Dagur - 30.05.1973, Blaðsíða 1

Dagur - 30.05.1973, Blaðsíða 1
Innrás Brefa kærð í NATO FRÉTT frá ríkisstjórninni í gær: Fastafulltrúi íslands birti svo hljóðandi tilkynningu á fundi NATO-ráðs í morgun: íslenzka ríkisstjórnin ákvað á fundi sín- um hinn 28. maí 1973, að til- kynna framkvæmdastjóra NA- TO og NATO-ráðinu eftirfar- andi: Um leið og harðlega er mót- mælt hernaðaríhlutun brezka flotans innan íslenzkrar fisk- veiðilögsögu, sem brýtur í bága við fyrstu grein Norður- Atlantshafssamningsins, er þess krafist, að NATO-ráðið hlutist til um að brezk herskip hætti án tafar að vernda ólöglegar veiðar brezkra togara innan fisk veiðilögsögu íslands og hverfi þaðan þegar í stað. Jafnframt skal tekið fram, að íslendingar líta á útfærslu fiskveiðilögsög- unnar, sem íslenzkt innanríkis- mál og er sú ákvörðun eigi til umræðu og frá henni verður ' ekki hvikað, enda hafa yfir 30 ríki fært út sína fiskveiðilög- sögu og sum miklu meira en ísland, án þess að til nokkurra hernaðaraðgerða gagnvart þeim hafi komið. Hins vegar hafa ís- lendingar verið reiðubúnir til að veita Bretum tilteknar tíma bundnar undanþágur til fisk- veiða innan hinnar nýju fisk- veiðilögsögu. Hafa viðræður um það staðið yfir og var þeim ekki slitið þegar Bretar sendu her- skip á íslandsmið. En þeim verður auðvitað ekki haldið áfram meðan brezkur herskipa- floti er við ísland. □ GEFA í SPRENGISANDSVEG FLUTNIN G AFÉL AG Hrafna- gilshrepps varð 30 ára 10. maí. í tilefni af því ákvað félagið að gefa 100 þúsund krónur til vega gerðar upp úr Eyjafirði, um væntanlegan Sprengisandsveg. Séð yfir fundarsalinn í Sjálfstæðishúsinu. (Ljósmyndastofa Páls) Mótmælafundur á Akureyri SÍÐASTLIÐIÐ mánudagskvöld var haldinn almennur fundur í Sjálfstæðishúsinu á Akureyri Fréffir úr Bárðardalnum Stórutungu 25. niaí. Maímánuð- ur hefur verið hagstæður, þrátt fyrir kuldalega byrjun og frost um nætur. Sólríkt hefur verið. Mikill snjór er enn í fjöllum og giljum, og jafnvel heim undir bæi. Jörð er frostlaus að mestu eftir veturinn og grær furðan- lega, þrátt fyrir nætursvalann. Komið er víðast að sauðburðar- lokum. Flest lömb eru tvílemb- ingar, enda til þess ætlast og sumar ær þrílembdar. Brugð- ið hefur fyrir kvillum í ám, en ekki eru mikil vanhöld á lömb- um og má þakka það bólusetn- ingu ánna fyrir burð. Oþekkt veiki kom þó fram í ám í Svart- árkoti í vor, eftir burð, og dráp- ust af henni sex ær, en lömb þeirra sakaði ekki. Bót réðist á þessu með lyfjagjöf eftir ráði dýralæknis. Farið er að sleppa einlemb- FRÁ LÖGREGLUNNI Á AKUREYRI LÖ.GREGLAN biður þá, sem gefið geta upplýsingar um skemmdir á bíl á bílastæðinu við Akureyrarkirkju 24. þ. m. að láta vita. En þá urðu nokkr- ar skemmdir á vinstra fram- bretti bifreiðarinnar A 8 á tíma- bilinu kl. 20.15—23.15. Aðfararnótt síðastliðins laug- ardags urðu nokkur átök manna í milli í miðbænum. Hafa þrír einstaklingar kært árásir. Á sunnudaginn var réttinda- laus ökumaður tekinn á léttu bifhjóli og nóttina áður valt bifreið skammt frá Rauðuvík. Voru sjö manns í bifreiðinni og liggur einn þeirra í sjúkrahúsi. Grunur leikur á ölvun við akst- ur og er það mál í rannsókn. (Upplýsingar yfirlögreglu- þjóns). um út af túnum. Sumir bændur eru farnir að flytja heim áburð- inn og túnin bíða hans. Nokkrir bændur búa sig und- ir