Dagur - 13.12.1972, Blaðsíða 1
Ekki snjókorn á veginum
KlukKum var iiringt og sálmar sungmr.
(Ljósm.: E. D.)
irkjan frá Svalbaríi endurvígð á
Ási í Vatnsdal, 11. des. Inflúens-
an er að stinga sér niður hér og
hvar um sveitina, en margir
hafa látið bólusetja sig og á það
að draga úr veikindum, en
sumt fólk hefur farið hálf illa
út úr þessari flensu. Ekki hafa
orðið vandræði á bæjum vegna
veikindanna. Við erum svo vel
settir, að hér í sveit er maður,
sem vinnur hjá bændum þar
sem þörfin kallar mest að í það
og það skiptið. Upphaflega var
þessi maður ráðinn til slíkra
starfa af hreppsfélaginu. Nú
er hann þó elcki ráðinn hjá
hreppnum, heldur er til hans
leitað eftir þörfum og kemur
Skuttogariim
Rauðinúpur
Raufarhöfn, 11. des. Búið er að
vera leiðindatíð síðasta hálfan
mánuð og ekkert hefur verið
farið á sjó. Fiskvinna er því
engin en dálítið er unnið við
lagfæringar og stækku á frysti-
húsinu.
Skuttogarinn frá Japan, sem
við áttum að fá í apríl n. k.,
mun koma mánuði fyrr en ætl-
að var, eða um miðjan marz.
Honum hefur þegar verið gefið
nafnið Rauðinúpur, og er hann
um 500 tonn að stærð.
Snjór hefur ekki verið mikill
og hafa öflugir bílar löngum
komizt leiðar sinnar.
Tvær fjölskyldur fluttu frá
okkur í haust og menn fóru
héðan í atvinnuleit, eins og
gengur og gerist. H. H.
Ferðin frá Brekku
ÚT ER komið þriðja og síðasta
bindi af bókinni Ferðin frá
Brekku, sem eru æviminningar
Snorra Sigfússonar, fyrrum
skólastjóra og námsstjóra. —
Iðunn gefur út, en bók þessi er
tileinkuð skólabörnunum á
Akureyri árin 1930—1947.
Bók þessi er á þriðja hundrað
blaðsíður og ber öll fyrri ein-
kenni þessara minninga, en hún
hefur hlotið lof flestra eða allra
gagnrýnenda og er auk þess
bæði skemmtilestur og mjög
fróðleg.
Eiríkur Sigurðsson skrifar á
öðrum stað í blaðinu um Ferð-
ina frá Brekku, og vísast til
þess að öðru leyti. □
AFBROTAF ARALDUR
VÍÐA um land er afbrotahneigð
manna eitt hið mesta áhyggju-
efni. Um síðustu helgi var þó
rólegt hér á Akureyri, að sögn
lögreglunnar, en hins vegar
mesta afbrotahelgin, sem orðið
hefur í Reykjavík. Þar kallaði
lögreglan út aukavakt, sem
naumast hafði þó tíma til að
elta innbrotsþjófa og annað ill-
þýði, því að svo ört bárust til-
kynningar um innbrotin. Þýfið
var mikið, en skemmdir á hús-
um og munur, ennfremur öku-
tækjum var þó enn meira, sam-
kvæmt frásögn lögreglunnar. Q
það sér oft vel að hafa afleys-
ingarmann.
Hér er aðeins föl á jörð og
ágætt færi í innsveitunum. En
það er eins og önnur veröld
þegar kemur teljandi út fyrir
Blönduós, því að þar er svo
mikill snjór og allt haglaust á
Skaga, eða haglítið, eftir því
sem sagt hefur verið. Enda hafa
þar verið daglegar hríðar um
lengri tíma.
