Dagur - 17.01.1973, Blaðsíða 8

Dagur - 17.01.1973, Blaðsíða 8
8 SMÁTT & STÖRT Starfslið slökkviliðs Akureyrar. Efri roð frá vinstri: Tryggvi Gestsson, Gísli Kr Lórenzson, Gunn- laugur Búi Sveinsson, Þorkell Eggertsson, Sigurður Gestsson, Víkingur Björnsson, ívar Sigmunds- son, Bjarki Baldursson. — Neðri röð-frá vinstri: lómas Jónsson, Sveinn Tómasson, slökkviliðsstióri, Tómas Böðvarsson, varaslökkviliðsstjóri, Guðmundur Jörundsson. (Ljósmyndastofa Páls) SILFURHNAPPUR í skráðum sögnum kemur fram, að -silfurhnappar voru máttug- ir. Dreki einn úr arnarhreiðri varð mikill og ógurlegur, er hann loks flaug úr hreiðrinu. Hann greip þá í klærnar vetur- gamalt tryppi og flaug með það í klónum suður yfir Leirárvoga, en þessi atburður varð suður í Borgarfirði. Nú skoruðu menn á Jón í Lambhaga, sem var ann- áluð skytta, að skjóta drekann' því að menn óttuðust hann mjög. Honum tókst að eftir langa mæðu, en þó ekki fyrri en hann skaut á hann silfur- hnappi, er hann skar úr peys- unni sinni. DREKAR ERU TIL Drekar eru enn til, en eru öðru vísi en fyrrum. Þeir ræna nú fiski á íslandsmiðum. Og Jón í Lambhaga er enn til og fleiri Jónar en einn og þeir fást við drekana, hafa byssur, en skjóta ekki. Margur mundi nú vilja SLÖKKVILIÐ HKUREYRAR BLAÐIÐ spurðist fyrir um það hjá Sveini Tómassyni slökkvi- liðsstjóra á Akureyri, hvernig starfseminni væri háttað fyrr og nú. Fara upplýsingar hans hér á eftir: Hinn 15. janúar sl. voru 20 ár liðin síðan brunaverðir voru fastróðnir á slökkvistöð Akur- eyrar og voru þá ráðnir 4 bruna verðir og ég fastráðinn vara- slökkviliðsstjóri og Ásgeir Valdi marsson slökkviliðsstjóri og lóðarskrárritari. Þá var búið að byggja neðstu hæðina á ráðhúsi bæjarins og fékk' slökkvistöðin syðri hlut- ann. Þá voru .2 slökkvibílar, 2 vatnsdælur, 3 - reykgrímur og svo slöngur og ýmis önnur tæki. Utkallskerfi var þá brunaboðar ög bjöllur til slökkviliðsmanna. í dag hefur slökkviliðið meiri- hluta af fyrstu hæðinni, fast- ráðnir eru 9 brunaverðir, slökkviliðsstjóri, varaslökkvi- liðsstjóri, sem vinnur einnig hjá byggingafulltrúa. Þá hefur á þessu tímabili sjúkrabíll Rauða Kasthvammi 7. janúar. Strákur- inn hann Grímur gaf / svo gapa lega framan af. Þetta rifjast upp nú, af því veturinn var gjafa- frekur framan af. Frá 7. nóv. til 17. des. voru þrír dagar úrkomulausir, en þó varð snjór ekki mjög mikill, nema á jörðum hér í austur- brekkunni. Ég tel veturinn mild an, það sem af er. Vegurinn varð þungfær hér um tíma en aldrei ófær og njótum við þess, sem við hann var gert í haust eða vetur, þótt ekki ynnist tími til að ljúka verkinu, svo sem vera átti og fé var til fyrir. Ég tel liðið ár hið hagstæðasta fyrir landbúnaðinn síðan 1960. FRÁ LÖGREGLUNNI Á AKUREYRI í GÆR Snemma morguns hinn 13. janúar var lögreglunni tilkynnt um bíl, er rekizt hafði á Lóns- brúarstöpul. Hann var þar mannlaus og mikið skemmdur, en ökumaðurinn var horfinn en fannst litlu síðar og var tekinn fastur fyrir meinta ölvun. Síðar sama morgun voru tveir ungir menn á ferð í bíl á leið til Akureyrar. Bíl þeirra hvolfdi utan vegar lítið sunnan við Lónsbrú og hann stór- skemmdur en ökumaður og far- þegi hans sluppu ómeiddir. Horfið