Dagur - 28.02.1973, Blaðsíða 8
8
DAGUR . DAGÚR . DAG'UR
Vér vlljuni vekja athygli
á auglýsingasíma okkar,
sem er 1-11-67
DAGUR . DAGL’R . DAGLR
AGUK
Akureyri, miðvikudaginn 28. febrúar 1973
TRÚ.
LOFUNAR- I GULLSIVIIÐIR
HRING- 4. ífj SIGTRYGGUR
ARMIR \J & PÉTUR
afgr. samdægurs ^ AKUREYRI
SMÁTT & STÖRT
Einn skipsfarmur af loðnu hefur borizt til Krossaness og var það Súlan, sem með hann kom. (E. D.)
Ekkerl láf er
í GÆR var loðnuveiði enn mjög
mikil, en löndunartregða á Suð-
vesturlandi, Mest veiddist af
loðnunni við Dyrhólaey nú eftir
helgina og í gær bárust fréttir
af því, að loðna væri gengin
Dalvík 26. febrúar. Bátar, sem
róa með net, hafa aflað sæmi-
lega, upp í 5 tonn, sem við telj-
um með betra móti á þessum
árstíma. En gæftir eru mjög
litlar og gerir línubátum erfitt
fyrir.
Hjónaball var hér ágætt, en
vart í frásögur færandi, nema
að þessum góða vana er haldið.
Sjónleikurinn Þrír skálkar
gengur vel og á sjötta sýningin
að vera í kvöld. Fyrirhuguð er
sýning á föstudag og tvær sýn-
ingar á laugardaginn. Aðsókn
hefur verið ágæt og leiknum
mjög vel tekið.
Múlavegur hefur verið lokað-
ur um sinn vegna snjóa, en nú
er snjóblásarinn byrjaður að
ryðja snjó af veginum og var
kominn út hjá Sauðakoti nú um
hádegið.
Fáir fara á skauta þótt svella-
lög séu nokkur, en stöku sinn-
um bregður fyrir mönnum á
hestbaki því að nú er tími tamn-
inga og útreiða byrjaður. Hross-
um fer fjölgandi hér í Dalvíkur-
hreppi.
En í framhaldi af hestaeign
okkar hér á Dalvík, getum við
talið fram bústofninn í Svarf-
aðardal og í Dalvíkurhreppi, en
hann er þessi: í Svarfaðardal
eru 1164 nautgripir, sauðfé 5387,
hross 114, geitur 2 og hænsn-
fuglar 907. í Dalvíkurhreppi er
Miðstjórna if und u ri nn
hefst 27. apríl
AÐALFUNDUR Framsóknar-
flokksins hefst í Reykjavík
föstudaginn 27. apríl næstkom-
andi.
’ Miðstjórnina skipa á annað
hundrað manns hvaðanæva að
af landinu.
Að þessu sinni verður mið-
stjórnarfundurinn haldinn á
Hótel Esju. Gert er ráð fyrir,
að fundurinn standi í þrjá daga.
bústofninn þessi: Nautgripir
237, hross 49 og sauðfé 1634.
í báðum hreppunum voru í
haust sett á vetur miklu fleiri
lömb en fyrirfarandi ár, enda
miklu meiri hey en áður. J. H.
vestur fyrjr Vestmannaeyjar.
Talið er, að útflutningsverð-
mæti loðnumjöls, lýsis og frystr
ar loðnu, sem veidd var fram til
síðustu helgar, nemi um 1300
milljónum íslenzkra króna.
Alls var búið að veiða sl.
laugardagskvöld tæpar 180 þús-
und lestir, þar af foru til fryst-
ingar um 8000 tonn. Hráefnis-
verðmæti þessa afla er 390
milljónir króna.
