Dagur - 05.12.1973, Page 4
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akurcyri
Sírnar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgöarmaður:
ERLINGUR DAYÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Tvennir tímar
Á MEIRA en tólf ára valdatímabili
„viðreisnar“ lá landhelgismálið í
dauðadái, togaraflotinn grotnaði
niður, frystihúsin svöruðu ekki þeim
stórauknu kröfum, sem erlendir fisk
kaupmenn gerðu til þeirra, þúsundir
manna flúðu land vegna atvinnu-
leysis og vonleysis um framtíðina,
sem „viðreisnin“ varpaði dökkum
skuggum á. Þessi atriði eru alkunn
og minna á sig.
Með nýrri ríkisstjóm urðu snögg
og stórkostleg umskipti, á flestum
sviðum þjóðlífsins. Landhelgismálið
var upp tekið og þjóðin sameinuð
um það, undir forystu Ólafs Jó-
hannessonar forsætisráðherra, og
þarf ekki að rekja það hér, svo
kunnugt er það öllum landsmönn-
um.
Togaraflotinn var ekki endur-
nýjaður í tíð „viðreisnar“ og ríkti
sama vonleysið þar, sem á svo mörg-
um öðrum sviðum atvinnulífsins.
Með stjómarskiptunum og ákvörð-
un um stækkun landhelginnar, var
jafnframt ákveðið að endurnýja
togaraflotann og auka hann, til að
nýta þau fiskimið, sem stækkun fisk-
veiðilandhelginnar veitti þjóðinni.
Síðustu mánuði hafa nýju togaram-
; ir verið að koma til landsins og
; margir þeirra hafa þegar skilað
drjúgum afla á land. í þessu sam-
bandi er þó annað enn athyglisverð-
ara og það er dreifing þeirra um allt
land til þess að skapa betri lífsskil-
yrði á sem flestum útgerðarstöðum.
Hér er sú byggðastefna í verki, sem
mest hefur að kveðið.
Kröfur tímans um fullkomnari
frystihús og fiskvinnslustöðvar eru
miklar og þeim var ekki sinnt undir
„viðreisn“. Þess vegna þurfti þar
stórátak, til að halda hinum hag-
stæðu, erlendu mörkuðuin og stand-
ast á því sviði samkeppni annarra
fiskveiðiþjóða. Nú eru ellefu ný
frystihús í byggingu og er stofn-
kostnaður áætlaður á annan milljarð
króna. Endurbætur á nær tveim tug-
um frystihúsa hafa farið fram eða
standa yfir. En þegar hefur verið
varið til frystihúsanna rúmum tveim
milljörðum króna. Er þetta gífurlegt
átak, svo fjárfrekt sem það er, en
alger forsenda þess að nýta sjávar-
; aflann til útflutnings á hagstæðu
► verði.
í í stað atvinnuleysis í öllum Iands-
► hlutum og landflótta þúsunda ís-
; lendinga á „viðreisnar“-tímanum,
; þurrkaðist atvinnuleysið út og vant-
; ar nú víða vinnandi hendur. í stað
; vonleysisáranna, þegar fólkið trúði
í ekki lengur á framtíð lands og þjóð-
► ar, er nú meiri framfarahugur með
► þjóðinni og bjartsýni en nokkru
► sinni fyrr. Framfarir og bjartsýni
eykst ætíð þegar íhaldið víkur. □
m IORILINZK
TTmmpmnrnra fir
umuMaUuiJifl UuLr
YILT ÞU EIGNAST
HLUT í
TRYGGINGAFÉLAGI ?
1. janúar 1974 öðlast gildi ný lög um vátryggingarstarfsemi. Samkvæmt
þeim skal innborgað hlutafé vátryggingarféiags nema minnst kr. 20
milljónum.
Með hliðsjón af ört vaxandi viðskiptum og batnandi afkomu hefur
stjórn Norðlenzkrar Tryggingar hf. ákveðið að leita eftir auikningu
hlutáfjár meðal einstaklinga og fyrirtækja og bjóða til sölu með al-
mennu hlutafjárútboði kr. 6 milljónir.
