Dagur - 01.12.1973, Blaðsíða 4

Dagur - 01.12.1973, Blaðsíða 4
4 i wnu! 5 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Síniar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓHANN K. SIGURÐSSON Prentverk Odds Björnssonar h.f. ORKUMÁLIN Á FUNDI Fjórðungssambands Norð lendinga á Akureyri í gær flutti Magnús Kjartansson iðnaðarráð- herra erindi um orkumálin. Ráðherra minntist fyrst á hinar langvinnu deilur um orkumál, hér á Norðurlandi, sem hægt er, sagði hann, að reikna í mjög mörgum hundruðum milljóna króna. En hitt er þó alvarlegra, að í deilumálin var sóað orku, hugviti og áhuga, sem sannarlega hefði komið að meira gagni við önnur úrræði. Við vitum nú, sagði ráðherra, hvaða vandamál brenna nú á Norðlendingum, og það skiptir máli að menn sameinist um að leysa þessi vandamál, og eins og sakir standa er það ekki mikið álita- mál hvernig við eigum að ráðast gegn þessum vandamálum og hvaða atburðarás það er, sem við hljótum að stefna að. Fyrsta verkefnið er að koma upp mun meiru varaafli hér á Akureyri en nú er tiltækt, svo sem 3—4 mega- vatta raforkuframleiðslu er síðar þarf að auka. Varaaflstöð hér á Akur eyri hefur alltaf verið nauðsynlegt frambúðarverkefni vegna hinna erfiðu ístruflana í Laxá og til þess að tryggja öryggi svæðisins í heild. Mun ekki standa á stjórnarvöldum að afla fjármagns í þessu skyni. Varaaflstöðin er fljótvirkasta að- ferðin til að leysa þann vanda, sem brennur á mönnum nú, en jafnframt verður að vinna að því af alefli að koma ódýrri orku inn á svæðið. Þar er samtenging Norður- og Suður- lands lang fljótvirkasta aðgerðin. Ráðuneytið hefur fyrir alllöngu kom izt að þeirri niðurstöðu, að byggða- lína sé sú ákvörðun, sem taka þurfi, þ. e. lína sem liggi um Borgarfjörð, Holtavörðuheiði, Húnavatnssýslur, Skagafjörð og síðan um Öxnadals- heiði til Akureyrar. Ef á þarf að halda á hún að geta flutt allt að 50 megavött til notenda hér á Akureyri. Það er áætlað, að lína af þessu tagi muni kosta 4—500 millj. kr. Til á að vera tiltæk orka lianda Norðlending- um, einnig fram að þeim tíma að Sigölduvirkjun tekur til starfa. Á Norðurlandi eru margir virkj- unarmöguleikar. Mér virðist þó vera nærtækast og álitlegast að ráðast í jarðgufuvirkjun á Kröflusvæðinu. Þar hafa farið fram rannsóknir á ýmsum valkostum, svo sem á 8, 12- og 16 megavatta virkjunum. Og það hefur komið í ljós, að þessar virkj- anir verða þeim mun hagkvæmari, sem þær eru stærri. Nú nýlega hefur verið skilað áætlun um 55 megavatta virkjun með einni vélasamstæðu og samkvæmt henni á orkuverð þama (Framhald á blaðsíðu 5) HEIMIR HANNESSON, LOCFRÆÐINGUR: Ferðamálin forsenda samgöngukerfisins FRÉTTABRÉF AF FUÓTSDALSHÉRAÐ! SEGJA má að íslenzk ferðamál séu nú að ýmsu leyti á nokkr- um tímamótum vegna margvís- legra nýrra viðhorfa, þannig að ekki verði hjá því komizt að hefja stefnumörkun sem fyrst í málefnum þessa atvinnuvegar, og á það bæði við lagasetningu, mikilvæg framkvæmdaatriði og ráðstöfun og öflun á fjármagni. Við búum enn við ferðamála- löggjöf, sem þarfnast brýnnar endurskoðunar með tilliti til nýrra viðhorfa — og segja má a'ð íslenzk ferðamál hafi þróazt á þann veg er þau hafa gert á undanförnum árum, þrátt fyrir gildandi löggjöf, en ekki vegna hennar. Nú hefur ríkisstjórnin lagt frumvarp