Aflahæsta skipið er Eldborg
GK 13 með 6879 tonn. □
ÞJÓÐHÁTÍÐIN MIKLA
Hér í þessum þætti hefur áður
verið minnzt á þjóðhátíðina
miklu á Þingvöllum 1974, í til-
efni ellefu alda byggðar á fs-
landi, og hún talin meira en
óþörf. Síðan hafa mörg félög
gert samhljóða ályktanir um að
fella þá hátíð niður með öllu,
en minnast hyggðaafmælisins á
annan hátt, auk þess að halda
hátíðir heima í héruðum, eftir
því sem íbúunum þykir við
hæfi. Það mun naumast tilvilj-
im hve fáir formælendur stór-
hátíðar á Þingvöllum Iáta til sín
heyra. Hitt er miklu líklegra, að
Þingvallahátíðin eigi sér raun-
verulega fáa formælendur.
MIKIL SÝNING
Á fundi einum f jöhnennum kom
nýlega fram tillaga um, að hér
við Eyjafjörð yrði á næsta ári,
þ. e. þjóðhátíðarárið, haldin
mikil landbúnaðar- og iðnsýn-
ing. Var tillagan lítt eða ekki
rædd, en gæti þó eflaust verið
til athugunar fyrir þá, sem ann-
ast eiga undirbúning liéraðs-
hátíðar á þessu svæði, verði sú
hátíð haldin. Gæti liluti sýning-
arinnar eflaust staðið lengi
sumars, tengdur ferðaþjónust-
unni. Þessi hugmynd er íhug-
unarverð.
EERÐAMENN
Margar eru þær milljónirnar,
sem fram hafa verið lagðar til
að auglýsa ísland sem ferða-
mannaland. Þetta hefur borið
þann árangur, að gjaldeyristekj-
IÐANÁMSKEIÐ I HLiÐARFJALLI
í SÍÐUSTU viku efndi Skíða-
hótelið í Hlíðarfjalli til skíða-
námskeiða. Kennsla fór fram
við Skíðahótelið. Kennarar voru
Karolína Guðmundsdóttir, Hörð
ur Sverrisson og Þorsteinn M.
Baldvinsson. Ætlunin var að
hafa 4 námskeið, en vegna
dræmrar þátttöku urðu þau
bara tvö. Fyrir börn 7—9 ára á
morgnana og fyrir fullorðna á
kvöldin.
Kennt var bæði byrjendum
og einnig þeim sem lengra voru
komnir. Ohætt er að segja að
þessi tilraun hafi tekizt mjög
ÍMarvörur íyrir 3.9 milljarÖa
ÁRIÐ 1972 voru fluttar út iðn-
aðarvörur fyrir 3.9 milljarða
króna, en það er 118% verð-
mætisaukning frá árinu 1971.
Utflutningur án áls jókst um
31%, úr 889 milljónum í 1.2
milljarða króna.
Stærstu vöruflokkarnir voru
skinnavörur, 286 milljónir
króna, prjónavörur og fatnaður,
239 milljónir, niðursuðuvörur,
230 milljónir, og kísilgúr 194
milljónir króna.
Markaðssvæði.
Veruleg breyting verður á
skiptingu útflutningsins á mark
aðssvæði, ef tekið er tillit til inn
göngu Dana og Breta í EBE. Af
heildarútflutningnum 1972 fóru
48% til EFTA-landa en hlutfall-
ið verður 27% miðað við núver-
andi sklþtingu. EBE v7ar á sama
hátt 31%.,'. en verður 52%. Til
Bagur
kemur næst út á miðvikudag-
inn, 7. marz. Mikið efni bíður.
N.-Ameríku fór 5%, A.-Evrópu
11% og annarra landa 5%.
Ef athugaður er útflutningur
án áls fóru 29% til EFTA-landa,
en verður 18% eftir breyting-
una, til EBE-landa fóru 17%, en
verður 28% eftir breytinguna,
til N.-Ameríku fóru 18%, 35%
til A.-Evrópu og 1% til annarra
landa. Q
vel. Barnanámskeiðinu lauk á
laugardag með skíðamóti þar
sem Lena Hallgrímsdóttir sigr-
aði.
Vikuna 5.—9. marz verður
efnt til samskonar námskeiða í
Hlíðarfjalli. 7—9 ára börn fyrir
hádegi. Gjald kr. 350 án ferða,
innifalið kennsla og lyftugjald.
Kl. 14—16 fullorðnir, gjald kr.
