Dagur


Dagur - 05.12.1973, Qupperneq 1

Dagur - 05.12.1973, Qupperneq 1
FILMUhúsið akureyri •'SRBPSCrtfrfi-n HINN góðkunni píanóleikari Philip Jenkins leikur í Borgar- bíói næstkomandi sunnudag, 9. des., kl. 17.15. Tórilistarfélag Akureyrar gengst fyrir þessum tónleikum, sem eru hinar þriðju á tónleikaskrá þessa vetrar. Tónleika nr. 2, Blásarakvintett Sinfóníuhljómsveitar íslands, varð vegna ófyrirsjáanlegra ástæðna að flytja fram í febrúar. Philip Jenkins lék síðast á tónleikum hér á Akureyri í fyrrahaust fyrir stóran hóp þakklátra áheyrenda. Philip, Banninu aflétt 1 GÆRMORGUN var samþykkt hjá löndunarmönnum fisks í Grimsby, að aflétta löndunar- banni gagnvart íslenzkum fiski- skipum. Á öðrum stöðum var áður samþykkt að aflétta bann- inu, að tilskyldu samþykki Grimsbymanna. Tveir íslenzkir bátar munu selja, báðir frá Hornafirði, fisk sinn í Grimsby í dag og eru það Hamrafell og Ólafur Tryggvason. Fiskvöntun er í Bretlandi. □ sem var um árabil atkvæða- mikill píanóleikari og kennari á Akureyri, hefur síðastliðna tvo vetur starfað við Academy of Music í London. Á þessu tíma- bili hefur hann haldið mikil- væga tónleika í London. og hef- ur hlotið lofsamlega dóma tón- listargagnrýnenda fyrir leik sinn. Gagnrýnandi „Daily Tele- graph“ hrósaði Philip mjög fyrir tónleika sína og sagði á einum stað, „he is a musician to his fingertips". Philip hélt tón- leika í London 16. nóvember síðastliðinn, en tónleikamir fóru fram í Purcell Room. Á þeim tónleikum voru flutt ýmis af þeim verkum, sem flutt verða í Borgarbíói næstkomandi sunnudag, en þau verða: Til- brigði í f-moll eftir Hayden, sónata í B-dúr eftir Mozart, sónatína í C-dúr eftir Kabalev- sky, næturljóð eftir Britten og Le Tombeau de Couperin eftir Ravel. Philip mun í þessari ferð leika á Húsavík og ef til vill víðar. Aðgöngumiðar verða seldir í bókabúðinni Huld og við inn- ganginn. Skólafólk fær 50% afslátt af aðgöngumiðaverði. (Fréttatilkynning frá Tón- listarfélagi Akureyrar 4. des.) Frá Laxárvirkjun hjá Brúum. ORKUMÁLAFUNDURINN A AKUREYRI Skagfirskar konur á námskeiðum Sauðárkróki, 4. desember. Skag firzka kvenfélagasambandið hef ur nú að undanförnu gengizt fyrir námskeiðum í myndflosi og fleiri hannyrðum, og hefur frú Magðalena Sigurþórsdóttir kennari frá Reykjavík farið á milli kvenfélaganna í Skaga- firði og hefur hún þegar lokið námskeiðum hjá fjórum kven- félögunum, eða í Hólahreppi, Akrahreppi, Lýtingsstaðahreppi og á Sauðárkróki. Hafa 95 kon- ur sótt þessi námskeið og hafa konurnar samtals gert 223 muni. Fimmta námskeiðið stend ur yfir og er á Hofsósi. Eftir áramótin verður sjötta nám- skeiðið haldið hjá Kvenfélagi Staðarhrepps. Námskeiðin hafa verið mjög vinsæl meðal kven- félagskvenna, eins og þátttakan sýnir. Formaður Kvenfélaga- sambands Skagafjarðar er frú Helga Kristjánsdóttir á Silfra- stöðum. Kvenfélag Sauðárkróks hefur þegar pantað frú Magðalenu til að halda námskeið hjá sér á næsta vetri. Að námskeiðunum í vetur loknum, er fyrirhugað að halda sýningu á munum þeim, sem kvenfélagskonurnar hafa búið til. Verður sýningin í Miðgarði. G. Ó. FRÁ ræðu iðnaðarráðherra á orkumálafundi á Akureyri var sagt í síðasta blaði. Verður nú frásögn fram haldið. Jakob Björnsson, orkumála- stjóri, flutti annað framsögu- erindi og gerði grein fyrir stöðu mála varðandi rannsóknir Orku stofnunar á virkjunarmöguleik- um norðanlands, varðandi sam- tengingar norðanlands við aðra landshluta nú á næstunni og síðar og varðandi varaaflsmál Norðurlands. Varðandi Dettifossvirkjun hafa áætlanir bent til þess að hún geti orðið mjög hagkvæm. Stærð hennar yrði nálægt 165 MW og árleg orkuvinnslugeta 1200 GWH. Jarðgufuvirkjun við Náma- fjall eða Kröflu: Áætlanir hafa verið gerðar um 8, 16, 24 og 55 MW virkj- anir við Kröflu og benda niður- stöður þeirra til þess að orku- verð frá 55 MW jarðgufustöð gæti verið sameiginlegt við orkuverð frá hagkvæmustu vatnsaflsvirkjunum sem væri þrisvar sinnum stærri að afli. Þetta gæti bent til að jarð- gufuaflsstöðvar væri auðveld- ara að fella að vaxandi raforku- þörf en vatnsaflsstöðvar, án þess að nokkru væri fórnað í orkuverði. Niðurstöðvar athugana Orku- stofnunar um virkjun í Skjálf- andafljóti hafa reynzt neikvæð- ar og telur hún að rétt sé að bíða með frekari rannsóknir þar. (Framhald á blaðsíðu 2) Fjölmennur Framsóknarfundur FRAMSÓKNARFLOKKUR- INN