Dagur - 20.03.1974, Síða 1
Vilja úrbæfyr
á Akureyrar-
flugvellinum
Sigurður Óli Brynjólfsson forseti þingsins í ræðustól. Ingi Tryggvason flytur skýrslu stjórnarinnar.
Sextánda kj ördæmisþingid
LAGT var fram í bæjarráði 7.
marz sl. bréf frá Félagi ís-
lénzkra atvinnuflugmanna dags.
1. marz sl., þar sem vakin er
athygli bæjarstjórnar Akureyr-
ar á nauðsyn bættrar aðstöðu á
Akureyrarflugvelli, sem stuðla
mundi að auknu öryggi og betri
flugsamgöngum, þ. e. fjölgun
flugdaga.
Bendir F.Í.A. á að nauðsyn-
legt sé að lengja flugbrautina
til norðurs um a. m. k. 500
metra, en með því móti yrði
flugvöllurinn nothæfur sem
varavöllur fyrir flugvélar af
gerðinni Boeing 727 á öllum
tímum árs, og þá um leið not-
hæfur fyrir vélar þessar til áætl
unarflugs. Einnig bendir F.Í.A.
á að mikilsvert öryggisatriði sé
að setja upp „leiðarljós“
(circling lights) fyrir aðflug og
lendingar til norðurs.
Bæjarráð lftur svo á, að hér
sé um að ræða brýnt hagsmuna
mál Akureyrar og stórs hluta
Norðui'lands og mælir eindregið
með því við samgönguráðu-
neytið og Alþingi, að hraðað
verði svo sem kostur er fjár-
veitingum til Akureyrarflug-
vallar, svo unnt sé að koma sem
fyrst í framkvæmd þeim úrbót-
um, sem F.Í.A. bendir á. □
LODNA veiðist nú við Snæfells
nes og reynist mikið af henni
ágætt til frystingar. Þróarrými
er þrotið í Faxaflóahöfnum og
hafa skipin flest haldið til Vest-
mannaeyja til losunar.
Samkvæmt skýrslu Fiski-
félagsins var heildarafli loðnu
á þessari vertíð orðin 391.844
lestir, en var á sama tíma í fyrra
var aflinn 345 þús. lestir. Afla-
hæstur þá var Guðmundur RE
með 11.584 lestir og Börkur með
litlu minni afla. Eitt hundrað
skip höfðu á sama tíma fengið
þúsund lestir eða meira.
Loðnu hefur verið landað í
26 höfnum. Mestu hefur verið
landað í Vestmannaeyjum,
62.814 lestum, en í Reykjavík
var búið að landa 39.123 lestum.
Þá hefur 34.068 lestum verið
landað á Seyðisfirði og 30.486
lesum í Neskaupstað.
Búið er að frysta um 17.700
lestir af loðnu, en það er heldur
meira magn en fryst var í fyrra.
Fiskifræðingar hafa ekki átt-
að sig á hinni miklu veiði ágætr
Prentaraverkfall?
TRÚNAÐARMANNARÁÐS-
FUNDLTR j'Hinu íslenzka prent
arafélagi samþykkti á mánudag
inn, að verkfall prentara skuli
hefjast aðfararnótt miðvikudags
ins 27. marz n. k., hafi samning-
ar ekki náðzt fyrir þann tíma
við Félag íslenzka prentiðnaðar-
ins og rikisprentsmiðjuna
Gutenberg. □
SEXTÁNDA kjördæmisþing
Framsóknarmanna í Norður-
landskjördæmi eystra var hald-
ið á Hótel Varðborg á Akureyri
16. marz. Það var mjög vel sótt,
enda samgöngur ágætar, og
áhuginn vakandi. Þingið hófst
kl. 10 árdegis og voru þá flestir
þingfulltrúar mættir.
Formaður Kjördæmissam-
bandsins, Ingi Tryggvason, setti
þingið með ávarpi, bauð gesti
velkomna, rakti þær ástæður,
ar loðnu vestan við land, segjast
ekki vita, hvort loðna þessi sé
ltomin vestan frá Grænlandi, af
íslenzkum uppruna þó, eða að
hún hafi farið vestur fyrir land
og hafi þannig komið að norðan,
eða hún hafi komið í slóð ann-
arra loðnugangna, sem komið
hafa norðan úr hafi, haldið suð-
ur með Austurlandi, vestur með
Suðurlandi og áfram til Faxa-
flóa og Breiðafjarðar. Vegir
loðnunnar eru ekki að fullu
rannsakaðir. □
Á kjördæmisþinginu.
er lágu til þessa óvenjulega þing
tíma, en kjördæmisþingin hafa
venjulega verið haldin á haust-
in, en var frestað sl. haust af
ástæðum, er taka varð tillit til.
