Dagur - 22.12.1972, Side 8
8
Karlakórinn Geysir á Akureyri.
TÓNLEIKAR A AKUREYRI
SMATT & STORT
AÐ UNDANFÖRNU hefur ver-
ið nokkuð um tónleikahald hér
á Akureyri. Tónlistarfélag Akur
eyrar efndi til tónleika í Borgar
bíói 29. nóv. og kom þar fram
listafólk frá Sovétríkjunum.
Var það komið hingað til lands
á vegum Menningartengsla ís-
lands og Ráðstjórnarríkjanna í
tilefni af fimmtíu ára afmæli
Sovétríkjanna. Akureyringar
nutu góðs af förinni fyrir til-
stilli Tónlistarfélagsins, og \'oru
þetta aðrir tónleikar T. A.
Söngvarinn Pranas Zaremba
frá Líthauen hafði fjölbreyti-
lega efnisskrá fram að færa,
þjóðlög frá ýmsum löndum inn-
an Sovétríkjanna, ljóðalög og
aríur úr óperum. Fiðluleikarinn
Jurí Svjolkovski frá Lettlandi
lék verk eftir Shostakovitch,
Saint Saens, Brahms og lettnesk
tónskáld. Undirleikarinn Lujd-
mila Kurtova frá Moskvu lék
einnig einleik í verkum eftir
Rachmaninov, Debussy og Pro-
koviev.
Það er alkunna, að sovézkt
listafólk hefur löngum verið
aufúsugestir í tónlistarlífi hér á
landi og sömuleiðis, að sovézkir
virðast ekki senda aðra út af
örkinni til tónleikahalds en
afbragðs listafólk. Sú var einnig
raunin á að þessu sinni, og voru
undirtektir áheyrenda eftir því
góðar. Hlutur píanóleikarans
var hvað mestur í undirleikn-
um, sem hún innti frábærlega
vel af hendi, og ekki varð betur
heyrt með fiðluleik Svjolkovski
en að þar væri kominn virtuos
á meiri háttar mælikvarða.
Söngvarinn Zaremba hefur
mikið raddsvið og blæbrigða-
ríka rödd. í lokin söng hann
íslenzkt lag með furðu góðum
framburði við mikinn fögnuð
áheyrenda.
Það var með aðsóknina eins
og fyrri daginn, að örðugt reyn-
ist að fylla Borgarbíó. Það er
ekki uppörvandi fyrir Tónlistar
félag Akureyrar að hafa ekki
styrkari grundvöll sinnar til-
vistar en raun ber vitni. Ég
leyfi mér að fullyrða, að félagið
leitast ævinlega við að vanda
til þeirra tónleika, sem það
stendur að svo sem frekast er
kostur, en það virðist ekki duga
til að vekja neinn teljandi
áhuga.
Þetta er eins og hver önnur
beinhörð staðreynd, sem e. t. v.
þýðir ekki að fást um, og orsak-
ir þessa eru margþættari en
svo, að hér sé einu sinni hægt
að taka þær til umræðu. Það
yrði langt mál.
Það hafa fleiri merkisafmæli
verið á döfinni, og nýlega hélt
Karlakórinn Geysir hátíðlegt
fimmtíu ára afmæli sitt. Kórinn
efndi til samsöngva í Akureyrar
kirkju 30. nóv. og 1. des. Philip
Jenkins kom gagngert frá
London, og auk hans stjórnuðu
Áskell Jónsson og Árni Ingi-
mundarson. Einsöngvarar voru
Jóhann Konráðsson, Aðalsteinn
Jónsson,. Jóhann Daníelsson og
Sigurður Svanbergsson. Undir-
leikari á píanó var Anna Áslaug
Ragnarsdóttir.
' Efnisskráih samanstóð að
lángmestu léýti af lögum, sem
fcórinh hefúf áður flutt á fyrri
samsöngvum.' Er rétt að taka
það strax fram, að mér virtist
kóririn ékki vera sérlega vél
æfður eða yfirleitt tilbúinn að
fara upp á tónleikapall, þótt
flutningur á einu og einu lagi
væri geðugur og góðum hljómi
brygði fyrir.
Á stórafmælum leyfist það
vitanlega að dvelja ögn við for-
tíðina, en samt held ég það væri
heillaráð fyrir Geysi að bera
sig að horfa dálítið fram á við.
Það ber engum skylda til að
efna til tónleika, þótt aldrei
nema fimmtugur sé. Tímamót
eru ekki annað en vægðarlaus
áminning um, að tíminn líður,
en spurningin er hverju hefur
verið áorkað, hvert er inntak
starfsins, hefur starfsemi Geysis
og annarra sambærilegra kóra
náð að örva tónlistaráhuga al-
mennt séð?
Þegar efnt er til tónleika,
vegur það þyngst, hvern músík-
alskan boðskap menn hyggjast
flytja. Ef hann er enginn sér-
stakúr er farin erindisleysa í
þeirri skilningi, að samsöngvar
og tónleikar yfirleitt séu nokk-
uð, sem taka beri alvarlega.