Svo að ég undirstriki muninn
á snjóalögum svolítið meira, má
geta þess, að það sézt eklci snjó-
korn á vegi alla leið til Blöndu-
óss, og hér uppi á hálsi eru
bændur að strengja gaddavír í
nýja girðingu, er ekki var lokið
við í haust. Klaki er nær eng-
inn í jörð hér, þótt svona sé
snjólétt. Hins vegar hefur verið
ónæðissamt og sjaldan kyrrt
veður. Menn hafa því lítið beitt
fé sínu.
Hér er þýzkur prófessor,
Villy Möller að nafni, og hefur
hann komið hingað tvisvar á
ári og verið hér stuttan tíma í
senn við rannsóknir á-riðuveik-
inni, sem hrjáir sauðfé. Ekki
veit ég hvort hann er einhverju
nær, en liður í þessum rann-
sóknum er að veiða mýs, en á
þeim er maurategund, sem
grunur leikur á að sé einhvers-
konar tengiliður í sambandi við
riðuveikina. En ekki kann ég að
lýsa þessu nánar. Þessar rann-
sóknir eru á vegum rannsóknar
stöðvarinnar á Keldum. G. J.
NORRÆNA bindindisnámskeið
ið verður haldið á íslandi í
sumar með þátttöku frá öllum
Norðurlöndum. Búist er við
120—150 þátttakendum. Hefst
námskeiðið hér á Akureyri og
stendur hér 26.—29. júlí. Þátt-
takendur koma með flugvélum
Flugfélags fslands beint frá
Kastrupflugvelli hingað til Ak-
ureyrar. Síðari hluti námskeiðs
ins verður í Reykjavík 30. júlí
ÚT ER komin hjá Bókaforlagi
Odds Björnssonar á Akureyri,
Dagar Magnúsar á Grund. Er
bók þessi nær 300 blaðsíður að
stærð og höfundur Gunnar M.
Magnúss. Eins og nafn bókar-
innar ber með sér, fjallar hún
um stórbóndann og kaupmann-
inn Magnús á Grund, Sigurðs-
son, sem enn er í minni rúm-
lega miðaldra Eyfirðinga, því að
hann andaðist 1925, og hafði þá
búið á höfuðbólinu Grund í
Eyjafirði 50 ár og verzlað þar í
fjóra áratugi. Hann jók með lífi
sínu og starfi enn á frægð
Grundar, þótt með öðrum hætti
væri en þeirra, er hæst ber í
sögum. Og gaman er að minnast
þess, að fyrir 70 árum bar þessi
merkisbóndi fram tillögu um
skóla fyrir hreppana þrjá í Eyja
firði, framan Akureyrar, er loks
nú hefur orðið að veruleika.
Dagar Magnúsar á Grund er
frásögn af merkilegum manni,
en bókin greinir einnig frá sam-
Á SUNNUDAGINN fór fram
kirkjuvígsla á Akureyri. Þá var
endurvígð gamla kirkjan frá
Svalbarði, er til Akureyrar var
flutt og er hún tilbúin til kirkju
legra athafna.
Kirkja þessi var byggð af Þor
steini kirkjusmið á Skipalóni
— 5. ágúst. Efni námskeiðsins
er að þessu sinni Börnin og við.
Auk þess fer alltaf fram kynn-
ing á því landi, þar sem nám-
skeiðið er haldið í hverju sinni.
Hingað komu í síðastliðinni
viku Olof Burman, stórtemplar
Svía, og Karl Wennberg, fram-
kvæmdastjóri námskeiðsins, til
að ræða við templara hér um
tilhögun þessa bindindismóts.
tíð hans og er stórfróðleg. Um
það má sjálfsagt deila, hvort
bók þessi átti fremur að vera í
Mynd af bókinni Dagar
Magnúsar á Gmnd.
1846 og var í notkun til ársins
1956, er hún var ónothæf talin
og afhelguð, enda hafði þá risið
þar nærri nýtt og veglegt
kirkjuhús.
