Dagur


Dagur - 20.03.1974, Qupperneq 1

Dagur - 20.03.1974, Qupperneq 1
Vilja úrbæfyr á Akureyrar- flugvellinum Sigurður Óli Brynjólfsson forseti þingsins í ræðustól. Ingi Tryggvason flytur skýrslu stjórnarinnar. Sextánda kj ördæmisþingid LAGT var fram í bæjarráði 7. marz sl. bréf frá Félagi ís- lénzkra atvinnuflugmanna dags. 1. marz sl., þar sem vakin er athygli bæjarstjórnar Akureyr- ar á nauðsyn bættrar aðstöðu á Akureyrarflugvelli, sem stuðla mundi að auknu öryggi og betri flugsamgöngum, þ. e. fjölgun flugdaga. Bendir F.Í.A. á að nauðsyn- legt sé að lengja flugbrautina til norðurs um a. m. k. 500 metra, en með því móti yrði flugvöllurinn nothæfur sem varavöllur fyrir flugvélar af gerðinni Boeing 727 á öllum tímum árs, og þá um leið not- hæfur fyrir vélar þessar til áætl unarflugs. Einnig bendir F.Í.A. á að mikilsvert öryggisatriði sé að setja upp „leiðarljós“ (circling lights) fyrir aðflug og lendingar til norðurs. Bæjarráð lftur svo á, að hér sé um að ræða brýnt hagsmuna mál Akureyrar og stórs hluta Norðui'lands og mælir eindregið með því við samgönguráðu- neytið og Alþingi, að hraðað verði svo sem kostur er fjár- veitingum til Akureyrarflug- vallar, svo unnt sé að koma sem fyrst í framkvæmd þeim úrbót- um, sem F.Í.A. bendir á. □ LODNA veiðist nú við Snæfells nes og reynist mikið af henni ágætt til frystingar. Þróarrými er þrotið í Faxaflóahöfnum og hafa skipin flest haldið til Vest- mannaeyja til losunar. Samkvæmt skýrslu Fiski- félagsins var heildarafli loðnu á þessari vertíð orðin 391.844 lestir, en var á sama tíma í fyrra var aflinn 345 þús. lestir. Afla- hæstur þá var Guðmundur RE með 11.584 lestir og Börkur með litlu minni afla. Eitt hundrað skip höfðu á sama tíma fengið þúsund lestir eða meira. Loðnu hefur verið landað í 26 höfnum. Mestu hefur verið landað í Vestmannaeyjum, 62.814 lestum, en í Reykjavík var búið að landa 39.123 lestum. Þá hefur 34.068 lestum verið landað á Seyðisfirði og 30.486 lesum í Neskaupstað. Búið er að frysta um 17.700 lestir af loðnu, en það er heldur meira magn en fryst var í fyrra. Fiskifræðingar hafa ekki átt- að sig á hinni miklu veiði ágætr Prentaraverkfall? TRÚNAÐARMANNARÁÐS- FUNDLTR j'Hinu íslenzka prent arafélagi samþykkti á mánudag inn, að verkfall prentara skuli hefjast aðfararnótt miðvikudags ins 27. marz n. k., hafi samning- ar ekki náðzt fyrir þann tíma við Félag íslenzka prentiðnaðar- ins og rikisprentsmiðjuna Gutenberg. □ SEXTÁNDA kjördæmisþing Framsóknarmanna í Norður- landskjördæmi eystra var hald- ið á Hótel Varðborg á Akureyri 16. marz. Það var mjög vel sótt, enda samgöngur ágætar, og áhuginn vakandi. Þingið hófst kl. 10 árdegis og voru þá flestir þingfulltrúar mættir. Formaður Kjördæmissam- bandsins, Ingi Tryggvason, setti þingið með ávarpi, bauð gesti velkomna, rakti þær ástæður, ar loðnu vestan við land, segjast ekki vita, hvort loðna þessi sé ltomin vestan frá Grænlandi, af íslenzkum uppruna þó, eða að hún hafi farið vestur fyrir land og hafi þannig komið að norðan, eða hún hafi komið í slóð ann- arra loðnugangna, sem komið hafa norðan úr hafi, haldið suð- ur með Austurlandi, vestur með Suðurlandi og áfram til Faxa- flóa og Breiðafjarðar. Vegir loðnunnar eru ekki að fullu rannsakaðir. □ Á kjördæmisþinginu. er lágu til þessa óvenjulega þing tíma, en kjördæmisþingin