Dagur - 05.12.1973, Page 2
2
| (Framhald af blaðsíðu 1)
Um Jökulsár eystri og vestari
í Skagafirði er það að segja, að
gerð verður ný virkjunaráætl-
un sem verður grundvölluð á
nýjum rannsóknum og verður
síðan tekin ákvörðun um frek-
ari íramkvæmdir.
Athuganir hafa sýnt að hag-
kvæmt virðist að virkja Blöndu
í eigin farvegi og yrði virkjunin
af stærðargráðunni 150 MW.
Þetta eru frumsannsóknir en
fyllsta ástæða er að halda þeim
ái'ram.
Varðandi samtengingu Suður-
og Norðurlands með raflínu er
álitlegast að leggja línu í bvggð,
m. a. með hliðsjón af rekstri
línunnar. Hugsanlegt er að þess
ari línulögn mætti ljúka árið
1975.
Þriðju framsöguræðuna flutti
Björn Friðfinnsson, fram-
kvæmdastjóri, og kom fram í
ræðu hans að aðgerðir stjórn-
valda ættu að beinast að því að
nýta innlenda orkugjafa í stað
aðfluttra m. a. með aukinni raf-
hitun husa og knýja fleiri vélar
með raforku.
Að spara aðflutta orkugjafa
með ýmsum ráðstöfunum og
byggja síðan upp nýjar atvinnu
greinar á grundvelli innlendrar
orkuvinnslu.
Jón ísberg, sýslumaður, hélt
siðustu framsöguræðuna sem
fjallaði um raforkumál Norður-
lands vestra. Rakti hann fyrst
sögu rafmagnsmála á Norðvest-
urlandi og lýsti síðan núverandi
ástandi. Mikill orkuskortur er á
svæðinu og má engu við bæta
svo að til vandræða horfir. Ur-
bóta er varla að vænta fyrr en
heimamenn taka að sér eigna-
hald og stjórn í raforkumálum
landshlutans og knýja á um
frekari íramkvæmdir.
Valgarður Thoroddsen, raf-
magnsveitustjóri ríkisins,
greindi frá tengingum Raf-
magnsveitna ríkisins á Norður-
landi og kom fram að ástimplað
afl samtengdra orkuvera á
Norðurlandi væru: díselstöðvar
með 13129 kw, vatnsaflsstöðvar
með 20144 kw og jarðgufustöð
með 2600 kw.
Á mestu álagstoppum yrði því
aflskortur á Norðurlandi.
Valur Arnþórsson, stjórnar-
formaður Laxárvirkjunarstjórn
ar, gaf sögulegt yfirlit yfir þró-
un Laxárvirkjunar og gat þess
síðan, að gífurleg aflaukning
hefur orðið á Laxársvæðinu og
hefur mesta samtímisafl þess
mælzt 26.4 MW eða 4 MW meira
en mesta afl á svæðinu 1972.
Þó sé hlutur díselstöðva í orku-
framleiðslu orðinn geygvænlega
mikill ög sé þessi framleiðsla að
verða Laxárvirkjun ofviða.
Sveinbjörn Bjömsson, for-
stöðumaður jarðhitadeildar
Orkustófnunar, ræddi um hita-
veituframkvæmdir á lághita-
svæðum og taldi m. a. að Akur-
eyringar ættu ekki að nýta það
heita vatn sem er í nágrenninu,
heldur snúa sér að öðrum val-
kostum, því heita vatnið myndi
ekki nægja þörf Akureyringa.
Síðan hófust aimennar um-
ræður og tóku fjöhnargir til
máls.
Voru fundarmenn á einu máli
um það að hraða bæri virkj-
unarframkvæmdum sem allra
mest, ella skapaðist algjört
neyðarástand í orkumálum
Norðlendinga. Þó voru fundar-
menn ekki á einu máli hvar
hefja skyldi framkvæmdir og
voru ýmsar leiðir ræddar.
Fundinn sóttu um 45 manns
og áttu meðal annarra alþingis-
menn Norðlendinga, rafveitu-
stjórar og formenn rafveitna
norðanlands rétt til að sitja
fundinn.
Fundi lauk um kl. 19.