Hlutabréfin eru að fjárhæð kr. 5 þúsund, 10 þúsund og 50 þúsund og
hljóða á nafn.
Hlutafjárútboði þessu lýkur 20. desember n. k.
Eiftirtaldir umboðsmenn Norðlenzkrar Tryggingar hf. og aðalskrifstof-
an á Akureyri veita nánari upplýsingar.
Dalvík:
Ólafsfjörður:
Húsavík:
Reykjavík:
Bókhaldsskrifstofan s.f. sími 6-13-19.
Valberg hf. sími 6-22-08.
Árni Jónsson, Asgarðsvegi 16, sími 4-13-19.
Ottó Jónsson, Tjarnarbóli 14, sími 1-34-55.
NORÐLENZK TRYGGING HF.
BP-húsinu við Tryggvabraut. Akureyri. Pósthólf 383 . Sími (96)2-18-44
mjQMVBR
Sími (96)11626 Glerárgötu 32 Akureyri
pSkemmtanin
Eldri dansa klúbburinn
heldur dansleik í
Alþýðuhúsinu laugar-
daginn 8. desember.
Húsið opnað kl. 21.
Miðasala við innganginn
Nemó leikur.
Stjórnin.
Ýmisleqt
Óska eftir að koma 2ja
ára telpu í fóstur eftir
áramót.
Æskilegast setn næst leið-
inni Víðilundur —
miðbær.
Uppl. í síma 1-24-73.
Hraðhreinsunin
Löngumýri 19
OPIÐ FRÁ KL. 1-6.
Kauo :
Fokheld íbúð í raðliúsi
óskast keypt.
Tilboð leggist inn á
afgreiðslu Dags sem
fyrst, merk „RAÐHÚS.“
Spil og töfl í GJAFASETTUM
Leikföng í FEIKNA ÚRVALI
Járn- og Glervörudeild
FRÁ GLIT HF.
Búsáhöld ÚR RYÐFRÍU STÁLI
Utvörp - Sjónvörp
DAGLEGA
miuiHuum
UMSJQN: EINRR HELGHSQN
Afdrifarík mislök dómara
ÞEGAR lítið skilur á milli liða,
verða mistök dómaranna meira
áberandi en ella. Leikur ÍR og
Þórs sl. miðvikudag var glöggt
dæmi um örlagaríkar yíirsjónir
Hannesar Þ. Sigurðssonar og
Karls Jóhannssonar, sem ann-
ars eru einhverjir beztu dómar-
ar okkar. En svo bregðast kross-
tré, sem önnur tré. Því miður
var ég ekki sjónarvottur að
leiknum, en samdóma álit
heimildarmanna minna er, að
fyrrgreind óhappaatvik hafi
valdið því, að ÍR-ingum hlotn-
aðist sigurinn, óverðskuldað.
Mistök þau, sem hér er
minnzt á, voru aðallega fólgin
í því, að dómararnir voru of
fljótir að grípa til flautunnar
þegar brotið var á leikmönnum,
sem voru í góðri aðstöðu til að
skora, þrátt fyrir brotin. Þetta
hafði þær afleiðingar, a. m. k.
þrívegis skoruðu Þórsarar rétt
eftir að flautað hafði verið, og
misstu við það mörk.
Sigur ÍR, 22 mörk gegn 21,
skipar þeim í 7. sæti í deildinni
með 3 stig, jafn mörg og Þór
hefur. ÍR-ingar hafa leikið 5
leiki en Þór 4.
Þórsliðið er á góðri leið með
að vinna sér álit meðai frétta-
manna sunnanblaðanna, sem
flestir hverjir töldu það léleg-
asta liðið í upphafi keppninnar.
