Dagur - 22.12.1972, Side 2
FRETTIR
Fundur Markaðsráðs.
Markaðsráð samvinnufélag-
anna hélt fund í Reyltjavík 20.
nóv., en í því eiga sæti 11 full-
trúar Sambandsins og kaup-
félaganna.
Formaður ráðsins er Olafur
Sverrisson kaupfélagsstjóri í
Borgamesi, og samkvæmt upp-
lýsingum hans var á fundinum
fjallað um helztu verkefni á
sviði smásöluverzlunarinnar,
sem ráðið hefur haft afskipti af
á árinu. Þar á meðal er að
nefna, að unnið var að því að
útvega samræmd merki á fast-
eignir og bíla Sambandsins og
kaupfélaganna, sem væntanleg
eru á næstunni. Líka hefur ráð-
ið haft íhlutun um námskeið,
sem Skipulagsdeild hefur séð
um framkvæmd á, t. d. fersk-
vörunámskeiðið, sem haldið var
fyrr í haust. Einnig kom ráðið
þeim tilmælum á framfæri við
félögin, að þau samræmdu liti
á bílum sínum og fasteignum,
og innan skamms er að koma á
markaðinn ný og traustari gerð
af veifum í stað þeirra, sem
settar voru upp á byggingar
Sambandsins og kaupfélaganna
í tengslum við afmæli hreyfing-
arinnar nú í sumar. Þá átti
Markaðsráð frumkvæði að af-
mælisgetraun þeirri, sem fram
fór á vegum kaupfélaganna sl.
sumar, en Innflutningsdeild
annaðist framkvæmd hennar.
Þá hefur ráðið hug á að auka
námskeiðahald, og verða áfram
haldin kvöldnámskeið fyrir
verzlunarfólk úti í kaupfélög-
unum, auk þess sem nú í vetur
er fyrir hugað námskeið fyrir
deildarstjóra í verzlunum, skrif-
stofustjóra o. fl. Einnig voru á
fundinum kjörnar vöruvals-
nefndir fyrir Rafmagnsdeild,
Vefnaðarvörudeild og Bús-
áhaldadeild, sem eiga að leið-
beina um vöruval þessara
deilda á svipaðan hátt og hlið-
stæð nefnd, sem hefur nú um
nokkurt skeið starfað fyrir
Birgðastöð. Sömuleiðis hefur
ráðið hug á að ráðinn verði
verzlunarráðunautur, sem leið-
beini félögunum um meðferð og
sölu á kjötvörum og starfi í Bú-
vörudeild eða í tengslum við
Kjötiðnaðarstöðina. Loks telur
ráðið þörf á að samræma sölu-
starfið hjá hinum ýmsu deild-
um Sambandsins, auk þess sem
samræma þurfi litaval innan
dyra í kaupfélagsbúðunum og
efna til herferðar um snyrtingu
utanhúss.
2000 nýir félagsmenn í KRON.
Föstudaginn 17. nóv. opnaði
KRON hina nýju verzlun sína
við Norðurfell í efra Breiðholts-
hverfinu í Reykjavík. Að sögn
Ingólfs Ólafssonar kaupfélags-
stjóra hefur verzlunin fengið
ágætar undirtektir hjá íbúum
hverfisins og mikið verið verzl-
að þar, t. d- nam salan 550 þús.
kr. fyrsta daginn.
Þá hafa félaginu bætzt 2.000
nýir félagsmenn það sem af er
þessu ári, og eru þeir nú orðnir
um 10.000 að tölu. Mikinn þátt
í þeirri fjölgun á vafalaust sá
afsláttur, sem félagið hefur tví-
vegis veitt á árinu, en frá nóv-
emberbyrjun, þegar síðara af-
sláttartímabilið hófst, hafa um
5.000 manns vitjað afsláttar-
korta til félagsins.
Nýtt Dísarfell.
Svo sem almennt er kunnugt
seldi Sambandið Dísarfeli í sl.
ágústmánuði. Það skip hafði
það sérstaka verkefni að sigla
aðallega til hinna smærri hafna,
og Sambandið hefur talið þýð-
ingarmikið, að í flota samvinnu-
manna væri skip af áþekkri
stærð.