að nýrri ferða- málalöggjöf fyrir þetta þing, og verða þau mál því væntanlega mjög á dagskrá á næstunni. Það er alkunna að fáar at- vinnugreinar í heiminum hafa vaxið jafn ört á síðustu árum og margvísleg ferðaþjónusta (í rauninni er ekkert eitt orð í okkar tungu er nær yfir erlenda orðið tourismi). Orsakirnar eru margvíslegar, m. a. aukinn frí- tími, bylitng í samgöngum, batn andi lífskjör — og sívaxandi alþjóðleg samvinna á mörgum sviðum. Alþjóðlegar fjármála- stofnanir hafa látið sig þessa þróun miklu skipta, sérstaklega á síðari árum, og þá einkum Alþjóðabankinn og stofnanir hans. Hafa þær ýmist lánað eða lagt fram í ýmsu formi mikið fjármagn til margra þátta ferða- mála, m. a. vegaframkvæmda. Býr þar að baki sú skoðun að fátt sé líklegra til að skapa gjald eyrissnauðum löndum með ein- hæfa atvinnuvegi vaxandi gjald eyristekjur — og ekki síður sú staðreynd, sem okkur hættir stundum við að taka sem sjálf- gefna, að þróun ferðamála færir menn og þjóðir nær hvor annarri, þar sem oft skapast tengsl og vinátta og aukinn skilningur á milli þjóða og ein- staklinga. Hvað er líklegra en slík samskipti til að stuðla að þeim friði og skilningi í heim- inum, sem allir eru sammála um að stefna að. Staðan á íslandi. En víkjum þá að stöðunni hjá okkur sjálfum. Hjá okkur tengj ast ferðamál á einn eða annan hátt við flest svið í þjóðlífi okkar — og e. t. v. í ríkara mæli en við gerum okkur ljóst. Ég nefni aðeins örfá grundvallar- atriði sem hafa ber í huga. Hinir beinu viðskiptahagsmunir eru fjölþættari en í nokkurri ann- arri atvinnugrein. Hin óbeinu áhrif eru margvísleg, m. a. þau -að samkvæmt alþjóðlegum rann •sóknum eru margfeldisáhrif þess fjár er ferðamaðurinn skil- ur eftir sjöföld í efnahagskerf- i,pp. Sjónarmið byggðastefnu eru eðlileg ferðamannaþróun íéskilegt m. a. vegna fjármagns ■dreifingar og raunar valddreif- ingar. Er þar þó ekki sama hvemig á er haldið. Loks mega ,raenn ekki gleyma því að eðli- leg þróun ferðamála er í raun- inni forsenda þess að við ís- lendingar getum rekið og stjórn 'áð sjálfir okkar eigin samgöngu kerfi — og er fyrst og fremst átt við flugmálin. Og við höfum í- þeim málum nú þegar dýr- mæta reynslu, sem hefur kennt okkur margt, en þar hefur slík- um árangri verið náð, að næst- um einsdæmi er í heiminum. Hætta á ferðum — ef. Þetta var hluti af kostunum, en vissulega getur líka verið viss hætta á ferðum, ef, og ég segi aftur ef, við kunnum ekki að sýna hófsemi og varkárni þar sem það á við. Ég á hér við og kosti þess — helzt að bæta það enn — jafnt til hags og ánægju fyrir landsmenn sjálfa og þá gesti er okkur sækja heim. Vonandi verður sú stefnu mörkun tekin er reynt hefir verið að lýsa hér að framan. í næsta þætti mun ég gera sérstaklega að umræðuefni ferðamál Norðurlands, m. a. Akureyrar, m. a. með tilliti til nýgerðrar þróunaráætlunar sér- fræðinga Sameinuðu þjóðanna. Mun ég þar reyna að leiða rök að því, að þó að áætlunin sé að mörgu leyti athyglisverð fái það ekki staðizt, að yfir 2 þús. millj. kr. fjárfesting í ferðamálafram- kvæmdum fari að langmestu leyti til Faxaflóasvæðisins. Mun verða reynt að skýra þær breyt- ingar er þarf að gera á þessari áætlun til að gera hana aðgengi- lega, bæði frá almennu skyn- semissjónarmiði og byggða- sjónanniði, sem