Dagur


Dagur - 20.03.1974, Qupperneq 8

Dagur - 20.03.1974, Qupperneq 8
Baguk Akureyri, miðvikudaginn 20. marz 1974 Silfurfingur- bjargir. Fermingar- gjafir, mikiö úrval. VERKS SMÁTT & STÓRT FYRIR rúmri viku var undir- ritaður samningur Akureyrar- kaupstaðar og ríkisins annars vegar og Gísla Sigurðssonar hins vegar, fyrsti verksamning- urinn við nýja sjúkrahúsið og undirritaði Stefán Revkjalín samninginn fyrir bæjarins hönd. En nýja sjúkrahúsið er sameign ríkis og bæjar, þar sem hlutur ríkisins er 85 hlutir á móti 15 hlutum bæjarins. Verksamningurinn var um útgröft fyrir nýju sjúkrahús- bygginguna, fyrsta áfanga, og hljóðaði upp á rúmar 4.6 millj- ónir. í þetta verk bárust þrjú tilboð frá Akureyri og eitt frá Reykjavík. Hæsta tilboðið var um 7.6 milljónir, en tilboð Gísla Sigurðssonar á Akureyri var lægst eða rúmar 4.6 milljónir króna. Verðtilboð það, er hér um ræðir, var að grafa út um 23 þúsund rúmmetra jarðvegs. Á verkinu að vera lokið fyrir 10. júní og er þá vonast til, að þá verði unnt að hefja bygging- arframkvæmdir, sem einnig verða boðnar út í allstórum einingum, stig af stigi. Öll verður þessi bygging 78 þús. rúmmetrar eða fimm sinn- um stærri en núverandi sjúkra- hús á Akureyri. í ár eru 40 milljónir króna til nýbyggingar þessarar, 30 frá ríkinu og 10 frá Akureyrarkaupstað, sem nú hefur ætlað sér stærri hlut við upphaf framkvæmda en tilskilið er, samkvæmt hinum nýju lög- um og áður sagði um skipting- una milli ríkis og bæjar. All- miklum upphæðum hefur verið varið til teikninga og hönnunar fyrir margskonar undirbúning framkvæmdanna. Byggingarnefndin: Gauti Arn þórsson, Hreinn Óskarsson, Jakob Frímannsson, Jón G. Sólnes, Stefán Reykjalín, for- maður, Steián Þórarinsson. BÆJAR STJORNARFULL- TRÚAR í Húsavíkurkaupstað eru níu. Framsóknarflokkurinn hefur tvo fulltrúa, Finn Krist- jánsson og Guðmund Bjarna- son, Alþýðuflokkurinn hefur einnig tvo, þá Arnljót Sigurjóns son og Einar Friðrik Jóhannes- son. Sjálfstæðisflokkurinn hefur einn bæjarfulltrúa, Jón Ármann Árnason. Sjötta fulltrúann hlaut H-listinn, Ásgeir Kristjánsson, en þrjá fulltrúa hlaut I-listinn, listi sameinaðra kjósenda er frjálslyndir báru fram og ýmsir aðrir, vegna læknadeilunnar. Fulltrúar hans eru: Jóhann Her mannsson, Jóhanna Aðalsteins- dóttir og Guðmundur Þorgríms- son,- og mynda þeir minnihluta bæjarstjórnar, en hinir fulltrú- arnir, sex að tölu, hinn ráðandi meirihluta. Bæjarstjórinn er Haukur Harðarson. Framkvæmdir eru miklar á Húsavík, svo sem oft kemur fram í fréttum þaðan, og fólk- inu fjölgar. □ ÁL OG MEIRA ÁL „Viðreisnar“-stjórnin hafði mikla trú á stórvirkjunum til þess a'ð selja raforkuna erlend- um fyrirtækjum, einkum til ál- bræðslu. Þetta gekk svo langt, að álbræðslur urðu einskonar kjörorð íhaldsins. Það samdi um sölu í þessu skyni á lielm- ingi raforkunnar í landinu til langs tíma fyrir lítinn pening og lét sig dreyma um tuttugu ál- bræðslur. Ihaldið í „viðreisnar“- stjórninni hafði hins vegar litla trú á fiskveiðum og landbúnaði, taldi þá atvinnuvegi naumast við hæfi í nútímaþjóðfélagi, sem undirstöðuatvinnuvegi! Stór- virkjanir syðra voru m.a. byggð ar á hugsjóninni um orkusölu handa álfyrirtækjum. MARGT GLEYMDIST Það var margt, sem gleymdist þegar mönnum var ekki sjálf- rátt og hugsuðu í áli. Landbún- aðurinn var sveltur, togaraflot- inn grotnaði niður, fiskvinnslu- stöðvarnar svöruðu ekki kalli erlendra kaupenda afurðanna, og í landhelgismálinu heyrðist hvorki hósti eða stuna, nema að Lisii Framsóknarflokksins við bæjarstjórnarkosningarnar á Húsavík 1. Haraldur Gíslason, mjólkurbússtjóri. 