hefúr byggingarefni frá tveim húsum í byggingu. Rör o. fl. frá Beikilundi 2 og 300 holsteinar frá Grundar- götu 7. Biður lögreglan þá, sem kunna að geta gefið upplýsingar um þetta, að láta vita hið allra fýrsta. □ úr Laxárdal Betra árferði og afkoma eykur manni bjartsýni og fram- kvæmdahug. Fréttamenn Dags hafa getið þess, að bændur ótt- uðust ekki þótt snjóaði, svo vel væru þeir settir með hey, en gætilega skyldi þó fara með hey in, því að fljótlega kemur harð- ur vetur og gott er þá að eiga ek.ki atkomu sína undir upp- skeru apnarrá þjóða, skipakosti og kjarabaráttu, utan laiids og iijnan. . Þegar 'ég'7 nóvember gat um lán héðan úr dalnum til vega- frámkvæmda; sást mér yfir að ge,ta. ,um.. lápveitandann. En . ixann ,var Kyenfélag Laxdæla og upphæðin 100 þús. krónur var gjöf frá WÍllfam Pálssyni á Halldój’sstöðútn til kvenfélags- ms. Um jólin var- kirkjusókn góð en síðan spilakvöld og barna- samkoma. G. Tr.. G. krossins verið á slökkvistöðinni og sjá brunaverðir um alla sjúkraflutninga. Nú eru 3 slökkvibílar og 2 af þeim með háþrýstidælum, 1 körfubíll, 6 vatnsdælur er dæla um 6000 lítrurri á mínútu, 5 loftreykgrím ur og 1 léttfroðutæki, og svo ýmis hjálpartæki og áhöld. Svo er hjá okkur bíll er Brunavarnir Eyjafjarðar eiga, og er hann útbúinn með há- þrýstidælu, 2 vatnsdælum, slöngum og öðru er með þarf, og sér slökkvistöðin algerlega um hann og má nota hann í bænum ef þörf krefur Yngsti bíllinn er frá 1953 og er nauðsynlegt að yngja bíla- kostinn og að minnsta kosti að fá 1 slökkvibíl, helzt á þessu ári, því ekki er orðið gott að fá varastykki í gömul tæki. Einnig er alltaf að koma á markaðinn eitthvað nýtt og verður maður að tileinka sér það. Slökkvistöð- in er ekki lengur fullnægjandi orðin, of þröng bæði fyrir tæki og mannskap og ekkert svæði til æfinga slökkviliðsmanna, hvorki úti eða inni. Utkallskerf- ið er orðið gott, hægt að ná til 40 slökkviliðsmanna samtímis. Nokkrir stórbrunar hafa orð- ið, svo sem gamla Hótel Akur- eyri, Niðursuða Kr. Jónssonar og Verksmiðjur SÍS. En búið er að afstýra mörgum eldsvoðum, bæði vegna tækjakosts og betur þjálfaðs liðs og hve fljótt er menn eru alltaf á vakt og tæki brugðið við þar sem slökkviliðs í upphituðu plássi. Vöktum er þannig skipað, að á daginn eru 2 brunaverðir á vakt, en á nóttunni eru nú 3, en til þess að hafa 3 brunaverði á nóttunni fékk ég í vetur 1 mann lausráðinn. Með þessum mannskap, þar sem 2—3 eru á vakt og sjúkrabíllinn eða slökkvibíllinn eru í útkalli, myndast hætta vegna þess hve fáir eru á vakt í einu (en ég vonast eftir að þetta lagist). Svo þakka ég öllum samstarfs mönnum fyrir góða samvinnu á þessu 20 ára tímabili. Slökkvilið Akureyrar var kallað út 50 sinnum á síðast- liðnu ári og varð það fimm út- köllum fleira en á árinu áður. í fjórum tilvikum reyndist þó ekki um neinn eld að ræða. Eng inn stórbruni varð á árinu. Þá annast slökkviliðið sjúkraflutn- inga á bifreiðum Rauða kross- deildarinnar á Akureyri, og þurfti að grípa til þeirra 675 sinnum á árinu, þar af voru 137 tilfelli utanbæjar. Árið áður voru sjúkraflutningar 620 og 137 af þeim utan bæjarins. Þakkar Dagur þessar upplýs- ingar. □ Ijá þeim silfurhnapp