Dagur - 30.05.1973, Blaðsíða 8
8
HP DACfR • DAGUl . I>AGUR
Vór viljum vckja athy^li
á auglvsiiiííasima okkar,
scm er 1-11-6”
DAGUR . DAGUR . DAGUR é*
Akureyri, miðvikudaginn 30. maí 1973
FERM-
INGAR-
GJAFIR
f MiKLU ÚRVALI
SMÁTT & STÓRT
Bílvelta
HINN 24. maí varð það slys ná-
lægt Voghóli, Dalvíkurmegin í
Olafsfjarðarmúla, að bifreið á
leið til Akureyrar endasteyptist
með þeim afleiðingum, að tveir
piltar, sem voru í bifreiðinni
ásamt ökumanni, slösuðust
mikið. Voru þeir fluttir í sjúkra-
húsið á Akureyri. Munu þeir
hafa kastazt út úr bifreiðinni
og annar þeirra kastaðist niður
fyrir veginn. Bifreiðin er talin
algjörlega ónýt. Piltarnir, sem
slösuðust, heita Gunnlaugur
Jónsson 17 ára og Omar Aðal-
steinsson 17 ára, báðir frá Olafs-
firði. Bílstjórinn slapp lítið
meiddur. Bíllinn var frá Ólafs-
firði.
Búið er að salta í sex hundruð
tunnur af grásleppuhrognum og
er að mikill og verðmætur afli.
Hins vegar er orskafli enn treg-
ur. Björgvin er að landa ofur-
litlu af fiski í dag. Vinna í hrað-
frystihúsinu hefur ekki verið
nógu samfelld vegna aflatregð-
unnar. En geta má þess, að
hraðfrystihúsið skilaði góðum
hagnaði síðasta ár, en o£
snemmt er að dæma um yfir-
standandi ár og vona menn að
afli glæðist.
Keyptir hafa verið hingað
tveir litlir dekkbátar, Björg og
Albert. Og í sumar er von á
tveim í viðbót. Kaupir annan
þeirra, sem er fimmtíu tonn,
Snorri Snorrason og hinn, sem
mun um 12 tonn, fær Páll
Stejnsspn.
Aflaskipið Loftur Baldvins-
son er að búa sig á síldveiðar í
Norðursjó og fer einhvern
næsta dag.
Sauðburður gengur vel í sveit
inni, með fáum undantekning-
um, og hér á Dalvík einnig, en
veikindi í lömbum hafa þó
stungið sér niður á nokkrum
stöðum. J. H.
SÖGUFRÆGUR BÁTUR
Fyrir 74 árum drekktu brezkir
veiðiþjófar þrem aðstoðarmönn-
um Hannesar Hafsteins þá
sýslumanns á fsafirði, er hann
fór að brezkum landhelgisbrjót
í Dýrafirði. Hannes komst
nauðuglega af við þriðja mann.
Bretarnir stálu úr vösum hans
á meðan hann var ekki sjálf-
bjarga. Bátur sá, er þessa för
fór, er varðveittur og nú kom-
inn til Reykjavíkur, viðgerður
og verður almenningi til sýnis.
Þjóðminjasafnið á bát þennan.
Þetta atvik er rifjað upp nú,
þegar Bretar sýna enn yfirgang
sinn á miðum fslendinga.
STUNGIN TIL BANA
íslenzk kona, Iðunn Ragnars-
dóttir að nafni, var stungin til
bana í Malmö í Svíþjóð fyrir
skömmu. Þar var aö verki ís-
lenzkur maður, sem í þessum
átökum særði einnig annan
mann. Tilræðismaðurinn var
ölvaður. Ölvaðir nienn eru
mjög oft tilræðismenn á ein-
hvern hátt, og oft verða afleið-
ingarnar slys, jafnvel dauðaslys.
Svo mun áfram verða, á meðan
hvorki almenningur eða yfir-
völd landsins ganga hreinlega
til verks, með því að berjast
með tiltækum ráðum gegn
drykkjutízkunni.