mjög fara sam- an í þessu máli. Q Egilsstöðum, 29. nóvember. Hér búum við við rafmagnsskömmt- un vegna þess hve lítið vatn er í Grímsá og ennfremur vegna þess að díselstöð á Seyðisfirði hefur verið biluð. Kuldar hafa verið óvenjulega miklir en snjó- lítið til uppsveita en eitthvað meiri snjór við sjávarsíðuna. Hér um mið-Hérað er aðeins föl og er góð beitarjörð. Frostið hefur farið upp í 24 stig, svo að beitin hefur ekki notazt vel. Samgöngur eru nokkuð greiðar og fyrirstöðulítið um Hérað og veginum haldið opnum suður með Fjörðum. Oðru hverju hefur lokazt á Oddsskarði, Fjarðarheiði og Vatnsskarði. Allir vegir eru vel færir eins og er. Mestar áhyggjur hafa menn út af raforkuskortinum. Menn eiga því að venjast í miklum frostum, að Grímsá verði vatns- lítil, en raforkunotkun hefur vaxið gífurlega og þó að vatns- og díselvélar séu í gangi, hrekk- ur það naumast til og má ekk- ert út af bera. Geta menn ímyndað sér hvernig ástandið verður þegar farið verður að bræða loðnuna í vetur, ef eitt- hvað veiðist af henni. Eitthvað eru þó Rafmagns- veiturnar að burðast við að bæta úr þessu og hafa látið það frá sér fara, að þær ætli að koma upp gastúrbínustöð, 1100 kw, en sú stöð mun enn úti í Noregi og tekur það sinn tíma að flytja hana hingað til lands og koma henni upp hér. En fyrirhyggjan er alltaf söm við sig hjá hinu opinbera. í fyrra héldu þeir því fram hjá Rafmagnsveitunum, að raun verulega væri Lagarfossvirkjun in nálega óþörf vegna þess að orkuframleiðslan væri svo mikil hér eystra, að Lagarfossvirkjun væri hálfgert „sport og spand- ans“. En nú eru þeir komnir á aðra skoðun og telja, að virkj- unin verði strax fullnýtt, er hún kemst í gagnið, eftir rúmlega eitt ár, samkvæmt áætluninni. Óg mér sýnist að framkvæmda- áætlunin standist og 9 mega- vatta framleiðsla geti hafizt um áramótin 1974—1975. Bygginga- framkvæmdum þar er að mestu lokið og' farið er að undirbúa niðursetningu véla. Enn er mikið annríki, þótt byggingavinna hafi um skeið lagzt niður vegna kuldanna. Bændur láta fremur vel yfir sínum hag og það er ekki dæma laust, að jarðir, sem komnar voru í eyði, séu að byggjast á ný. V. S. -ORKUMÁLIN (Framhald af blaðsíðu 4) aðeins að vera 39 aurar á kílóvattstund, og er það ótrú lega lá tala. Virðist slík gufu aflstöð því ákaflega hag- kværn. Og ég helcl að óhætt sé að álíta, að orka frá henni ætti ekki að verða dýrari en frá þrífellt stærri vatnsafl- stöð. Jarðhitinn er lang- stærsta orkulindin á fslandi og við þurfum að tryggja okkur þar nægilega reynslu til að geta ráðist í nýtingu þeirrar orku af sem mestum hraða. Um framkvæmdahraða í sambandi við slíka jarðgufu- virkjun er örðugt að segja, en ef hafður er hámarks- hraði á undirbúningi og framkvæmd, ætti stöðin að geta tekið til starfa á árinu 1978 eða jafnvel ári fyrr. Unnið er að þvx að ganga frá frumvarpi, sem veitir heimild til slíkrar virkjunar. Heimir Hanncsson. þá hættu, sem fólgin er í því að ört vaxandi ferðamanna- straumur geri umhverfisvanda- mál okkar alvarlegri en þau nú eru. Þetta er margfalt stærra mál en svo að hægt sé að ræða það hér, en ég vil leggja áherzlu á tvennt: Að sjálfsögðu eigum við aldrei að stíga neitt spor í þessum málum nema skoða um- hverfis- og náttúruverndarmál- in rækilega, en það