Dagur - 20.03.1974, Blaðsíða 8
Baguk
Akureyri, miðvikudaginn 20. marz 1974
Silfurfingur-
bjargir.
Fermingar-
gjafir,
mikiö úrval.
VERKS
SMÁTT & STÓRT
FYRIR rúmri viku var undir-
ritaður samningur Akureyrar-
kaupstaðar og ríkisins annars
vegar og Gísla Sigurðssonar
hins vegar, fyrsti verksamning-
urinn við nýja sjúkrahúsið og
undirritaði Stefán Revkjalín
samninginn fyrir bæjarins
hönd. En nýja sjúkrahúsið er
sameign ríkis og bæjar, þar sem
hlutur ríkisins er 85 hlutir á
móti 15 hlutum bæjarins.
Verksamningurinn var um
útgröft fyrir nýju sjúkrahús-
bygginguna, fyrsta áfanga, og
hljóðaði upp á rúmar 4.6 millj-
ónir. í þetta verk bárust þrjú
tilboð frá Akureyri og eitt frá
Reykjavík. Hæsta tilboðið var
um 7.6 milljónir, en tilboð Gísla
Sigurðssonar á Akureyri var
lægst eða rúmar 4.6 milljónir
króna. Verðtilboð það, er hér
um ræðir, var að grafa út um
23 þúsund rúmmetra jarðvegs.
Á verkinu að vera lokið fyrir
10. júní og er þá vonast til, að
þá verði unnt að hefja bygging-
arframkvæmdir, sem einnig
verða boðnar út í allstórum
einingum, stig af stigi.
Öll verður þessi bygging 78
þús. rúmmetrar eða fimm sinn-
um stærri en núverandi sjúkra-
hús á Akureyri. í ár eru 40
milljónir króna til nýbyggingar
þessarar, 30 frá ríkinu og 10 frá
Akureyrarkaupstað, sem nú
hefur ætlað sér stærri hlut við
upphaf framkvæmda en tilskilið
er, samkvæmt hinum nýju lög-
um og áður sagði um skipting-
una milli ríkis og bæjar. All-
miklum upphæðum hefur verið
varið til teikninga og hönnunar
fyrir margskonar undirbúning
framkvæmdanna.
Byggingarnefndin: Gauti Arn
þórsson, Hreinn Óskarsson,
Jakob Frímannsson, Jón G.
Sólnes, Stefán Reykjalín, for-
maður, Steián Þórarinsson.
BÆJAR STJORNARFULL-
TRÚAR í Húsavíkurkaupstað
eru níu. Framsóknarflokkurinn
hefur tvo fulltrúa, Finn Krist-
jánsson og Guðmund Bjarna-
son, Alþýðuflokkurinn hefur
einnig tvo, þá Arnljót Sigurjóns
son og Einar Friðrik Jóhannes-
son. Sjálfstæðisflokkurinn hefur
einn bæjarfulltrúa, Jón Ármann
Árnason. Sjötta fulltrúann hlaut
H-listinn, Ásgeir Kristjánsson,
en þrjá fulltrúa hlaut I-listinn,
listi sameinaðra kjósenda er
frjálslyndir báru fram og ýmsir
aðrir, vegna læknadeilunnar.
Fulltrúar hans eru: Jóhann Her
mannsson, Jóhanna Aðalsteins-
dóttir og Guðmundur Þorgríms-
son,- og mynda þeir minnihluta
bæjarstjórnar, en hinir fulltrú-
arnir, sex að tölu, hinn ráðandi
meirihluta. Bæjarstjórinn er
Haukur Harðarson.
Framkvæmdir eru miklar á
Húsavík, svo sem oft kemur
fram í fréttum þaðan, og fólk-
inu fjölgar. □
ÁL OG MEIRA ÁL
„Viðreisnar“-stjórnin hafði
mikla trú á stórvirkjunum til
þess a'ð selja raforkuna erlend-
um fyrirtækjum, einkum til ál-
bræðslu. Þetta gekk svo langt,
að álbræðslur urðu einskonar
kjörorð íhaldsins. Það samdi
um sölu í þessu skyni á lielm-
ingi raforkunnar í landinu til
langs tíma fyrir lítinn pening og
lét sig dreyma um tuttugu ál-
bræðslur. Ihaldið í „viðreisnar“-
stjórninni hafði hins vegar litla
trú á fiskveiðum og landbúnaði,
taldi þá atvinnuvegi naumast
við hæfi í nútímaþjóðfélagi, sem
undirstöðuatvinnuvegi! Stór-
virkjanir syðra voru m.a. byggð
ar á hugsjóninni um orkusölu
handa álfyrirtækjum.
