Dagur - 23.01.1974, Page 8

Dagur - 23.01.1974, Page 8
Dagur Akureyri, miðvikudaginn 23. jan. 1974 Dömu og herra steinhringar. Mikiö úrval. Arnar Jónsson, Ólafur Axclsson og Þráinn Karlsson í hlutverkum sínum. (Ljósmyndastofa Páls) Haiiinn liáttprúði vel sóttur LEIKFÉLAG AKUREYRAR sýnir nú „Hanann háttprúða", eftir Sean O'Casey við sérlega góða aðsókn og undirtektir. Átta sýningum er þegar lokið og eru leikhúsgestir orðnir um 2000 talsins. Vert er að minna á, að Leik- félagið býður upp á þau kosta- kjör, að hópar, 15 manns eða fleiri, fá 25% afslátt af aðgöngu- miðaverði. Næstu sýningar verða á morg un, fimmtudag, láugardag og sunnudag. □ Dalvík, 21. janúar. Nýr skut- togari kom til Dalvíkur síðdegis á laugardaginn, Björgvin EA 311, eign Útgerðarfélags Dalvík- inga. Togarinn er byggður í Flekkefjord-slipp & Maskin* fabrikk í Skottevike í Noregi og er fimmti af sex togurum, VERKFÖLL FRAMUNDAN? SÁTTAFUNDUR með vinnu- veitendum og Alþýðusambandi íslands var haldinn í gær. Yfir 20 aðaldarfélög hafa nú fengið heimild til vinnustöðv- unar. Margir fundir voru um helgina og væntanlega verða öll aðildarfélögin búin að halda félagsfundi í vikulokin. Ef ekki takast sættir fyrir þann tíma, er félögin hafa feng- ið heimild til vinnustöðvunar, verður ákvörðun um vinnu- stöðvun tekin í samráði við samninganefndirnar. Lágmarks- tími frá því ákvörðun um vinnu stöðvun er tekin og þar til hún skellur á eru sjö dagar. Loðnuverð SAMKOMULAG náðist á fundi yfirnefndar Verðlagsráðs sjávar útvegsins um lágmarksverð á loðnu til bræðslu á loðnuvertíð- inni 1974. FrÉj 1. janúar til 20 febrúar, kr. 3,75 fyrir hvert kg, frá 21. febrúar til 10. marz, kr. 3,35 fyrir hvert kg; frá 11. marz til 31. marz, kr. 2,95 fyrir hvert kg og frá 1. apríl til 15. maí, kr. 2,65 fyrir hvert kg. Auk framangreinds verðs greiði kaupendur 23 aura á hvert kg í loðnuflutningasjóð. Verðið var ákveðið með sam- i er korninn til Dalvíkur sem þar eru byggðir fyrir ís- lendinga. Skipið er 407 brúttólestir, 46.6 metra langt og 9.5 metra breitt. Aðalvél er af Vikkmann-gerð, 1750 hestöfl, og hjálparvélar tvær af Volvo-gerð, 230 hestöfl með 195 kw Stanford rafal. Tog- vindur eru framleiddar af Brussel og er aðaltogvinda raf- drifin. Skipið er búið tækjum til vatns- og ísframleiðslu, svo og öllum siglinga- og fiskileitar- tækjum af fullkomnustu gerð. Fiskilestar eru um 370 rúmlest- ir og eru innréttaðar fyrir fisk- kassa að hálfu en með stíum að hálfu. Auk venjulegs togbúnaðar, er skipið búið flotvörpuútbúnaði af fullkomnustu gerð. Skipstjóri er Sigurður Har- aldsson, fyrsti vélstjóri Hilmir Sigurðsson og fyrsti stýrimaður Vigfús Jóhannesson. Gert er ráð fyrir, að skipið fari til veiða síðdegis á morgun. Þegar skipið lagðist að bryggju um hálf sex á laugar- daginn, ávarpaði Valdimar Bragason sveitarstjóri viðstadda og Karlakór Dalvíkur söng. Hilmar Daníelsson útgerðar- félagsstjórnarformaður bauð fólki að skoða