Þá lýsti hann því einnig, hvers
vegna nú yrði eins dags þing í
stað tveggja. Þá minntist hann
Gísla Guðmundssonar alþingis-
manns, er svo stóran þátt átti í
mótun og störfum fyrri kjör-
dæmisþinga. Risu þingfulltrúar
úr sætum til virðingar við hinn
látna, virta og vinsæla þing-
mann kjördæmisins.
Að venju var skipuð nefnda-
nefnd og var formaður Guð-
mundúr Sigurðsson og kjör-
bréfanefnd, en hennar formaður
var Sigurður Jónsson.
Aðalforseti þingsins var kjör-
inn Sigurður Oli Brynjólfsson
og varaforsetar Hilmar Daníels-
son og Sigurður Jónsson.
Þingritarar voru Aðalbjörn
Gunnlaugsson, Björn Hólm-
steinsson og Björn Stefánsson.
Að kosningum þessum lokn-
um flutti Ingi Tryggvason
skýrslu um störf stjórnar kjör-
dæmissambandsins og skrifstof-
unnar á Akureyri, sölu happ-
drættismiðanna, sumarferðina
til Grímseyjar, sumarhátíðina,
sem var haldin á þrem stöðum,
árshátíðir tvær, Framsóknar-
vistirnar, stjórnmálafundina
víðsvegar um héraðið o. s. frv.
Gjaldkeri sambandsins, Bald-
ur Halldórsson, las og skýrði
reikningana. Þeir sýndu, að
eignir eru meiri en skuldir en
Skagaströnd, 17. marz. Rækju-
miðin hafa gefið bátunum á
Skagaströnd góða veiði í vetur.
Fjórir bátar stunduðu veiðarn-
ar, en einn þeirra er nú farinn
suður á vertíð og annar mun
vera að búa sig á grásleppu-
veiði. í fyrstu var hámarksafl-
inn miðaður við 1500 tonn hér
á Húnaflóanum, en síðan var
bætt við 300 tonna veiðiheimild.
Skuttögarinn Arnar kom á mið-
vikudaginn með 123 tonn af
fiski eftir átta daga veiðiferð.
Illviðri hafa tafið veiðar í vetur
en oft er veiði góð, þegar gefur
og á Skagaströnd er mikið að
gera.
(Fr. Vestuiann tók myndirnar)
sjóðir þess eru þó fremur léttir.
Reikningarnir voru samþykktir.
Þá fluttu alþingismenn erindi,
svo sem venja er á kjördæmis-
þingum, þeir Ingvar Gíslason,
Stefán Valgeirsson og Jónas
Jónsson, en síðar á þinginu
einnig Heimir Hannesson. Var
(Framhald á blaðsíðu 7)
Á aðra viku hefur veður ver-
ið fádæma gott, logn og sólskin
á hverjum degi. Snjór er að
mestu farinn, nema þar sem stór
fenni var, og samgöngur eru
alveg ágætar.
Leikfélag Hvammstanga kom
hingað og sýndi Tengdamömmu
undir leikstjórn Erlings Hall-
dórssonar og var aðsókn allgóð.
Við höfum ekki séð okkur fært
að setja upp leikrit með aðstoð
lærðs leikara, því að sú aðstoð
mun kosta svo mikið fé að telja
má okur.
Eins og stundum sðgir í frétt-
um, fjölgar fólki hér heldur og
ný íbúðarhús stækka byggðina,
enda hefur atvinna verið góð.
Fæðingar heimafyrir eru þó
færri en ætla mætti, og mun
mikil notkun pillunnar eiga
sinn þátt í því. Nú virðist pillu-
átið heldur fara rénandi og sér
þess nokkur merki. X.
Skattafrumvarpið
samþykkt í dag?
SAMKVÆMT fregnum að sunn
an um klukkan 5 síðdegis í gær,
leit út fyrir, að margumtalað
skattafrumvarp ríkisstjórnarinn
ar um lækkun tekjuskatts og
hækkun söluskatts yrði sam-
þykkt í neðri deild Alþingis í
dag.
Samkomulag náðist við Al-
þýðuflokkinn um 4% söluskatt,
í stað 5%, sem var í stjórnar-
frumvarpinu. Mun forsætisráð-
herra hafa beitt sér fyrir sam-
komulagi við stjórnarandstöðu-
flokkana með þessum árangri
hjá Alþýðuflokknum. □
PilEuálið er rrú aðeins í rémin