byggingaframkvæmdir og ætla að byggja peningshús og hlöður. Vegir eru vel þurrir en óslétt ir mjög. I>. J. til þess að mótmæla flotainnrás Breta. Að fundinum stóðu menn úr öllum stjórnmála- flokkum. Fundarstjóri var Ófeigur Eiríksson bæjarfógeti. Á fundinum fluttu eftirtaldir menn ræður: Þorsteinn Jóna- tansson ritstjóri, Ingvar Gísla- son alþingismaður, Einar Krist- jánsson rithöfundur, Lárus Jónsson alþingismaður og Björn Friðfinnsson fyrrv. bæjarstjóri. Margir sóttu fundinn og ríkti einhugur um mótmæli gegn hernaðarofbeldi Breta og sam- staða um að hvika í engu frá markaðri stefnu í landhelgis- málinu. Lúðrasveit Akureyrar lék í upphafi íundarins. Fundurinn samþykkti eftir- farandi ályktun: Almennur fundur á Akur- eyri, haldinn mánudaginn 28. maí 1973, mótmælir harðlega innrás brezka flotans í fiskveiði lögsögu íslands. Fundurinn tel- ur frekari viðræður við Breta um bráðabirgðalausn landhelgis málsins útilokaða á meðan þeir fara með hernaðarofbeldi gegn íslendingum. Fundurinn styður þá ákvörð- un ríkisstjórnarinnar að kæra Breta fyrir fastaráði Atlants- FRÁ TÚNLISTARFELAGIAKUREYRAR NÆSTKOMANDI sunnudag, 3. júní kl. 21, leikur Sinfoníuhljóm sveit íslands undir stjórn Páls P. Pálssonar í Akureyrarkirkju. Guðrún Á. Símonar óperusöng- kona syngur með hljómsveit- inni tvær aríur, aðra úr óper- unni II Trovatore eftir Verdi og hina úr óperunni Samson og Dalila eftir Saint Saens. Að öðru leyti verður efnisskráin þessi: Sinfonía nr. 2 eftir Beet- hoven, Carmensvíta eftir Bizet, Þrír dansar úr „Seldu brúðinni“ eftir Smetana, og vals úr „Þyrni rósu“ eftir Tsjaikowsky. Forsala aðgöngumiða er þeg- ar hafin í bókabúðinni Huld. Hljómsveitin leikur eins og jafnan áður á vegum Tónlistar- félags Akureyrar, en um þessar mundir eru 30 ár liðin frá stofn- un félagsins. (Framh. á bls. 5) hafsbandalagsins, með eindregn um kröfum um að bandalagið leggi fyrir Breta að verða þegar á brott með flota sinn af íslands miðum og skorar jafnframt á ríkisstjórnina að bera fram kæru á hendur Bretum á vett- vangi Sameinuðu þjóðanna. Fundurinn skorar á ríkis- stjórnina að vinna jafnan sem ötullegast að sem víðtækastri kynningu landhelgismálsins og gera allt, sem verða má til þess að tryggja málstað íslands sigur á væntanlegri hafréttarráð- stefnu. Fundurinn vottar Landhelgis gæzlunni þakklæti fyrir vel unn in störf og biður áhöfnum varð- skipanna heilla í þeim mikla vanda, sem við er að etja. Q LEIKFÖR í VÆNDUM HJÁ LEIKFÉLAGINU LEIKFÉLAG AKUREYRAR ætlar að sýna á ýmsum stöðum hið nýja leikrit Jökuls Jakobs- sonar, Klukkustrengi, sem fé- lagið hefur sýnt á Akureyri undanfarnar vikur við mjög góðar undirtektir áhorfenda, enda leikritið bæði sérkennilegt og skemmtilegt. Fyrsta sýningin í leikförinni verður á Húsavík laugardaginn 2. júní, sunnudaginn 3. júní verður sýning á Raufarhöfn og á Þórshöfn 4. júní. í Vopna- firði verður sýning á þriðju- daginn 5. júní. Um aðra helgi er ætlunin að sýna sjónleikinn á nokkrum stöðum vestan Akureyrar og verður sagt frá því síðar. Q Handavinnusýniiig að Laugalandi HANDAVINNUSÝNING náms- meyja húsmæðraskólans á Laugalandi verður 3. júní kl. 14-—22. Skólaslit fara fram föstu daginn 8. júní kl. 14. Handavinnusýningar skólans hafa löngum verið vel sóttar

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.