er um leið bjargföst skorðun mín að í þess um málum sem öðrum sé stefnu markandi skipulag líklegra til árangurs en skipulagsleysi og einangrunarhugmyndir. Ég held að við varðveitum alclrei óspillta náttúru landsins með því að girða hana af. Megin- markmiðið hlýtur því að vera það að tryggja eðlilega þróun þessa atvinnuvegar með það í huga að styrkja grundvöll þjóð- arbúsins, auk valddreifingu og virka byggðastefnu um leið og við tökum fullt tillit til um- hverfisverndar og þeirrar fram- tíðarstefnu að varðveita landið Myndir Gísla í Bautanum LAUGARDAGINN 1. des. opn- ar Gísli Guðmann sýningu á nokkrum málverkum eftir sig á Bautanum. Verða þau þar í nokkra daga til sýnis og sölu. Gísli Guðmann hefur átt við myndlist annað veifið í yfir 20 ár. Þekktastur er hann fyrir mannamyndir sínar og teikning ar. Hann naut kennslu Jónasar Jakobssonar myndhöggvara í 4 ár, eftir að hafa tekið þátt í námskeiðum í leirmótun og teikningu. Auk þess hefur hann verið á námskeiðum hjá Hauki Stefánssyni málara og Einari Helgasyni. Eftir námið hjá Jónasi stundaði Gísli nám í 4 ár í þýzkur bréfaskóla í mynd- list — Fernakademie Karlsruhe. Gísli Guðmann hefur tekið þátt í tveimur samsýningum. Nokkrar nýútkomnar bækur Eiríkur Hansson FLESTIR íslendingar kannast við vestur-íslenzka skáldið Jó- hann Magnús Bjarnason og bækur hans, sem á sínum tíma fóru sigurför um land allt og voru lesnar á flestum heimilum í sveit og bæ. Nú er fjórða bindið í heildar- ritsafni hans, Eiríkur Hansson, nýkomin út. Það er 502 blað- síður og frágangur allur hinn vandaðasti. Prentsmiðja Björns Jónssonar annaðist prentun, en útgefandi er Edda hér í bæ. (Aðsent) hóp. Og margt er það á braut listafólks, sem jafnan er nokkur ávinningur að kynnast. Aftast í bókinni er nafnaskrá. r Islands lag Jóhann M. Bjarnason. Eins og ég er klædd Blaðinu barst í fyrradag bók- in, Guðrún Á. Símonar, með undirtitlinum, Eins og ég er klædd. Gunnar M. Magnúss skráði en Bókaforlag Odds Björnssonar gaf út, og er bókin nær 200 blaðsíður og í henni margar myndir. Bók þessi skipt ist í þessa höfuðkafla, sem segja nokkuð til um efni og niður- röðun: Tjaldið dregið frá, í sviðsljósinu, Fyrir opnum tjöld- um, Þáttaskil og Heima. Bókin um hina kunnu og opinskáu óperusöngkonu mun eflaust eignast stóran lesenda- Svo heitir nýútkomin bók frá Prentsmiðjunni Leiftur í Reykjavík og er hún eftir dr. Hallgrím Helgason. Hún fjallar um líf og starf sex íslenzkra tónskálda og þau eru: Pétur Guðjohnsen, Bjarni Þorsteins- son, Árni Thorsteinsson, Sig- valdi Kaldalóns, Björgvin Guð- mundsson og Jón Leifs. En auk þessara þátta eru aðfaraorð, nafnaskrá o. fl. í formála segir höfundur til- gang bókarinnar þann, að bregða ljósi á líf sex brautryðj- enda á sviði íslenzkra tón- mennta og að sýna feril íslenzkr ar tónlistarþróunar. Bókin er kærkomið framlag í þessa átt og því mun hún mörgum kær- komin. Q Draumalandið hennar Frá Bókaforlagi Odds Björns- sonar hefur blaðinu einnig bor- izt bókin Draumalandið hennar eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur og mun hálfur annar tugur bóka eftir þennan höfund kom- inn út. Bók þessi hefur að geyma rómantíska ástarsögu, sem gerist bæði hér á landi og í Noregi og er 160 bjaðsíður. Undraflugvélin Undraflugvélin eftir Ármann