Undanfarið hefur verið leitað
að skipi hentugu sem arftaka
Dísarfells, og nú hafa tekizt
samningar um kaup á dönsku
skipi, sem heitir Lene Nielsen,
en er að vísu nokkuð stærra en
Dísarfell var. Skip þetta var
byggt í Danmörku árið 1967 og
er því fimm ára gamalt. Það er
byggt samkvæmt Lloyds flokk-
unarreglum og styrkt fyrir sigl-
ingar í ís. Skipið er með milli-
þilfar, og getur það siglt bæði
sem opið milliþilfarsskip (1220
tonn) og sem lokað (2200 tonn).
Það er með 1400 ha. Mak-aðal-
vél og lestarrými er um 100 þús.
teningsfet.
Skipið verður afhent í Dan-
mörku, væntanlega síðari hluta
febrúár h. k. .
Hlutafjárútboð Samvinnu-
banitans. : ;
Eins og SF hafa áður greint
frá,' átti Samvinnubankinn 10
ára starfsafmæli hinn 17. nóv.
sl. Á afmælisdaginn hófst áður
boðað hlutafjárútboð bankans,
eh samkvæmt ákvörðun síðasta
aðalfundar hans er nú fyrir
hendi heimild til að auka hluta-
fé hans úr 16 mrllj. kr. í allt að
100 millj. með almennu hluta-
fjárútboði til félagsmanna kaup
félaganna.
Hin nýju hlutabréf eru að
nafnverði 5, 10 og 100 þús. kr.,
og eru þau til sölu í bankanum
og útibúum hans, svo og í kaup-
félögunum um land allt.
Kjötiðnaðarstöðin formlega
tekin í notkun.
Hin nýja kjötiðnaðarstöð Bú-
vörudéildar á Kirkjusandi var
formlega tekin í notkun hinn
20. nóv. Verða þar framleiddar
allar venjulegar kjötiðnaðarvör-
ur, en áherzla lögð á að auka
mjög fjölbreytni þeirra. Eru
hinar fyrstu reyndar þegar
komnar, á markaðinn, og eru
þær seldar undir vörumerkinu
„G0ÐI“, en auk þess verður
vörumerkið „GYÐJA“ notað á
niðursoðið grænmeti og ýmis
konar sósur frá stöðinni.
Til nýjunga má telja, að á
öllum framleiðsluvörum stöðv-
arinnar verða ýtarlegar inni-
haldslýsingar viðkomandi vöru-
tegundir ásamt útreikningi á
næringargildi. Einnig verður
nákvæmt eftirlit með gæðum
varanna og hollustuháttum við
framleiðsluna miklu fullkomn-
ara en þekkzt hefur hér á landi
til þessa. Er það gert kleift m. a.
með nánu samstarfi við Til-
raunaeldhús Osta- og smjörsöl-
unnar og Sambandsins og við
Rannsóknastofu Búvörudeildar,
en báðar þessar stofnanir eru til
húsa í sambýli við kjötiðnaðar-
stöðina.
Söluaukning hjá Innflutnings-
deild lun 200 millj.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hjalta Pálssyni framkvæmda-
stjóra hefur sala Innflutnings-
deildar fyrstu tíu mánuði ársins
orðið um 1.231 millj. kr., sem er
aukning um tæpar 200 millj. frá
sama tímabili sl. ár. Vegna gíf-
urlegra hækkana á öllum rekstr
arkostnaði er þó ekki útlit fyrir
að endanleg rekstrarafkoma
deildarinnar verði að ráði betri
en í fyrra.
Um afkomu einstakra undir-
deilda er það helzt að nefna, að
sala Birgðastöðvar hefur á tíma
bilinu aukizt um 28%, og er nú
fyrirsjáanlegt, að hún fer í
fyrsta skipti yfir 500 millj. kr.
á yfirstandandi ári.