Ég held, að Geysir og raunar
fleiri kórar verði að gera það
LITLI-PÉTUR og Stóri-Pétur
heitir nýútkomin barnabók eft-
ir Birgi Marinósson og Hallmar
Sigurðsson. Textinn er eftir
Birgi en teikningar eftir Hall-
mar. Hefur samvinna þeirra tek
izt vel og á bókin erindi til
yngstu lesendanna og stórt let-
Dalvík, 21. des. Um klukkan 9
síðdegis í gær var suðvestan
rok. Meiri hlutinn af þaki íbúð-
arhússins á Þorsteinsstöðum í
Svarfaðardal fauk, bæði viðir
og járn. í dag er unnið að efna-
útvegun til viðgerða. Bóndinn á
upp við sig hvern tilgang þeir
geti fundið álitlegastan með
starfi sínu. Það er vitaskuld
fyllilega réttmætt í sjálfu sér að
líta á kóra sem eins konar
skemmtifélög, og vússulega ger-
ir það minnstar kröfur til
þeirra, sem hlut eiga að máli.
Hins vegar gætu slíkir kórar í
vel flestum tilvikum verið kjör-
in vettvangur tónlistariðkunar,
sem bæði þjálfar meðfædda
hæfileika og glæðir löngunina
til að læra eitthvað um tónlist
innan þeirra marka sem slíku
áhugamannastarfi eru sett. Það
er þetta viðhorf, sem mér hefur
fundizt nokkuð skorta á, að
fyrirfyndist. Nú er kór á borð
við Geysi vel í stakk búinn að
því leyti, að þar eru bæði góðar
raddir og ýmsir þeir saman-
komnir, sem líklegir eru til þess
að geta gert betur, ef sótt væri
á brattann. Framh. á bls. 5.
ÆSKAN
SENN koma jól og áramót fara
í hönd. Hátíðardagar sem lands
menn hafa haldið upp á í ára-
raðir.
En allt er breytingum háð og
áramótafagnaður fslendinga hef
ur á undanförnum árum þróazt
í óheillavænlega átt.
Hér er átt við hinn mikla
drykkjuskap, sem hefur sett
mark sitt á þessi tímamót, og
sífellt yngra og yngra fólk tekur
þátt í.
Æskulýðsráð og Barnavernd-
arnefnd ásamt fleiri aðilum
munu reyna að hamla á móti
þessari óheillaþróun, sem átt
hefur sér stað að undanförnu,
ur við þá miðað. Offsetstofan
annaðist prentun en höfundar
eru sjálfir útgefendur.
Litli-Pétur og Stóri-Pétur er
um 80 blaðsíður að stærð, og
virðist bókin ýmsum þeim kost-
um búin, að skemmta börnum
og örva áhuga þeirra á lestri. □
Þorsteinsstöðum er Gunnlaugur
Tryggvason. 1 sama óveðrinu
urðu talsverðar skemmdir á úti-
húsum á Hóli á Upsaströnd.
Bóndinn þar er Karl Þorleifs-
son. Skemmdir af völdum hvass
viðrisins urðu engar hér. J. H.
MEÐ KRAFTA f KÖGGLUM
Akureyringurinn Reynir Leós-
son lyfti fyrir fáum dögum upp
12 tonna vörubíl sínum, annars
vegar. Rannsóknarstofnun bygg
ingariðnaðarins hefur staðfest,
að til þess að lyfta þessum
þunga hafi þurft 2650 kg tog-
kraft. Þess er þá líka að minn-
ast, að járnkeðjur þær, sem
Reynir sleit er hann brauzt út
úr fangageymslunni í Keflavík
í haust, hafa verið prófaðar og
reyndist sverasta keðjan, er
kraftaniaðurinn sleit í sundur,
þola rösklega sex tonna tog-
kraft. Kvikmyndin „Hinn ósýni
legi kraftur“ verður senn til-
búin og verður væntanlega á
markaði bæði utanlands og
innan.
TÓBAK OG ÁFENGI
Áfengi hefur hækkað í verði
um 30% og tóbak um 25%, og
er sú hækkun ákveðin í sam-
bandi við gengisbreytinguna og
aðrar efnahagsaðgerðir. Ekki
eru allir ánægðir með þetta, sízt
þeir mörgu, sem háðir eru þess-
um vörum. Er víst ekki annað,
sem til varnaðar má verða, en
að spara þessar vörutegundir,
sem hækkuninni nemur. Reyk-
ingamenn ættu nú að kaupa sér
pípu, ef þeir hafa ekki gert það
áður, og brennivínsmenn að
taka upp hóflegri drykkju.
AURARNIR HVERFA
Flestir hafa víst þá reynslu af
peningunum nú á tímum, að
þeir reynast heldur ódrjúgir.
En þótt þúsund króna seðillinn
sé ckki ávísun á dýrmæta hluti
eða mikil lífsins gæði, sem
keypt verða með krónum,
mættu margir hugleiða betur
notkun hans en gert er almennt.