efndi til fundar á Hótel KEA föstudaginn 30. nóvember. Fundarefnið var kynning á stefnu og störfum flokksins. Frummælendur voru: Stein- grímur Hermannsson, ritari flokksins, Guðmundur Þórarins Sofa urtubörn á ú urn Á SUNNUDAGINN sýndi sjón- varpið mynd af útselskópum, sem nýbúið er að flytja til Reykjavíkur, norðan frá Skaga. Voru þeir 17 talsins og munu sumir eiga að fara vestur um haf í skiptum fyrir sæljón, sem síðar verða augnayndi í Sædýra safninu í Hafnarfirði. Blaðið hafði á mánudaginn samband við Jón Benediktsson BÆJARRÁÐ Akureyrar samþykkir, að bæjarstjórn beini þeim tilmælum til Ríkisútvarpsins, að þegar verði gerðar ráðstafánir til að kleift verði að koma tilkynningum og einnig fréttum á framfæri beint frá Skjaldarvíkurstöðinni, til íbúa á lilustunarsvæði hennar (veðurfregnir, aflafréttir, færð á vegum, messur, leikhús, kvikmyndir, tónleikar). Bæjarráð hefur samþykkt að verða við tilmælum um fyrir greiðslu við stóra listsýningu Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík, sem það hyggst koma upp á Akureyri í sumar. Sýningin er styrkt af Menntamálaráði. Q frá Höfnum á Skaga, en þar skipt um lit og eru orðnir gráir, voru kóparnir teknir. Honum eru skinnin nokkuð verðmæt. sagðist efnislega svo frá: En þau eru þykkri og óþjálli Já, við fórum norður og tók- en vorkópaskinnin og ekki í um þá þarna og fluttum þá háu verði. suður, og sýndist þeim líða ágæt Það var létt verk að taka lega. Þetta eru útselskópar, þessa kópa. Við vorum þrír við þeir fyrstu, sem lifandi eru þetta úti í eyjum, þar sem hann fluttir frá Norðurlandi. Það er liggur. Einn tók bara í aftur- stutt síðan útselurinn tók sér hreyfann og hinir settu kópinn bólfestu við Húnaflóa, ekki mik í poka. Kópar þessir eru um ið yfir 20 ár, en honum fjölgar einn metri á lengd og feitir vel, nokkuð ört. Útselurinn kæpir svo sem sjá mátti í sjónvarpinu, um mánaðamótin október— sagði Jón Benediktsson að lok- nóvember hjá okkur nyrðra, en um. Q fyrr við Breiðafjörð. Útselurinn ----------------:----;— ------- er miklu stærri en vorselurinn _ ™ og leggur undir sig sérstök sker §£ og verður hinn þá að víkja um 1 || | 1 11 set. Að þessu leyti er maður nú Illw ekki reglulega hrifinn af hon- „ _ „ . DT,..T TT , , „ ö ö, , . TOGARINN Harðbakur kom a um. Svo er nu pað, að koparmr , , . , . , , . , , manudagmn með 80 tonn ÍLski- iæðast hvitir, en þegar þeir hala ., , ,, , , , , ar og tiu hakarla, suma taisvert Væna, Og Var aflinn sóttur á Vestfjarðamið. IFT Það er liðin tíð að róa í há- '&’TJ' v&J IgvT kaI4 hér á Norðurlandi, en hann var áður mikið veiddur vegna Næsta tölublað Dags kemur út lifrarinnar. En hákarlinn þykir á Iaugardaginn, 10. desember. ennþá herramannsmatur og Viðskiptavinir blaðsins eru þeir fáu, t. d. í Vopnafirði, sem beðnir að koma tímanlega með leggja stund á hákarlaveiðar til efni og auglýsingar, sem birtast verkunnar og sölu, anna ekki á í blaðinu, vegna hins tak- eftirspurninni. markaða rúms. Hér á Akureyri hefur Jósef í son, borgarfulltrúi í Reykjavík, Elías Snæland Jónsson, fram- kvæmdastjóri SUF og Ólafur Ragnar Grímsson, prófessor. Fundinn sótti um eitt hundrað manns, úr bæ og héraði, og stóð hann í rúmar fjórar klukku- stundir og voru átján ræður fluttar. Fundinn setti Svavar Ottesen, formaður Framsóknar- félags Akureyrar, en fundar- stjóri var Stefán Reykjalín, bæjarfulltrúi, og fundarritari Þóroddur Jónasson. Fundur þessi fór hið bezta fram og var ágæt kynning á stefnu Framsóknarflokksins. Ennfremur komu á dagskrá ágreiningsefni þau innan flokks ins, sem menn hafa kynnzt að undanförnu á síðum Tímans og víðar. Voru þau rædd málefna- lega og af hreinskilni af fram- sögumönnum. Af hálfu heima- manna kom það greinilega fram, að þeim virtist ágreining- urinn minni en ætla mætti eftir þeim harðorðu skrifum, sem fram hafa farið. Q arla í land Sandvík fengizt við þess háttar verkun á þeim gráu, sem fást í vörpur togaranna. Kannski fær hann einnig þessa tíu. Sagt er, að fullverkaður og góður hákarl sé í Reykjavík seldur á 600 krónur kílóið eða jafnvel 700 krónur, þegar búið er að skera hann í hæfilega bita og setja hann í smápakkningar. Hákarl, sem nú er veiddur, er þegar kæstur í kössum eða gryfjum og síðan hengdur upp í byrjun apríl, síðan seldur til neyzlu næsta haust. Q

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.