hafa venjulega verið haldin á haust- in, en var frestað sl. haust af ástæðum, er taka varð tillit til. Þá lýsti hann því einnig, hvers vegna nú yrði eins dags þing í stað tveggja. Þá minntist hann Gísla Guðmundssonar alþingis- manns, er svo stóran þátt átti í mótun og störfum fyrri kjör- dæmisþinga. Risu þingfulltrúar úr sætum til virðingar við hinn látna, virta og vinsæla þing- mann kjördæmisins. Að venju var skipuð nefnda- nefnd og var formaður Guð- mundúr Sigurðsson og kjör- bréfanefnd, en hennar formaður var Sigurður Jónsson. Aðalforseti þingsins var kjör- inn Sigurður Oli Brynjólfsson og varaforsetar Hilmar Daníels- son og Sigurður Jónsson. Þingritarar voru Aðalbjörn Gunnlaugsson, Björn Hólm- steinsson og Björn Stefánsson. Að kosningum þessum lokn- um flutti Ingi Tryggvason skýrslu um störf stjórnar kjör- dæmissambandsins og skrifstof- unnar á Akureyri, sölu happ- drættismiðanna, sumarferðina til Grímseyjar, sumarhátíðina, sem var haldin á þrem stöðum, árshátíðir tvær, Framsóknar- vistirnar, stjórnmálafundina víðsvegar um héraðið o. s. frv. Gjaldkeri sambandsins, Bald- ur Halldórsson, las og skýrði reikningana. Þeir sýndu, að eignir eru meiri en skuldir en Skagaströnd, 17. marz. Rækju- miðin hafa gefið bátunum á Skagaströnd góða veiði í vetur. Fjórir bátar stunduðu veiðarn- ar, en einn þeirra er nú farinn suður á vertíð og annar mun vera að búa sig á grásleppu- veiði. í fyrstu var hámarksafl- inn miðaður við 1500 tonn hér á Húnaflóanum, en síðan var bætt við 300 tonna veiðiheimild. Skuttögarinn Arnar kom á mið- vikudaginn með 123 tonn af fiski eftir átta daga veiðiferð. Illviðri hafa tafið veiðar í vetur en oft er veiði góð, þegar gefur og á Skagaströnd er mikið að gera. (Fr. Vestuiann tók myndirnar) sjóðir þess eru þó fremur léttir. Reikningarnir voru samþykktir. Þá fluttu alþingismenn erindi, svo sem venja er á kjördæmis- þingum, þeir Ingvar Gíslason, Stefán Valgeirsson og Jónas Jónsson, en síðar á þinginu einnig Heimir Hannesson. Var (Framhald á blaðsíðu 7) Á aðra viku hefur veður ver- ið fádæma gott, logn og sólskin á hverjum degi. Snjór er að mestu farinn, nema þar sem stór fenni var, og samgöngur eru alveg ágætar. Leikfélag Hvammstanga kom hingað og sýndi Tengdamömmu undir leikstjórn Erlings Hall- dórssonar og var aðsókn allgóð. Við höfum ekki séð okkur fært að setja upp leikrit með aðstoð lærðs leikara, því að sú aðstoð mun kosta svo mikið fé að telja má okur. Eins og stundum sðgir í frétt- um, fjölgar fólki hér heldur og ný íbúðarhús stækka byggðina, enda hefur atvinna verið góð. Fæðingar heimafyrir eru þó færri en ætla mætti, og mun mikil notkun pillunnar eiga sinn þátt í því. Nú virðist pillu- átið heldur fara rénandi og sér þess nokkur merki. X. Skattafrumvarpið samþykkt í dag? SAMKVÆMT fregnum að sunn an um klukkan 5 síðdegis í gær, leit út fyrir, að margumtalað skattafrumvarp ríkisstjórnarinn ar um lækkun tekjuskatts og hækkun söluskatts yrði sam- þykkt í neðri deild Alþingis í dag. Samkomulag náðist við Al- þýðuflokkinn um 4% söluskatt, í stað 5%, sem var í stjórnar- frumvarpinu. Mun forsætisráð- herra hafa beitt sér fyrir sam- komulagi við stjórnarandstöðu- flokkana með þessum árangri hjá Alþýðuflokknum. □ PilEuálið er rrú aðeins í rémin

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.