Ekki mun það vel þokkað af
verzlunarstéttinni að predika
sparnað í innkaupum í jólakaup
tíð, enda mála sannast, að þá
er margri krónunni betur varið
og leitum við hér með aðstoðar
bæjarbúa í þessu máli og von-
um að þeir liggi ekki á liði sínu,
ef á reynir.
Bezta aðstoðin er auðvitað sú,
að hver og einn leitist við að
gera þetta að hátíðahöldum þar
sem áfengið skipar ekki æðsta
sess.
Starfsmenn Æskulýðsráðs og
Barnaverndarnefndar munu
hafa aðsetur í LÓNI á gamlárs-
kvöld, þar sem unglingar eða
forráðamenn þeirra geta leitað
upplýsinga eða aðstoðar ef þörf
krefur. Þar mun verða skotið
skjólshúsi yfir þá unglinga sem
af ýmsum ástæðum eiga- ekki
samleið með fjöldanum þetta
kvöld.
Símaþjónustan í Lóni verður
í númer 11066 og geta þeir sem
þurfa, hringt þangað frá kl. 22
og fram á nýársdagsmorgun.
Munum við veita þeim alla þá
aðstoð, sem tök eru á.
Óskað er eftir, að þeir sem
vildu aðstoða við þessa starf-
semi einhverja stund (1—2
tíma) á gamlárskvöld, láti vita
í síma 12722 milli kl. 10 og 12
f. h. 27. og 28. desember n. k.
Fullt samráð og samvinna
verður höfð við lögregluyfir-
völd bæjarins, sem mun þarna
sem annars staðar aðstoða ef
þess gerist þörf. Við viljum
undirstrika það, að af hálfu
undirritaðra, er hér fyrst og
fremst um að ræða aðstoð við
þá sem þess þurfa, en ekki bein
löggæzla, sem að sjálfsögðu
verður nú sem endranær í hönd
um lögreglunnar.
en á öðrum árstímum. Þá eru
keyptir hlutir, sem gleðja unga
og gamla, kannski óþarfir frá
hagrænu sjónarmiði, og er þá
sérstaklega átt við hverskonar
jólagjafir, þarfar og óþarfar, en
þeim fylgir sá hlýhugur, sem
jólin ein megna að glæða með
flestu fólki.
RÁÐSETT HJÓN
Fyrir skömmu sýndu ráðsett
hjón þeim, er þetta ritár, bú-
reikninga sína. Þau höfðu orðið
ásátt um að skrifa niður smátt
og stórt, sem þau keyptu hvern
mánuð. Þau ætluðu að athuga
á hvern hátt skynsamlegast
væri að spara fjármuni, og
gerðu það. Sú upphæð, sem
hjónin keyptu af „óþarfa“ varð
svo stór að þeim blöskraði. Þar
með var talið áfengi, tóbak, sæl-
gæti og skemmtanir. Ekki eru
þessi hjón í neinu peningahraki,
fremur en gerist og gengur um
ungt fólk. En þau ákváðu að
gera tveggja mánaða sparnaðar-
tilraun og athuga svo niðurstöð-
una, og hún var ótrúleg, sögðu
þau, og færðu töluleg rök að.
Myndi nú ekki heillaráð, að
jólagjöfum keyptum og að há-
tíðum loknum, að einhverjir og
helzt margir, gerðu álíka hag-
fræðilega úttekt á eyðslunni, og
létu niðurstöður vísa veginn?
NÁMSKEIÐ í skíðagöngu hefst
miðvikudaginn 27. desember.
Skráning fer fram í íþróttavali-
arhúsinu kl. 18 sama dag. Ald-
urstakmark e,r 14 ára og eldri.
Kennd verður meðíerð skíða-
áburðar, þjálffræði, göngutækni
og fleira. Leiðbeinandi verður
Halldór Matthíasson. □
Við gerum okkur vonir um að
forráðamenn barna og unglinga
þessa bæjarfélags sjái sér fært
að veita okkur alla tiltæka lið-
veizlu, sem til þarf, svo að
hjálparstarfsemi þessi megi vel
ganga.
Akureyri í desember 1972.
Barnaverndarnefnd Ak.
Æskulýðsráð Akureyrar.
RICHARD BECH:
Smámyndir úr
Noregsferð
1966
MORGUNSTUND
Á HÁL.OGALANDI
Fjarðaland og fjalla,
feðra gömul slóð,
gyllir græna hjalla
geisla morgunflóð.
Tindra sundin sumarblá,
sindrar tinda mjallarbrá.
Brekkur blómum prýddar
brosa, fagurskrýddar.
ÞOKA Á TINDUM
Þungbrýn speglast hamrahöll
hafs í lygnu djúpi,
blárra f jalla fegurð öll
falin þokuhjúpi.
Litli Pétur og Stóri Pétur
Þak fauk á Þcrsieinssiöðum
OG ÁRAMÓTIN