MARGT GLEYMDIST
Það var margt, sem gleymdist
þegar mönnum var ekki sjálf-
rátt og hugsuðu í áli. Landbún-
aðurinn var sveltur, togaraflot-
inn grotnaði niður, fiskvinnslu-
stöðvarnar svöruðu ekki kalli
erlendra kaupenda afurðanna,
og í landhelgismálinu heyrðist
hvorki hósti eða stuna, nema að
Lisii Framsóknarflokksins við bæjarstjórnarkosningarnar á Húsavík
1. Haraldur Gíslason,
mjólkurbússtjóri.
2. Guðmundur Bjarnason,
bankafulltrúi.
3. Egill Olgeirsson,
rafmagnstæknifr.
4. Jónína Hallgrímsdóttir,
húsfrú.
5. Tryggvi Finnsson,
f ramkvæmdast jóri.
6. Ingimundur Jónsson,
kennari.
7. Aðalsteinn Jónasson,
húsasmiður.
8. Haukur Haraldsson,
mjólkurfræðingur.
9. Bergþóra Bjarnadóttir,
húsfrú.
10. Sigurður V. Olgeirsson,
skipstjóri.
11. Stefán P. Sigurjónsson,
bifreiðastjóri.
12. Árni Björn Þorvaldsson,
bifvélavirki.
13. Þorsteinn Jónsson,
yfirgjaldkeri.
14. Kristján Benediktsson,
bifreiðastjóri.
15. Kári Pálsson,
verkamaður.
16. Stefán Hjaltason,
skrifstofumaður.
17. Jóhann Skaptason,
sýslumáður.
18. Finnur Kristjánsson,
kaupfélagsstjóri.
Haraldur Gíslason.
Guðmundur Bjarnason.
Egill Olgeirsson.
Jónína Hallgrímsdóttir.
Tryggvi Finnsson.
Ingimundur Jónsson.
útlendir menn myndu veiða fisk
inn við ísland og því bæri að
snúa sér að verksmiðjuvinnu
lijá erlendum mönnum og selja
þeim ódýra raforku. Þá var
íhaldsstjórn.
NORÐURLAND GLEYMDIST
Það var virkjað syðra og það
var virkjað fyrir vestan, og það
var hafin virkjun við Lagarfoss.
En Norðurland varð útundan og
engin virkjun gerð þar undir
„viðreisn". Norðurland allt þarf
að sameinast um virkjunarmál-
in. Nú þegar þarf að hefjast
handa um Kröfluvirkjun eða
aðra hagstæða virkjun, sama
hvar hún er á Norðurlandi,
einnig að samtengja virkjanir,
bæði á Norðurlandi og milli
landshluta.
VINNAN GÖFGAR MANNINN
Sjaldan hefur verið meira unnið
hér á landi en nú, síðan hin
alhliða uppbygging um land allt
hófst, með núverandi stjómar-
stefnu og góðæri í framleiðslu
og erlendum mörkuðum. Vinn-
an göfgar manninn, segir gamalt
spakmæli og samkvæmt því
ætti manngöfginni ekki að hafa
hnignað að undanfömu. En
margir hafa unnið svo mikið, að
með nokkrum rétti má nefna
það vinnuþrælkun. Stafar það
bæði af liinni miklu vinnuþörf
atvinnuveganna og eins hinu,
að hinar miklu lífsþægindakröf-
ur okkar tíma leggja lióflitlar
(Framhald á blaðsíðu 4)
Aðalsteinn Jónasson.
Haukur Haraldsson.
Bcrgþóra Bjarnauóttir.
ian er
farin að veiðas!
TALIÐ ER, að á fimmta hundr-
að bátar, flestir á Norðurlandi,
hafi stundað glúsleppuveiði í
fyrravetur og fram á vor. Hrogn
in voru þá enn í háu verði og
þótt lítið hafi um verð grásleppu
hrogna heyrzt í ár, eru fjölda
margir sjómenn að búa sig und-
ir þessar veiðar og jafnvel farn-
ir að leggja net sín. Samkvæmt
fyrstu fregnum, er grásleppan
vart gengin á hin venjulegu mið
ennþá og hefur lítið veiðzt. Hins
vegar veiðist rauðmagi, enda
gengur hann fyrr. En sjómenn
sækjast lítt eftir honum, vegna
þess að hann þykir ekki nægi-
lega verðmætur.
Saltendur grásleppuhrogna í
fyrra voru 232. □
Halló krakkar!
LEIKHÚSSTJÓRINN á Akur-
eyri, Magnús Jónsson, hefur
beðið blaðið að geta þess, að
þrjár sýningar á barnaleikritinu
Halló krakkar verði um næstu
helgi, og hraða þurfi sýningum
vegna anna við undirbúning
næsta verkefnis. En barnaleik-
ritið hefur þegar verið sýnt átta
sinnum við ágætar undirtektir,
og taka hinir ungu áhorfendur
þátt í sýningunum af lífi og sál.
Næsta verkefni Leikfélags
Akureyrar er Jónas í hvalnum,
sem Vésteinn Lúðvíksson er að
leggja síðustu hönd á og eru
æfingar hafnar fyrir nokkru. □