ÚTIFUNDURINN MIKLI
Alþýðusamband fslands efndi
til útifundar á Lækjartorgi í
Tækifæri fil enskunáms
GUÐFAÐÍRINN
BORGARBÍO hefir tekið til
sýninga „Oscars“-verðlauna-
myndina Guðfaðirinn, sem hef-
Stofnfundur
Herstövaandstæðinga
í Norðurl.kj.d. eystra
STOFNFUNDUR herstöðvar-
andstæðinga í Norðurlandskjör
dæmi eystra var haldinn í Al-
þýðuhúsinu á Akureyri kl. 4
e. h. sunnudaginn 27. maí sl.
Fundinn sátu hátt á annað
hundrað manns, víðs vegar úr
kjördæminu. Fundinn setti Kol-
beinn Sigurbjörnsson, en fund-
arstjóri var Hjörtur E. Þórarins
son bóndi á Tjörn.
Ræður fluttu þeir Njörður P.
Njarðvík formaður útvarpsráðs
og Þorsteinn Jónatansson las
upp ræðu Kristjáns frá Djúpa-
læk, er forfallaðist.
Á fundinum var kjörinn 20
manna kjördæmisráð er kallað
verður saman til fundar fljót-
lega. Kjördæmisráð vill hvetja
allt áhugafólk til ess að taka
virkan þátt í störfum herstöðv-
arandstæðinga.
(Fréttatilkynning)
ir á fáeinum mánuðum öðlazt
meiri aðsókn en dæmi eru til
frá upphafi kvikmyndaiðnaðar-
ins.
Kvikmyndahandritið er eftir
Mario Puzo, höfund samnefndr-
ar metsölubókar.
Það er algjört einsdæmi að
kvikmyndahús á Akureyri sýni
svo nýja mynd, sem hlotið hefir
„Oscars“-verklaunin aðeins fyr-
ir mánuði síðan.
Aðalhlutverk í þessari frægu
mynd leikur Marlon Brando.
ÁRIÐ 1965 kom hér hópur
ungra stúdenta frá Lundúna-
háskóla til jarð- og landfræði-
rannsókna og dvöldust þeir hér
í Eyjafirði og Reykjadal. Einn
þessara manna, Ed Jackson að
nafni, sem nú hefir lokið meist-
araprófi í sögulegri landfræði
íslands við háskólann í Calgary
í Kanada, mun verða hér á ferð
í sumar með stúdentahóp frá
háskólanum í Toronto.
Hópurinn mun dveljast í
Vestur-Skaftafellssýslu í ágúst-
mánuði við jarð- og landfræði-
rannsóknir. Nú vildu þeir gjarn
an vita hvort ekki væri einhver
enskumælandi skólanemi sem
Dague
kemur næst út miðvikudaginn
6. júní.
vildi dvelja með þeim þennan
tíma og vera túlkur fyrir þá og
aðstoða á annan hátt. Allar
nánari upplýsingar gefur Gunn
ar Árnason, c/o Sportvöruverzl.
Brynjólfs Sveinssonar, sími
1-15-80, Akureyri. □
Reykjavík á fimmtudaginn. Um
ræðuefnið var innrás Breta í
landhelgina. Komu þar saman
allt að 30 þúsundir manna og
ávörp fluttu fulltrúar allra
stjórnmálaflokka. Fór fundur-
inn fram með friði og spekt, og
var merkilegur að því leyti, að
þar voru allir á einu máli. En
að útifundi loknum grýtti skríll
brezka sendiráðið og fékk lög-
reglan ekki að gert. Sigur og
samstaða útifundarins var mik-
il, en skömm sú er þar fylgdi á
eftir, var einnig mikil.
HVERNIG FER?
Samkvæmt fregnum af aðför
að brezka sendiráðinu og við-
brögðum íslenzkrar löggæzlu
þar á staðnum, sýnist það furðu
mikil bjartsýni, að Reykvíking-
ar taka nú að sér að gæta
öryggis forsetanna tveggja, frá
Frakklandi og Bandaríkjunum.
Munu margir velta því fyrir sér
þessa dagana, hvað gerst getur
þá, og hvernig verður við
brugðið, ef óvæntir atburðir
verða, eitthvað í líkingu við
þann er fyrr getur.