Kr. Einarsson, önnur útgáfa, hjá Bókaforlagi Odds- Björns- sonar er komin í verzlanir. Er þetta fjórða bókin um Árna og Rúnu í Hraunkoti og Olli ofviti kemur hér við sögu. Barna- og unglingabækur Ármanns Kr. Einarssonar eru orðnar yfir 20 talsins og þarf ekki að kynna höfundinn. * Hinn hvíti galdur MEÐAL bóka sem áður var minnzt á hér í blaðinu, var hin nýja bók Ólafs Tryggvasonar frá Hamraborg, Hinn hvíti galdur. Mynd af höfundi átti að fylgja en var þá ekki tiltæk en er nú komin í leitirnar. Um bók þessa var nýlega sagt: Hverjum þeim, sem á við erfiðleika að stríða, mun bók þessi örugg hjálp. Það kann að vera að manni, sem lífið leikur við, sé ekki nauðsynlegt að lesa hana, en færi svo að lífið hætti leik sínum, væri gott að vita, að bókin, Hinn hvíti galdur, er til. Q þýzkan hermann, sem særist á austurvígstöðvunum í lok stríðs ins, tekinn til fanga og fluttur til Siberíu. Honum tekst að flýja, og hann ratar í hin ýmsu ævintýri í auðnum og byggðum Siberíu. Ólafur Tryggvason. Á meðan fæturnir bera mig Frá Kvöldvökuútgáfunni hef- ur blaðinu borizt bókin, Á með- an fæturnir bera mig, eftir Jósef Martin Bauer í þýðingu Þórunnar Jónsdóttur. Bókin er 220 blaðsíður og fjalla-r um Eiríkur Sigurðsson. Ræningjarnir í Æðey Eiríkur Sigurðsson, fyrrum skólastjóri á Akureyri og kunn- ur rithöfundur, einkum barna- bóka, hefur sent frá sér barna- og unglingabókina, Ræningjar í Æðey. En Bókaútgáfan Skjald- borg gefur út og Prentsmiðja Bjöms Jónssonar annaðist prentun. Þessi bók er rúmar hundrað blaðsíður og skiptist í 20 kafla. Á kápusíðu segja út- gefendur meðal annars, að bók þessi segi frá tveim drengjum og svo ræningjum af enskum togara, sem fara upp í Æðey og ræna varpið. En þeir ensku taka drengina og fara með þá út í Skrúð, eyðieyju, og skilja þá þar eftir. Flöskuskeyti verð- ur til að bjarga þeim. Saga þessi er spennandi fyrir yngri kynslóðina og hún sýnir, að ekki þarf að fara til erlendra manna í leit að efni eða- höfund- um skemmtilegra barnabóka. ÞjóSgarður stofnaður I Jökulsárgljúfmm LANGT er orðið síðan fram komu tillögur um einhverskon- ar friðlýsingu á svæðinu um- hverfis neðanverða Jökulsá á Fjöllum, eða það sem venjulega er nefnt Jökulsárgljúfur. Kom þetta m. a. fram í formi þings- ályktunartillögu árið 1947, þar sem lagt var til að svæðið vest- an árinnar yrði keypt, friðað fyrir beit og sett í umsjá Skóg- ræktarinnar. Ekki mun þó hafa orðið að framkvæmdum að því sinni. Eftir að Náttúruverndarráð var stofnað með lögum árið 1956, hefur það haft friðun gljúfranna til meðferðar, og gert ýmsar samþykktir þar að lútandi. Á síðastliðnu vori ákvað ráð- ið svo að láta til skarar skríða, með því að friðlýsa jörðina Svínadal, sem er eign ríkisins, og því hæg heimatökin. Var friðlýsingin staðfest af mennta- málaráðuneytinu þann 21. júní 1973 og síðan birt í Stjórnar- tíðindum. Land Svínadals er mjög víð- lent, en það telst ná frá Detti- fossi að Hljóðaklettum, og að sunnan alla leið vestur í fjallið Eilíf á Mývatnsöræfum. Mestur hluti landsins er raunar upp- blásin eyðimörk, en innan þess eru líka einhverjar fegurstu gróðurvinjar landsins, svo sem Hólmatungur og Sveigur. Þá hefur verið lagt til þjóð- garðsins landsvæði, sem mynd- ar eins og geira, fyrir norðan Vesturdal og endar í botni Ás- byrgis, en það land taldist vera eign Kelduneshrepps. Sjálft Ásbyrgi er hins vegar ekki innifalið í þjóðgarðinum, enda þótt það sé líka ríkiseign, en Skógrækt ríkisins hefur yfir SKÁKÞING U.M.F.