍLA OG
VÉLASALAN
SÍMI 1-19-09.
HERRADEILD
Stakir JAKKAR
OG
BUXUR
NÝ SENDING
GÓÐAR VÖRUR
GOTT VERÐ
HAGSTROM
guitarar margar gerðir.
YAMAHA
RAFMAGNSORGEL
með trommuheila væntanleg næstu
WRANGLER FLUELSBUXUR
FYRIR DRENGI OG KARLMENN. ’
«. 4
Góðar buxur — gott verð. i r
HERRADEILD
Bifreiðaverkstæði! - Bifreiðaeigendur!
Vélaeigendur!
Olíusíur
OG
loftsíur
fyrirliggjandi í flestar
tegundir bifreiða, vinnu-
véla og bátavéla.
ATH.: VERÐ HAGSTÆTT.
SENDUM GEGN
PÓSTKRÖFU.
Verzlið við innflytjanda.
ÞÓRSHAMAR H. F.f Akureyri
— S í M I (96) 1-27-00 -
Bifreiðaeigendur! Bifreiðaverkstæði!
• LÍMUM HEMLABORÐA í ALLAR
TEGUNDIR BIFREIÐA, VINNUVÉLA og
IÐNAÐARVÉLA
• RENNUM SKÁLAR OG DISKA
O FELLUM BORÐANA í SKÁLARNAR
Hemlaviðgerðin kemur ekki að fullum notum,
nema borðarnir liggi vel í skálunum.
FULLKOMIN TÆKI - VÖNDUÐ VINNA.
★ ★ ★ ★
HEMLABORÐAR í flcstar bifreiðir
EFNI: - ofið og fíber
ÞÓRSHAMAR H. F., Akureyri
- S í M I (96) 1-27-00 -
Tilboð óskast
í bifreiðina A—2136 sem er Cortina árgerð 1972.
Bifreiðin er löskuð efir árekstur og selst í núver-
andi ástandi.
Tilboð leggist inn á skrifstofu voru fyrir næstu
helgi.
BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS
FRÁ BRUNABÓTAFÉLAGI
ÍSLANDS
Iðgjöld af öllum fasteigna- og lausafjártrygging-
um falla í gjalddaga 15. þ. m.
Vinsamlega gérið skil sem fyrst.
Fyrst um sinn verður. s'krifstofan í Glerárgötu 24
opin til k'l. 19 á mánudögum.
BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS
Akureyrarumboð.
Nýkomin sending af
MASTA PÍPUM
NYLON PÍPUM
LILLEHA3V1MER PÍPUM
★ ★ ★
FÍPUSTATÍF
RONSON KVEIKJARAR
LUKKUTRÖLL
KERTASTJAIÍAR
TÖFRAGLÖS
TÓBAKSBÚÐÍN