skipið eftir há- degi á sunnudag og Dalvíking- um til kaffidrykkju á Víkurröst og Barnaskólanum, ungum og gömlum. J. H. ýjar vélar setlar í Sauðárkróki, 22. janúar. Miklar framkvæmdir standa nú yfir hjá Mjólkursamlagi Kaupfélags Skagfirðinga. Verið er að endur nýja véla- og tækjakost sam- lagsins. Voru nýjar vélar keypt- ákveðið hljóða atkvæðum allra yfir- nefndarmanna, sem voru Jón Sigurðsson hagrannsóknarstjóri, sem var oddamaður nefndar- innar, Guðmundur Kr. Jónsson og Jón Reynir Magnússon af hálfu loðnukaupenda og Ingólf- ur Ingólfsson og Kristján Ragn- arsson af hálfu loðnuseljenda. Loðnuverðið í fyrra var kr. 1,96 fyrir hvert kg fram til 1. marz', en eftir þann tíma kr. 1,76 fyrir hvert kg. Þá greiddu kaup endur 15 aura í loðnuflutninga- sjóð á kílóið. □ ar frá Svíþjóð og komu fjórir sænskir vélamenn nú í byrjun janúar til að setja þær niður með mönnum frá Véla- og raf- mgansverkstæði kaupfélagsins. Jafnframt er unnið að endur- bótum á mjólkursamlagshúsinu, einkum með bættri aðstöðu starfsfólksins og annast Tré- smíðaverkstæði K. S. um þær viðgerðir. Mjólkursamlag K. S. byggði þessa mjólkurstöð 1949—1950 og flutti í stöðina 1951. Þá var inn- vegið mjólkurmagn 2.64710 kg, en á síðasta ári var mjólkur- magnið 9.35274 kg og sýna þess- ar tölur hve íramleiðsluaukn- ing mjólkur hefur verið mikil á þessu tímabili, enda orðin mikil þrengsli. Forráðamenn kaupfélagsins hyggja á byggingu nýs mjólkur samlagshúss áður en langt líður. Starfsmenn samlagsins voru 11 þegar 1951, en eru 19 nú. Áætlað er að framkvæmdum Engin fréft lengur þótt fé finnist Gunnarsstöðum, Þistilfirði, 21. janúar. Einn ágætur nágranni ságði við mig um daginn, að þegar menn hefðu hita, ljós, nægilegt að eta og drekka og væru heilbrigðir, væri óþarft að kvarta yfir vetrarveðri um há- vetur. Undir þetta tek ég með honum. Það þarf enginn að kippa sér upp við það norður við Norðurheimskautsbaug þótt vetrarveður sé á þessum árs- tíma. Og ég held, að fólkinu líði vel. Það er snjór og það eru svell, samgöngur erfiðar, jeppafært innansveitar, ófært til Raufarhafnar og Vopnafjarð- ar, einnig til Bakkafjarðar eins og er. Það hefur ekkert verið mokað síðan um áramót. Sjómenn eru byrjaðir að leggja net sín og munu sex bát- ar gera út á net núna, 20—50 tonn að stærð. Þegar þeir fara að fiska verður nægileg atvinna. Flestir karlmenn hafa þó haft næga vinnu, en konur vantar frystihúsvinnu þar til afli glæðist. Alltaf er að finnast fé. Það er nú orðið svo algengt, að það er bara engin frétt að segja frá því. Um daginn fór Indriði bóndi í Syðri-Brekkum á vél- sleða tvær ferðir inn í Tungu- selsheiði og kom með fjórar kindur, fyrst tvær ær vetur- gamlar og lamb og síðan eitt lamb, sem var orðið illa farið. Um áramótin kom dilkær niður að sjó rétt við Þórshöfn, úti- gengin. Um daginn frétti ég, að útigengnar kindur hefðu komið heim að Leifsstöðum í Axar- firði, dilkær. En allt er þetta að verða mikið