Dagur - 28.02.1973, Page 1
Daguk
LVI. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 28. febrúar 1973 — 9. tölubl.
Á ANNAÐ hundrað manns
sóttu síðasta. bændaklúbbsfund
á Hótel KEA á mánudagskvöld-
ið. Þar ræddi Stefán Valgeirs-
son alþingismaður og formaður
bankaráðs Búnaðarbankans um
Eldsvoði á Engimýri í Öxnada!
KLUKKAN að ganga tvö á
þriðjudagsnóttina 27. febrúar
fór slökkvilið Akureyrar fram
að Engimýri í Öxnadal, en þar
hafði eldur orðið laus í íbúð
fjölskyldunnar. Þurfti að rjúfa
þakið til að komast fyrir eld-
inn, en að öðru leyti gekk
slökkvistarf vel, sagði Sveinn
Tómasson slökkviliðsstjóri.
Bóndinn á Engimýri er Gísli
Jónsson og kona hans María
Sigtryggsdóttir og eiga þau
margt barna, sem sum eru í
skóla, en heima um helgar.
Að sögn Gísla, er íbúðin ónýt
og innbú einnig að mestu leyti.
Áföst íbúðinni er hlaða og síðan
fjós og náði eldurinn ekki til
þeirra húsa. Eitthvað af fólkinu
fer nú að Hálsi, næsta bæ, en
fæst liggur ljóst fyrir ennþá,
sagði bóndi.
Gísli Jónsson keypti Engi-
mýri árið 1965 og hefur búið
þar síðan ásamt fjölskyldu
sinni. Hafa þau hjónin orðið
fyrir tilfinnanlegu tjóni, því að
allt var fremur lágt vátryggt.
Þurfa þau eflaust mikla og góða
fyrirgreiðslu.
Jörðin Engimýri er fremsta
byggða býlið í Öxnadal.
Hinn 22. febrúar kviknaði í
bílskúr á Sílastöðum í Glæsi-
bæjarhreppi. Skemmdist þak
hans og verulegar skemmdir
urðu á bifreið, er þar var inni.
Sækja fogara fil Japan
Sauðárkróki 26. febrúar. Félags-
heimilið Bifröst hélt hér dans-
SNJÓFLÓÐ FÉLLU í
HÖRGÁRDAL
MORGUNINN 14. febrúar urðu
menn þess varir, að fallið höfðu
þrjú snjóflóð í Hörgárdal.' Afl-
mesta flóðið féll á milli Hólkots
og Auðbrekku og tók með sér
um 200 metra langar girðingar.
En hin tvö, er féllu í landi Brak-
anda og Bláteigs, tóku með sér
um 500 metra langar girðingar.
Á veginum þar sem stærsta
snjóflóðið féll, var það um 200
metra breitt og á annan meter
á þykkt. □
leik til styrktar Vestmannaey-
ingum og var allt, er inn kom,
gefið. Hljómsveit Geirmundar
Valtýssonar tók sitt gjald, en
gaf það sérstaklega sömu aðil-
um.
Verið er að draga Hegranesið
suður til viðgerðar. Nýr togari
kemur snemma vors frá Japan.
Guðmundur Árnason skipstjóri
og nokkrir af skipshöfn hans
eru þegar farnir til að sækja
togarann og sigla honum heim.
Hér hafa hross verið tamin af
miklu kappi og útreiðar því
eklci sjaldgæfar hér um slóðir.
Þó hafa frost og raunar illviðri
nokkuð tafið tamninguna.
Allir vegir í héraðinu eru
mjög góðir yfirferðar eins og er.
G. Ó.
Kirkjuvika hefst á Akureyri 4. marz
5->-#r*<^^©-H^©-í-írr'í-©-vs&'j-©-H7r*©*M*'V©-^íiW-©->-#'^©í-«-'j-©-v#'V©-»--:!w-©'HW-©'S-5lW-©-»-*‘>-©->-#-
e>
I
I
I
I.
I
I-
?
I
&
I
I
i
i
I
é>
-t
©
1
I , . , ,
•í Allmikil frost hafa verið á Norðurlandi undanfarið og því vetrarlegt um að litast. (Ljm.: E. D.) y
X <3
Fjölmennur bændaklúbbsfundur á KEA
ÁTTUNDA kirkjuvika Akur-
eyrarkirkju hefst 4. marz og
lýkur 11. marz.
Á sunnudaginn flytur séra
Þorsteinn L. Jónsson, Vest-
mannaeyjum, predikun í Akur-
eyrarkirkju.
Á mánudaginn verður sam-
ltoma í kirkjunni, er hefst kl. 9.
Þar flytur Björn Þórðarson
ávarp en Jón G. Sólnes ræðu.
Samleikur verður þar á orgel
og blásturshljóðfæri undir
stjórn Roars Kvam, en Gígja
Kjartansdóttir leikur einleik á
orgel í upphafi hvers kirkju-
kvölds. Þá verður ljóðalestur og
samlestur prests og safnaðar.