(Fréttatilkynning)
fBifreiðiri m
Til sölu mjög góður
Volkswagen árg. ’66
á hagstæðu verði.
Uppl. á Hótel KEA.
Húsnæði
Ungur skólapiltur óskar
eftir herbergi eftir ára-
mótin.
Súni 1-12-84 kl. 7-8
næstu daga.
r Atvinna j
Húsasmiður getur bætt
við sig verkefnum nú
þegar eða síðar í vetur.
Uppl. í síma 2-19-83.
Nýkomið!
Glæsilegt úrval af
AÐALFUNDUR
SAFNAÐAR AKUREYRARKIRKJU
verður haldinn í kirkjukapelluhni að aflokinni
messu sunnudaginn 9. deseniber.
SÓKNARNEENDIN.
Breyll símanúmer
SKRIFSTOFA ............ sími 22830
HEILDSALA .............. - 22831
HÚSVÖRÐUR............... - 22831
VEFNAÐARV.DEILD ...... . - 22832
BÚSÁHÖLD & LEIKF........ — 22833
HERRADEILD ............. - 21730
AIvUREYRI
NÝJAR YÖRUR,
GOTT VERÐ
BARNANÁTTSLOPPAR NO. 2-12
BARNABLÚSSUR
BARNAPILS
BARNAPEYSUR
BARNALOÐKÁPUR
SÍMI 2-28-23.
| Vandið valið, veljið vel
í hannaðan vandaðan
\ varning í verslun vorri.
-€'• •
i Frá Ilrio
| Dúkkuhús
I Tréieikföng
| Fisher, Price
I Sterku leikföngiif j
| Mattel
\ Barbie, Francy
i Skipper Ken og föt á- þau
| Fisher Technik
\ Hlaut Óskarsverðlaun
i leiikfanga 1971.
Í Fyrir grúskara
| Airfix, Revell
} Aurora, Monogram i
| Flug-, skipa- og bíla-
| módel í góðu úrvali
! Humbol litir
I HighRev
| Matchbox
| HotWheels-
Frotle í rúmleppi
Hvítt, gult, grænt, kr. 616,00 pr. mtr.
Jersey efni, hvít, gul, bleik.
Kr. 480,00 pr. mtr.
SÍMI 2-28-23.
Scalextric
Bílabrautir
Straumbreytar I
Lgo |
Lego Dublo
OG VIÐUNDUR
ÁRSINS f
Kvikmyndavél, sem er i
ólýsanleg. I
Komið og sjáið sjálf
eina góða mynd með \
Mikka mús og félögum. |
GLEÐILEG JÓL. {
Foreldrar alhugiS:
Besta úrvalið af ungbarnavörum
fáið j) ér hjá okkur svo sem:
Barnavöggur 3 gerðir.
Barnaburðarrúm 3 gerðir.
Kerrupokar 4 gerðir.
Barnaleikgrindur.
Rólur, (hopprólur og venjulegar).
Göngugrindur með gormum.
Ungbarna-plaststóla.
Háa stóla (7 í einuun).
Brúðuvagnar og kerrur.
Barna-matarstell, 2 gerðir.
— sængurhaldarar.
— pelar, snuð og túttur.
— naghringir og hringlur.
— boltar og ýludýr.
— koppar, 3 litir.
— vermidiskar, 3 litir.
Þetta eru allt tilvaldar jólagjafir.
BRYNJÓLFUR SVEINSSON HF.
| Leikfangamarkaðurinn I
\ Hafnarstræti 96.
BLÓMABÚÐIN LAUFÁS
AUGLÝSIR:
Þjóðhátíðarþlattar,
Bing og Gröndal
7.205,00
Þjóðhátíðarplattar,
Gler og Postulín
2.640,00
Finnskur kristall
nýkominn
Handunnir skartgripir
frá Jens Guðjónssyni
Tékkneskar postulíns-
styttur
Jólatré, fl. gerðir
Iverti og jólaskraut
í miklu úrvali
Sendum gegn póstkröfu
Munið að sækja frátekn-
ar vörur sem allra fyrst.
iiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiMiiiiiiiiUiimiiiiiiiiiiiil,ii,,li,iilil,M,i„,mi,m,„,,,„„,ll,„lll,i,„,imiilll|||l|l|ll