umhugsunarefni, því að naumast finnst allt fé, sem úti gengur. Drepst það ef- lnust fiest í hörðum vetrum, en stöku kind tórir. Ó. H. Fundu folaldshryssu í hólma í F riðmundar vatni Ási í Vatnsdal, 21. janúar. Ekki er nú hægt að segja að hér sé mikill snjór, en það er harð- fenni og víða svellalög. Er svip- að að segja upp á heiðum. Sæmi leg hestaganga er þó held ég víðast hvar, nema kannski á fremstu bæjum í dalnum. Þetta er verra í Svínavatnshreppi og raunar hingað og þangað. Hins vegar eru allir vegir færir og samgöngur því eðlilegar hér um slóðir. Tveir menn fóru nýlega upp á heiði til að leita hrossa og kinda. Fundu þeir folaldshryssu í víði- vöxnum hólma í Friðmundar- vatni og komu henni verulega áleiðis til byggða. Þessir menn töldu nær jarðlaust á heiðinni. Á Blönduósi er teflt og spilað af kappi. G. J. Nú fara menn hina leiSina til Austurlandsins Grímsstöðum, 21. janúar. Víði- dalsmenn áttu kindur í Lamba- fjöllum, sem þeir vissu um og ætluðu að sækja fyrir jólin. En þá gaf ekki og voru þær sóttar nú fyrir skömmu og var ekkert að. Nokkrar kindur voru einnig frá Möðrudal, en alls voru kind- urnar 21 talsins. rsamlag K=S. þeim, sem yfir standa ljúki í marz eða apríl. Samlagsstjóri er Jóhann Salberg Þorsteinsson. Togararnir afla allvel og næg vinna er í báðum frystihúsun- um. Nú er orðið liaglítið fyrir hross, því að spilliblotar hafa komið og eyðilagt beitina. Má heita, að haglaust sé um allt héraðið fyrir allar skepnur. Hrossaeigendur eru því farnir að gefa út og eiga menn nægi- leg hey til þess. G. Ó. Lambafjöllin eru vestur af Víðidal og er dálítið gott hag- lendi þar, sunnan Skarðsár. Snjórinn er orðinn harður, því öðru hvoru hefur bleytt í, og má því teljast haglaust með öllu fyrir sauðfé. En eitthvað af hrossum gengur enn úti, en ef snjóalög breytast ekki, verður hugað að þeim innan tíðar. Það er einstaklega rólegt hér, og jafnframt tíðindalaust. Fólk annast sín daglegu störf, eins og gengur og gerist, og öðru hvoru sækjum við póst til Mývatns- sveitar á vélsleða. Hér fóru bílar síðast um fyrir miðjan mánuðinn, en þá komu Norðurverksmenn að austan og héldu til Akureyrar og voru með snjóruðningstæki með sér og ruddu leiðina. Vegurinn hélst svo opinn í nokkra daga, en lokaðist þá. Þungaflutning- um nú um háveturinn, til Aust- urlands, er valin hin leiðin nú í vetur, þótt hún hafi svo sem ekki reynzt hindrunarlaus. K. S. UM helgina fór fram stjórnar- kjör í Verkalýðsfélaginu Ein- ingu á Akureyri. Tveir listar voru í framboði. A-listi, listi stjórnar og trúnaðarráðs með Jón Ásgeirsson, sem formanns- efni, og B-listi, listi Jóns Helga- sonar og fleiri. Atkvæði voru talin í fyrra- kvöld, og hlaut A-listinn 373 atkvæði, en B-listinn, listi Jóns Helgasonar, hlaut 690 atkvæði. Auðir seðlar voru 5 og ógildir 3. Talning fór fram í félagsheimili Einingar, Þingvallastræti 14, og eru úrslitin glögg. Q

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.