Þannig eru tveir leikmanna
Þórs settir í „lið vikunnar" hjá
Morgunblaðinu, Sigtryggur Guð
laugsson, sem skorað hefur 25
mörk í leikjum liðsins, og Þor-
björn Jensson, sem gert hefur
18 mörk. Vonandi eiga fleiri
Þórsarar eftir að vekja slíka
athygli, að þeir verði útnefndir
í gamni- eða alvöruúrvalslið, en
aðalatriðið er, að liðið beri gæfu
til þess að verðskulda heitið lið,
en sé ekki samsafn ósamvinnu-
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8)
ur, er fyrst og fremst verða
keyptar til jólagjafanna í ár,
eins og aS undanförnu.
BÓKAMÁNUÐUR
Síðari hluti nóvembermánaðar
bar sterk einkenni bókaflóðsins,
sem þegar er komið á markað-
inn og eykst dag frá degi, enda
er sá inánuður byrjaður, sem
sérstaklega er miðaður við bók-
sölu hér á landi. Því miður eru
bókakaup ahnennings noltkuð
handahófskennd, bæði vegna
þess, að kaupendumir velja les-
efnið oft ekki handa sjálfum
sér, heldur til að gefa það öðr-
um til glaðningar um jólin, og
af þeirri ástæðu einnig að bæk-
urnar eru ekki nægilega vel
kynntar.
BÓKAÚTGAFA A
AKUREYRI
Hér á Akureyri eru í ár gefnar
út um 20 bækur. Flestar gefur
Bókaforlag Odds Björnssonar
út, eða 12 talsins, en Bókaút-
gáfan Skjaldborg gefur út 7
bækur og aðrir minna. Vera má,
að útgefendur í bænum ættu að
athuga sameiginlega norðlenzka
útgáfu bóka, til að auka liana
og efla. Akureyri á góðar prent-
smiðjur og bókagerðarmenn.
Höfundar og þýðendur eru um
land allt, og þrátt fyrir allt eru
Islendingar bókelskir menn og
miklir kaupendur góðra bóka.
hæfra einstaklinga, sem hver
um sig hugsar um eigin hag en
gleymir samvinnuhugsjóninni.
Styrkur liðsins hefur einmitt
legið í því hversu jafnt liðið er,
og leikmenn samhentir. Áfram
Þór.
Næsti leikur Þórs verður að
öllum líkindum leikurinn við
F. H., sem frestað var á dögun-
um. Ekki er að efa, að íþrótta-
skemman verður þétt skipuð á
þeim leik, því FH-ingarnir hafa
jafnan aðdráttarafl. Heima-
menn verða að veita liðum sín-
um öflugan stuðning með hvatn
ingarhrópum, og skiptir þá ekki
máli hvort um er að ræða Þór
eða KA, eða hvort verið ér að
leika handknattleik, körfuknatt
leik eða eitthvað annað, aðal-
atriðið er áfram með íþróttir
Akureyrarliðanna.
Staðan í 1. deild:
L UJT
F. H.
Valur
Fram
Víkingur
Haukar
Þór
í. R.
Ármann
0 0
Mörk
92:67
100:88
93:92
91:91
94:104
69:79
93:106-
58:61
KA LEK ÞRJA
ÆFINGALEIKI
KA-MENN fóru suður á land
um helgina til þess að leika
æfingaleiki og afla sér með því
reynslu, sem nauðsynleg er
hverju liði. Farið var suður á
föstudag og leikið við Hauka í
Hafnarfirði. Haukar unnu leik-
inn 19—14. Á laugardag léku
KA-menn svo við ÍR-inga og
sigruðu þá með 25 mörkum
gegn 19. Seinasti leikur ferðar-
innar var svo við Víking. Þann
leik unnu KA-menn einnig,
23—22.
Þessi árangur KA er góður,
þegar haft er í huga, að öll liðin
sem leikið var við í ferðinni,
eru í 1. deild.
LEIKIR I 2. DEILD
UM næstu helgi verður mikið
um að vera í íþróttaskemmunni
á Akureyri. Þá verða háðir þar
4 leikir í handboltamóti 2. deild
Á laugardaginn kl. 15.30 leika
KA og KR, og strax að þeim
leik loknum leika Völsungar frá
Húsavík við íþróttabandalag
Keflavíkur.