Þá hefur einnig orðið veruleg
söluaukning hjá Vefnaðarvöru-
deild eða 45%. Mestur hluti
þeirrar aukningar stafar af vax
andi sölu á Night & Day sæng-
urfataefninu, sem deildin selur
og nýtur fádæma vinsælda. Það
er flutt inn í ströngum og síðan
saumað í sængurverasett á
saumastofu á Hvolsvelli, sem
Kaupfélag Rangæinga og hrepp
urinn þar reka. Það sem af er
árinu hefur deildin selt 132 þús.
metra af þessari vöru, þ. e. a. s.
samsvarandi vegalengdinni frá
Reykjavík og langleiðina upp í
Bifröst.
Timbursalan flytur
að Ármúla 29.
Föstudaginn 24. nóv. opnaði
timbursala Sambandsins í
Reykjavík að Ármúla 29, þaðan
sem hún hefur verið flutt úr
vörugeymslum þess við Granda
veg. Ármúli 29 er baklóðin við
byggingar Sambandsins að Suð-
urlandsbraut 32, þar sem nú er
m. a. til húsa byggingavörusmá-
sala þess, sem áður var í Hafn-
arstræti, og hefur þar með öll
sala Sambandsins á bygginga-
vörum í Reykjavík komizt á
einn stað.
Hjólbarðaþjónusta Véladeildar
reynist vel.
Hjólbarðasalan og hjólbarða-
verkstæðið, sem Véladeild opn-
aði að Höfðatúni 8 í Reykjavík
sl. vor, hefur gefið mjög góða
raun og haft það í för með sér,
að deildin hefur getað tekið á
móti mjög auknum viðskiptum
á þessu sviði. Þessar upplýsing-
ar fengum við hjá Jóni Þór Jó-
hannssyni framkvæmdastjóra,
og gat hann þess einnig, að
greinilega hefði verið mikil
þörf fyrir þessa þjónustu af
hálfu deildarinnar, sem bezt
hefði sýnt sig nú undanfarið á
þeim tíma árs, þegar hvað mest
er að gera við sölu og ásetningu
snjóhjólbarða.
Heimsókn til Rafmagnsdeildar
— vaxandi umsvif.
Fyrir skömmu fékk Raf-
magnsdeild heimsókn af hópi
rúmlega 30 fulltrúa frá kaup-
félögunum víðs vegar um land-
ið. Á móti þeim tóku fram-
kvæmdastjóri Véladeildar
ásamt deildarstjóra og starfs-
mönnum Rafmagnsdeildar, og
var gestunum gefið yfirlit yfir
starfsemi deildarinnar, ásamt
því sem þeim voru kynntar
helztu nýjungar, sem hjá henni
eru á döfinni, m. a. nýjar sauma
vélar og stóraukið framboð á
hvers konar rafmagns-heimilis-
tækjum. Q
Frá vinstri: Herdís, Hólmfríður og Elva.
(Ljósm.: J. G. U.)
DESEMBERMÓT í sundi var
haldið á vegum Sundfélagsins
Óðins laugardaginn 16. des.
Keppendur voru 18, og flestir á
vegum sundfélagsins. Keppt
var í 18 sundgreinum og urðu
úrslit í einstökum greinum
þessi:
50 m bringustund sveina.
1. Björn Víkingsson 38.4
2. Einar Kristjánsson 44.5
100 m bringusund drengja.
1. Marinó Steinarsson 1:19.8
2. Björn Víkingsson 1:25.0
3. Örn V. Birgisson 1:26.0
200 m bringusund drengja.
1. Pétur M. Pétursson 2:52.3
2. Björn Víkingsson 3:16.3
50 m skriðsund sveina.
1. Kristján Þ. Sigfússon 31.4
2. Björn Víkingsson 32.9
3. Éinar Kristjánsson 34.1
100 m skriðstund drengja.
1. Gunnar Eiríksson 1:06.6
2. Marinó Steinarsson 1:08.2
3. Kristján Þorkelsson 1:09.5
200 m skriðsund drengja.
1. Örn V. Birgisson 2:43.0
2. Marinó Steinarsson 2:45.2
50 m baksund drengja.
1. Jóhann G. Möller 35.7
2. Kristján Þ. Sigfússon 38.9
3. Marinó Steinarsson 39.5
100 m baksund drengja.
1. Jóhann G. Möller 1:21.0
2. Kristján Þorkelsson 1:26.0
50 m flugsund drengja.