SKYLDUR GESTGJAFANS
Það var sómi fyrir íslenzku
þjóðina, að forsetar Frakklands
og Bandaríkjanna skyldu velja
ísland sem fundarstað sinn, og
íslenzk gestrisni að fornu og
nýju á enn að vera í fullu gildi
og á þann veg, að gestir njóti
fullrar friðhelgi og fyrir-
greiðslu, hvað sem mönnum
kann að þykja um störf og
stefnur gestanna. Island verður
ekki eftirsótt ráðstefnuland, ef
hinnar gömlu og góðu gestrisni
er ekki gætt.
HEIMILI OG SKÓLI
Þetta gamla og vinsæla rit á nú
að koma út tvisvar á ári og vera
ekki undir 60 blaðsíðum. Indriði
(Framhald á blaðsíðu 5)
BYGGÐIR EYJAFJARÐAR
BYGGDASAGA í tveimur bind
um með þessu nafni, sem Bún-
aðarsamband Eyjafjarðar gefur
út, er nú tilbúin til afhendingar.
Verður ritið afhent til áskrif-
enda frá 31. maí á eftirtöldum
stöðum:
Aðalstræti 62, hjá Ármanni
Dalmannssyni.
Landbúnaðarverkstæðinu
Óseyri 2, skrifstotu B.S.E.
Áætlað var,. að rit þetta kæmi
út í lok ársins 1972, en ýmsar
óvæntar tafir ollu því, að það
var ekki fyrr tilbúið, m. a. löng
bið eftir nægilega góðum prent-
pappír.
Áskrifendur eru hér með
beðnir afsökunar á þessum
drætti og væntir búnaðarsam-
bandið þess, að þeir vitji bók-
anna sem fyrst til einhvers
þeirra afgreiðslustaða, sem hér
er til vísað.
(Fréttatilkynning)
Ráðstefna nm forunamálefni
Á FÖSTUDAG og laugardag í
síðustu viku var á Akureyri
haldin ráðstefna á vegum
Brunamálastofnunar ríkisins,
Innkaupastofnunar ríkisins og
Slökkviliðs Akureyrar, sem
annaðist ráðstefnuna. Fulltrúar
voru 69 frá öllum landshlutum
og voru þeir helmingi fjölmenn-
ari en búizt hafði verið við.
Ráðstefnan var haldin bæði
inni og úti og var bæði munn-
leg og verkleg.
Ráðstefnuna setti Bjarni Ein-
arsson bæjarstjóri í Varðborg,
en því næst kynntu Gunnar
Pétursson og Gunnar Óskars-
son nýjar gerðir af froðu-
slökkvitækjum. Athygli vakti
sænskt tæki, sem e. t. v. mætti
nefna íorðukasttæki, sem
slökkviliðum er talið nauðsyn-
legt áð eiga og ekki er mjög
dýrt. En þetta tæki er í flokki
froðu-slökkvitækja, sem hin síð-
ari ár hafa rutt sér mjög til
rúms og gefið góða raun í bar-
áttunni við eldinn.
Verkleg sýning slökkvitækja
fór fram við Akureyrarflugvöll.
En síðar fóru fram umræður
um hin ýmsu slökkvitæki.
Síðari róðstefnudag hafði
Gunnlaugur Búi Sveinsson
framsögu um varnir gegn hey-
bruna og spunnust af máli hans
miklar umræður. Og þá kynnti
Gísli 'Lórenzson reyklosun í
húsum, ennfremur kynnti Tóm-
as Búi Böðvarsson og Guð-
mundur Jörundsson tæki
Slökkvistöðvarinnar á Akur-
eyri. Ásgeir Jóhannsson kynnti
Innkaupastofnun ríkisins.
Fyrir almenning voru sýndar
kvikmyndir um eldvarnir í
heimahúsum, en almenningur
sýndi málinu of mikið tómlæti.
Sýningin fór fram í Borgarbíói.
Fundarstjóri ráðstefnunnar
var Gunnar Pétursson. Það er
álit slökkviliðsmanna, að ráð-
stefnur sem þessar, séu mikil-
vægar og að þessi ráðstefna
hafi vel tekizt. Q