Æskulýðsfélag Hólastiftis
eignaðist gömlu kirkjuna og
hugðist flytja hana að sumar-
búðum þjóðkirkjunnar að Vest-
mannsvatni í Aðaldal. Af ein-
hverjum ástæðum var þó hætt
við það áform og gaf Æskulýðs-
félagið þá kirkjuna Minjasafn-
inu á Akureyri.
Safnvorður Minjasafnsins,
Þórður Friðbjarnarson, fékk nú
það verkefni að flytja kirkjuna
til Akureyrar, koma henni þar
fyrir og endurbæta hana. Hann
tók kirkjuna af grunni sínum
27. október 1970 og setti hana á
einn mikinn vagn, í heilu lagi
og fór þannig með hana til
Akureyrar daginn eftir. Var
hún þar sett niður á áður undir-
heimildastíl eða sögustíl, en
vart verður um það deilt, að
hún átti erindi á prent.
í flokki barna- og unglinga-
bóka er Flugferðin til Englands,
sem Bókaforlag Odds Björns-
sonar gefur einnig út. En bók
þessi er eftir Ármann Kr. Ein-
arsson og er endurprentuð, 170
blaðsíður að stærð og prýdd
myndum eftir Odd Björnsson.
Bækur Ármanns Kr. Einars-
sonar hafa verið eftirsóttar um
fjölda ára, og því mun þessi
endurprentun kærkomin mörg-
um af yngri lesendunum.
Handa börnunum hefur BOB
gefið út ofurlítið, myndskreytt
hefti, sem heitir Böm í Argent-
ínu, létt og fróðlegt lesefni, en
Sigurður Gunnarsson íslenzk-
aði. Er þar fjallað um leiki og
störf barna, og ætlunin að fleiri
hefti komi út undir heitinu
„Með BOB til útlanda." Virðist
þetta hinn ágætasti lestur fyrir
(Framhald á blaðsíðu 4)
búinn grunn. Sá grunnur er á
sömu lóðinni og eldri Akureyr-
arkirkjan, sú fyrsta hér í bæ,
stóð, örskammt frá Kirkjuhvoli,
húsi Minjasafnsins.
í tvö ár hefur safnvörður
unnið að viðgerð hinnar öldnu
kirkju í tómstundum frá venju-
legum störfum, og gætt þess að
raska sem minnst upphaflegri
gerð og fyrirkomulagi. Rafmagn
hefur verið leitt í kirkjuna, til
(Framhald á blaðsíðu 5)
HAFNARGERÐ
LOKIÐ í GRÍMSEY
Grímsey, 11. des. Vinnuflokkur
sá frá Vita- og hafnarmálaskrif-
stofunni er farinn héðan með
sín tæki, nema einn pramma,
og vinnu er að kalla lokið. Það
er orðinn mikill munur á höfn-
inni, og svo bíða menn átekta
hve sterk þessi mannvirki eru,
þegar verulega reynir á þau.
Nú er dásamlegt veður og ein
hverjir skreppa á sjó til að fá
sér í soðið, en sjósókn er hér
annars engin, enda óstillt. Hins
vegar hefur verið snjólaust hér
að kalla, aðeins föl þar til nú
fyrir helgina, að snjó kyngdi
niður. Þetta er þó naumast
annað en jólasnjór og engin
ófærð. S. S.
ÚTHLUTUN LÁNA
HINN 30. nóvember úthlutaði
bæjarráð Akureyrar lánum.
Teknar voru fyrir umsóknir
um lán úr Byggingalánasjóði
Akureyrar — A-deild.
Alls bárust 126 umsóknir um
lán.
Úthlutað var 78 lánum, sem
skiptust þannig:
72 lán á kr. 50.000 = kr.
3.600.000.
4 lán á kr. 40.000 = kr.
160.000.
2 lán á kr. 30.000 = kr. 60.000.
Samtals kr. 3.820.000. Q
Norrænt bindindismót í sumar
Bækir frá Bókaforlagi Odds BJörnssonar