1. Pétur M. Pétursson 33.7
2. Marinó Steinarsson 34.1
3. Kristján Þ. Sigfússon 37.0
é 4
I
I-
&
•í*
*
I
I-
I
I-
I
I
I
I-
i
Hver er maðurinn
Hvað er maður? Laufblað létt á hjarni,
lítill kvistur, sprek á tímans arni,
agnardropi, mitt í víðum mar,
þokuhnoðri, þrúðgum stormi hrakinn,
þotsnar neisti, lífsins mætti vakinn,
brunninn þráður, kulnað kertisskar.
Hvað er maður? Bjarmi af allífs eldi,
endurspeglun stjörnuljóss á kveldi,
glampi sólargeisla á tímans lind,
sála, hýst af eining efna jarðar,
andi frjáls, er binda viðjar jarðar,
mynd af Guði, saurguð villu og synd.
Hvað er maður? Brandur einn í báli,
bland af tryggð og sannleik, lygi og táli,
illu og góðu, er ávallt heyir stríð,
þræll og frjáls, á þrek og vit til dáðar,
þurfalingur mildi Guðs og náðar,
geymdur ella glötun dóms á tíð.
Sœmundur G. Jóhannesson.
<3
4-
t
|
t
J
I
1
I
?
i
?
t
?
t
t
?
t
? <9
200 m fjórsund drengja.
1. Marinó Steinarsson 2:56.5
2. Kristján Þ. Sigfússon 2:59.2
50 m bringusund telpna.
1. Hólmfríður Traustad. 41.1
2. Herdís Herbertsdóttir 41.4
3. Elva Aðalsteinsdóttir 42.2
100 m bringusund telpna.
1. Herdís Herbertsdóttir 1:32.8
2. Hólmfríður Traustad. 1:33.1
200 m bringusund telpna.
1. Herdís Herbertsdóttir 2:32.5
2. Hólmfríður Traustad. 3.22.4
50 m skriðsund telpna.
1. Elva Aðalsteinsdóttir 34.6
2. Hólmfríður Traustad. 36.6
3. Herdís Herbertsdóttir 38.1
100 m skriðsund telpna.
1. EJva Aðalsteinsdóttir 1:18.5
2. Hólmfríður Traustad. 1:24.4
50 m baksund telpna.
1. Elva Aðalsteinsdóttir 47.5
2. Kara Melstad 53.1
50 m flugstund telpna.
1. Elva Aðalsteinsdóttir 43.4
2. Herdís Herbertsdóttir 44.0
100 m fjórsund telpna.
1. Elva Aðalsteinsdóttir 1:32.5
2. Herdís Herbertsdóttir 1:35.5
Keppt var um bikar sem fé-
lagar í sundfélaginu höfðu gefið
til þessarar keppni og einnig
tvo smærri bikara, sem voru
fyrir annað og þriðja sæti. Bik-
arar þessir veittust fyrir bezta
frammistöðu, miðað við afreka-
skrá 1971 og hlaut Hólmfríður
Traustadóttir 1. sætið fyrir
árangur sinn í 50 m bringu-
sundi, önnur varð Herdís Her-
bertsdóttir og þriðja Elva Aðal-
steinsdóttir, einnig fyrir 50 m
bringusund. Elva Aðalsteins-
dóttir varð hæst að stigatölu
með 27 stig.
Þjálfari hjá félaginu síðustu
8 mánuði hefur verið Þröstur
Guðjónsson og hefur-sundfólkið
æft af kappi og sýnt mikinn
áhuga við æfingar. □
Togararnir allir
á veiðum
FRÁ skrifstofu Útgerðarfélags
Akureyringa í gær:
Kaldbakur landaði 46 tonnum
18. desember.
Svalbakur landaði 112 tonnum
19. desember.
Harðbakur er að landa ca. 100
tonnum.
Sléttbakur landaði 50 tonnum
14. desember.
Sólbakur landaði 14. desember
66 tonnum.
Allir Akureyrartogararnir
munu verða á veiðum yfir jólin,
en einhverjir munu koma inn á
milli jóla og nýárs. | li