Á sunnudag hefst keppnin kL
14.00 með leikjum milli Völs-
ungs og KR, og KA og ÍBK.
KA og Þróttur í Reykjavík
eru efst í 2. deild að loknum
tveimur umferðum með 4 stig.
Körfubolti, 2. deild
FLEST bendir nú til þess, að
Þór endurheimti sæti sitt í 1.
deild í körfubolta. Sl. sunnudag
sigraði Þór Hauka frá Hafnar-
firði með 88 stigum gegn 49.
Eftir þennan sigur, sem er sá
fjörði í röð, standa Þórsarar vel
að vígi, og sýnist mér að eini
erfiði hjallinn til sigurs í deild-
inni sé lið ÍMA, sem einnig lék
við Hauka um helgina og vann
þá með talsverðum mun.
Allmikill munur er á getu
liðanna í 1. og 2. deild, og reynzt
getur erfitt fyrir lið, sem vinnur
sig upp í 1. deild að festa sig
þar í sessi. Félagsstarf Þórs er
öflugt um þessar mundir, mörg
járn eru í eldinum og þeir hafa
metnað, sem er hverju liði n.auð
synlegur eigi árangur að nást.
Vinni þeir deildina, sem allgóð-
ar horfur eru á, tekst þeim von-
andi að byggja upp sterkt 1.
deildarlið til frambúðar í deild-
inni.
Það er athyglisvert hvað ÍMA
getur teflt fram sterkum liðum
í hópíþróttum. Eins og fyrr
sagði geta þeir orðið Þór erfiður
hjalli að yfirstíga. Það hlýtur
að vera erfitt fyrir skólalið að
vinna landsmót, en það gæti
vissulega gerzt í körfubolta-
keppni 2. deildar í ár.
Allar líkur eru á að banda-
rískt háskólalið í körfubolta,
sem kemur til landsins um ára-
mótin á vegum Körfuknattleiks
sambands íslands, leiki á Akur
eyri 4. janúar n. k. Þess verður
nánar getið síðar. Q
Sveina- og meyjamóf UNÞ
Á sveina- og meyjamóti UNÞ,
sem haldið var í Ásbyrgi laugar
daginn 11. ágúst sl., urðu helztu
úrslit þessi:
MEYJAR:
100 metra hlaup. sek.
Gréta Ólafsdóttir 14.2
400 metra hlaup. sek.
Ólöf Þórarinsdóttir 77.0
Hástökk. Ú; m.
Gréta Ólafsdóttír 1.45
Langstökk. li m.
Guðrún StefánSdóttir 4.34
Kúluvarp. m.
Sigurrós Þórarinsdóttir 7.06
Kringlukast. m.
Guðrún Stefánsdóttir 23.18
I - i nn, ■ ,
1 ly-—lúJi-Liaiáfii:
SVEINAR:
100 metra hlaup. sek.
Arngrímur Friðgeirsson 12.9
400 metra lilaup. sek.
Þórarinn Guðnason 62.5
800 metra hlaup. mín.
Þórarinn Guðnason 2:29.3
Hástökk. m.
Jón Skúli Sigurgeirsson 1.50
Langstökk. m.
Arngrímur Friðgeirsson 5.34
Þrístökk. m.
Arngrímur Friðgeirsson 16.64
Kúluvarp. m.
Arngrímur Friðgeirsson 11.02
Kringlukast. m.
Arngrímur Friðgeirsson 31.60
Stigahæstu einstaklingar
urðu: stig
Amgrimur Friðgeirsson 30
Þórarinn Guðnason 18
Már Höskuldsson 16
Guðrún Stefánsdóttir 14
Gréta Ólafsdóttir 13
Anna Lára Jónsdóttir 11
Austri á Raufarhöfn vann
mótið í þriðja sinn í röð, og þar
með bikar, sem gefinn var af
F élagi áfengisvarnarnefnda í
Norður-Iúngeyjaj.:sýslu. . Q