Á þriðjudaginn verður æsku-
lýðskvöld og þar flytur ræðu
Edda Eiríksdóttir skólastjóri,
auk annarra atriða til skemmt-
unar og fróðleiks.
Föstumessa verður á miðviku
daginn og þar predikar séra
Úlfar Guðmundsson, Ólafsfirði.
Tryggvi Gíslason er ræðu-
maður á fimmtudagskvöldið og
þá syngja Sigurður Demetz
Franzson og nemendur hans,
auk annarra atriða.
Á föstudaginn flytur Gauti
Arnþórsson yfirlæknir ræðu
kvöldsins.
Æskulýðsmessa verður svo á
sunnudaginn.
Hér er á fátt eitt minnt af því
sem fram fer á kirkjuvikunni,
en ljóst er, að fólk hefur margt
þangað að sækja og sækir
út um 60 millj. kr. á síðasta ári,
en það þarf meira en tvöfalda
þá upphæð, ef vel á að vera, og
mæta á þeim umsóknum, sem
þegar eru komnar, m. a. frá
Mjólkursamlagi KEA, sem nú
vill halda áfram byggingu nýrr-
ar mjólkurvinnslustöðvar.
Óskaði ræðumaður eftir því
að heyra álit bænda um þau
atriði, sem þeir teldu helzt
(Framhald á blaðsíðu 5)
FRÁ LÖGREGLUNNI
Á AKUREYRI
í FYRRIHLUTA febrúarmánað
ar voru árekstrar fáir á Akur-
eyri og lítið um slys í umferð-
inni. í síðustu viku brá til hins
verra í þessu efni. Á miðviku-
daginn urðu t. d. sjö umferðar-
óhöpp og á laugardaginn sex.
Mjög mikið tjón varð á öku-
tækjum þessa viku, en ekki
urðu teljandi slys á fólki. Ak-
færi mátti þó heita gott og var
ekki því um að kenna.
Síðustu daga hafa þrír menn
verið teknir, grunaðir um ölvun
við akstur, sagði lögreglan á
mánudaginn. Þá hafa allmargir
ökumenn brotið af sér í umferð-
inni, bæði ökumenn bifreiða og
léttra vélhjóla. □
kirkjuvikuna eflaust vel, sem
áður. En undanfarnar kirkju-
vikur hafa þótt takazt mjög vel,
og svo verður eflaust einnig um
þessa áttundu, sem hefst á
sunnudaginn kemur.
„ .
/
Undirbúningsnefnd kirkju-
vikunnar skipa: Jón Kristins-
son, Rafn Hjaltalín, Björn Þórð-
arson, Gunnlaugur P. Kristins-
son og Ólafur Daníelsson, auk
sóknarprestanna. □
Frummælandi var Stefán Valgeirsson alþm.
lánamál landbúnaðarins. Skýrði
hann vel hlutverk og störf Stofn
lánadeildar landbúnaðarins og
þörf hennar á auknu fjármagni,
svo að hún verði þess umkomin
að fullnægja brýnustu þörfum
bænda, en á það skortir mjög
ennþá, sagði ræðumaður.
Hafði Stefán á reiðum hönd-
um samanburðartölur um lán-
veitingar á síðustu árum. Sam-
kvæmt þeim lánaumsóknum,
sem fyrir liggja nú, þyrfti meira
en stórum hærri upphæð en
1972, til þess að niæta þeim lána
beiðnum, sem fram hafa komið.
Væri nú unnið að því að finna
leiðir til fjáröflunar fyrir Stofn-
lánadeildina.
Árið 1970 var lánuð 141 millj.
kr. úr Stofnlánadeild, en 254.7
millj. kr. árið 1971. Árið 1972
nam þessi upphæð aftur á móti
nær 370 millj. kr., sagði Stefán.
Umsóknir liggja nú fyrir um
byggingu helmingi fleiri íbúðar
húsa en á síðasta ári, eða um
140 umsóknir. Þá má geta þess,
að lítið hefur á undanförnum
árum verið lánað til vinnslu-
stöðva landbúnaðarins, sem
kunnugt er. Nú er að verða á
þessu breyting og voru lánaðar
Myndarleg aðsfoð við ísland
SÁ merki atburður varð á
fundi Norðurlandaráðs í
Osló 20. febrúar, að sam-
þykkt var einróma ályktun
til ríkisstjórna Norðurland-
anna, að aðstoða ísland með
jafnvirði rúmlega 1509 millj.
kr. ísl. vegna eldgossins í
Vestmannaeyjum. Stóðu all-
ir þingfulltrúar upp sem
einn maður cr þeir sam-
þykktu þessa rausnarlegu
fjárveitingu. En Jón Skafta-
son, einn af forsetum þings-
ins, þakkaði.
Þessi atburður tekur af öll
tvímæli um það, að norræn
samvinna er meiri en í orði,
þegar á reynir, og munu allir
fslendingar fagna og þakka
þessi málalok. □