1.200 með ferðum, kennslu, síð-
degiskaffi og lyftugjöldum. Kl.
16.30—18.30 unglingar 10—15
ára, gjald kr. 800 með ferðum,
kennslu og lyftugjaldi, og svo
kvöldnámskeið fyrir fullorðna á
mánudögum, miðvikudögum og
fimmtudögum. Gjald kr. 300
fyrir kvöldið, innifalið ferðir,
kennsla, lyftugjald og kvöld-
kaffi.
Innritun og nánari upplýsing-
ar eru veittar í Skíðahótelinu í
síma 12930. (Aðsent)
Þáttíakendur á barnanámskeiði.
ur af erlendum ferðamönnum
eru orðnar verulegar. Á allra
síðustu tímurn hafa heyrzt radd
ir um það, að svo kunni að fara,
að það þyrfti að sporna við
straumi erlendra ferðamanna.
Tært loft, hreint vatn, ósnortnar
víðáttur, hverir og fossar, kuld-
inn, miðnætursólin og hin djúpa
kýrrð, draga að sér ferðafólk úr
öllum áttum, jafnvel laxinn og
liesturinn auka enn á forvitni
og vinsældir.
ÖRTRÖÐ
Orðvar bóndi úr fjarlægri sveit,
sem hingað kom á skrifstofur
Dags fyrir skömmu, gerði þessi
mál að umtalsefni. Hann sagði
frá fögru og eftirsóttu umhverfi
hjá sveitabæ einum, þar sem
bóndinn fagnaði hverjum gesti
og gladdist yfir þeirri viður-
kenningu, er ferðamenn reistu
þar tjöld sín. En smám saman
varð gestagangurinn að átroðn-
ingi, tjaldstæðin flög og um-
gengnin oft hin liörnmlegasta.
Aldrei var beðið leyfis að tjalda
og því illa tekið þegar að um-
gengni var fundið. Nú getur
þetta vart lengur gengið svona
og er nú til umræðu að banna
þarna tjaldstæði og víðar í sömu
sveit, þar sem svipað er ástatt,
en finna þess í stað svæði, þar
sem tjöld yrðu leyfð og ferða-
fólki búin hin nauðsynlegasta
lireinlætisaðstaða.
TÓBAK OG ÁFENGI ÚT ÚR
VÍSITÖLUNNI
Hinn 12. febrúar lagði ríkis-
stjórnin fram frumvarp, sem fel
ur það m. a. í sér, að vísitölu-
hækkun, sem leiðir af verð-
hækkun tóbaks og áfengis, skuli
ekki koma inn í kaupgreiðslu-
vísitöluna frá marz til septem-
berloka á þessu ári. Jafnframt
skuli kauplagsnefnd eftirleiðis
færa vísitöluna niður um eitt
stig hverju sinni vegna aukinn-
ar opinberrar tannlæknaþjón-
ustu, en ráðgert er að verja úr
ríkissjóði 100 milljónum króna
á ársgrundvelli til þeirrar þjón-
ustu. En verðhækkun á nefnd-
um munaðarvörum í desember
sl. voru 30% á vini en 23% á
tóbaki og veldur þetta 1.8 stig-
(Framhald á blaðsíðu 5)
Jökull skrifar
leikrit fyrir LA
LEIKFÉLAG AKUREYRAR
hefur nú lokið sýningúm á
barnaleikritinu Kardimommu-
bæ, sem sýnt var nítján sinnum
við ágæta aðsókn og góða dóma.
Næsta viðfangsefni Leikfélags
ins er Fjalla-Eyvindur, en þar
næst er nýtt leikrit, sem verið
er að skrifa.
Leikfélagi Akureyrar virðist
vaxa mjög fiskur um hrygg,
samanber aultinn styrk frá hinu
opinbera. Það hefur nú ráðið
sér kunna leikritahöfundinn
Jökul Jakobsson, til þess að
skrifa leikrit og fylgjast. með
uppsetningu þess. Höfundurinn
er hér á Akureyri og „situr með
sveittan skallann“ ef að líkum
lætur við ritstörfin og hefur
þegar skilað Leikfélaginu fyrsta
hluta verksins. Q