Í. ÚRSLIT Skákþings Ungmenna- félags íslands fara fram á Hótel KEA, Akureyri, í dag og á morgun, 1. og 2. desember. Hefst keppnin klukkan 2 e. h. fyrri daginn. Fjórar fjögurra mnana sveitir taka þátt í úrslit- unum. Þær eru frá: Ums. Borg- arfjarðar, Ums. Kjalarnesþings, Héraðssamb. Skarphéðni og Ums. Eyjafjarðar. Á síðasta ári sigraði sveit Ums. Kjalarnes- þings á Skákþingi UMFÍ. Ungmennasamband Eyjafjarð ar sér um framkvæmd úrslita- keppninnar, en skákstjóri verð- ur. Albert-Sigurðsson, Akureyri, því að segja, og hefur það raun- ar verið friðað fyrir beit um nokkurt skeið, og notað til skóg ræktar. Þá er líka undanskilin jörðin Ás, sem nær m. a. yfir allan Áshöfðann. Er nú unnið að því af hálfu Náttúruverndarráðs að fá jörðina keypta, og leggja hana við þjóðgarðinn. í reglum um þjóðgarðinn segir m. a., að gangandi fólki sé heimil för um hann, en önnur umferð aðeins á merktum slóð- um eða vegum. Ekki má tjalda nema á þar til ætluðum tjald- stæðum, nema leyfi varðarins komi til. Ekki má fleygja rusli eða sorpi, né heldur grafa það niður, en flytja skal það í burtu af svæðinu, eða í sorpgeymslur. Ekki má kveikja eld nema með leyfi þjóðgarðsvarðar, og öllum er skylt að hlíta fyrirmælum varðarins í hvívetna. Hvers konar náttúruspjöll eru að sjálf sögðu óheimil í þjóðgarðinum, og mannvirki eða annað jarð- rask er háð samþykki Náttúru- verndarráðs. Ekki má heldur fara með skotvopn í garðinum. Þá segir og að búfjárbeit sé óheimil í svæðinu, en bændur í Kelduneshreppi (Kelduhverfi) fá þó að beita þangað fé sínu, samkvæmt sérstökum samningi. Náttúruverndarráði er heim- ilt að setja nánari reglur um þjóðgarðinn og mun nú vera unnið að þeim. Þá er einnig gert ráð fyrir að ráða vörð í garðinn fyrir næsta sumar. Ekki þarf að fjölyrða um gildi Jökulsárgljúfra sem þjóð- garðs, til þess eru þau allt o£ vel kunn, en benda má á, að Theodór Gunnlaugsson frá Bjarmalandi hefur ritað skemmtilega bók um gljúfrin, sem væntanlega verður gefin út af Prentverki Odds Björnssonar innan skamms, með allmörgum úrvals ljósmyndum af hinum mikilfenglegu náttúruminjum þeirra. H. Hg. Olafur Loffsson, Hörgslandi Fæddur 6. nóv. 1898 - Dáinn 24. okt. 1973 Kveðja frá afaböriium og langafabami Alltaf var gaman hjá afa að vera ylurinn hjarta hans streymdi okkur til. Þá var liann fús okkar byrðir að bera, blíður og sæll, gerði á hlutunum skil. Hann afi var alla tíð yndælismaður ötull að veita okkur styrk sinn og skjól í liópi okkar ungu var geislandi glaður guð bléssi hann ætíð í vermandi sól. ! • f ’' ■; •y1 f Við kveðjum þig núna og söknum þín sáran sorgin er léttari barninu hjá, eftir áranna fjöld, kemur bitrari báran en blómstrandi rósir oft þroskanum ná. Þökkuin,*er leiddirðu ungt fólk í æsku ástúðin geislaði töfrandi af brá. Þökkum þér ylinn og göfuga gæsku guð blessi hann afa, sem dvaldi okkur hjá. Hans afa og langafa minnast við mxmum mildi hans alla, þá kærleikans gjöf, tíminn þó fljúgi, með bárunum brunmn, brosi honum eilífðin út yfir gröf. (J. G. P.)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.