2. Guðmundur Bjarnason, bankafulltrúi. 3. Egill Olgeirsson, rafmagnstæknifr. 4. Jónína Hallgrímsdóttir, húsfrú. 5. Tryggvi Finnsson, f ramkvæmdast jóri. 6. Ingimundur Jónsson, kennari. 7. Aðalsteinn Jónasson, húsasmiður. 8. Haukur Haraldsson, mjólkurfræðingur. 9. Bergþóra Bjarnadóttir, húsfrú. 10. Sigurður V. Olgeirsson, skipstjóri. 11. Stefán P. Sigurjónsson, bifreiðastjóri. 12. Árni Björn Þorvaldsson, bifvélavirki. 13. Þorsteinn Jónsson, yfirgjaldkeri. 14. Kristján Benediktsson, bifreiðastjóri. 15. Kári Pálsson, verkamaður. 16. Stefán Hjaltason, skrifstofumaður. 17. Jóhann Skaptason, sýslumáður. 18. Finnur Kristjánsson, kaupfélagsstjóri. Haraldur Gíslason. Guðmundur Bjarnason. Egill Olgeirsson. Jónína Hallgrímsdóttir. Tryggvi Finnsson. Ingimundur Jónsson. útlendir menn myndu veiða fisk inn við ísland og því bæri að snúa sér að verksmiðjuvinnu lijá erlendum mönnum og selja þeim ódýra raforku. Þá var íhaldsstjórn. NORÐURLAND GLEYMDIST Það var virkjað syðra og það var virkjað fyrir vestan, og það var hafin virkjun við Lagarfoss. En Norðurland varð útundan og engin virkjun gerð þar undir „viðreisn". Norðurland allt þarf að sameinast um virkjunarmál- in. Nú þegar þarf að hefjast handa um Kröfluvirkjun eða aðra hagstæða virkjun, sama hvar hún er á Norðurlandi, einnig að samtengja virkjanir, bæði á Norðurlandi og milli landshluta. VINNAN GÖFGAR MANNINN Sjaldan hefur verið meira unnið hér á landi en nú, síðan hin alhliða uppbygging um land allt hófst, með núverandi stjómar- stefnu og góðæri í framleiðslu og erlendum mörkuðum. Vinn- an göfgar manninn, segir gamalt spakmæli og samkvæmt því ætti manngöfginni ekki að hafa hnignað að undanfömu. En margir hafa unnið svo mikið, að með nokkrum rétti má nefna það vinnuþrælkun. Stafar það bæði af liinni miklu vinnuþörf atvinnuveganna og eins hinu, að hinar miklu lífsþægindakröf- ur okkar tíma leggja lióflitlar (Framhald á blaðsíðu 4) Aðalsteinn Jónasson. Haukur Haraldsson. Bcrgþóra Bjarnauóttir. ian er farin að veiðas! TALIÐ ER, að á fimmta hundr- að bátar, flestir á Norðurlandi, hafi stundað glúsleppuveiði í fyrravetur og fram á vor. Hrogn in voru þá enn í háu verði og þótt lítið hafi um verð grásleppu hrogna heyrzt í ár, eru fjölda margir sjómenn að búa sig und- ir þessar veiðar og jafnvel farn- ir að leggja net sín. Samkvæmt fyrstu fregnum, er grásleppan vart gengin á hin venjulegu mið ennþá og hefur lítið veiðzt. Hins vegar veiðist rauðmagi, enda gengur hann fyrr. En sjómenn sækjast lítt eftir honum, vegna þess að hann þykir ekki nægi- lega verðmætur. Saltendur grásleppuhrogna í fyrra voru 232. □ Halló krakkar! LEIKHÚSSTJÓRINN á Akur- eyri, Magnús Jónsson, hefur beðið blaðið að geta þess, að þrjár sýningar á barnaleikritinu Halló krakkar verði um næstu helgi, og hraða þurfi sýningum vegna anna við undirbúning næsta verkefnis. En barnaleik- ritið hefur þegar verið sýnt átta sinnum við ágætar undirtektir, og taka hinir ungu áhorfendur þátt í sýningunum af lífi og sál. Næsta verkefni Leikfélags Akureyrar er Jónas í hvalnum, sem Vésteinn Lúðvíksson er að leggja síðustu hönd á og eru æfingar hafnar fyrir nokkru. □

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.