úr peys- unni sinni, þegar farið verður að skjóta. En fram að þessu hef- ur verið látið nægja að nota stóru skærin og klippa á hala óvættanna. Sá er gallinn, að drekanum vex hali á ný, þótt sundur sé klipptur. En þegar farið verður að skjóta, á að nota silfurhnappa. ÁN ÞJANINGA Fréttir herma, að búið sé á Suð- vesturlandi að setja niður tæki eitt í sjúkrahúsi, notað við kon- ur þær, sem í tvennt detta, og geti þær nú alið börn sín án þjáninga. Mun þetta harla gott, þótt „sætleiki syndarinnar“ og þjáning fæðingarinnar vegi nú öðruvísi á metaskálum hins gullna jafnvægis en áður var. HVAÐ Á NÚ AÐ GERA? Þegar laxveiðimenn hlustuðu nýlega á þátt í útvarpi um lax og laxveiðar, munu þeir hafa hugsað á þá leið, hvað nú eigi til bragðs að taka til að komast í veiðiá á næsta sumri. Enn hækka veiðileyfin í mörgum ám og voru þau allhá fyrir. Tvær veiðiár voru nefndar sérstak- Iega í þættinum, sunnanlands og vestan, ágætar laxveiðiár og hafa útlendingar keypt þar öll leyfin á bezta veiðitímanum næsta sumar og greiða yfir 20 þúsund krónur fyrir daginn. En innlendir menn fá upphaf og endi veiðitímans fyrir 8—10 þúsund krónur á dag! FIMMTÍU ÁSATRÚARMENN Hér á landi eru 50 ásatrúar- menn og héldu þeir nýlega kynningarfund, vél sóttan; Þeir hyggjast nú réisa höf og graf- reit, ef til þess fást leyfi dónts- valds og þjóðkirkjúnnar. Senn hefjast hér þorrablótin, arfur heiðins siðar, ótrúlega lífseigUr hér á landi, niéð'féiknalegu áti og drykkjú. Fremur ér þetta nú ógeðfelldur siður og raunar lítt skiljanlegur á tímum hins mikla áts í „neyzluþjóðfélagi“ okkar. FLESTUM ER FRAMTÍÐ HULIN Flestum er framtið hulin þótt ýmsir beri sig spámannlega og (Framhald á blaðsíðu 2) Píanóleikur í Borgarbíói JÓNAS Ingimundarson píanó- leikari kemúr fram á tónleikum Tónlistarfélags Akureyrar í Borgarbíói næstkomandi föstu- dagskvöld, 19. janúar, kl. 21. Jónas Ingimundarson er sennilega sá píanóleikari sem mest hefur látið að sér kveða hér á landi á síðustu árum, og er þar sér í lagi átt við dugnað listamannsins er hann á tón- listaferðum sínum hefur leitazt við að gefa sem flestum lands- SjúkrabOl og slökkviliðsbílar á Akureyri. mönnum kost á að njóta tón- listar. Hann hefur leikið nokkrum sinnum með Sinfóníuhljómsveit íslands, auk fjölmargra ein- leikstónleika, Jónas fékk sérstaklega lofs- verða dóma fyrir þá tónleika sem hann hélt á vegum Tón- listarfélagsins í Reykjavík í janúar 1972, en þar vakti athygli gott samræmi milli ánægjulegs verkfenavals og skemmtilegrar túlkunnar lista- mannsins. Að þessu sinni er verkefna- val Jónasar athyglisvert og fjöl- breytt, en tónleikamir munu hefjast með tveimur sálmafor- leikjum eftir Bach í píanóútsetn ingu Busoni. Þá verður flutt Appassionata eftir Beethoven, síðan leikur Jónas Sónatinu eft- ir franska tónskáldið Ravel, og þá hina léttu og gázkafullu Brúðudansa eftir rússneska tón- skáldið Sjostakovitsj. Að lokum hljómar Ungversk Rapsódía nr. 11 eftir Franz Liszt. Tónleikar þessir eru hinir þriðju á starfsári Tónlistar- félagsins, og fer aðgöngumiða- sala fram í bókabúðinni Huld frá og með næsta miðvikudegi. (Fréttatilkynning)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.